Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 20

Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Nú mun komið að því að Alþingi taki til umfjöllunar búvöru- samninga með til- heyrandi breytingum á búvörulögum. Þetta mál er lengi búið að velkjast í atvinnu- veganefnd og fréttir berast af því að þaðan megi vænta einhvers óskapnaðar í stíl við samningana sjálfa. Búvörusamningar þessir eru mesta atlaga sem gerð hefur verið að íslenskum landbúnaði og veltur því mikið á að þá megi stöðva við þessa síðustu hindrun. Ég hef frá því að samningarnir voru birtir með fjölda greina í fjöl- miðlum reynt að vekja athygli á þeirri atlögu að skynsemi sem gerð er með þessum samningum. Bændablaðið, sem átti að vera hinn eðlilegi vettvangur umræðu, lokaði strax á birtingu þessara greina þar og varðstaða formanns BÍ og „áróðursmálaráðherra“ hans traust. Þannig er lýðræðisástin þar. Yfirleitt hefur formaður BÍ ekki sýnt burði til að skýra um- rædda samninga nema grein sem hann birti á vef BÍ. Þar hafði hann hnoðað saman tíu spurningum um málið. Í svörunum er urmull af staðreyndavillum sem ég hef bent á. Markverð yfirlýsing um afskiptaleysi BÍ að kjörum bænda er þar. Þó að rækilegar hindranir hafi þannig verið lagðar í veg um- ræðu hef ég orðið þess var að þessi skrif hafa vakið bændur til umhugsunar. Snemma höfðaði ég til alþingis- manna. Ég vil hins vegar með þessu gera aðra tilraun til að höfða til skynsemi þeirra. Vísa með skýringar til áðurnefndra skrifa. Nautgripasamningur var aldrei kláraður. Í upphafi funda mun nefndin hafa lagt mesta vinnu í þann hluta. Fregnir bárust út til bænda um hvað væri vélað. Fund- arhöld voru með bændum í byrjun árs. Gerð var könnun meðal kúa- bænda sem mjög laumulega var farið með en sýndi þó að forysta bænda ætti ekki erindi með slíkan samning til framleiðenda. Þá var brugðið á það ráð að sópa öllu undir borðið og samningurinn að mestu óbreyttur til 2019 þegar at- kvæðagreiðsla skal fara fram um hvort framhaldið skuli kvótakerfi í mjólkurframleiðslunni. Þetta er ákaflega frumleg ákvörðun. Í stað þess að ræða ít- arlegar og taka ákvarðanir í fram- haldi þess skal öllu frestað. Það verður ekki umflúið að taka af- stöðu til þess hvort beita eigi stýr- ingu framleiðslu á þeim örmarkaði sem hér er eða láta dansa eftir lögmálum frjáls markaðar. Líklega hafa einhverjir þegar fengið sig fullsadda af því. Gildi gripa- greiðslna hefur aldrei verið metið hérlendis. Ekki er tekið á meg- inágreiningi og öllu slegið á frest. Slíkt stuðlar trauðla að framþróun. Um sauðfjársamninginn er lík- lega best að fara sem fæstum orð- um. Eins og ég hef bent á í fyrri skrifum verður ekki betur séð en með samningnum hafi samninga- nefndinni heppnast að brjóta öll markmiðsákvæði 1. gr. búvörulag- anna sem samninginn skal vinna samkvæmt. Kemst áreiðanlega í afrekaskrár. Er það sómi Alþingis að samþykkja samninga sem fót- umtroða þannig löggjöfina? Telja alþingismenn slík vinnubrögð bjóðandi? Þar eru lagðar til færslur á stuðningi á milli land- svæða sem birtast í því að stuðn- ingur er fluttur af þeim svæðum þar sem greinin er best rekin, sjálfbærni er mest, landnýting best og má áfram telja. Í sögulegu samhengi eru lagðar til tilfærslur sem siðferðilega eru ekki boðleg- ar. Í þessari grein skal gripið til gripagreiðslna sem eru áreið- anlega mun meira út úr kú en í nautgriparæktinni. Nýmæli þessara samninga eru landgreiðslur. Landgreiðslur eru hins vegar í þessum samningum ákvarðaðar án nokkurrar skoðunar á útfærslu. Ákveðið er að þær skuli aðeins ná til uppskorins lands. Allir sem hafa