Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016 Ryan Lochte, sem virðist vera höfuðpaurinn í málinu, er langþekktastur fjórmenn- inganna, eða eigum við að segja „fjörmenninganna“? Hann er 32 ára gamall og býr að tólf ólympíuverðlaunum, þar af sex gullverðlaunum, sem þýðir að aðeins ofur- mennið Michael Phelps hefur gert betur á leikunum gegn- um tíðina. Lochte hefur verið duglegur að koma fram í fjölmiðlum undanfarin ár, ekki síst sjón- varpi, og hef- ur á sér ákveðinn glaumgosa- stimpil. Á sunnudaginn var upplýstimóðir Ryans Lochte, semkeppti fyrir hönd Banda- ríkjanna í sundi á Ólympíuleikunum í Ríó, að sonur hennar hefði verið fórnarlamb vopnaðs ráns í borginni eftir að hann lauk keppni. Hvorki al- þjóðaólympíunefndin né bandaríska ólympíunefndin könnuðust við málið en bandaríska pressan fór eigi að síður á stúfana og staðfesti Lochte þetta sjálfur í tveimur viðtölum í vik- unni. Bófar í dulargervi lögreglu- manna hefðu rænt hann og þrjá fé- laga hans úr sundlandsliðinu veskjunum og beint að honum byssu þegar hann neitaði að leggjast í göt- una. Þetta átti að hafa gerst að næturlagi eftir að þeir höfðu verið að skemmta sér. Lochte flaug heim til Bandaríkj- anna á þriðjudaginn en næsta vend- ing í málinu var þegar tveimur fé- lögum hans úr sundlandsliðinu, Gunnar Bentz og Jack Conger, var haldið eftir í Ríó þegar þeir hugðust snúa heim degi síðar. Voru þeir sótt- ir alla leið út í flugvél. Ástæðan var sú að lögreglan vildi yfirheyra þá vegna hins meinta ráns. Fjórði mað- urinn, James Feigen, var settur í farbann. Þegar lögregla fór að rannsaka málið kom í ljós að misræmi var í framburði fjórmenninganna, auk þess sem skanni við innganginn að ólympíuþorpinu staðfesti að þeir voru allir með veskin á sér þegar þeir sneru heim téða nótt. Hverju hafði þá verið rænt af þeim? Við nánari eftirgrennslan fundust myndir af fjórmenningunum úr ör- yggismyndavél á bensínstöð, sem vörpuðu betra ljósi á málið. Í raun höfðu fjórmenningarnir lent í útistöðum við öryggisverði á bensínstöðinni. Þeir höfðu áð á stöð- inni á leið sinni heim í ólympíuþorpið úr samkvæmi til að nota salernið. Þar mun einn þeirra hafa unnið skemmdir og fyrir vikið áttu örygg- isverðirnir sitthvað vantalað við þá. Skipuðu þeim út úr bílnum sem þeir voru í og kröfðust greiðslu vegna skemmdanna. Það kom til snarpra orðaskipta og öryggisverðirnir drógu vopn úr slíðri. Það staðfesta myndir úr öryggismyndavélinni. Málið leystist þegar sundkapparnir drógu fé úr pússi sínu og bættu bensínstöðinni tjónið. Að því búnu héldu þeir leiðar sinnar, ásamt tveimur ónafngreindum konum, sem voru í för með þeim. Allt kom þetta fram á fundi lög- reglustjórans í Ríó, Fernandos Ve- loso, með fréttamönnum síðastliðinn fimmtudag. Þar kom einnig fram að hvorki Bentz né Conger hefðu leitt lögreglu á villigötur, aðeins Lochte og Feigen. Þá segir lögregla í Ríó að tveir þeir fyrstnefndu geri Lochte ábyrgan fyrir lygunum; hann hafi verið ölvaður og illa fyrirkallaður. Svo því sé til haga haldið þá er Lochte sá eini fjórmenninganna sem hefur opinberlega haldið því fram að þeir hafi verið rændir. Óásættanleg framkoma Bandaríska ólympíunefndin hefur staðfest það sem kom fram á frétta- mannafundinum og ávítað sund- mennina fjóra. „Framkoma þessara íþrótta- manna er óásættanleg og endur- speglar ekki þau gildi sem banda- ríska ólympíuliðið og mikill þorri liðsmanna stendur fyrir,“ segir í yfirlýsingu frá nefndinni. „Við mun- um skoða málið betur og hvort það kemur til með að hafa afleiðingar fyrir téða íþróttamenn þegar við komum heim til Bandaríkjanna.