Morgunblaðið - 12.08.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Óskum eftir bílum á skrá,
mikil eftirspurn og góð sala!
Árni Ágúst
Brynjólfsson
Indriði
Jónsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Á þessum slóðum er mun örari
rýrnun en þekkst hefur síðan mæl-
ingar á jöklum landsins hófust,“ seg-
ir Oddur Sigurðsson, jöklafræðingur
hjá Veðurstofu
Íslands. Austur
við Sólheimajökul
í Mýrdal hafa
verið gerðar
mælingar árlega
og á næstunni
verður staðan
fyrir þetta ár tek-
in út. Atburðarás
síðustu ára er þó
um margt at-
hygliverð, því frá aldamótum hefur
jökullinn gengið til baka um nærri
einn kílómetra.
Samkvæmt
loftslagsbreytingum
Þróun Sólheimajökuls, hop hans
og bráðnun jökulhellunnar, hefur
verið samkvæmt hitastigi og lofts-
lagsbreytingum á undanförnum ár-
um. Jökullinn styttist um 973 metra
frá árinu 2000-2015 eða um 65 metra
á ári að jafnaði. Ætla má að eitthvað
bætist við undanhaldið í ár sem þá
verður komið í meira en einn kíló-
metra á sextán árum. – Þá hafa um
10 metrar á ári hverju bráðnað ofan
af kápu jöklsins niður við sporð, en
það er þó ekki mælt nákvæmlega.
Stóra spurningin viðvíkjandi Sól-
heimajökli nú er sú hvort fram séu
komin áhrif af kuldatíð sumarið
2015. „Árið í fyrra er eina tímabilið
það sem af er þessari öld sem jöklar
landsins hafa bætt við sig, en ná-
kvæmari mælingar ættu að svara
frekari spurningum í því sambandi.
Sumarhiti að undanförnu gefur þó
tilefni til að ætla að bráðnun í ár sé
nokkuð mikil. Annars eru óvissu-
þættirnir margir. Nú hefur til dæm-
is myndast lón framan við jökul-
sporðinn og í það falla stórir jakar.
Slíkt köllum við kelfingu. Jakarnir
sem lónið brýtur af jöklinum og
bráðna utan hans eru umfram þann
toll sem loftslagið tekur,“ útskýrir
Oddur.
Sólheimajökull er skriðjökull sem
gengur suður úr Mýrdalsjökli og frá
honum fellur Jökulsá á Sólheima-
sandi, en þar eru mörk Rangárvalla-
og Vestur-Skaftafellssýslna. Góð og
greið leið er að jöklinum sem er orð-
inn vinsæll ferðamannastaður. Einn-
ig má nefna að í tilefni af Arctic
Circle ráðstefnunni á Íslandi síðast-
liðið haust fóru Ólafur Ragnar
Grímsson, þáverandi forseti Íslands,
og Francois Hollande, forseti
Frakklands, austur að Sólheimajökli
með þyrlu frá Landhelgisgæslunni
til að skoða aðstæður en þær þykja
sérstaklega gott dæmi um breyt-
ingar á landinu vegna hlýnunar and-
rúmsloftsins en þeirra sér víða stað í
veröldinni.
Einn kílómetri er bráð-
inn burt frá aldamótum
Breytingar við Sólheimajökul Kápa jökuls þynnist ört
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sólheimajökull Fólk við sporð jökulsins sem styttist ört. Lónið sem myndaðist fyrir fáum árum breytist stöðugt.
Oddur Sigurðsson
Líðandi sumar hefur verið sólríkt en það og skýjafar ræður miklu um
bráðnun jökla. Hitastig er sömuleiðis áhrifaþáttur og þá verður að tiltaka
að hlýrra hefur verið á landinu í sumar, það sem af er, en í meðalári.
Tími jöklabráðnunar nær yfirleitt langt fram í september og því getur
margt gerst enn. Lengd sumarsins eða hvenær haustar með frosti og nýj-
um snjó á jöklunum er líka ráðandi um bráðnun. Í fyrra fór leysingin á
jöklunum seint af stað en varði svo út allan septembermánuð. Sum ár fer
hins vegar að kólna í strax ágústlok. Haldist tíð mild áfram má gera ráð
fyrir að sporður Sólheimajökuls haldi áfram að styttast og þynnast á lík-
an hátt og verið hefur undanfarin ár.
Bráðnun fram í september
SÓL, SKÝJAFAR OG HITI RÁÐA ÞRÓUNINNI
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Launamenn fá greidda ýmsa styrki
sem færa þarf inn á skattframtöl.