snefil af þekkingu á íslenskum landbúnaði sjá hvaða fjarstæða þetta er. Hvar er meginuppskera vegna hrossa- ræktar og sauðfjárræktar hér á landi sótt? Landgreiðslurnar og tenging þeirra við býlisstuðning opna hins vegar að mínu viti á lausnir í mörgum af málum ís- lensks landbúnaðar. Slíkt kostar að vísu talsverða skoðun og vinnu. Þannig vinnubrögð eru hins vegar bannorð formanns BÍ. Það sárasta við búvörusamning- ana er að forysta bænda hefur snúið sinni bestu stöðu 2014 í þá verstu sem landbúnaðar hér á landi hefur þurft að horfa á. Það sorglega við þetta er síðan það að staðan hefur orðið slík vegna al- gers vanmáttar örfárra forystu- manna samtakanna. Í stað þess að vinna mál fyrir sterkan samnings- grunn var ekkert gert. Að hluta er það áreiðanlega vegna þess að þessa forystumenn skorti með öllu framtíðarsýn og hugsjónir sem var ríkulega að finna meðal forystu- manna bænda þar til fyrir áratug. Ég hef bent á hugsanleg mistök þeirra í mótun á félagskerfi sínu sem orsök vandans. Ég bið alþingismenn að hugleiða þessi orð og skoða frekari rök- stuðning minn í fyrri greinum. Þeir hljóta þá, hafi þeir snefil af sjálfsvirðingu, að fella samningana. Með því veittu þeir um leið ís- lenskum landbúnaði verðugan stuðning. Það gæfi íslenskum bændum tækifæri til að losa sig við þá fjóra til fimm forystumenn sem mestu hafa valdið um ófar- irnar. Á meðan þið skylmist innbyrðis um sæti ykkar á Alþingi mundi ný forysta bænda í landinu vinna grunn að nýjum samningavið- ræðum við nýja ríkisstjórn. Þá mun vonandi undirstaða fundin rétt. Undirstaða rétt sé fundin Eftir Jón V. Jónmundsson » Gerð var könnum meðal kúabænda sem mjög laumulega var farið með en sýndi þó að forysta bænda ætti ekki erindi með slíkan samn- ing til framleiðenda. Jón Viðar Jónmundsson Höfundur hefur starfað við flestar stofnanir landbúnaðarins síðustu rúma fjóra áratugi. Bæta þarf hag eldri borgara, t.d. þeirra sem hafa eingöngu tekjur frá TSR sem og hjá þeim sem hafa greitt í lífeyrissjóði til langs tíma en fá lítið út úr sjóðunum því miður. Staðan er bág hjá mörgum, t.d. þeim sem leigja eða skulda í sínu húsnæði. Sveitarfélög eiga að sjálfsögðu að lækka almennt fasteignagjöld hjá eldri borgurum sem hafa lagt mikið til samfélagsins gegnum tíðina. Skoða þarf hvort ekki sé æskilegt að afnema skatta af úttekt úr sér- eignarsjóðum upp að vissri upphæð, t.d. í 3-5 ár eftir að 67 ára aldri er náð sem væri þá oftast við starfslok þeg- ar tekjur minnka verulega hjá mörg- um. Afnema þarf óréttláta bifreiða- gjaldið hjá eldri borgurum sem kem- ur til hvort sem bifreið er ekið mikið eða lítið. Einnig þurfa lífeyrissjóðirnir, ríkið og sveitarfélög að koma að uppbygg- ingu á hentugu húsnæði fyrir eldri borgara gegn hófsömu verði/leigu. Framangreint myndi bæta nokkuð hag eldri borgara og skapa meiri lífs- gleði út í samfélagið. Ómar G. Jónsson, talsmaður sjálfstæða framfarahópsins fyrir betra samfélag. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Bæta þarf hag eldri borg- ara með vissum úrræðum Morgunblaðið/Ómar Gjöld Margir eldri borgarar telja ýmsa skatta og gjöld ósanngjörn. SHAREHOLDERS MEETING OF CCP HF. MEETING INVITATION A shareholders meeting of CCP hf., reg. no. 450697-3469, will be held on Thursday 1 September 2016 at 10am at Grandagarður 8, 101 Reykjavík. Following matters will be on the agenda: 1. Purchase of own shares The board of directors submits the following proposal before the meeting: “The shareholders’ meeting resolves to grant the board of directors of the company the authority to purchase 1,105,413 own shares, all