Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Side 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Side 25
Trémunir á fagurgrænum skáp. Baðherbergið er nýuppgert en Frosti gætti þess að upp- runalegur stíll hússins fengi að njóta sín. Frosti Friðriksson er menntaður myndlistarmaður ogbakari og tók framhaldsmenntun í leikmyndahönn-un, sem hann hefur starfað við undanfarin 10 ár. Á heimilinu má því finna marga heillandi muni sem Frosti segist hafa sankað að sér í gegnum tíðina. Húsið er gamalt steinhús frá árinu 1926. „Þetta er einbýlishús á þremur hæðum. Hver hæð er frekar lítil og er húsið byggt í svokölluðum „british town- house“-stíl. Það er ekki mikið pláss fyrir stór húsgögn þótt litlu rýmin hafi alveg sjarma út af fyrir sig,“ útskýrir Frosti sem segist heillast af skandinavískum og breskum innanhússstíl, þrátt fyrir að eltast ekki mikið við stíla sjálf- ur. Hann segist jafnframt hafa haft það hugfast þegar hann innréttaði húsið að reyna að halda í sjarmann sem húsið býr yfir sem gamalt hús. „Ég vildi alls ekki vera að setja nýjar innréttingar og reyndi því að velja hlutina inn í stíl hússins, bera virðingu fyrir uppruna þess og reyna ekki breyta í annan áratug.“ Aðspurður hvaðan hann sæki innblástur segist Frosti vera rosalega hrifinn af léttum skandinavískum blæ. „Mér finnst hann mjög heillandi þó svo að arkitektúrinn hjá mér bjóði ekki upp á það. En allt svoleiðis finnst mér rosalega skemmtilegt. Líka íslenski sveitastíllinn, ef maður passar sig að fara ekki of langt með það,“ útskýrir Frosti og hlær. Spurður að lokum hvað sé á óskalistanum inn á heimilið svarar Frosti: „Það eru svalir. Ég er að fara að setja svalahurð og glugga út. Það verður svakaleg breyting. Ég er reyndar að fá píanó en það er þó ekkert pláss við það. Það væri þó kannski frekar á óskalistanum að losna við veggi.“ Eldhúsið er innréttað og flísalagt á heillandi hátt í anda hússins. Sjarmerandi heimili í miðbænum Frosti Friðriksson hefur komið sér vel fyrir í afar heillandi einbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Veggirnir eru skreyttir áhugaverðri myndlist og húsgögnin eins og þau hafi verið sniðin inn á heimilið. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Frosti Friðriksson, myndlistarmaður og leikmyndahönnuður. Falleg tekkkommóða í borðstofunni. Frosti reynir að halda í upprunalegan stíl hússins. 21.8. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 LÝKUR Á SUNNUDAG EKKI MISSA AF ÞESSU * Taxfree tilboðið gildir öllum vörum nema vörum frá IITTALA og SKOVBY og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkiss- jóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallar- innar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.