Ef kostnaður er færður á móti þarf
launamaðurinn ekki að greiða skatt
af upphæðinni. Páll Kolbeins, hag-
fræðingur hjá embætti Ríkisskatt-
stjóra, fer yfir álagningu einstak-
linga árið 2016 í nýútkominni
Tíund, blaði embættisins.
Fram kemur í grein Páls að árið
2015 fengu 25.468 manns rúma 2,5
milljarða í styrki vegna náms,
rannsókna og vísindastarfa. Hér er
um að ræða ýmiskonar endur-
menntunar- og starfsmenntunar-
styrki sem voru nú 150 milljónum
hærri en árið 2014. Á móti styrkj-
unum var dreginn frá kostnaður
upp á tæpa 1,6 milljarða þannig að
955 milljónir voru skattlagðar, sem
var um 47 milljónum meira en fyrir
ári.
Styrkjum fjölgar ört
Þessir styrkir hafa aukist nokk-
uð á undanförnum árum. Árið 2010
fengu 16.414 manns rúma 1,6 millj-
arða í styrki til náms, rannsókna-
og vísindastarfa en þá höfðu slíkir
styrkir minnkað nokkuð í kjölfar
hrunsins. Síðan þá hafa styrkirnir
aukist um 57,7%. Styrkir að teknu
tilliti til frádráttar sem má færa á
móti þeim hafa hækkað um 64,7%
frá árinu 2010.
Ökutækjastyrkur er greiðsla frá
vinnuveitanda til starfsmanna sem
nota sína eigin bifreið í þágu vinnu-
veitandans. Hér er ýmist um að
ræða fasta greiðslu eða greiðslu
fyrir hvern ekinn kílómetra sam-
kvæmt akstursbók eða aksturs-
skýrslu. Starfsmenn mega draga
kostnað frá ökutækjastyrk ef bif-
reið launþega hefur sannanlega
verið notuð í þágu vinnuveitanda.
Ferðir til og frá vinnu teljast hins
vegar ekki til slíkra nota. Ef kostn-
aðurinn er lægri en styrkurinn er
mismunurinn skattlagður.
Lægri greiðslur
Vinnuveitendur greiddu 10,6
milljarða í ökutækjastyrk árið 2015
sem var 97 milljónum minna en ár-
ið áður. Frá ökutækjastyrk voru
dregnir rúmir 7,4 milljarðar, sem
var 113 milljónum meira en árið áð-
ur. Skattskyldur ökutækjastyrkur
minnkaði því um 209 milljónir.
Alls töldu 38.558 einstaklingar
fram ökutækjastyrk, sem var 743
fleiri en í fyrra en 33.532 drógu frá
kostnað á móti styrknum sem var
1.185 fleiri en á framtali í fyrra.
Vinnuveitendur geta ýmist greitt
kostnað af ferðum starfsmanna
gegn framvísun reiknings eða
greitt þeim dagpeninga til að
standa straum af ferðakostnaði á
vegum vinnuveitanda. Dagpening-
ar hafa aukist nokkuð á undanförn-
um árum allt frá árinu 2009 en árið
2014 minnkuðu þeir lítillega.
Þeir jukust aftur árið 2015 en þá
greiddu vinnuveitendur launa-
mönnum 12,1 milljarð í dagpeninga
sem var einum milljarði meira en
árið áður. Dagpeningar jukust um
8,7% á milli ára og nú, samkvæmt
framtölum 2016, fengu 26.346
framteljendur greidda dagpeninga,
þ.e. 788 fleiri en fyrir ári.
Kostnaður færður á móti
Á móti dagpeningum má færa
ferða- og dvalarkostnað sem laun-
þegi hefur sannanlega greitt vegna
ferða á vegum launagreiðanda.
Frádráttur er færður á móti bróð-
urparti greiddra dagpeninga og því
er aðeins hluti dagpeninganna
skattlagður sem hverjar aðrar
launatekjur, segir Páll. Á framtali
2016 færðu 26.227 framteljendur
samtals rúma 11,8 milljarða í frá-
drátt á móti dagpeningum og því
voru 303 milljónir skattlagðar sem
laun sem var svipað og fyrir ári.
Margs konar styrkir og bætur
eru undanþegnar skatti, s.s. barna-
bætur, ýmsar greiðslur almanna-
trygginga, greiðslur úr sjúkrasjóð-
um, happdrættisvinningar og
heilsustyrkir, svo eitthvað sé nefnt.
2,5 milljarðar
í námsstyrki
38.558 einstaklingar fengu greidda
10,6 milljarða í ökutækjastyrk í fyrra
12,1 milljarður greiddur í dagpeninga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílar Tugþúsundir launþega fá
styrki til að reka ökutæki sín.