Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 6

Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind SKEMMTUN FYRIR ALLA! ER AFMÆLI FRAMUNDAN? VERÐ FRÁ 1.99 0,- Skúli Halldórsson sh@mbl.is Embætti umboðsmanns skuldara hefur nú lokið rétt rúmlega þrjú þúsund samningum um greiðsluað- lögun frá því það var stofnað í ágúst árið 2010. Heildarfjárhæð krafna í þessum samningum hljóðar upp á 68 milljarða króna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari embættisins við fyr- irspurn Morgunblaðsins. Í þessari tölu felast þær kröfur sem tilgreind- ar eru í samningum um greiðsluað- lögun, hvort sem þær standi að lok- um innan eða utan aðlögunarinnar. Eftirgjafarhlutfallið 87 prósent Heildarfjárhæð veðkrafna er sögð vera í kringum 36 milljarðar króna, en ekki liggur fyrir hvert hlutfall eftirgjafar er af þeim kröf- um. Óveðtryggðar kröfur nema um 27 milljörðum króna og hlutfall eft- irgjafar óveðtryggðu krafnanna er um 87%. Gróflega áætlað nemur því eftir- gjöf þeirra um 23,5 milljörðum á undanförnum sex árum, að því er segir í svarinu, og að meðaltali séu þannig um 7,8 milljónir króna gefn- ar eftir af óveðtryggðum kröfum í samningi. Stærstu kröfuhafarnir eru Íbúða- lánasjóður og stóru bankarnir þrír, en heildarfjárhæð krafna í eigu bankanna þriggja er um 33,4 millj- arðar króna, á meðan kröfur Íbúða- lánasjóðs hljóða upp á 19,7 millj- arða. Þá er heildarfjárhæð krafna LÍN um 3,7 milljarðar króna, en þær kröfur standa utan greiðsluaðlögun- ar, líkt og meðlagsskuldir, vangold- inn virðisaukaskattur og fleira. Meðallengd allra samninga við skuldara er um 12 mánuðir, en í rúmlega helmingi þeirra hefur verið kveðið á um 100% eftirgjöf samn- ingskrafna. Fjölgun í hópi 18 til 39 ára Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðs- maður skuldara, segir umsóknum hafa fjölgað það sem af er ári, eftir fækkun öll síðustu ár. Alls hafi 191 umsókn borist á fyrstu sex mánuð- um þessa árs en 127 bárust á sama tímabili í fyrra. „Við höfum orðið vör við fjölgun umsækjenda sem búa í leiguhús- næði og þá hefur fjölgað í hópi um- sækjenda á aldrinum 18 til 39 ára. Húsnæðiskostnaður er að sliga fólk, hvort sem það eru greiðslur leigu eða af veðskuldum,“ segir Ásta í samtali við Morgunblaðið. „Ég hef mikinn áhuga á að auka fjármálalæsi og kenna slíkt efni bet- ur í skólakerfinu. Það er verulegt áhyggjuefni að ungt fólk sé að byrja lífið í greiðsluerfiðleikum. Það er ekki gott til framtíðar.“ Starfið engin vinsældakeppni Spurð hvort skuldarar séu að jafnaði ánægðir með þjónustu emb- ættisins segir hún það misjafnt, í málaflokki sem þessum geti aldrei allir verið sáttir. „Meginmarkmið okkar er að að- stoða fólk eins og við mögulega get- um. Að sjálfsögðu þurfum við þó að vinna samkvæmt lögum og það er ekki alltaf vinsælt. En ég vissi þegar ég tók við þessu embætti að ég væri ekki að fara í neina vinsælda- keppni.“ 23,5 milljarðar á sex árum  Að meðaltali 7,8 milljónir króna gefnar eftir af óveðtryggðum kröfum  Umsóknum um greiðsluaðlögun hefur fjölgað í ár, eftir fækkun síðustu sex ár „Við höfum orðið vör við fjölgun um- sækjenda sem búa í leiguhúsnæði og þá hefur fjölgað í hópi umsækjenda á aldr- inum 18 til 39 ára.