Morgunblaðið - 25.08.2016, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.08.2016, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 FIMMTA BÓKIN UM MALIN FORS „Kallentoft skrifar svo vel aðmargir af kollegum hans líta út eins og viðvaningar.“ AFTONBLADET Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sprengingum í jarðgöngunum um Húsavíkurhöfða lauk í gær með því að norski gangaflokkurinn „sló í gegn“ og göngin opnuðust inn í Laugardal sem er sunnan við iðn- aðarsvæðið á Bakka. Vinna við göngin, veginn og tilheyrandi breytingar við höfnina heldur áfram enda eru verkskil ekki fyrr en að ári. Fyrstu sprengingar í Húsavík- urhöfðagöngum voru 10. mars á þessu ári þannig að gröfturinn hef- ur tekið rúmlega fimm mánuði. Stefán Sigurðsson, verkefnisstjóri hjá LNS Sögu, segir að það sé samkvæmt áætlun. Þykir það gott því ýmislegt getur komið upp á við gangagerð, eins og reynslan sýnir. Verkið hefur gengið vel. „Þetta eru sjávarsetlög, frekar lélegt berg, sem menn voru ekki vissir um hvernig væri að sprengja sig í gegnum. Reyndist vera mikil harka í því og reglulega gott að komast í gegn,“ segir Stefán. Hann bætir því við að enginn leki hafi komið, nema yfirborðsvatn í rigningum. Hins vegar hafi verið upp undir 50 stiga hiti í berginu við lokaspreng- ingar sem bendi til þess að heitt vatn sé þar undir. Norsku gangamennirnir frá LNS munu vinna áfram næstu vik- urnar við að styrkja göngin en eftir það taka íslenskir samstarfsmenn þeirra hjá LNS Sögu við öllum verkþáttum. 3 kílómetra vegur Verkið felst í því að leggja þriggja kílómetra veg frá Húsavík- urhöfn og að iðnaðarsvæðinu á Bakka. Göngin eru rúmlega 950 metrar og um kílómetri með veg- skálum. Einnig þarf að gera breyt- ingar á höfninni, bæði sjóvarnar- garði og hafnarkantinum Bökugarði, vegna vegarins og til að hægt sé að þjónusta stærri skip. Stefán segir að lögð verði áhersla á útivinnu í haust en meira unnið inni í göngunum þegar veður versnar í vetur. Jarðgöng grafin á 5 mánuðum  Sprengingum í Húsavíkurhöfða lokið  Áfram unnið við vegalagningu Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Slegið í gegn Norska jarðgangagengið hjá LNS Sögu skálaði við opið eftir síðustu sprengingu í Húsavíkurhöfðagöngum í gær að loknu vel heppnuðu verki. Hvellur Erna Björnsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, sprengdi síðasta haftið. Samþykkt var á Alþingi í gær að setja á fót þjóðaröryggisráð. Flutnings- maður frumvarpsins var Lilja Alfreðs- dóttir utanríkisráðherra og var það samþykkt með 40 atkvæðum en þær Katrín Jakobsdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmenn VG, sátu hjá. Tilgangur þjóðaröryggisráðs er að framfylgja þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland og endurskoða hana ef þurfa þyki. Þjóðaröryggisstefnan er nýmæli á Íslandi og sama má segja um þjóð- aröryggisráðið. Engin sambærileg stefna eða ráð hefur verið til á Íslandi fram að þessu. Í greinargerð með frumvarpi um þjóðaröryggisstefnu segir að nauðsyn slíkrar stefnu sé aug- ljós. Er sú skoðun byggð á vinnu þver- faglegs starfshóps um hættumat fyrir Ísland og þingmannanefndar um mót- un þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Þjóðarör- yggisráð sett á laggirnar Þrítug kona féll niður um op við neyðarútgang á svölum á þriðju hæð í skrifstofuhúsnæði við Austurveg á Selfossi á mánudagskvöld. Fallið var rúmlega sex metrar og slasaðist kon- an alvarlega. