Morgunblaðið - 12.08.2016, Side 10

Morgunblaðið - 12.08.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016 SALA ÚTSAL A ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚT ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA Ú ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA Ú lÍs en ku ALPARNIR s Faxafeni 8, 108 Reykjavík • sími 534 2727 • netfang alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is allt að 70% afsl. er hafin EKKI MISSA AF ÞESSU, FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ! TS L N LA Ú TSALA ÚTSAL A T Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Ríkissjóður hefur fest kaup á sum- arhúsi Einars Jónssonar mynd- höggvara að Galtafelli í Hruna- mannahreppi, á æskuslóðum Einars. Sumarhúsið, sem var frið- lýst árið 2014, verður hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands sem hefur umsjón með viðhaldi þess. Kaupverðið var 13 milljónir króna, og var það samþykkt með breytingum á frumvarpi til fjár- laga 2016. Áætlaður viðhaldskostn- aður húsa og skrúðgarðs er 33 milljónir króna. Í byrjun næsta mánaðar fær Þjóðminjasafnið sumarhúsið afhent en fyrrverandi eigendur eru hjónin Bjarni Stef- ánsson, ættingi Einars, og Birna Björgvinsdóttir. Þetta er í fyrsta skipti í rúman áratug sem nýtt hús bætist í húsasafn Þjóðminjasafns- ins sem telur um 60 hús sem eru á 40 stöðum um allt land. Tvö frá Einari og eitt nýrra Sumarhús Einars á Galtafelli eru tvö talsins, annað kallaði hann Slotið og er 20 fm að stærð og byggt árið 1923 og er hið eiginlega sumarhús. Árið 1931 byggði hann Kotið sem er 14 fm. Í því var eld- hús, svefnloft og lítið herbergi. Með í kaupunum fylgir einnig sumarhús Bjarna og Birnu sem reist var á níunda áratugnum. Stefnt er að því að sýna almenn- ingi sumarhús Einars en ekki ligg- ur fyrir nákvæmlega hvenær af því verður. Fyrirhugað er að hús Bjarna og Birnu gegni hlutverki þjónustu- og sýningarhúss sem getur tekið á móti ferðamönnum. Stefnt er að því að sýning á sumarhúsinu verði unnin í sam- vinnu við Listasafn Einars Jóns- sonar í Hnitbjörgum í Reykjavík, þar sem líf og list Einars yrðu gerð skil. „Okkur þykir sumarhúsið vera merkileg heimild um líf hans og starf sem listamanns,“ segir Guð- mundur Lúther Hafsteinsson, sviðsstjóri húsasafns Þjóðminja- safns Íslands. Hann bendir á að það hafi verið frekar óvenjulegt á þessum tíma að vera með sumar- hús og einnig skrúðgarð. Í garð- inum eru m.a. torfveggir og stígar og þar stendur enn minnismerki sem Einar reisti foreldrum sínum sem bjuggu á Galtafelli. Töluverðar viðgerðir þarf að fara í áður en hægt verður að taka á móti ferðamönnum á Galtafelli. Kotið, þar sem eldhúsið er, þarfn- ast gagngerrar viðgerðar. Nánast ekkert hefur verið gert við það frá því það var reist. „Það getur verið kostur því þá sést upprunaleg gerð og uppbygging hússins betur,“ segir Guðmundur Lúther. Einnig þarf að gera við Slotið að utan, endurgera skrúðgarðinn og innrétta nýjasta sumarhúsið svo hægt verði að taka á móti gestum. „Einar Jónsson var greinilega mjög sparsamur maður. Þegar hann byggði Kotið notaði hann mikið af kassafjölum, sem voru umbúðir utan af listaverkum hans sem hann flutti heim, til að klæða húsið að innan. Það var ekki bruðl- að með neitt. Við getum lært af þessu nýtni og nægjusemi sem skín alls staðar í gegn. Allt plássið var vel nýtt og gaman að sjá hvernig hugsað var vel í stærðum – hvernig þau gjörnýta hvern fer- metra í húsinu,“ segir Guðmundur Lúther. Einar Jónsson (1874-1954) var kvæntur hinni dönsku Önnu Jörg- ensen (1885-1975). Galtafell Sumarhús Einars Jónssonar myndhöggvara byggt árið 1923. Safn í sumarhúsi myndhöggvarans  Ríkissjóður keypti sumarhús í Galtafelli á 13 milljónir Lóð Þrjú hús eru á lóðinni en rauðu húsin sem sjást reisti Einar. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að bæjarráð Kópa- vogs hafi í gær beint því til skóla- nefndar Kópa- vogs að skoða kostnað foreldra vegna náms- gagna í grunn- skólum bæjarins. „Á bæjarráðs- fundi í morgun var samþykkt bókun þar sem því er beint til skólanefndar að skoða kostnað foreldra vegna námsgagna í grunn- skólum bæjarins.