Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 24

Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Gunnar Hjálmar Jónsson var um margt sérstakur maður. Þeir sem voru svo lánsamir að kynnast þessum músíkalska sagnamanni úr Reykhólasveit urðu gjarnan fyrir áhrifum sem settu mark á lífsstefnu þeirra upp frá því. Kennarinn Gunnar opnaði nem- endum nýja sýn með leik sínum, gítarinn varð í höndum hans jafn- oki annarra klassískra hljóðfæra og á löngum og farsælum kennsluferli varð hann faðir og afi margra íslenskra gítarleikara. En það var margt annað í fari Gunn- ars sem hollt var að kynnast. Hann hafði óvenjuríka réttlætis- kennd og samúð með þeim sem áttu undir högg að sækja. Í stuttri grein verður aðeins tæpt á fáein- um myndum sem leita á hugann. Hæst ber þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Gunnari, hug- sjónum hans og viðhorfum. Það atvikaðist svo að Gunnar varð örlagavaldur í sögu Tónskól- ans. Þegar Sigursveinn D. Krist- insson hóf undirbúning að stofnun skólans þurfti að yfirstíga ýmsar hindranir. Gunnar frétti af áform- um Sigursveins og kom ásamt stórum nemendahópi til liðs við skólann. Þar með voru uppfyllt skilyrði nýsamþykktra laga um fjölda nemenda og var þá hægt með fullum rétti að sækja um Gunnar Hjálmar Jónsson ✝ Gunnar Hjálm-ar Jónsson fæddist 17. mars 1929. Hann lést 13. ágúst 2016. Útför Gunnars fór fram 24. ágúst 2016. framlög til starfsem- innar. Gunnar var í hópi fyrstu kennara skólans og náinn samstarfsmaður Sigursveins, milli þeirra ríkti ávallt gagnkvæm virðing. Síðar þegar Tón- skólinn eignaðist eigið húsnæði við Hellusund 7 tók Gunnar að sér hús- vörslu og fleiri störf auk kennsl- unnar, þar á meðal fjölritun, af- greiðslu og upplýsingagjöf. Það var dýrmætt fyrir skólann að hafa mann sem helgaði sig starfinu með þeim hætti sem Gunnar gerði. Hann var ávallt til staðar, tilbúinn að leiðbeina og aðstoða. Eins og komið hefur fram var Gunnar örlátur á tíma sinn. Í kennslunni var stundum ekki fylgt strangri stundaskrá, kennsl- an líktist meira því sem kallað er masterklass. Oft var þröngt því mikilvægt var að mati meistarans að nemendur hlýddu á leik hver annars og tækju þátt í umræðum um list og leiktækni. Þarna varð til öflugur nemendahópur, nokk- urs konar akademía, sem tileink- aði sér það viðhorf að árangur næðist aðeins með skipulögðum æfingum og fórnfýsi. Úr þessum nemendahópi Gunnars uxu þeir upp sem síðar útskrifuðust úr Tónskólanum og gerðu gítarleik að ævistarfi. Gunnar var fjölhæfur hljóð- færaleikari. Auk gítarsins lék hann á mörg strengja- og strok- hljóðfæri og undirritaður minnist hans sem góðs félaga spilandi á þverflautu í Lúðrasveit verka- lýðsins. Greiðvikni Gunnars kom sér oft vel. Minnisstætt er þegar hann settist meðal nemenda í skólahljómsveitina í Tónskólan- um með víóluna sína, en sú grein var hvað fámennust. Eftir að Gunnar flutti norður til Akureyr- ar 1980 kenndi hann fleiri greinar með eftirtektarverðum árangri. Geir Gunnarssyni og fjölskyldu er vottuð dýpsta samúð. Með virðingu, þakklæti og kveðjum frá samkennurum við Tónskóla Sigursveins. Sigursveinn Magnússon. Í dag kveðjum við eftirminni- legan, litríkan mann sem aldrei fór troðnar slóðir og mundi tím- ana tvenna. Hann var snillingur