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirliti, sam- kvæmt færslu í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi. „Það virðist vera heimatilbúinn frágangur á þessum palli,“ sagði Sigurður Sigurðsson, svæðisstjóri Vinnueftirlitsins, í sam- tali við mbl.is í gær. Hann segir það eitt og sér ekki fela í sér brot, ef frá- gangurinn uppfyllir staðla, en það virðist ekki eiga við í þessu tilviki. Samkvæmt upplýsingum á facebo- ok-síðu fjölskyldumeðlims hlaut kon- an höfuðkúpu- og kinnbreinsbrot og slæmt hryggbrot. Mænan skaddaðist svo mikið að hún kemur líklega til með að verða lömuð frá brjósti. Kon- an hefur haldið meðvitund nærri all- an tímann síðan slysið varð og gat tjáð sig. vidar@mbl.is Lömuð eftir fall á Selfossi Skip á veiðum út af Vestfjörðum hafa orðið vör við talsvert af loðnu á þeim slóðum. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs hjá Hafrann- sóknastofnun, segir að þetta gefi góð fyrirheit en ekkert sé hægt að full- yrða í hve miklu magni hún finnist fyrr en eftir leiðangur í september. „Mælingar okkar frá því í september í fyrra benda til þess að veiðistofn loðnu á næstu vertíð verði lítill. Á þessu var hins vegar fyrirvari, þannig að menn ættu ekki að gefa sér niðurstöðuna fyrr en búið er að fara yfir út- breiðslusvæði loðnunnar í haust,“ segir Þorsteinn. Hann segir að gjarnan sé loðnuhrafl á því svæði sem sjómenn hafa séð loðnuna á upp á síðkastið. Vart hefur orðið við loðnu út af Vestfjörðum Kristín Edda Frímannsdóttir kristinedda@mbl.is Vísbendingar eru um að það hafi færst í vöxt að númeraplötur að framan séu fjarlægðar af bifreiðum til þess að komast hjá hraðasektum. „Við höfum engar sannanir um þetta en það er að aukast að númerslausir bílar að framan náist á hraðamynda- vélar. Nánast í hverri viku er verið að senda myndir á landsvísu af öku- tækjum og ökumönnum til allra lög- reglumanna til þess að athuga hvort þeir geti borið kennsl á ökutækin eða ökumanninn,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar. Um 200 ökumenn hafa verið kærðir það sem af er ári fyrir að vera með bíla sína númerslausa að fram- an og voru 122 þeirra teknir á höf- uðborgarsvæðinu. Ef skráning- armerkjum er áfátt varðar það tíu þúsund kr. sekt. Í síðustu viku var gerð könnun á því hversu hátt hlutfall ökutækja væri án skráningarmerkja og segir Guðbrandur hlutfallið ekki hafa ver- ið hátt. „Það var ekki hátt brotahlut- fall þannig að ég hallast nú að því að þetta sé ekki almennt í umferðinni en af myndunum að dæma sýnist mér þetta vera meira og minna á kvöldin og á nóttunni. Það vekur grun um að menn séu að taka núm- erin af og smella þeim síðan aftur á þegar komið er á leiðarenda,“ segir Guðbrandur. Ferðamenn í meirihluta Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir meirihluta þeirra sem höfð eru af- skipti af vegna hraðaksturs á Suður- landi vera erlenda ferðamenn og í fyrra hafi þeir verið um 60%. Bíla- leigur bera ábyrgð á ástandi öku- tækisins en ökumaðurinn ber ábyrgð á akstrinum. Þegar erlendir ferðamenn eru teknir fyrir of hraðan akstur greiða þeir sektina nánast alltaf á vett- vangi. Þegar þeir eru hins vegar teknir á hraðamyndavél getur reynst erfiðara að innheimta sekt- irnar. Ólafur Guðmundsson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á Vest- urlandi, segir mörg mál látin niður falla þar sem lögreglan hafi hvorki fjármagn né mannskap til þess að senda út sektarboð til ferðamanna búsettra erlendis. „Við höfum sent út sektarboð ef sektirnar fara yfir 30.000 krónur og það er svona 40- 50% innheimta á þeim,“ segir Ólafur. Fleiri bílar teknir án númeraplötu að framan  Erfitt að innheimta sekt hafi bílar náðst á hraðamyndavél Hraðamyndavél Grunur leikur á að númeraplötur séu teknar af. MMeira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.