Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 1

Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 5. Á G Ú S T 2 0 1 6 Stofnað 1913  198. tölublað  104. árgangur  AUÐVELT AÐ VAXA, EFIÐARA AÐ HAGNAST RÝNDU Í SJÁLFSMYNDINA JÓHANNES HAUKUR LEIKUR Í MYNDINNI ÉG MAN ÞIG UNGMENNI HITTUST Í ÞÝSKALANDI 12 15 PRUFUR FYRIR 1 HLUTVERK 30VIÐSKIPTAMOGGINN Jóhannes Tómasson Bogi Þór Arason Að minnsta kosti 159 fórust og hátt í 400 eru slasaðir eftir kraftmikinn jarðskjálfta sem reið yfir fjallabæi á Mið-Ítalíu í fyrrinótt. Óttast er að manntjónið geti verið enn meira því margra var enn saknað í gær. „Þetta eru ekki lokatöl- ur,“ sagði forsætisráðherra Ítalíu þegar hann greindi frá fjölda dauðsfalla. Margir hinna látnu voru í bæjunum Accu- moli og Amatrice. Bæjarstjóri Amatrice segir að aðeins fjórðungur bæjarins standi enn. Að sögn bæjarstjóra Accumoli er ekki lengur hægt að búa í neinu af húsum bæjarins. Jarðskjálftinn er einn sá mannskæðasti í sögu Ítalíu, en margir jarðskjálftar hafa riðið yfir í landinu. Árið 2009 fórust 309 manns þegar jarðskjálfti gekk yfir Mið-Ítalíu og misstu um 65 þúsund manns heim- ili sín. Grófu með berum höndum í húsarústum Sjálfboðaliðar hófu björgunarstörf skömmu eftir skjálftann og íbúar grófu með berum hönd- um í húsarústum í örvæntingarfullri leit að ætt- ingjum. Alþjóðlegar björgunarsveitir voru þó ekki kallaðar til aðstoðar og segir Friðfinnur Fr. Guðmundsson, sem situr í framkvæmdastjórn Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar, að Ítalir séu vel í stakk búnir til að takast á við afleið- ingar jarðskjálfta. „Þeir eru með mjög góðar al- mannavarnir. Helsta vandamálið var að komast á staðinn og um bæina út af braki sem hafði fall- ið á vegina,“ segir Friðfinnur. Engar upplýsingar hafa borist um að Ís- lendingar hafi slasast í jarðskjálftanum, en Amatrice er þekktur ferðamannabær og vinsæll áfangastaður íbúa Rómar. Margir gestir voru í bænum þegar jarðskjálftinn varð. AFP Eyðilegging Konur gráta fyrir framan rústir á götum bæjarins Illica, sem er nálægt Accumoli, eftir að kraftmikill jarðskjálfti reið yfir landið í fyrrinótt. Vel á annað hundrað látnir og mikil eyðilegging á Ítalíu  Smábæir gereyðilögðust í jarðskjálfta  Reið yfir mikið jarðskjálftasvæði MLeit að fólki í húsarústum »16-17 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Viðræður Kaupþings og hóps lífeyr- issjóða um möguleg kaup hinna síð- arnefndu á umtalsverðum hlut í Ar- ion banka kunna að hafa runnið út í sandinn samhliða því að nýir stjórn- endur komu að borðinu hjá Kaup- þingi. Þannig eru engar viðræður milli aðila í farvatninu þrátt fyrir að formleg samtöl um mögulega að- komu lífeyrissjóðanna að bankanum hafi hafist undir lok síðasta árs. Samkvæmt samkomulagi sem Kaupþing gerði við ríkissjóð í tengslum við samþykkt nauðasamn- ings félagsins skuldbindur það sig til að selja hlutinn fyrir árslok 2018. Að öðrum kosti mun ríkissjóður leysa bankann til sín og eigendur Kaup- þings um leið verða af verulegum upphæðum sem þeir fengju í sinn hlut við sölu á bankanum. Forsvarsmenn Kaupþings verjast allra frétta af því hvernig þeir hygg- ist losa um hlutinn innan þess tíma- frests sem gefinn hefur verið. Bakslag komið í bankasölu  Kaupþing hefur nú ríflega tvö ár til að losa um 87% hlut sinn í Arion banka  Ný yfirstjórn hjá Kaupþingi breytti taktinum í viðræðum við lífeyrissjóðina MViðskiptaMogginn Morgunblaðið/Júlíus Sala Kaupþing á 87% hlut í Arion. Embætti umboðs- manns skuldara hefur nú lokið rétt rúmlega þrjú þús- und samningum um greiðsluaðlög- un frá því það var stofnað í ágúst ár- ið 2010. Áætla má að eftirgjöf óveðtryggðra krafna nemi um 23,5 milljörðum á þessum sex ár- um. Umsóknum hjá umboðsmanni skuldara hefur fjölgað það sem af er ári, eftir að hafa fækkað síðustu ár. Alls barst embættinu 191 umsókn á fyrstu sex mánuðum þessa árs, en 127 bárust á sama tímabili í fyrra. „Við höfum orðið vör við fjölgun umsækjenda sem búa í leiguhúsnæði og þá hefur fjölgað í hópi umsækjenda á aldrinum 18 til 39 ára. Húsnæðis- kostnaður er að sliga fólk, hvort sem það eru greiðslur leigu eða af veð- skuldum,“ segir Ásta Sigrún Helga- dóttir, umboðsmaður skuldara. »4 Eftirgjöf um 23,5 milljarðar  Símaleikurinn Pokémon go hef- ur orðið til þess að auka hreyf- ingu margra. Magnús Valur Hermannsson pokémon-meist- ari segir að hann hafi lesið fjölda færslna á erlendum pokémon-spjallsíðum frá fólki í of- þyngd sem fékk aukahvatningu til að fara út og hreyfa sig með leikn- um. Þá hafi leikurinn aukið hans eigin hreyfingu. Engar rannsóknir hafa enn verið gerðar á áhrifum leiksins á hreyfingu en að sögn Gígju Gunnarsdóttur, verkefna- stjóra hreyfingar hjá landlækni, er mjög jákvætt ef þeir sem eru ann- ars fastir inni í tölvunni fara út og hreyfa sig. »6 Jákvæð áhrif Poké- mon go á hreyfingu  Illugi Gunnars- son menntamála- ráðherra segist m.a. hafa séð tækifæri til að styrkja Háskól- ann á Akureyri, þegar samið var við skólann um lögreglunám. Jón Atli Bene- diktsson, rektor Háskóla Íslands, bendir á að í aug- lýsingu ráðuneytisins um lögreglu- námið hafi ekki verið getið um fjar- nám en af tilkynningu ráðu- neytisins megi ráða að möguleikinn á að stunda fjarnám við HA hafi vegið þungt í ákvörðun ráðherra. »4 Tækifæri til að styrkja HA Lögreglunám Verður á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.