á tónlistarsviðinu, fjölhæfur, næm- ur á tilfinningar fólks, sérstaklega nemenda sinna sem hann hvatti til dáða á sinn einstaka hátt. Hann var vel að sér um sögu lands og þjóðar og góður sögumaður. Á myndrænan hátt sagði hann frá tónlistar- og menningarlífi eftir- stríðsáranna í Reykjavík og allt til 1980 þegar hann fluttist til Akur- eyrar. Hann var góður ljósmynd- ari og mikill tæknikall með fullt af græjum. Fyrstu kynnin voru þegar Ólafur sótti gítartíma til hans á Njálsgötuna. Þráðurinn var svo tekinn upp þegar Gunnar fluttist til Akureyrar. Enginn af okkar dyggu heimilisvinum hefur oftar komið í Oddeyrargötuna síðustu áratugi. Gunnar spilaði í öllum okkar fjölskylduathöfnum og var oft sungið við stofuorgelið. Sér- staklega voru Fjárlögunum gerð góð skil þegar Sigríður móðir Kristínar var í heimsókn. Gunnar var nærgætinn og hjálplegur, ekki síst þegar ein- hver á heimilinu átti í veikinda- basli. Heimspekilegt spjall í amstri daganna, gítarkennsla, stofutónleikar, fjallgöngur og ferðalög. Allar góðar samveru- stundir eru þakkaðar og geymdar í festi minninganna. Gunnar var sjálfstæður á sínu heimili og af- þakkaði alla heimilisaðstoð þar til hann gekk inn á sjúkrahúsið stuttu fyrir andlátið. Hann var starfsfólki heilsugæslunnar og sjúkrahússins afar þakklátur fyr- ir góða umönnun. Geir syni Gunn- ars og fjölskyldu hans vottum við hluttekningu okkar. Hvíl í friði, kæri vinur. Kristín Sigfúsdóttir, Ólafur Hergill Oddsson. „Ert þú Guð almáttugur?“ spyr stúlkan. „Nei, alla vegar skeikar þar á einum starf: ð fyrir f,“ svara ég. „Nú, hvernig má það vera?“ spyr þá stúlkan. „Ja, ég gæti frek- ar gert allt að engu, en sagt er að hann hafi gert allt af engu.“ Hér vitna ég í eina af sögum Gunnars vinar míns, lífskúnst- ners og kennara, sem hann miðl- aði í viðtali við okkur Bjarka Sveinbjörnsson í febrúar 2011. Viðtalið er aðgengilegt á Ísmús- síðu um Gunnar. Það hefur líklega verið 1966 sem leiðir okkar Gunnars lágu saman fyrst – félagi í Kópavog- inum sagði frá þessum ótrúlega gítarkennara. Gunnar bjó þá á Njálsgötu 27 og kenndi þar í bak- húsi sem enn stendur. Mér þótti þessi maður strax merkilegur og skemmtilegur. Hann fiskaði eftir því hvar áhugi stráksa lá, sagði sögur og spilað fyrir mig klass- íska gítartónlist þegar bítlalög voru annars helsta áhugamálið. Margt snérist í huga ungs manns- ins á rölti eftir Njálsgötunni úr spilatíma hjá Gunnari. Eitthvað hef ég nefnt við meistarann að fiðlan heillaði mig. Þá var stutt í sögur af Felzmann, Birni Ólafs- syni og öðrum snillingum. Og áð- ur en varði var ég líka kominn í fiðlunám hjá Gunnari. Ekki man ég hvernig það gerð- ist en á einhverjum punkti var ég ekki lengur í einkatímum hjá Gunnari heldur nemandi hans í Tónskóla Sigursveins. Símon og Kjartan höfðu byrjað fyrr hjá honum og maður leit upp til þeirra. Svo man ég eftir að hafa heyrt mjög efnilegan ungan dreng spila í sal sem skólinn not- aði á Skólavörðustíg 18, sá var Arnaldur Arnarsson. Fullyrða má að stór hluti þeirra gítarleikara sem auðgað hafa menninguna undanfarna áratugi hafi átt Gunn- ar að læriföður, eða -afa; innblást- ur Gunnars náði að vekja í fólki kennarann ekki síður en spilar- ann. Fljótlega kynntist ég Sigur- sveini D. Svo komu árin öll