Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 16
Mannskæður jarðskjálfti á Ítalíu
100 km
Skjálftinn mældist 6,0 til 6,2 stig
og varð klukkan 3.36 í fyrrinótt
að staðartíma.
RÓM
L’Aquila
Perugia
Ancona
Norcia
Terni
Rieti
Amatrice
Accumoli
Pescara del Tronto
Arquata del Tronto
MIÐJARÐARHAF
ADRÍAHAF
RÓM
L’Aquila
Perugia
200 km
Norcia
Heimild: USGS
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti 159 manns fórust í
jarðskjálfta sem reið yfir fjallabæi á
Mið-Ítalíu í fyrrinótt og óttast var að
manntjónið væri enn meira því að
margra var enn saknað í gær. Þús-
undir manna misstu heimili sitt í
hamförunum.
Margir þeirra sem létu lífið í
skjálftanum voru í bæjunum Acc-
umoli, nálægt skjálftamiðjunni, og
Amatrice. Hermt var að skjálftinn
hefði einnig lagt þorpin Arquata del
Tronto og Pescara del Tronto í rúst
og óttast var að margir íbúanna hefðu
farist. „Þorpið er ekki til lengur,“
sagði sveitarstjórinn í Arquata del
Tronto. „Næstum öll húsin í Pescara
del Tronto hrundu.“
„Vegirnir að og frá bænum lokuð-
ust,“ sagði bæjarstjóri Amatrice,
Sergio Pirozzi. „Helmingur bæjarins
er horfinn. Fólk er enn undir húsa-
rústunum. Skriða féll og talið er að
brú geti hrunið.“
Sjálfboðaliðar hófu björgunarstörf
skömmu eftir skjálftann og íbúar
grófu með berum höndum í húsarúst-
unum í örvæntingarfullri leit að ætt-
ingjum sínum. „Systir mín og mað-
urinn hennar eru undir rústunum, við
bíðum eftir gröfum en þær komast
ekki hingað upp,“ hafði fréttaveitan
AFP eftir Guiodo Bordo, 69 ára göml-
um íbúa þorpsins Illica, nálægt Acc-
umoli. „Það heyrðist ekkert til þeirra,
við höfum aðeins heyrt í köttunum.
Ég var þar ekki en flýtti mér þangað
um leið og skjálftinn varð. Þeim tókst
að draga börn systur minnar út og
þau eru á sjúkrahúsi núna.“
Á meðal þeirra fyrstu sem fundust
látnir í þorpinu var níu mánaða barn,
en foreldrar þess komust lífs af.
Snarráð kona bjargaði hins vegar
tveimur barnabörnum sínum, fjög-
urra og sjö ára, með því að segja þeim
að leggjast undir rúm um leið og
hamfarirnar hófust, að sögn ítalskra
fjölmiðla. Konan lifði af en eiginmað-
ur hennar lét lífið.
Björgunarmenn í Accumoli leituðu
m.a. að fjögurra manna fjölskyldu í
rústum heimilis hennar. „Því miður
eru tvö ung börn á meðal þeirra,“
hafði fréttavefur breska ríkisút-
varpsins eftir ljósmyndara á staðn-
um. „Björgunarmennirnir heyrðu
hróp í mömmu þeirra og öðru
barnanna.“
Amatrice er fallegur ferðamanna-
bær, þekktur fyrir pastasósu sem er
kennd við hann, amatriciana, og vin-
sæll áfangastaður íbúa Rómar sem
sækjast eftir svölu fjallalofti á sumr-
in. Margir gestir voru í bænum þegar
jarðskjálftinn varð.
Flókin flekamót
Jarðskjálftar eru algengir á Ítalíu
vegna flekahreyfinga Afríkuflekans í
suðri og Evrasíuflekans í norðri.
Flókin flekamót liggja eftir Ítalíu-
skaganum endilöngum og mynda
Appenínafjöll, að því er fram kemur í
bloggi Haraldar Sigurðssonar eld-
fjallafræðings á blog.is. Haraldur lík-
ir jarðskorpu Ítalíu við „krumpað
dagblað sem er illa troðið inn um
póstlúguna heima hjá þér“. „Nú
mjakast Afríkuflekinn stöðugt norð-
ur um 4 til 5 mm á ári og heldur áfram
„Þorpið er ekki til lengur,“ sagði
sveitarstjórinn í Arquata del Tronto
AFP
Hamfarir Björgunarmenn bera mann úr rústum eftir snarpan jarðskjálfta í bænum Amatrice á Ítalíu í fyrrinótt.
Óttast annan snarpan
skjálfta á svæðinu
» Jarðskjálftinn olli tjóni í
fjallabæjum í héruðunum
Umbria, Lazio og Le Marche.
» Honum fylgdu tugir eftir-
skjálta og jarðvísindamenn
vöruðu við því að annar snarp-
ur jarðskjálfti gæti orðið á
svæðinu.
» Skjálftans varð vart frá
borginni Bologna í norðri til
Napólí í suðri. Margir íbúar
Rómar vöknuðu vegna skjálft-
ans.
Leit að fólki í húsarústum
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016
Helstu kostir kerranna eru:
• 7 blaða blaðfjaðrir tryggja góða fjöðrun.
• Stórar legur í hjólnáum og 6,50 x 16“ dekk.
• Plast á fjaðraendum dregur úr hávaða.
• Hraðlæsing á afturhlera.
• Öryggislæsing á dráttarkúlu.
• Hluti framhlera opnanlegur sem auðveldar
upprekstur gripa á kerruna.
• Heilsoðinn botnplata við hliðar einfaldar þrif
og eykur styrk kerrana.
Kr.1.390.000
Einnig sturtukerrur,
flatvagnar og vélakerrur!
+
vs
k
Kr. 1.723.600 með vsk.
Gripakerrur
Höfum hafið innflutning á vönduðum breskum
gripakerrum frá framleiðandanum Indespension.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Ve
rð
og
bú
na
ðu
rb
irt
ur
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18.
Þú færð ASKO hjá Progastro
Uppþvottavélar
• Allt úr stáli inní vélunum
t.d. spaðar, grindur og fl.
• Vélarnar eru gerðar fyrir
12.500 tíma eða daglega
2ja tíma þvott sem sam-
svarar ca 16,5 ára endingu
Inspired by Scandinavia