“ sagði Ármann í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar hann var spurður hvernig Kópavogsbær hygðist bregðast við áskorun Velferðarvaktarinnar um að kostnaður foreldra grunnskóla- barna vegna ritfangakaupa yrði lágmarkaður eða felldur niður með öllu. Í bókun bæjarráðs segir orðrétt: „Bæjarráð hvetur skólanefnd jafn- framt til að ýta undir að kostnað- inum verði haldið í lágmarki. Þá bendir bæjarráð á að spjaldtölvu- væðing grunnskólanna á að draga úr kostnaði vegna innkaupa for- eldra á námsgögnum.“ „Hér í Kópavogi er mikill munur á kostnaði foreldra á milli skóla, og því finnst okkur eðlilegt að sá skóli sem er að gera þetta á sem hag- kvæmastan hátt, verði fyrirmynd hinna skólanna,“ sagði Ármann. „Við bendum líka á það að skóla- stjórnendur verða, þegar þeir út- búa innkaupalistana, að taka tillit til þess að grunnskólanemendur í Kópavogi í fimmta til tíunda bekk hafa fengið spjaldtölvur og það er alveg klárt að það á að draga úr kostnaði við ritfangakaup,“ sagði Ármann. Tölvunotkun minnkar kostnað  Mikill munur milli skóla í Kópavogi á kostnaði foreldra við ritfangakaup Ármann Kr. Ólafsson Í Álfhólsskóla í Kópavogi er kostn- aður foreldra vegna innkaupalista skólabarnanna mjög lítill, eða 4 þúsund krónur fyrir hvert barn. Á heimasíðu skólans kemur eftirfar- andi fram: „Fyrir skólaárið 2016- 2017 verða ekki gefnir út sérstakir innkaupalistar fyrir nemendur í 1.-7. bekk Álfhólsskóla. Skólinn mun sjá um inkaup á öllum al- mennum skólavörum fyrir nem- endur í þessum bekkjum í sam- vinnu við foreldrafélagið gegn vægu gjaldi sem foreldrar greiða. Foreldrar þurfa því fyrst og fremst að huga að fatnaði fyrir íþróttir/ sund og skólatösku. Innkaup fyrir nemendur í 8.-10. bekk eru jafn- framt mun minni en undanfarin ár og mikil áhersla á að nýta það sem til er frá fyrri árum. Þessar breytingar á innkaupum koma til bæði vegna innleiðingar á spjaldtölvum sem og þess að auka nýtni og draga úr sóun í samræmi við áherslur í umhverfismálum.“ Mjög lítill kostnaður foreldra ÁLFHÓLSSKÓLI Í KÓPAVOGI Álfhólsskóli annast innkaup ritfanga. Vopnaður maður réðst á sérsveit- armann í íbúðar- húsi í Reykjavík á þriðjudagskvöld. Héraðssaksókn- ari er með málið til rannsóknar þar sem um brot gegn valdstjórn- inni er að ræða. Ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir mannin- um. Samkvæmt heimildum mbl.is barst lögreglu á höfuðborgarsvæð- inu beiðni um aðstoð þetta kvöld. Sérsveitarmaður á vakt var næstur húsinu af þeim lögreglumönnum sem voru við störf þetta kvöld. Þegar hann kom á vettvang réðst maður vopnaður hnífi á hann og kom til átaka á milli þeirra. Ólafur Þór Hauksson héraðssak- sóknari staðfesti í samtali í gær að hann hefði til rannsóknar brot gegn valdstjórninni. Rannsókn málsins hófst í fyrradag. Veittist að lögreglu  Ráðist á sérsveitarmann með hnífi Lögregla Málið er til skoðunar. Konunglega breska lyflækna- félagið (Royal College of Physici- ans í Bretlandi) hefur vottað sér- nám í lyflækningum á Íslandi. Þessi áfangi er liður í eflingu lyf- lækningasviðs Landspítala sem ráðist var í árið 2013 þar sem framhaldsnám lækna var m.a. sett í forgang að því er fram kemur í frétt velferðarráðuneytisins. Sendinefnd Joint Royal Colle- ges of Physicians Training Board í Bretlandi kom til landsins til að taka út fyrri hluta sérnámsins í lyflækningum og jafnframt fylgd- ust þeir með að fyrsta árlega stöðumat námslækna færi rétt fram. Skv. upplýsingum ráðuneyt- isins er í umsögn þeirra sér- staklega vikið að því hve mikil vinna hefur verið lögð í end- urskipulagningu sérnámsins og að á tiltölulega stuttum tíma hafi tekist að þróa sérnámið þannig að vottun hafi náðst. „Sjúkrahúsið á Akureyri er í samvinnu við Landspítala um framhaldsnámið og hafa því námslæknar tækifæri til að sinna námi sínu á báðum sjúkrahús- unum. Boðið er upp á fyrri hluta sérnáms á Íslandi sem taka mun þrjú ár, en frekara sérnám verður erlendis.“ Mikilvæg vottun sérnáms í lyflækningum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.