Morgunblaðið - 25.08.2016, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016
Tré ársins 2016 hefur verið alaska-
ösp við Hákot í Grjótaþorpi.
Öspinni var bjargað á síðustu
stundu fyrir þrjátíu árum en þá
voru að hefjast bygginga-
framkvæmdir á nágrannalóð þar
sem tréð varð að víkja. Þetta kemur
fram á vef Skógræktar ríkisins. Þar
er sagt frá því hvernig Ragnheiður
Þorláksdóttir, íbúi og eigandi Há-
kots, fékk því framgengt að tréð
fékk að lifa og var það fært á nú-
verandi stað árið 1986. Tréð er að
öllum líkindum upphaflega gróð-
ursett um 1960 og var orðið um 5
metra hátt þegar það var flutt með
stórvirkum vinnuvélum. Útlitið
þykir óvenjulegt af ösp að vera, en
krónumikill vöxtur og öflug greina-
setning einkennir það.
Ljósmynd/skogur.is
Tré ársins Öspin hefur staðið í
Grjótaþorpinu í Reykjavík frá 1986.
Krónumikil
ösp í Hákoti
tré ársins 2016
„Við höldum í hefðina en hátíðin hefur
stækkað smátt og smátt,“ segir Sjöfn
Þórðardóttir, verkefnastjóri Bæjar-
hátíðar Seltjarnarness sem haldin
verður um helgina. Upphaf bæjar-
hátíðarinnar má rekja til Gróttudags-
ins, sem var haldinn fyrst fyrir um
það bil 15 árum. „Þá fór fram knatt-
spyrnumót Gróttu sem endaði með
grillveislu og Stuðmannaballi.“
Hátíðin stendur nú yfir í þrjá daga,
hefst með sundlaugarpartíi fyrir alla
fjölskylduna í Seltjarnarneslaug á
föstudag og lýkur með appelsínugulri
messu í Seltjarnarneskirkju á sunnu-
dag.
Litaflokkuð hverfi
Skemmtilegar hefðir hafa myndast
í kringum hátíðina þar sem íbúar
hverfa taka sig saman og standa fyrir
sameiginlegum viðburðum í sínu
hverfi meðan á hátíðinni stendur, svo
sem vöfflu- og pönnukökukaffi, götu-
grilli og hverfaskemmtun fyrir ball.
Að sögn Sjafnar spila hverfin stórt
hlutverk á hátíðinni. „Hverfin fimm
hafa öll sinn einkennislit og sína
hverfisstjóra sem skipuleggja grill-
veislu í hverju hverfi með alls konar
uppákomum, svo sem heimsóknir frá
óvæntum gestum og tónlistaratriðum.
Það hefur aldrei verið jafn mikil
stemning fyrir þessu og í ár.“ Veitt
verða verðlaun fyrir frumlegustu
húsaskreytinguna.
Dagskrá hátíðarinnar verður fjöl-
breytt og allir íbúar ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal
atriða má finna sundlaugarpartí í
Sundlaug Seltjarnarness, brekku-
söng, hjólareiðaferð, Gróttudaginn
með ýmsum viðburðum og Stuðball á
laugardagskvöldinu með hljómsveit-
inni Bandmenn. Ýmislegt fleira verð-
ur í boði og búast má við nokkrum
óvæntum uppákomum yfir helgina.
Ingó leiðir brekkusöng
Brekkusöngurinn fer nú fram í
fyrsta skipti, þó svo að hann hafi verið
á dagskránni í fyrra, en leiðinda
haustlægð gerði bæjarbúum erfitt
fyrir. Veðurspáin er hins vegar góð í
ár og býst Sjöfn ekki við öðru en að
söngurinn muni óma um bæinn á
föstudagskvöld undir stjórn Ingós
Veðurguðs og Jóhanns Helgasonar.
Bæjarhátíðinni lýkur með appels-
ínugulri messu í Seltjarnarneskirkju
sem séra Bjarni Bjarnason stendur
fyrir. „Kirkjan er í appelsínugula
hverfinu, íbúarnir hafa verið að mæta
í appelsínugulu og jafnvel með app-
elsínugular veitingar,“ segir Sjöfn.
Ljóst er að öllu verður tjaldað til, í
réttum litum, hvort sem um ræðir
skemmtiskokk, stuðball eða kirkju-
sókn í bænum um helgina.
erla@mbl.is
Stuðball og appelsínu-
gul messa á Nesinu
Árleg Bæjarhátíð Seltjarnarness fer fram um helgina
Ljósmynd/Seltjarnarnesbær
Hátíð Hvert hverfi stendur fyrir grillveislu á Bæjarhátíð Seltjarnarness
sem fram fer um helgina. Rauða hverfið hélt þessa glæsilegu veislu í fyrra.
Það sem af er vertíð er búið að skipa
út í flutningaskip um 9.000 tonnum af
makríl og síld frá Norðfirði. Í byrjun
vikunnar tók skip 2.600 tonn í Nes-
kaupstað, von er á öðru skipi í dag og
því þriðja eftir helgi. Þá fer mikið af
afurðum í gáma sem skipað er út á
Reyðarfirði, samkvæmt því sem fram
kemur á heimasíðu Síldarvinnsl-
unnar.
Haft er eftir Heimi Ásgeirssyni,
verkstjóra í frystigeymslum Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað, að um
þessar mundir séu miklar annir hjá
starfsmönnunum og skortur á starfs-
fólki. Úr vinnsluskipum er búið að
landa í frystigeymslur rúmlega 6.000
tonnum af makríl og síld það sem af
er vertíð.
Síðustu tvær vikurnar hefur verið
nær samfelld vinnsla á makríl og síld
í fiskiðjuverinu í Neskaupstað.
Vinnslan hefur gengið vel en þó hefur
upp á síðkastið verið bagalegt hversu
mikið af síld hefur stundum verið í
makrílaflanum, en oft hefur verið erf-
itt að ná hreinum makrílholum. Þessi
blandaði afli dregur töluvert úr af-
köstum í fiskiðjuverinu.
Miklar
annir í síld
og makríl