Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Side 40
LESBÓK Í Eldborgarsal Hörpu 20. ágúst kl. 15 er höfðað til yngri kynslóð-arinnar með ævintýrinu sívinsæla um Pétur og úlfinn eftir Sergei
Prokofíev. Bjarni Frímann Bjarnason stýrir hljómsveitinni í fyrsta skipti.
Pétur og úlfurinn
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016
S
viðslistahátíðin Every Body’s
Spectacular, samstarfshátíð
Reykjavík Dance Festival og
Lókal, alþjóðlegrar leiklistar-
hátíðar, hefst á miðvikudaginn, 24.
ágúst, en á fimm dögum verða 19 leik- og
dansverk, erlend og íslensk, sýnd víðs vegar
um borgina. Er þetta í annað sinn sem hátíð-
irnar sameinast, en einn fjögurra listrænna
stjórnenda hátíðarinnar, Ragnheiður Skúla-
dóttir, segir samstarfið hafa gengið afar vel
og hátíðina vera mikilvægan glugga fyrir er-
lenda aðila inn í íslenskar sviðslistir.
„Við höfum hingað til fengið afar góð við-
brögð frá sendiboðum erlendra hátíða, sem
hafa orðið til þess að líf íslenskra sýninga hef-
ur getað lengst til muna. Líkt og áður eigum
við von á um 30 erlendum aðilum sem koma
hvaðanæva til að sjá hvað er að gerast í sjálf-
stæðu leikhús- og danssenunni hérlendis,“
segir Ragnheiður.
„Alþjóðasamfélagið sýnir því sem er að ger-
ast í íslenskum listum mikinn áhuga en það er
alltaf svolítið meiri fyrirhöfn að koma því á
framfæri sem er að gera í sviðslistum en til
dæmis tónlist, þar sem hægt er að senda efni
rafrænt milli landa og með lítilli fyrirhöfn. Því
er mjög mikilvægt að halda þessum glugga
opnum með hátíðum eins og Every Body’s
Spectacular. Listamenn sem taka þátt í þess-
um hátíðum finna það líka að þetta hjálpar til
við að koma þeim á kortið úti enda er þetta
eina hátíðin af þessu tagi hér á landi.“
Er hátíðin í ár búin til í kringum eitthvert
þema í ár?
„Okkur finnst heftandi að vera með þema
fyrir fram en engu að síður verður það til þar
sem það er alltaf eitthvað sem liggur í loftinu.
Í ár erum við að vinna með eitthvað sem kalla
mætti „berskjöldun“; berskjöldun líkamans
og berskjöldun raddarinnar. Í ár erum við
einnig að fara enn lengra með ákveðnar
áherslur varðandi hluta af dagskránni; við
hleypum hátíðinni út úr leikhúsinu; út á götu
og inn í skóla og kirkjur. Atriðin eru þá ort
inn í ákveðin rými.“
Má þar nefna sem dæmi að ein sýningin
byggir á upplifunum úr öldungablaki og fer
fram í íþróttasal Hlíðaskóla. Þá mun fólk
stíga á stokk við Sæbraut og segja fréttir frá
fjarlægum stöðum, í „beinni útsendingu“. Eitt
verkið leiðir áhorfendur út fyrir borgar-
mörkin og í Fríkirkjunni verður svokölluð
„glæðingamessa“ þar sem umfjöllunarefnið er
„kulnun“. Loks má geta merkilegrar hljóð-
innsetningar og ferðalags í gamla Farsóttar-
húsinu við Þingholtstræti. Markmiðið með
þessum sýningum er að vekja athygli áhorf-
enda á hinum ýmsu ólíku kimum samfélagsins
og sviðsetja verk sem byggja á reynslu al-
mennings.
„Við skilgreinum sviðslistirnar mjög vítt og
sem dæmi um það mun hin heimsfræga söng-
konan Peaches opna hátíðina með því að
syngja öll níu hlutverkin úr söngleiknum
Jesus Christ Superstar, en verkið kallast
Peaches Christ Superstar.
Þá erum við með glænýja sýningu frá
Gjörningaklúbbnum, sem fagnar 20 ára af-
mæli nú í ár. Það er gaman að geta tekið utan
um allar listgreinarnar á hátíðinni eins og að
hafa til dæmis þarna hóp sem kemur úr
myndlistinni. Það er svo mikil gróska í list-
unum og alveg eins og fólk vill ekki lengur
binda sig við einhverja ákveðinna stjórn-
málaflokka vill það ekki heldur vera bundið af
því að halda sig við einhverja eina listgrein.