at once or in separate steps, provided that the company may not own more than 10% of its share capital at any time. Repayment for each share shall at minimum be USD 20 (or the ISK proceeds thereof if USD is converted to ISK to purchase own shares) and at maximum USD 25 (or the ISK proceeds thereof if USD is converted to ISK to purchase own shares). The purchase of own shares shall be a part of a scheme to reduce the share capital of the company, cf. Article 57 of the Act respecting Public Limited Companies No. 2/1995. This authority may be applied by the board of directors within one year from 1 September 2016, all at once or in steps.“ 2. Proposal on amendment of the Articles of Association The board of directors proposes that Article 2.09 of the Articles of Association is amended to read as follows: "The board of directors of the company shall be authorized to purchase 1,105,413 own shares, all at once or in separate steps, provided that the company may not own more than 10% of its share capital at any time. Repayment for each share shall at minimum be USD 20 (or the ISK proceeds thereof if USD is converted to ISK to purchase own shares) and at maximum USD 25 (or the ISK proceeds thereof if USD is converted to ISK to purchase own shares). The purchase of own shares according to this authorization shall be a part of a scheme to reduce the share capital of the company, cf. Article 57 of the Act respecting Public Limited Companies No. 2/1995. This authority may be applied by the board of directors within one year from 1 September 2016, all at once or in steps. The companycannot provide loanswith its shares as collateral. Voting rights for shares owned by the company cannot be exercised.“ Icelandic version: „Stjórn félagsins skal vera heimilt að kaupa 1.105.413 eigin hluti, í einu lagi eða hlutum, að því tilskyldu að félagiðmá ekki eigameira en 10%af eigin hlutum á hverjum tíma. Endurgjald fyrir hvern hlut skal vera að lágmarki USD 20 (eða jafnvirði þess krónum ef krónur eru keyptar til að kaupa eigin hlutabréf) og að hámarki USD 25 (eða jafnvirði þess krónum ef krónur eru keyptar til að kaupa eigin hlutabréf). Kaup félagsins á eigin hlutum samkvæmt heimild þessari skal vera liður í að lækka hlutafé félagsins, sbr. 1. tl. 57. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Heimild þessa skal stjórnin nýta innan eins árs frá 1. september 2016, í einu lagi eða hlutum. Félagið má eigi veita lán út á hluti sína. Óheimilt er að neyta atkvæðisréttar fyrir þá hluti sem félagið á sjálft.“ 3. Other matters The agenda and final proposals will be available at the company‘s office for shareholders to view, before the meeting. Ballots and other documents will be delivered at the place of the meeting from 9am on the day of the meeting. Reykjavík, 25 August 2016 CCP´s Board of Directors BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson brids@mbl.is Gullsmárinn Spilað var á 10 borðum í Gull- smára mánudaginn 22. ágúst. Úrslit í N/S: Jónína Pálsd. - Þorleifur Þórarinss. 199 Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 194 Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 188 Vigdís Sigurjónsd. - Elísabet Steinarsd. 176 A/V Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 210 Erla Ellertsd. - Hálfdán Hermannsson 203 Magnús R.Jónsson - Pétur Jósefsson 186 Kristín G.Ísfeld - Óttar Guðmundss. 175 Ekki verður spilað í Gullsmára fimmtudaginn 25. ágúst (húsið upp- tekið). Alla næstu mánudaga og fimmtudaga til jóla verður spilað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.