Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Formaður Landssamtaka sauðfjár-
bænda óttast að verðlækkun á af-
urðaverði til bænda muni hafa slæm
áhrif á búgreinina og þá sem starfa
innan hennar. Verðlækkunin leiði
beinlínis til tekjulækkunar hjá sauð-
fjárbændum.
Norðlenska tilkynnti í gær
verðskrá fyrir haustslátrun og er
fyrsti sláturleyfishafinn til að gefa
út verð. Verð fyrir dilka lækkar um
10% og um 38% fyrir fullorðið fé.
Ástæðurnar eru þrjár, samkvæmt
tilkynningu fyrirtækisins: Heild-
söluverð á kindakjöti hefur ekki
hækkað til samræmis við launa-
hækkanir og hafi það komið niður á
afkomu fyrirtækisins. Slæmar horf-
ur séu á útflutningsmörkuðum. Þá
hafi gengi íslensku krónunnar verið
að styrkjast á sama tíma og vaxta-
stig hafi haldist hátt. Allt þetta hafi
leitt til þess að afkoma Norðlenska
við sölu lambakjöts hafi versnað á
síðustu árum og við því verði að
bregðast.
Nefnt er að 42% hækkun á
bændaverði á dilkun frá árinu 2010
hafi grundvallast á góðum aðstæð-
um á útflutningsmörkuðum. Nú hafi
aðstæður breyst.
Þórarni Inga Péturssyni, for-
manni Landssamtaka sauðfjár-
bænda, líst illa á verðlækkunina.
Segist hafa verið að búa sig undir
þau tíðindi að fá 5-6% lækkun en
10% verðlækkun finnst honum full-
mikil. „Samtök bænda eru í þeirri
stöðu að við megum ekki semja um
verð fyrir okkar afurðir og samn-
ingsstaða hvers bónda fyrir sig er
ekki merkileg. Það eina sem við get-
um gert er að gefa út viðmiðunar-
verð,“ segir Þórarinn.
Í viðmiðunarverði LS fyrir þessa
sláturtíð er farið fram á 12,5% verð-
hækkun en niðurstaðan er 10%
verðlækkun, ef aðrir sláturleyfishaf-
ar verða á svipuðu róli og Norð-
lenska. Þórarinn segir að skýringar
sláturleyfishafa séu sjálfsagt réttar.
Þungur rekstur hafi verið á síðasta
ári. Hann segir að þeir hafi valið
auðveldu leiðina með því að lækka
verðið til bænda.
Kanna aðra atvinnumöguleika
Þórarinn Ingi segir að mikilvæg-
asti markaðurinn fyrir lambakjöt sé
innanlands. Verðið hafi ekki breyst í
þrjú ár. LS hafi unnið að markaðs-
starfi og bent á leiðir til að fá meira
fyrir vörurnar. Salan hafi verið góð
á þessu ári. Meðal annars hafi mark-
aðssetning gagnvart erlendum
ferðamönnum skilað sér. Einnig hafi
gengið vel í Bandaríkjunum. Áfram
þurfi að halda á þeirri braut.
Hann bætir því við að erfitt sé fyr-
ir framleiðendur að sætta sig við það
að hækkun launa til starfsmanna
sláturhúsanna eigi að leiða til verð-
lækkunar til bænda. „Það hefur allt í
þjóðfélaginu hækkað og kaupmáttur
almennt aukist. Við gerum kröfu um
að okkar laun hækki einnig.“
Spurður um áhrif þessarar þróun-
ar á búgreinina segir formaður
sauðfjárbænda: „Ég hef heyrt hljóð-
ið í mörgum bændum. Menn eru
svartsýnir og velta því fyrir sér
hvort þeir geti snúið sér að ein-
hverju öðru. Það er eðlilegt, nóg
vinna er í landinu og eftirspurn eftir
vinnuafli.“
Leiðir til tekjulækkunar
Morgunblaðið/RAX
Sláturhús Slátrun hefst hjá Norðlenska hinn 1. september og hjá öðrum
sláturleyfishöfum 12. september og um miðjan mánuðinn.
Norðlenska lækkar verð á dilkum til bænda Sauðfjárbændur vilja launa-
hækkanir eins og aðrir Svartsýnir og íhuga jafnvel að snúa sér að öðru
Vertu upplýstur!
blattafram.is
FELST
AÐGERÐALEYSI ÞITT
Í AÐ SAMÞYKKJA
KYNFERÐISOFBELDI?
Nýjar
vörur frá
Calvin Klein
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
LAUGAVEGI 82 101 REYKJAVÍK SÍMI 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Mikið úrval
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun
UndirfötSundföt
Náttföt
ÚTSALAN
í fullum
gangi
30–60%
afsláttu
r af
völdum
vörum
Mánatún 7-17
105 REYKJAVÍK
Glæsilegar, vel skipulagðar og bjartar
3ja og 4ra herbergja íbúðir í fallegu
húsi. Öllum íbúðum fylgir stæði
í bílageymslu. Sérlega vandaður
frágangur og fallegar innréttingar,
tvennar svalir í flestum íbúðum.
STÆRÐ: 111-183 fm
FJÖLDI HERBERGJA:3-4
52,5 - 82,9 M
Heyrumst
Gunnar Valsson
Sölufulltrúi
699 3702
gunnar@fastlind.is
Heyrumst
Hannes Steindórsson
Löggiltur fasteignasali
Sölustjóri
699 5008
hannes@fastlind.is
BÓKIÐ SKOÐUN