“ Ásta Sigrún Helgadóttir 87% Hlutfall óveðtryggðra krafna í samningum sem gefnar eru eftir. 191 Fjöldi umsókna um greiðsluaðlögun fyrstu sex mánuði þessa árs. 22 milljónir Meðalupphæð allra krafna í hverjum greiðsluaðlögunarsamningi. 68 milljarðar Heildarfjárhæð krafna í samningum um greiðsluaðlögun síðustu sex ár. SKULDIR Í TÖLUM » Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Framkvæmdir á bæklunarskurð- deild Landspítalans í Fossvogi, upp- lýsingaskortur og mikið álag á deildinni eru ástæða þess að 9 ára langveik stúlka með Downs- heilkenni þarf að bíða í fjóra daga eftir því að komst í aðgerð til að negla saman handleggsbrot. Á mánudagskvöldið datt Lilja Líf Aradóttir við leik úti með þeim af- leiðingum að hún handleggsbrotn- aði. Faðir hennar, Ari Elíasson, starfaði í 14 ár sem sjúkraflutn- ingamaður í Keflavík og sá strax að dóttir hans var handleggsbrotin. Hann fór með hana á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja þar sem hún var mynduð og myndirnar sendar á Landspítalann (LSH) til að meta hvort hún þyrfti aðgerð strax þar sem brotið var nokkuð ljótt. Svo fór að Lilja Líf var sett í gifsspelkur yf- ir nóttina og þeim tjáð að haft yrði samband morguninn eftir frá bækl- unarlækni á LSH. „Það var hringt og okkur sagt að hún kæmist ekki í aðgerð fyrr en á föstudagsmorgun. Ég tjáði þeim að ég væri mjög ósáttur við það, að barn með hennar sjúkrasögu þyrfti að þjást í marga daga. Ég hélt sann- arlega að ég væri að fara með barn- ið mitt í aðgerð 12 til 14 klst. síðar en ekki 84 klst. síðar,“ segir Ari. Hann er búinn að hringja tvisvar í Landspítalann og fara þangað einu sinni í von um að geta haft áhrif á biðtímann en þar er lítið hægt að gera. „Ég skil mjög vel að það sé mikið álag á heilbrigðisstarfsfólki en mér finnst skjóta skökku við að börn þurfi að bíða í marga sólar- hringa eftir svona aðgerð, biðtíminn er mitt ósætti.“ Góð reynsla hingað til Lilja Líf er nú á verkjalyfjum en hún má ekki taka hvað sem er. Hún fær parkódín en það fer ekki vel í hana að sögn Ara, hún eigi þegar við hægðategðu og þvagvandamál að stríða sem parkódínið hafi áhrif á. Parkódín í miklu magni getur valdið hægðatregðu og því þurfi að gefa henni núna hægðalosandi lyf kvölds og morgna ofan í allt annað. Þá á Lilja Líf erfitt með að útskýra hversu mikið hún finnur til. „Hún tjáir sig um að henni sé illt í hend- inni en hún getur ekki skilgreint sársaukann,“ segir Ari. Lilja Líf er langveik og segir Ari að reynsla þeirra af heilbrigðiskerf- inu hingað til sé mjög góð. „Hún er ótrúlega hraust og dugleg og lætur þetta nú ekkert stoppa sig en maður er bara ósáttur sem foreldri að barnið þurfi að bíða lengur en þurfa þykir,“ segir Ari. Óeðlilega langur biðtími Yngvi Ólafsson, yfirlæknir bækl- unarskurðlækninga á Landspítal- anum, segir að biðtíminn sem Lilja Líf lendir í sé óeðlilega langur og skýrist af því að á sama tíma og deildin sé síður í stakk búin til að taka við sjúklingum vegna breyt- inga komi allt í einu kúfur. „Við get- um ekki talað um þetta sem al- mennan hlut. Börn hafa forgang og lasin börn meiri forgang,“ segir Yngvi og bætir við að að einhverju leyti megi líka kenna upplýs- ingaskorti um þessa töf. „En við vissum ekki sögu barnsins að öllu leyti.