Ægir - 01.08.2016, Qupperneq 39
39
AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti
ís lensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni ís lensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn
aug lýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að mark miði. Skilafrestur umsókna er til kl.
20, 1. des ember 2016. Umsóknum ber að skila rafrænt á net fangið avs@byggdastofnun.is og
bréflega á póst fangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávar útvegi, Ártorgi 1, 550
Sauðárkrókur. Vakin er at hygli á því að umsóknum þarf bæði að skila raf rænt og bréflega.
Styrkir sem sjóðurinn veitir
falla undir tvo flokka:
a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þró unar-
verk efna, sem falla að markmiðum sjóðs ins. Veittur
er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera
grein fyrir verk þáttum og fjár mögnun. Hver styrkur
getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verk-
efna (fram haldsverkefna), sem unnin eru á lengri
tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um
styrk á hverju ári. Hafi verk efnið áður verið styrkt,
þarf að gera grein fyrir fram vindu þess áður en
styrk umsókn er afgreidd.
b. Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða
til að undir búa stærri verkefni á sviði rann sókna og/
eða þró unar. Styrkupphæð er allt að einni milljón
króna og skal verk efnið unnið innan tólf mánaða.
Um alla styrki gildir að framlag
sjóðsins má ekki fara fram
yfir 50% af heildarkostnaði og
sjóðurinn tekur ekki þátt í að
styrkja fjárfestingar
Nánari upplýsingar og
umsóknarblað er að finna á
heimasíðu sjóðsins www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Ártorgi 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 455 5400 ∙ www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávar útvegi
starf ar á vegum Atvinnu vega- og
nýsköp unar ráðu neytis
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi
auglýsir eftir umsóknum