Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2016, Blaðsíða 21

Ægir - 01.08.2016, Blaðsíða 21
21 þegar sýnendur vilji ræða við viðskiptavini. Aðkoma sé einnig góð að húsinu fyrir bæði sýn- endur með sínar vörur, sem og gesti. „Það var mikill fjölbreytileiki á sýningunni. Þarna voru stór fyrirtæki sem þjóna sjávarút- veginum með mjög fjölþættar lausnir og líka einstaklingar í litlum fyrirtækjum með fram- sæknar lausnir, tæki og þjón- ustu. Undirbúningur var mikill en þetta hefði ekki verið hægt nema með frábæru samstarfi við fagaðila. Þar vil ég sérstak- lega nefna IcelandTravel, At- hygli og Sýningarkerfi,“ segir Ólafur Þegar byrjað að bóka á næstu sýningu Í ljósi hinna afar jákvæðu við- bragða sýnenda og gesta hefur verið ákveðið að halda næstu sjávarútvegssýningu eftir þrjú ár í Höllinni. „Við gerðum skoð- anakönnun meðal sýnenda þar sem yfirgnæfandi meirihluti taldi að hæfilegt væri að hafa slíka sjávarútvegssýningu á þriggja ára fresti. Því höfum við ákveðið að sýningin verði hald- in dagana 25.-27. september 2019. Og það er ánægjulegt að segja frá því að fyrirtæki eru þegar byrjuð að panta bása á sýninguna 2019 og sum vilja stækka sýna bása. Þá hafa líka borist margar fyrirspurnir frá fyrirtækjum sem voru ekki á sýningunni í ár en horfa björt- um augum til þátttöku eftir þrjú ár.“ Tækjabúnaður, nýjungar, þjónusta. Allt þetta og margt fleira mátti sjá og fræðast um á gólfi Laugardalshallar sýningardagana þrjá. Ný sýning er boðuð eftir þrjú ár. Um 12000 gestir sóttu sýninguna.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.