“ Framkvæmdir eru í gangi á Landspítalanum í Fossvogi sem or- saka m.a. tafir í aðgerðir, verið er að setja á fót nýja skurðstofu og breyta vöknun og fleiri deildum. Yngvi seg- ir að framkvæmdirnar hafi átt að vera búnar núna eftir sumarfrí en dregist á langinn, vonir standa til að allt verði komið í samt horf í lok komandi viku. „Vegna þessa erum við í því núna að hætta við aðgerðir og neyðumst til að dreifa aðgerðum sem koma inn yfir nokkra daga,“ segir Yngvi. „Þetta er óheppilegt og óeðlilega langur biðtími út af ytri aðstæðum fyrst og fremst.“ Mikið álag undanfarið Yngvi segir að það sé alvanalegt að brot á börnum bíði í einn til tvo daga. Bið Lilju Lífar í aðgerð mun ekki hafa áhrif á gróanda brotsins. Töluvert álag er búið að vera á bæklunarskurðdeildinni í allt sumar að sögn Yngva. „Helgin var anna- söm en læknar sem voru á vakt hér á mánudaginn segja að þá hafi verið eins og sprengju hafi verið kastað inn á spítalann. Á þriðjudagsmorg- un biðu sjö til átta aðgerðir sem komu inn seint á mánudagskvöldið og um nóttina. Við höfum ekki að- stæður til að taka við slíku nema að gera sérstakar ráðstafanir.“ Spurður hvort aukinn ferða- mannafjöldi hafi eitthvað með álagið að gera segir Yngvi það ekki vera einvörðungu en álagið hafi verið töluvert í allt sumar. Ósátt við langa bið barns eftir aðgerð  Níu ára langveik stelpa handleggsbrotnaði á mánudags- kvöldið en kemst ekki í aðgerð á LSH fyrr en á morgun Forkur Lilja Líf fer í aðgerð á morg- un þar sem brotið verður lagað. Ari Elíasson Yngvi Ólafsson Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Flaggskip frönsku hafrannsókna- stofnunarinnar, Porquoi Pas? V, kom til Reykjavíkur í fyrradag. Porquoi Pas? ber nafn skips Jean-Baptistes Charcots landkönnuðar, sem fórst hér við land 16. september 1936 ásamt 39 öðrum úr áhöfn skipsins. Pourquoi Pas? er fimmta rannsókn- arskipið með því nafni. Flaggskipið kom hingað til lands í fyrsta skipti árið 2012. Pálmi Jóhann- esson, upplýsingafulltrúi franska sendiráðsins í Reykjavík, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að Pour- quoi Pas? myndi hafa skamma viðdvöl hér að þessu sinni, en það væri vænt- anlegt aftur til Reykjavíkur 16. sept- ember nk. þegar þess verður minnst með ýmiss konar viðburðum að 80 ár eru liðin frá því að Pourquoi Pas? IV fórst við Íslandsstrendur. Fórst við Mýrar 1936 Charcot, sem var heimsþekktur landkönnuður, kom oft á skipum sín- um til Íslands og Grænlands og átti marga vini hér á landi. Hann fórst með skipinu ásamt áhöfn þegar Pour- quoi Pas? IV strandaði í ofviðri við Mýrar í september 1936, nema hvað einn maður bjargaðist á land. Rannsóknaskipið Por- quoi Pas? í Reykjavík Morgunblaðið/Júlíus Flaggskip Pourquoi Pas? V kemur á ný til Reykjavíkur 16. september, þeg- ar þess verður minnst að 80 ár eru liðin frá því að nafna þess IV fórst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.