Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 19

Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Blómleg börn Sólardagar seint í ágúst eru vel nýttir á Austurvelli líkt og víða á Íslandi. Þessi börn örkuðu glöð í sinni með blóm á lofti, eflaust til að gleðja einhvern nákominn. Ómar Haraldur Benediktsson al- þingismaður skrifaði grein í Morgunblaðið 23. ágúst sl., undir yfirskriftinni „öðruvísi sam- keppniseftirlit“. Þar gefur hann íslensku samkeppniseftirliti fall- einkunn og lætur m.a. að því liggja að það hafi gleymt að hugsa um litlu fyrirtækin. Til- tekur hann sérstaklega að Sam- keppniseftirlitið hafi látið óátalið að markaðsráðandi aðilar selji vörur sínar undir kostnaðar- verði. Greinin er gott tilefni til þess að rifja upp eftirtaldar aðgerðir Samkeppniseftirlitsins á dagvörumarkaði: 1. Árið 2010 staðfesti Hæstiréttur Íslands niðurstöðu um brot Haga á samkeppnislög- um. Hafði Samkeppniseftirlitið sektað Haga um 315 milljónir króna fyrir að hafa verðlagt mjólkurvörur undir kostnaðarverði. Var sú aðgerð talin alvarleg misnotkun á markaðs- ráðandi stöðu fyrirtækisins. Með ákvörðuninni voru Högum sett skýr mörk. Leiddi hún m.a. til þess að fyrirtækið varð að láta af þeirri stefnu sinni að bjóða ávallt lægra verð en keppinautarnir, en í slíkri verðstefnu felst að smærri verslunum gefst aldrei kostur á að bjóða lægsta verð sem skaðar samkeppni til lengri tíma litið. 2. Árið 2010 beindi Samkeppniseftirlitið því til Arion banka, sem þá hafði eignast Haga, að selja fyrirtækið í fleiri en ein- um hluta í því skyni að auka samkeppni. Afréð bankinn að selja verslunarkeðjuna 10-11 frá Högum. Sjá nánar ákvörðun nr. 6/2010. 3. Árið 2010 sektaði Sam- keppniseftirlitið Haga um 270 milljónir króna og sex kjöt- vinnslufyrirtæki um samtals 135 milljónir króna vegna ólögmæts samráðs um smásöluverð í verslunum. Í mörgum tilvikum voru þessir aðilar að semja um afslætti frá verði sem í raun stóð aldrei til að bjóða neytendum í viðkom- andi verslunum. Í því skyni að binda enda á þessa háttsemi og efla samkeppni var lagt bann við því að kjötvinnslufyrirtæki merktu vörur með smásöluverði fyrir verslanir. Framangreind fyrirtæki gerðu sátt við Samkeppniseftirlitið um þessa niðurstöðu, sbr. ákvörðun nr. 33/2010. Ekki varð sátt um niðurstöðu sömu rannsóknar gagnvart Síld og fiski ehf. og Matfugli ehf. Var móðurfélag þessara fyrirtækja sektað um 80 milljónir króna vegna brotanna. Sú niðurstaða var staðfest í Hæstarétti árið 2014. 4. Á árunum 2008 og 2009 sektaði Sam- keppniseftirlitið nokkur samtök atvinnufyr- irtækja fyrir brot á samkeppnislögum, sem voru til þess fallin að hækka verð á dagvöru til neytenda. Sjá nánar ákvarðanir nr. 10/ 2008, 5/2009 og 9/2009. 5. Árið 2012 gaf Samkeppniseftirlitið úr skýrsluna „Verðþróun og samkeppni á dag- vörumarkaði“ (nr. 1/2012). Þar er m.a. gerð grein fyrir rannsókn eftirlitsins á kjörum sem dagvöruverslanir njóta hjá birgjum. Í ljós kom að smærri verslanir greiddu birgjum að meðaltali 15% hærra verð en stærsta verslanasamstæðan, Hagar. Smærri verslanir hefðu því litla möguleika á verðsamkeppni. Í skýrslunni hvatti Samkeppniseftirlitið birgja til að endurskoða verðstefnu sína að þessu leyti, einkum og sér í lagi gagnvart minni dagvöruverslunum. Hefur eftirlitið fylgt skýrslunni eftir, m.a. með rannsóknum á verðlagningu tiltekinna birgja. Á árinu 2015 var að nýju tekin staða á þessu álitaefni, sbr. skýrslu nr. 1/2015. 6. Fyrr í sumar komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Mjólkursamsalan (MS) hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart minni keppinauti, með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengd- ir aðilar fengu þetta hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Skað- aði þessi háttsemi því samkeppni milli birgja á dagvörumarkaði. Sjá nánar ákvörðun nr. 19/2016. Forveri MS, Osta- og smjörsalan, hafði áð- ur misnotað markaðsráðandi stöðu sína með sambærilegum hætti, sbr. ákvörðun Sam- keppniseftirlitsins nr. 39/2006. Betur má ef duga skal Af þessu er ljóst að grein Haraldar byggist í meginatriðum á röngum staðhæfingum. Nægir að nefna þá fullyrðingu að Samkeppn- iseftirlitið hafi látið undirverðlagningu mark- aðsráðandi fyrirtækja óátalda. Framangreind upptalning er ekki tæmandi um aðgerðir samkeppnisyfirvalda á dagvöru- markaði. Sömuleiðis er ljóst að fleiri verkefni eru framundan, til þess að efla samkeppni. Til að stuðla að úrbótum á markaðnum birti Samkeppniseftirlitið í fyrra skýrslu und- ir heitinu „Leiðbeining um samkeppni á dag- vörumarkaði“ (nr. 1/2015). Í 2. kafla skýrsl- unnar er að finna yfirlit yfir aðgerðir og umfjöllun samkeppnisyfirvalda um mikilvæg álitaefni á markaðnum og úrræði til að efla samkeppni. Með skýrslunni var því beint til þeirra sem starfa á markaðnum að draga lær- dóm af þessum fyrri úrlausnum samkeppn- isyfirvalda. Um leið er skýrslan gagnlegt yfirlit fyrir þá sem vilja fjalla um samkeppni á dagvöru- markað á grunni réttra upplýsinga. Skýrslan er aðgengileg á heimasíðu eftirlitsins, www.samkeppni.is. Eftir Pál Gunnar Pálsson » Grein Haraldar er gott tilefni til þess að rifja upp nokkrar aðgerðir Sam- keppniseftirlitsins á dag- vörumarkaði. Páll Gunnar Pálsson Höfundur er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samkeppni á dagvörumarkaði – Í tilefni af grein Haraldar Benediktssonar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.