í Hellusundinu þar sem Gunnar bjó um tíma sem húsvörður. Allt það góða fólk og merkilega sem þar kom við sögu, nemendur og kennarar, markaði varanleg spor í tilveruna. Eftir á að hyggja, var meistari Gunnar H. að mörgu leyti miðja þessa tíma. Hann vís- aði veginn beint og óbeint; með gæsku, sögum, hjálpsemi og mik- illi umhyggju; beindi manni í að kenna eða að spila fyrir fólk. Þó Gunnar væri oft fremstur kappa í sögum sem hann sagði fylgdi þar fátt um hans persónu- legu hagi; um prívat mál var ekki talað. Æskan var áreiðanlega erf- ið fyrir vestan og skólaganga varla lengri en sex mánuður í heildina segir hann í áðurnefndu viðtali. Þegar til Reykjavíkur kom vildi þessi gáfaði og listhneigði maður nema tréskurð hjá Rík- harði. Ekki gekk það eftir. Þess í stað lærði hann í stuttan tíma gít- ar- og fiðluspil meðfram annarri vinnu. Náttúrulegir hæfileikar, innsæi og læsi á mannleg sam- skipti bættu upp það sem á kann að hafa skort í formlegri mennt- un. Ég á Gunnari H. Jónssyni mik- ið að þakka eins og vafalítið á við um flesta sem kynntust þessu merka manni. Alveg er víst að lífið hefði orðið annað ef ég og þessi góði maður hefðum ekki náð sam- an á veginum. Við Erla vottum Geir, barna- börnum og vinum samúð þegar meistari Gunnar H. Jónsson er nú kvaddur. Jón Hrólfur Sigurjónsson. Lyfti mér langt í hæð lukkunnar hjól, hátt yfir stund og stað, stjörnur og sól, hljómi samt harpan mín: Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín. (Matthías Jochumsson.) Innstu dyrnar á ganginum opnast: í gættinni stendur bros- leitur eldri maður með hátt enni og hvítt stutt hár og býður vel- kominn þennan sex ára gutta sem ætlar að verða gítarleikari. Í her- berginu alls konar strengjahljóð- færi sem endurvöktu tónlistar- áhugann, sem áður hafði verið kaffærður þegar óskum mínum um að verða trommuleikari var fyrst mætt af fálæti en mér síðan gefinn kostur á að mæta í stirða tónfræðitíma þar sem misupp- veðruð leikskólabörn púkablístr- uðu á blokkflautur. Segir fátt af þessum fyrsta vetri annað en að við æfðum og gripum stundum í kontrabassa. Ég hef líklega verið rétt rúmur metri á hæð, þannig að ég ein- beitti mér að því að plokka strengina, Gunnar stýrði vinstri hendi og ákvað þannig hvaða lag var verið að spila. Við héldum tónleika þar sem við stoppuðum nánast strax, enda ósammála um hvaða lag var verið að spila. Móðir mín var eini áhorf- andinn á þessum tveggja manna einleikaratónleikum á kontra- bassa og rifjaði oft upp með brosi. Svo liðu árin. Við komum fram á fleiri tónleikum þar sem lærðist mikilvæg lexía: alltaf að halda áfram þótt maður geri feilnótu. Laglínurnar urðu smám saman flóknari, lögin lengri. Ég tamdi mér samt þann ósið að mæta óæfður í tíma. Við æfðum okkur í tímum, en heima hafði ég enga þolinmæði í að sitja einn og berj- ast við nóturnar. Í tímunum með Gunnari var auðveldara að spila. Ég skánaði hægt og bítandi en var ekki sérstakur nemandi á þessum árum. Það hefði verið auðvelt að afskrifa nemanda eins og mig sem æfði lítið heima, hafði ekki áhuga á tónfræði, rétt staut- aði mig fram úr nótnalestri, lærði ekki skala, tók ekki stigspróf – gat bara hlustað og hermt. Sumu fólki eru hins vegar lítil takmörk sett hvað þolgæði og þrautseigju snertir. Þrátt