Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Blaðsíða 20
SKOP
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016
Kristinn Pálsson teiknaði sína fyrstu skopmynd íMorgunblaðið árið 2010 og hafa myndir eftir hannbirst reglulega síðan, aðallega í Sunnudags-
blaðinu. Þá hefur hann einnig gert tvær forsíður fyrir
blaðið og eina stóra opnumynd í tilefni áramóta.
Kristinn er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum en
fluttist til Reykjavíkur í nám við Verzlunarskóla Íslands
2008. Að loknu stúdentsprófi fór hann beint í Listaháskóla
Íslands og kláraði þar BA í arkitektúr árið 2015. Sótti svo
kennslu við Háskóla Íslands í hagnýtri ritstjórn og útgáfu.
Nú er Kristinn kominn til Þrándheims í Noregi og stefnir
á að klára master í arkitektúr við Norwegian University of
Science and Technology, NTNU. Vegna þess náms hverf-
ur hann nú frá störfum hjá Morgunblaðinu.
Kristinn hóf störf eftir samkeppni sem haldin var á veg-
um Morgunblaðsins þegar blaðið skorti teiknara. Hátt í 30
tóku þátt og tveir urðu fyrir valinu, Kristinn og Helgi Sig-
urðsson. „Vegna anna óskaði ég eftir að færa mig á Sunnu-
dagsblaðið en þá tók Ívar Valgarðsson við mínum virku
dögum. Hafa mínar myndir að mestu borist lesendum um
helgar. Ég fékk boð um starf á 18 ára afmælisdaginn
minn, daginn sem ég fékk rétt til þess að kjósa fulltrúana
sem ég átti að fara gera grín að í
teikningu. Þetta vissi dómnefnd eða
ritstjórn ekki fyrir,“ segir Kristinn.
Hann hefur alla tíð haft gaman af
menningu og listum. Sótt leikhús
mikið og dáðst að myndlist. „Síðan
ég man eftir mér hef ég teiknað
mikið og oft leikið blýantur um
hönd,“ segir Kristinn. „Eins og
mörg börn var ég sjónvarps- og
teiknimyndasjúkur og útskýrir það
eflaust að hluta til áhugann á að
gera nú teiknimyndir fyrir fullorðna. Teiknistíll klassískra
Disney-mynda hefur alltaf heillað mig og finnst mér gam-
an að setja barnalega kómík í myndirnar mínar. Einnig
man ég eftir því að hafa skoðað Sigmund oft og reglulega í
Morgunblaðinu sem krakki og ekki ósennilegt að það hafi
haft sín áhrif.“
Að lokum langar Kristin að þakka lesendum blaðsins
ánægjulegar stundir með morgunkaffinu og ritstjórn fyrir
það mikla frelsi og traust í starfi sem teiknurum Morg-
unblaðsins er sýnt.
Gaman að setja
barnalega kómík í
myndirnar
Kristinn Pálsson sem glatt hefur lesendur Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins
undanfarin sex ár hefur teiknað sína seinustu skopmynd fyrir blaðið – all-
tént í bili. Af því tilefni rifjum við upp fáeinar velvaldar myndir eftir Kristin.
Kristinn Pálsson teiknari
með eigin augum.