Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016
Blómleg börn Sólardagar seint í ágúst eru vel nýttir á Austurvelli líkt og víða á Íslandi. Þessi börn örkuðu glöð í sinni með blóm á lofti, eflaust til að gleðja einhvern nákominn.
Ómar
Haraldur Benediktsson al-
þingismaður skrifaði grein í
Morgunblaðið 23. ágúst sl., undir
yfirskriftinni „öðruvísi sam-
keppniseftirlit“. Þar gefur hann
íslensku samkeppniseftirliti fall-
einkunn og lætur m.a. að því
liggja að það hafi gleymt að
hugsa um litlu fyrirtækin. Til-
tekur hann sérstaklega að Sam-
keppniseftirlitið hafi látið óátalið
að markaðsráðandi aðilar selji
vörur sínar undir kostnaðar-
verði.
Greinin er gott tilefni til þess að rifja upp
eftirtaldar aðgerðir Samkeppniseftirlitsins á
dagvörumarkaði:
1. Árið 2010 staðfesti Hæstiréttur Íslands
niðurstöðu um brot Haga á samkeppnislög-
um. Hafði Samkeppniseftirlitið sektað Haga
um 315 milljónir króna fyrir að hafa verðlagt
mjólkurvörur undir kostnaðarverði. Var sú
aðgerð talin alvarleg misnotkun á markaðs-
ráðandi stöðu fyrirtækisins.
Með ákvörðuninni voru Högum sett skýr
mörk. Leiddi hún m.a. til þess að fyrirtækið
varð að láta af þeirri stefnu sinni að bjóða
ávallt lægra verð en keppinautarnir, en í
slíkri verðstefnu felst að smærri verslunum
gefst aldrei kostur á að bjóða lægsta verð
sem skaðar samkeppni til lengri tíma litið.
2. Árið 2010 beindi Samkeppniseftirlitið því
til Arion banka, sem þá hafði eignast Haga,
að selja fyrirtækið í fleiri en ein-
um hluta í því skyni að auka
samkeppni. Afréð bankinn að
selja verslunarkeðjuna 10-11 frá
Högum. Sjá nánar ákvörðun nr.
6/2010.
3. Árið 2010 sektaði Sam-
keppniseftirlitið Haga um 270
milljónir króna og sex kjöt-
vinnslufyrirtæki um samtals 135
milljónir króna vegna ólögmæts
samráðs um smásöluverð í
verslunum. Í mörgum tilvikum
voru þessir aðilar að semja um
afslætti frá verði sem í raun
stóð aldrei til að bjóða neytendum í viðkom-
andi verslunum. Í því skyni að binda enda á
þessa háttsemi og efla samkeppni var lagt
bann við því að kjötvinnslufyrirtæki merktu
vörur með smásöluverði fyrir verslanir.
Framangreind fyrirtæki gerðu sátt við
Samkeppniseftirlitið um þessa niðurstöðu,
sbr. ákvörðun nr. 33/2010. Ekki varð sátt um
niðurstöðu sömu rannsóknar gagnvart Síld og
fiski ehf. og Matfugli ehf. Var móðurfélag
þessara fyrirtækja sektað um 80 milljónir
króna vegna brotanna. Sú niðurstaða var
staðfest í Hæstarétti árið 2014.
4. Á árunum 2008 og 2009 sektaði Sam-
keppniseftirlitið nokkur samtök atvinnufyr-
irtækja fyrir brot á samkeppnislögum, sem
voru til þess fallin að hækka verð á dagvöru
til neytenda. Sjá nánar ákvarðanir nr. 10/
2008, 5/2009 og 9/2009.
5. Árið 2012 gaf Samkeppniseftirlitið úr
skýrsluna „Verðþróun og samkeppni á dag-
vörumarkaði“ (nr. 1/2012). Þar er m.a. gerð
grein fyrir rannsókn eftirlitsins á kjörum sem
dagvöruverslanir njóta hjá birgjum. Í ljós
kom að smærri verslanir greiddu birgjum að
meðaltali 15% hærra verð en stærsta
verslanasamstæðan, Hagar. Smærri verslanir
hefðu því litla möguleika á verðsamkeppni.
Í skýrslunni hvatti Samkeppniseftirlitið
birgja til að endurskoða verðstefnu sína að
þessu leyti, einkum og sér í lagi gagnvart
minni dagvöruverslunum. Hefur eftirlitið
fylgt skýrslunni eftir, m.a. með rannsóknum á
verðlagningu tiltekinna birgja. Á árinu 2015
var að nýju tekin staða á þessu álitaefni, sbr.
skýrslu nr. 1/2015.
6. Fyrr í sumar komst Samkeppniseftirlitið
að þeirri niðurstöðu að Mjólkursamsalan
(MS) hefði misnotað markaðsráðandi stöðu
sína gagnvart minni keppinauti, með því að
selja keppinautum sínum grundvallarhráefni
til framleiðslu á mjólkurvörum á óeðlilega
háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengd-
ir aðilar fengu þetta hráefni á mun lægra
verði, og að auki undir kostnaðarverði. Skað-
aði þessi háttsemi því samkeppni milli birgja
á dagvörumarkaði. Sjá nánar ákvörðun nr.
19/2016.
Forveri MS, Osta- og smjörsalan, hafði áð-
ur misnotað markaðsráðandi stöðu sína með
sambærilegum hætti, sbr. ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins nr. 39/2006.
Betur má ef duga skal
Af þessu er ljóst að grein Haraldar byggist
í meginatriðum á röngum staðhæfingum.
Nægir að nefna þá fullyrðingu að Samkeppn-
iseftirlitið hafi látið undirverðlagningu mark-
aðsráðandi fyrirtækja óátalda.
Framangreind upptalning er ekki tæmandi
um aðgerðir samkeppnisyfirvalda á dagvöru-
markaði. Sömuleiðis er ljóst að fleiri verkefni
eru framundan, til þess að efla samkeppni.
Til að stuðla að úrbótum á markaðnum
birti Samkeppniseftirlitið í fyrra skýrslu und-
ir heitinu „Leiðbeining um samkeppni á dag-
vörumarkaði“ (nr. 1/2015). Í 2. kafla skýrsl-
unnar er að finna yfirlit yfir aðgerðir og
umfjöllun samkeppnisyfirvalda um mikilvæg
álitaefni á markaðnum og úrræði til að efla
samkeppni. Með skýrslunni var því beint til
þeirra sem starfa á markaðnum að draga lær-
dóm af þessum fyrri úrlausnum samkeppn-
isyfirvalda.
Um leið er skýrslan gagnlegt yfirlit fyrir
þá sem vilja fjalla um samkeppni á dagvöru-
markað á grunni réttra upplýsinga. Skýrslan
er aðgengileg á heimasíðu eftirlitsins,
www.samkeppni.is.
Eftir Pál Gunnar Pálsson » Grein Haraldar er gott
tilefni til þess að rifja
upp nokkrar aðgerðir Sam-
keppniseftirlitsins á dag-
vörumarkaði.
Páll Gunnar Pálsson
Höfundur er forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppni á dagvörumarkaði
– Í tilefni af grein Haraldar Benediktssonar