fyrir hægfara framgang fann ég alltaf fyrir áhuga fyrir manni. Ef maður mætti óæfður var bara spjallað og svo tekið til við að æfa laglínur. Eftir ferm- ingu bauðst mér að skipta yfir á rafbassa og þá vaknaði tónlistar- ástríðan fyrir alvöru. Ég tók mikl- um framförum á skömmum tíma. Fyrstu skrefin í rafbassaleik steig ég fyrir tilstuðlan Gunnars. Hann gerði ráðstafanir til að virkja ástríðuna, kom mér í samspil og seinna meir til annars kennara til að halda áfram að bæta sig. Það sem var verðmætast í náminu með Gunnari, bæði hvað varðar gítarnámið og upphafsárin á rafbassa, var eftir á að hyggja þrennt; að æfa sig að hlusta, að kynnast þolinmæði og læra að skilja tónlist. Gunnar kenndi mér ekki það eitt að vera hljóðfæra- leikari, hann hjálpaði mér að skilja tónlist. Öll þessi ár í hálf- gerðu Suzuki-námi að pikka upp laglínur, skilja hljómaganga, þessi umskipti milli hljóðfæra og geta séð hvað er líkt og ólíkt með þeim – það á ég gamla kennaran- um mínum að þakka. Afstaða hans til tónlistar var stéttlaus og hann kunni bæði vel við sig sem klassískur gítarleikari og bassa- leikari í danshljómsveit. Hann hafði yndi af samspili en líka ein- lægan áhuga á mannfólki. Þegar maður hitti hann á förnum vegi var ómögulegt annað en að spjalla og hlusta á nokkrar skemmtisög- ur. Og hann spurði með vinsemd um hvað dagarnir báru með sér. Nú, löngu eftir að maður er hættur námi hugsar maður hlýtt til Gunnars, þess sem hann kenndi og miðlaði. Við fráfall hans rifjast upp margar dýrmætar æskuminningar. Það er því með sorg, en einnig af þakklæti og virðingu, sem ég kveð þennan læriföður. Hjálmar Stefán Brynjólfsson. Í bernsku geta nöfn afa og ömmu vafist fyrir manni, sérstaklega ef þau eru svipuð í móður- og föður- ætt. Þóra amma var alltaf köll- uð „amma á grasinu“ vegna þess að stór grasflöt var í kringum húsið hjá þeim, þar sem gaman var að leika sér. Síðla sumars var grasflötin sér- lega vinsæl því þá var hægt að stelast í sól- og rifsberin sem spruttu í miklum mæli á runn- um garðsins og amma sagði aldrei neitt þótt við stæðum á beit í berjunum. Þóru ömmu leið best í útiveru enda varði hún mörgum stund- um úti við með afa í Fljótshlíð- inni þar sem þau byggðu litla rauða sumarhúsið sitt og rækt- Þóra Björgvinsdóttir ✝ Þóra Björg-vinsdóttir fæddist 7. janúar 1928. Hún lést 16. ágúst 2016. Útför Þóru fór fram 24. ágúst 2016. uðu af mikilli elju- semi sinn eigin skóg. Okkur systrunum þótti endalaust skemmti- legt að þræða þennan ævintýra- skóg og kíkja á fossinn. Einhvern veginn tókst þeim einnig að skapa sitt eigið veðurfar við rauða sumarhúsið því þar var nær alltaf 22 stiga hiti og sól. Amma og afi voru einnig dugleg að ferðast um landið og níu ára peyja þótti afskaplega vænt um þegar þau heimsóttu hann í sveit til Vopnafjarðar. Í þeirri heimsókn var meðal ann- ars farið með drenginn og rennt fyrir silung í Nykurvatni. Þau ferðuðust líka alla leið til Wis- consin þegar sami drengur var þar við háskólanám. Sú ferð var um margt eftirminnileg og þá sérstaklega dagsferð til Chi- cago, því við villtumst í versta skuggahverfi borgarinnar og það tók okkur langan tíma að komast þaðan út. Sú ferð kallaði á talsvert af brjóststyrkingar- meðulum til að róa taugarnar. Amma var