Ægir - 01.08.2016, Side 25
25
voru upphaflega í þessu sem
aukavinnu. Sigurður á sjó og
Anton í annarri vinnu en síðan
hefur starfseminni vaxið fiskur
um hrygg og er núna nú nánast
full vinna hjá þeim þremur. Á
tímabili fengu þau fólk sér til
aðstoðar þegar mikið var að
gera við steikingar og afköstin
lítil. Nú eru þau hins vegar kom-
in með tvær öflugar pönnur og
afköstin allt önnur og steikt
margfalt meira í einu en áður.
„Við byrjuðum selja Ásbirni
Ólafssyni, heildverslun vörurnar
okkar. Þeir byrjuðu á að taka 50
kassa á mánuði, í dag eru þeir
að taka 600 kassa eða tæp þrjú
tonn af forelduðum frystum
vörum frá okkur, fiskiklatta,
fiskibollur og grænmetisbollur.
Auk þess seljum við ýsu í raspi,
nætursaltaðan fisk, þorsk-
hnakka og plokkfisk. Við kaup-
um allan fisk í fiskréttina frá
Stakkavík í Grindavík og Ísfiski í
Kópavogi.
Ásbjörn Ólafsson selur vör-
urnar frá Víking sjávarfangi um
allt land. Mikið fer í mötuneyti
og skóla, til dæmis leikskóla á
Akureyri og Sjúkrahúsið á Akur-
eyri kaupir mikið. Við erum
sömuleiðis með mörg fyrirtæki
sem við erum að selja beint. Við
seljum líka í verslunarkeðjuna
Iceland og í Seljakjör í Breið-
holti. Sú verslun hefur verið
með okkur frá byrjun og selur
mikið af okkar vörum, græn-
metisbollum, fiskibollum og
fiskiklöttum, allt ferskt í borðinu
hjá sér.“
Barningur
Þetta var barningur til að byrja
með og „er barningur enn í
dag,“ segir Sigurður. Umhverfið
er þannig að alltaf eru að koma
nýir keppinautar inn á markað-
inn sem, sumir hverjir eru að
bjóða mjög lágt verð til að byrja
með og það skekkir samkeppn-
isstöðuna. Svo er innbyrðis
samkeppni líka mikil og sem
dæmi nefna þeir feðgar Sigurð-
ur og Anton Fiskiskónginn sem
hefur auglýst í hálft ár „tveir fyr-
ir einn“ af nýsteiktum fiskiboll-
um. Fyrstu tvö árin var fyrirtæk-
ið bara í fiskibollum og það var
ekki að ganga, enda báðir í
annarri vinnu. Svo komu fiski-
klattarnir og þá jókst salan og
fyrir hver tíu kíló af bollum fóru
um 100 af fiskiklöttum. Síðan
komu grænmetisbollurnar og
umsvifum jukust jafnt og þétt.
„Við erum ekki með nein rot-
varnarefni í okkar vörum. Þær
eru eins ferskar og hægt er og
án mjólkur, eggja og hveitis.
Þannig svörum við eftirspurn
markaðarins, sem vill holla og
góða vöru og neytendur í dag
eru meðvitaðir um hvað þeir
eru að láta ofan í sig og lesa
innihaldslýsingar. Sem enginn
gerði hér áður fyrr. Allt okkar
hráefni er vottað og viðurkennt.
Við finnum það á viðmóti við-
skiptavina okkar að þeim þykir
varan góð og okkur gengur vel
að kynna hana.“
Þeir byrjuðu með fiskboll-
urnar og fleira við eldhúsborðið
heima, „þar til konan rak okkur
út. Við fórum þá í Mölvík hjá
Stakkavík, en hér við Staðar-
sundið erum við búnir að vera í
rúm fjögur ár. Þetta húsnæði
hentar okkur vel þó það sé ekki
nema rúmir 100 fermetrar. Við
erum að selja allt frosið frá okk-
ur og það munar miklu og ein-
faldar reksturinn. Við vorum áð-
ur í fersku líka og seldum í
verslanir og mötuneyti en það
gekk einfaldlega ekki upp fyrir
ekki stærri rekstur. Þetta var
orðin vinna um nánast allar
helgar, alltaf verið í vinnunni og
aldrei frí.“
Fiskurinnminn.is
Anton Þór er svo með fleiri járn
í eldinum. „Við erum að þróa
netsíðu fyrir fisk, sem við mun-
um opna innan skamms. Hún
mun heita fiskurinnminn.is Það
er allt að færast inn í netheim-
ana og við sjáum ekki mikið af
fólki undir þrítugu eða á mín-
um aldri fara út í fiskbúð til að
kaupa fisk í matinn. Fólk hefur
kannski líka ekki mikla þekk-
ingu til þess að elda fisk. Við
munum því bjóða fisk í neyt-
endapakkningum fyrir heimilin.
Harðfisk, gellur, siginn fisk, fiski-
bollur, fiskiklatta og stefnum á
að vera með frosinn og ferskan
fisk og alls konar hátíðatilbrigði
þegar það á við eins og hrogn
og lifur á vetrarvertíðinni.
Við ætlum okkur að reyna að
þróa okkur áfram í þessu. Fólk
fer þá inn á síðuna og pantar
sér í körfu og greiðir annað
hvort með millifærslu eða korti.
Við munum þá keyra vörurnar
út á Reykjanesi, eitthvað á Suð-
urlandi og í Reykjavík. Hvað
landsbyggðina að öðru leyti
varðar nýtum við okkur vænt-
anlega flutningaþjónustu Flytj-
anda eða Samskipa. Þetta ætti
að auka umsvifin hjá okkur. Við
erum komnir á það stig þegar
að sjá góða aukningu. Í fyrra var
söluaukningin 46% á vörum hjá
okkur bara hjá Ásbirni Ólafssyni
og svipað árið á undan. Við
sjáum svo góða möguleika í
netversluninni,“ segir Anton
Þór.
Anton segir að það geti ver-
ið mjög erfitt að komast með
vörur inn í verslanir. Mönnum
sé þá oft stillt upp við vegg af
innkaupastjórum, sem ekki vilja
vöruna nema á verði sem þeir
tiltaka, jafnvel þótt varan sé
betri og hreinni en sú vara sem
þeir séu með fyrir.
Öflugar og góðar steikarpönnur eru nauðsynlegar til að ná góðum af-
köstum.
Allt á fullu við steikinguna. Anton Þór, Sigurður Garðar og Anna
Hanna.