Þar er ákveðin bylgja þar sem listamenn eru
að prófa að fara yfir landamærin yfir í aðrar
listgreinar.“
Hugmyndafræðin á bak við Every Body’s
Spectacular er tvíþætt. Annars vegar að bera
á borð fyrir borgarbúa það markverðasta sem
er að gerast í erlendum samtímasviðslistum
og kynna athyglisverða hluti í íslenskum sam-
tímasviðslistum. Til að velja listamenn á há-
tíðirnar erlendis er ferðast um allar trissur og
hér heima hefur ýmist verið leitað til lista-
manna eða þeir leitað til hátíðarinnar.
„Fókusinn er á sjálfstæðu senuna. Við er-
um alltaf að leita að því sem er að gerast næst
– hvernig sviðslist morgundagsins verður. Og
það hefur alltaf verið markmið beggja þess-
ara hátíða, Lókal og RDF, að vera viðbót við
það sem fyrir er.“
Fram undan er spennandi dagskrá sem
hægt er að renna yfir hér til hliðar en hvað
getur Ragnheiður sagt lesendum um einhver
einstök spennandi atriði?
„Ég get til dæmis nefnt verk sem heitir
Bergman í Úganda eftir Svíann Markus
Öhrn, en hann fór til Kampala í Úganda og
sýndi þar hópi íbúa kvikmyndina Persónu eft-
ir Ingmar Bergman sem þeir horfðu á í litlum
kofa. Það sem þeir gera í Úganda er að í stað
þess að texta myndir eru þeir með lifandi
flutning; mann sem situr fremst og útskýrir
myndina og miðlar því sem er að gerast.
Markus tók upp áhorfendur að horfa á mynd-
ina og í Listasafni Reykjavíkur verður bæði
hægt að horfa á myndina og svo á upptöku af
fólkinu að horfa á þessa mynd og fá útskýr-
ingar á henni. sitja á milli þessara tveggja
heima og sjá hvernig þeir mætast.“
Ragnheiður bendir líka á verkið Still Stand-
ing You þar sem hinn belgíski Pieter Ampe
og hinn portúgalski Guilherme Garrido, leyfa
áhorfendum á ýsmegilegan hátt að skyggnast
inn í birtingarmyndir vináttu.
„Þessir tveir danshöfundar bera á borð fyr-
ir okkur mjög líkamlegan og hrikalega
skemmtilegan performans sem snertir mann
á hina ýmsu vegu. Þá verður spennandi kvik-
myndaprógramm í Bíó Paradís, svo að okkur
er ekkert heilagt í þessum efnum. Svo má líka
geta þess að við höfum verið í mjög öflugri
samvinnu við Listaháskóla Íslands, en það
þarf gott fólk til að skipuleggja og halda utan
um þetta. Fólkið á bak við tjöldin er margt
fyrrverandi nemendur LHÍ sem hafa átt stór-
an þátt í að þessi hátíð verði til. Upphaflega
unnu þeir sem sjálfboðaliðar meðfram námi
en eru í dag á launaskrá. Svo hefur það
óformlega samstarf orðið til þess að við erum
komin í formlegt samstarf.“
Ragnheiður hvetur fólk til að mæta á við-
burðina í ár og láta koma sér á óvart. „Það er
markmið okkar, að kynna nýjar og spennandi
sviðslistir. Og það er hugvíkkandi reynsla, að
ganga inn í þetta hátíðarbjarg.“
„Það er hugvíkkandi reynsla, að
ganga inn í þetta hátíðarbjarg,“
segir Ragnheiður Skúladóttir,
einn listrænna stjórnenda Every
Body’s Spectacular.
Morgunblaðið/Þórður
Hugvíkkandi hátíð
Sviðslistir morgundagsins eru í aðalhlutverki á sviðslistahátíðinni Every Body’s Spectacular sem hefst í vikunni.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
’ Í ár erum við einnig að faraenn lengra með ákveðnaráherslur varðandi hluta af dag-skránni; við hleypum hátíðinni
út úr leikhúsinu; út á götu og inn
í skóla og kirkjur. Atriðin eru þá
ort inn í ákveðin rými.