tignarleg kona sem lumaði alltaf á nokkrum skemmtilegum bröndurum en hún lét afa eftir að segja þá sem voru tvíræðir. Síðustu tvö árin lagði ellin sífellt þyngri byrðar á ömmu. Amma spyrnti við og lagði mikið upp úr að halda reisn og láta Elli kerlingu ekki ná yfirhöndinni. En glímu við þá kerlingu hefur engin unnið til þessa. Í ljós kom að amma á grasinu var í raun amma nagli sem aldrei kvartaði undan sára- uka. En nú er friðurinn kominn yfir þig, amma, og við vitum að þú ert komin á hlýjan og góðan stað. Bless, elsku amma. Björk, Friðrik og Lilja. Ótal hugsanir flugu í gegnum hugann er við settumst niður til að skrifa grein um ömmu Þóru sem dó á Sólteigi, Hrafnistu 16. ágúst síðastliðinn. Hvernig skrifar maður minningargrein um einhvern sem skipað hefur stóran sess í lífi manns? Hvern- ig kveður maður einhvern sem manni þykir vænt um? Við er- um svo heppnir að eiga margar minningar tengdar ömmu og afa en ekkert eitt orð lýsir þeirri manneskju sem amma var. Í okkar augum var hún einstök amma, fágaðri og fallegri konu var erfitt að finna. Amma var mestalla ævi sterk og heilsuhraust kjarnakona. Í hvert skipti sem við komum í heimsókn var allt tipp topp, ekki kusk að sjá og allt í röð og reglu, þannig vildi hún hafa það. Ömmu fannst mjög gaman að gefa okkur að borða, allavega fannst okkur það, því þegar bú- ið var að segja nei takk, ég er ekki svangur, gafst maður upp eftir þriðju synjun og fékk sér brauðsneið og endaði það í 4 til 5 sneiðum. Oft leið okkur eins og fallegri gæs frá Frakklandi, það var troðið í okkur brauði svo við yrðum klárir fyrir jólin. Síðan áttum við ófáar ferðir í Fljótshlíðina, í bústaðinn góða, sem voru oft á tíðum mjög skemmtilegar. Alltaf fannst okkur vera gott veður þar enda þegar amma og afi voru spurð hvernig veðrið ætti að vera næstu daga var svarið: „Það er alltaf gott veður í Fljótshlíðinni, punktur.“ Við erum þakklátir fyrir hlut- verk ömmu í lífi okkar og mun- um ávallt minnast hennar með hlýhug, væntumþykju og virð- ingu. Blessuð sé minning henn- ar. Þínir dóttursynir, Jóhann, Baldur og Bjarni. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BRYNDÍS DÓRA ÞORLEIFSDÓTTIR, Mánatúni 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 29. ágúst klukkan 15. Starfsfólki Sóltúns er þökkuð góð umönnun. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Líknarsjóð Oddfellowreglunnar. . Jón Þór Jóhannsson, Þorleifur Þór Jónsson, Þórdís H. Pálsdóttir, Stefanía Gyða Jónsdóttir, Benjamín Axel Árnason, Jóhann Þór Jónsson, Þórunn Marinósdóttir, Bergrún Svava Jónsdóttir, Ragnar Baldursson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi, HELMOUT KARL KREIDLER sjóntækjafræðingur, varð bráðkvaddur 19. ágúst. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 2. september klukkan 13. . Steinunn Kristjánsdóttir, Einar Victor Karlsson, Dagur Freyr Einarsson, Eydís Lára Einarsdóttir. Við þökkum aðstandendum og vinum fyrir samúð og hlýhug vegna andláts ARNOLDS B. BJARNASONAR, Markarflöt 14. . Jóhanna Boeskov, Georg A. Bjarnason, Ragnheiður Hlynsdóttir, Ásgeir H. Bjarnason, Ásta Andreassen, Birna Bjarnason-Wehrens, Horst Wehrens, Örn Bjarnason, Ágústa Kristmundsdóttir, Áslaug Arnoldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.