“ Ekki nóg með það. „Fyrir hönd bandarísku ólympíu- nefndarinnar biðjum við gest- gjafa okkar hér í Ríó og bras- ilísku þjóðina alla velvirðingar á þessum ósköpum á móti sem ætti með réttu að snúast um það að gleðj- ast yfir afrekum.“ Bandaríska sundsambandið tók í sama streng fyrir helgi og harmaði dómgreindarbrest sinna manna. „Það eru vonbrigði að þeir hafi beint athyglinni frá framúrskarandi ár- angri bandarískra sundmanna og annarra í bandaríska liðinu á Ólymp- íuleikunum,“ sagði Chuck Weigus, formaður sundsambandsins. Enda þótt fjórmenningarnir gætu átt ákærur yfir höfði sér vildi tals- maður mótshaldara í Ríó ekki gera mikið úr atvikinu í samtali við fjöl- miðla. „Við verðum að átta okkur á því að þessir strákar voru að reyna að skemmta sér,“ sagði Mario And- rada. „Þeir komu hingað og vörðu heiður þjóðar sinnar sem best þeir gátu undir gríðarlegri pressu að undangengnum stífum æfingum í fjögur ár. Mér skilst að málið sé í rannsókn en pönkumst ekki á þess- um piltum. Stundum verður mönn- um á og þeir iðrast þess á eftir. Hvers vegna ættu þessir sundmenn að biðjast afsökunar? Þeir skemmtu sér, gerðu mistök, sem kemur fyrir bestu menn, og lífið heldur áfram.“ Fordæma „fjörmenn- ingana“ Bandaríska ólympíunefndin hefur snuprað Ryan Lochte og þrjá aðra úr sundlandsliðinu fyrir að skrökva því að þeir hafi orðið fyrir vopnuðu ráni í Ríó til að breiða yfir drykkjulæti í skjóli nætur. Jack Conger og Gunnar Bentz á flugvellinum í Ríó. Afreks- maður í lauginni AFP Ryan Lochte á blaðamannafundi í Ríó áður en næturbröltið komst í hámæli. Mér skilst að málið sé í rannsókn en pönkumst ekki á þessum piltum. Stundum verður mönnum á og þeir iðrast þess á eftir. Mario Andrada, talsmaður mótshaldara í Ríó. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is BANDARÍKIN NEWYORK Stytta af forsetaframbjóðandanum Donald Trump kviknöktum var fjarlægð af Union Square á fimmtudaginn, skömmu eftir að hópur anarkista sem kallar sig INDECLINE kom henni þar fyrir. Fór listaverkið fyrir brjóstið á ýmsum, ekki síst sú staðreynd að frambjóðandinn var án hreðja. Sams konar styttum var komið fyrir á sama tíma í San Francisco, Los Angeles, Cleveland og Seattle. SPÁNN MADRÍD Menn eru loksins bjartsýnir á að unnt verði að binda enda á sex mánaða stjórnarkreppu í landinu eftir að starfandi forsætisráðherra, Mariano Rajoy, féllst á kröfur miðjuflokksins Ciudadano og samþykkti að bera störf sín undir þingið í atkvæðagreiðslu. Með þessu ættu Spánverjar að komast hjá þriðju þing- kosningunum á aðeins einu ári. BRASILÍA RÍÓ Augu allra Keníumanna verða á Wesley Korir þegar keppendur í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum verða ræstir á sunnu- daginn. Hann er í sérlegu uppáhaldi meðal þjóðarinnar enda hefur hann barist af þunga fyrir því að draga úr örbirgð í landinu og á nú sæti á þjóðþinginu. Korir ólst sjálfur upp í sárri fátækt en hefur brotist til efna án þess þó að gleyma uppruna sínum. MEXÍKÓ MICHOACÁN Mannréttindasamtök hafa sakað lögregluna um að hafa myrt 22 á búgarði í héraðinu á síðasta ári, flutt líkin á brott og komið skotvopnum fyrir til að láta líta út fyrir að skot- bardagi hafi átt sér stað. Einn lögreglumaður á að hafa fallið í átökunum. Lögregla vísar þess- um ásökunum alfarið á bug.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.