Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 4

Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 4
SJÓNARHORN Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Veiðitímabili Pokémon go er ekki lokið en það má þó búast við að spilurum fari fækkandi á götunum nú þegar skólar eru byrjaðir, dag- urinn styttist og veður fer kólnandi. Áhrifa hins vinsæla símaleiks hefur gætt víða í samfélaginu og eru skiptar skoðanir um gæði þeirra. Eitt er þó víst, leikurinn hefur rek- ið margan tölvuleikjaspilarann út úr herberginu sínu og út að hreyfa sig. „Leikurinn kom bara fram í sum- ar þannig að eðli málsins sam- kvæmt á eftir að rannsaka möguleg áhrif hans á hreyfingu, útiveru, heilsu og líðan almennt, líka hversu lengi áhrifin vara og hversu lengi þessi leikur og einhverjir sambæri- legir munu lifa,“ segir Gígja Gunn- arsdóttir, verkefnastjóri hreyfingar hjá Embætti landlæknis. Jákvæð áhrif leiksins Gígja segir vísbendingar um að Pokémon go stuðli að aukinni hreyfingu og útiveru hjá hópum sem annars er erfitt að ná til. „Það er mjög jákvætt með tilliti til lýð- heilsu ef þeir sem eru annars fastir inni í tölvunni fara út og hreyfa sig, kynnast umhverfi sínu og eiga í raunverulegum samskiptum við aðra fyrir tilstuðlan svona leikja. Leikurinn virðist líka brúa bilið milli kynslóða. En það hafa líka komið fram vís- bendingar um ýmislegt sem ber að varast; athygli barna er takmörkuð og þegar þau ganga um með at- hyglina á símanum geta þau gleymt sér og þá getur skapast slysahætta og aðrar aðstæður sem ógna öryggi þeirra,“ segir Gígja og nefnir líka aðra vankanta við að spila leik í síma, eins og líkamsbeitinguna. „Öll hreyfing er betri en engin en það er hins vegar ekki hollt að ganga um með símann hokinn í herðum og horfa niður á skjáinn í langan tíma í einu. Almennt er ekki aðferðirnar breytist aðeins. „Leik- urinn laðar spilara þá kannski inn á kaffihús til að fá sér heitan drykk og þeir sem ganga mikið hætta því kannski og fara að taka strætó.“ Hann býst þó við að spilurum fækki eitthvað á næstunni sem sé eðlileg þróun á einhverju sem byrj- ar með svona miklum vinsældum. Hann segist hreyfa sig heilmikið við veiðarnar og spili t.d leikinn í frisbí- golfi þar sem hann notar gönguna til að klekja út egg. Magnús er kominn í borð 24 í leiknum og er með um 100 mismun- andi pokémona af þeim 142 sem hægt er að fá á Íslandi. Hann býst við að það verði mikil þróun á leikn- um á næstunni, en nýjar upp- færslur koma nú á tveggja vikna fresti. mælt með að börn séu lengur við skjái í frítíma en mesta lagi tvo tíma á dag. Sem er samt heilmikið.“ Gígja segir að spennandi verði að sjá hvert áframhaldið verði á Poké- mon go. „Það eru eflaust ýmis tæki- færi í tengslum við þetta en mögu- legir kostir og ókostir eiga betur eftir að koma fram þegar fram líða stundir. Leikurinn er gefinn út þeg- ar sumarfrí er að hefjast, það er bjart úti og hlýtt, sem vinnur með leiknum en svo er spurning hvað gerist þegar fer að dimma og kólna.“ Kominn í borð 24 Magnús Valur Hermannsson pokémonmeistari hefur fulla trú á að leikurinn verði áfram vinsæll í haust og vetur en býst við að leik- Morgunblaðið/Ófeigur Pokémon go Axel Valur Þórisson og Eyþór Örn Hafliðason Pokémon go-spilarar á veiðum í miðbænum. Leikaðferðirnar gætu breyst þegar kólnar  Pokémon go áfram vinsæll  Öll hreyfing betri en engin 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Hverfisgötu 105 www.storarstelpur.is Munið bílastæði á bak við hús Við erum á facebook Skipulagðar pokémon- dagsferðir í Reykjavík sem ferðaþjónustufyrirtækið Reykjavík Excursions byrjaði með í júlí hafa gengið prýði- lega að sögn Einars Bárð- arsonar, rekstrarstjóra fyr- irtækisins. „Við sáum ekki fyrir okkur að þetta myndi taka við af Gullhringnum en okkur langaði til að gera eitt- hvað með heimamarkaðinum og það hefur tekist mjög vel til,“ segir Einar. Boðið er upp á pokémon- ferðir þrisvar í viku og eru Ís- lendingar í meirihluta gesta. „Ferðirnar eru vinsælar hjá fjölskyldufólki, það er frítt fyr- ir börn og hálfvirði fyrir ung- menni 12 til 15 ára svo þetta hefur fallið í góðan jarðveg. Helsjúkir pókemon-aðdáendur koma líka í ferðirnar og erlendir ferðamenn.