Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 10

Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 SJÓNMÆLINGAR ERU OKKAR FAG Tímapantanir: Optical Studio í Leifsstöð, 4250500 Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811 Velkomin í verslun okkar á fríhafnar- svæðinu í Leifsstöð Á LEIÐ TIL ÚTLANDA Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bókmenntahátíðin Litla ljóðahá- tíðin hefst kl. 20 í Valaskjálf á Egilsstöðum í kvöld. Boðið verður upp á fjóra viðburði; á Egilsstöðum, Vopnafirði, við Mývatn og á Akur- eyri, í kvöld, á morgun og laugar- dag. Tilgangur hátíðarinnar er að auka veg ljóðlistar á svæðinu, „að færa fólkinu skáldin á silfurfati,“ segir Stefán Bogi Sveinsson, annar skipuleggjenda hátíðarinnar. Mark- miðið sé ekki síður að hvetja heima- skáld til dáða og gefa þeim tækifæri á að koma fram með og mynda tengsl við skáld í fremstu röð. Hann segir að farið verði með skáldin að sunnan á milli staða og hópurinn skreyttur með heimafólki og fleiri listamönnum, meðal annars þremur Finnum í samstarfi við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri, finnsku skáldkonunni Katariinu Vu- orinen ásamt Kauko Royhka og Olgu Valimaa. Þekkt skáld Elísabet Jökulsdóttir, Eyþór Árnason og Soffía Bjarnadóttir flytja efni úr verkum sínum á öllum stöðum. Stefán Bogi Sveinsson og Þorsteinn Bergsson bætast við yfir hádegisverði í Kaupvangskaffi á Vopnafirði á morgun og annað kvöld kl. 20 verður heimaskáldið Ásta Kristín Benediktsdóttir verður kynnt til leiks í fuglasafni Sigur- geirs í Reykjahlíð, en þetta verður í fyrsta sinn sem hátíðin verður með viðburð við Mývatn. Ingunn Snædal les með þremenningunum og Finn- unum úr verkum sínum í Deiglunni á Akureyri á laugardagskvöld. „Þetta er fjórða árið sem við höldum þessa hátíð í því sem við köllum Norðausturríki á Norður- og Austurlandi,“ segir Stefán Bogi, en hátíðin byggist á grunni hátíðar sem var fyrst haldin á Akureyri 2009. Ljóðaganga í Hallormsstaðar- skógi hefur verið hluti hátíðarinnar undanfarin ár en Stefán Bogi segir að hún verði sér viðburður að þessu sinni, utan við ljóðahátíðina. Færa fólkinu skáldin heim  Litla ljóðahátíðin sett á Egilsstöðum Morgunblaðið/Eggert Skáld Stefán Bogi Sveinsson og Ing- unn Snædal koma fram á hátíðinni. Móttaka var í gær fyrir erlenda nemendur sem hefja nám við Háskóla Íslands í haust. Jón Atli Benediktsson rektor flutti ávarp í móttökunni, sem er liður í kynningarviku fyrir erlenda nemendur við háskólann. Erlendum nemendum fjölgar við Háskóla Íslands og eru þeir um 1.150 þetta árið. „Það hefur verið fjölgun á síðustu árum, þeir voru 1.105 árið 2015 og 1.069 árið 2014,“ segir Jón Atli. Fjöldi erlendra nemenda við HÍ er talsvert meiri en hjá öðrum háskólum á Íslandi. Til dæmis eru um 200 er- lendir nemendur í Háskólanum í Reykjavík, sem er met í HR. Í Háskólanum á Akureyri eru 75 erlendir nem- endur skráðir á haustmisseri sem eru aðeins færri en en árið 2015 þegar 85 erlendir nemar stunduðu nám. Langflestir eru í lögfræði og helmingur þeirra í heim- skautarétti sem aðeins er kennt við HA. Heim- skautaréttur eða (e. Polar law ) er aðeins kennt annað hvert ár og útskýrir það fækkun erlendra nemenda í ár, samkvæmt upplýsingum frá HA. Þjóðverjar eru fjöl- mennastir erlendra nemenda í HA og á það einnig við um HÍ en þeir voru 107 talsins á síðasta ári. „Erlendir nemendur hafa að jafnaði flestir komið frá Þýskalandi, svona frá 105 til 137 á síðustu árum,“ segir Jón Atli. Margir koma frá Póllandi Einnig er mikið um bandaríska nemendur við HÍ, voru þeir 99 á síðasta ári til dæmis. Einnig eru ófáir nemendur frá Póllandi, síðustu ár hafa talsvert fleiri komið þaðan en frá hverju Norðurlandanna fyrir sig. Jón Atli segir að einhverjar sveiflur séu í því hvaðan flestir erlendir nemendur komi en þó sé það ekkert ósvipað frá ári til árs. johannes@mbl.is Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Flestir koma frá Þýskalandi Um 1.150 erlendir nemendur stunda nám við Háskóla Íslands í vetur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.