“ Pokémon-ferðirnar verða farnar út mánuðinn og segir Einar að nú sé verið að velta fyrir sér hvert framhaldið verði. POKÉMON-DAGSFERÐIR UM REYKJAVÍK HAFA GENGIÐ VEL Vinsælar veiðar hjá fjölskyldum Skúli Halldórsson sh@mbl.is Jón Atli Benediktsson, rektor Há- skóla Íslands, segir ákvörðun menntamálaráðherra um að ganga til samninga við Háskólann á Akur- eyri um lögreglunám á háskólastigi hafa komið sér á óvart. Í samtali við Morgunblaðið segir hann að gríðar- leg vinna hafi verið lögð í umsókn HÍ til ráðuneytisins og að um fjörutíu manns hafi komið að því verki. Þá hefði honum fundist mikilvægt að fagleg sjónarmið yrðu höfð að leið- arljósi. „Við sendum sextíu blaðsíðna skjal þar sem við lýstum námskeið- um sem í boði yrðu og greindum frá góðri verklegri aðstöðu okkar sem þegar er notuð af lögreglu. Þá feng- um við alls konar rýni á umsóknina, jafnt utan sem innan skólans.“ Nemar geti stundað staðnám Athygli vekur að í auglýsingu ráðuneytisins um val á aðila til að annast lögreglunámið segir meðal annars að markmið og tilgangur verkefnisins sé að allt að áttatíu nemendur geti stundað „tveggja ára staðnám“ í lögreglufræðum, en fjar- náms er ekki getið. Segir Jón Atli þetta skjóta skökku við, þar sem af tilkynningu ráðuneytisins megi ráða að möguleikar til að stunda fjarnám við HA hafi vegið þungt við valið. Tekur hann sérstaklega fram að hann óski Háskólanum á Akureyri alls hins besta í framhaldinu, en bendir á að skólinn taki sér með þessu mikið verk á hendur, enda eigi námið að hefjast nú í haust. „Eðlilegt hefði verið að koma þessu ferli miklu fyrr af stað, svo hægt yrði að hefja námið á eðlilegum tíma og bjóða nemendum að skrá sig með meiri fyrirvara.“ Aðeins að kanna getu skólanna Illugi Gunnarsson menntamála- ráðherra segist með ákvörðuninni hafa viljað renna sterkari stoðum undir starf Háskólans á Akureyri. „Fyrst öfluðum við upplýsinga um hvað það væri sem skólarnir hefðu upp á að bjóða. Niðurstaða mats- nefndarinnar var sú að þeir væru mjög áþekkir, Háskóli Íslands með 128 stig af 135, HA með 116 og HR með 110. Það er því enginn stór mun- ur á milli skólanna og þeir eru allir vel hæfir til að takast á við þetta verkefni,“ segir Illugi. „Við ákvörðun mína horfi ég svo meðal annars til þess að þarna væri tækifæri til að styðja við og styrkja Háskólann á Akureyri, en ég tel mik- ilvægt að boðið sé upp á öflugt há- skólanám víðar en á höfuðborgar- svæðinu.“ Hefðu sjónarmið þín um styrkingu landsbyggðarinnar ekki mátt koma fram fyrr í ferlinu? „Í þessu ferli var aðeins verið að kanna getu skólanna til að sinna verkefninu. Síðan er það auðvitað ákvörðun ráðherra á hverjum tíma, miðað við þær pólitísku áherslur sem þá eru uppi, sem ræður því að lokum við hvern er samið.“ Þegar stefnt er að því að námið hefjist í haust, er ekki óheppilegt að þetta ferli klárist svona seint? „Alþingi samþykkti þessi lög í júnímánuði og þá um leið fór þetta ferli af stað. Ég ætla að leyfa mér að segja að það hafi gengið mjög hratt fyrir sig, þegar litið er til þess tíma sem innanríkisráðuneytið og menntamálaráðuneytið fengu.“ Þá segir Illugi að markmiðið um tveggja ára staðnám, sem áður var getið, útiloki ekki fjarnám. „Háskólinn á Akureyri getur með góðu móti boðið upp á hvort tveggja og hefur mikla reynslu af slíku námsframboði.“ Tækifæri til að styrkja Háskól- ann á Akureyri  Ráðherra segir sitt að taka ákvörðun Jón Atli Benediktsson Illugi Gunnarsson „Því er ekki að leyna að ef við hefðum ráðið einhverju í þessu þá hefðum við viljað sjá þetta kennt hvort tveggja við Háskól- ann á Akureyri og Háskóla Ís- lands en við ráðum því víst ekki,“ segir Snorri Magnússon, formað- ur Landssambands lögreglu- manna, í samtali við mbl.is. Hefðu viljað HÍ og HA SNORRI MAGNÚSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.