Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Dalbraut 3, Reykjavík, fnr. 201-7293, þingl. eig. Laugarásvídeó ehf., gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn 29. ágúst nk. kl. 11:00. Hofteigur 24, 201-9303, Reykjavík, þingl. eig. Sigríður Ragnarsdóttir, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Íbúðalánasjóður og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., mánudaginn 29. ágúst nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 24. ágúst 2016 Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Handa- vinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Helgistund á vegum Seljakirkju kl. 10.30-11. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Línudans með Eddu kl. 13. ZUMBA-gold: 8 vikna námskeið hefst 22. ágúst kl. 10.30 á mánudögum og fimmtudögum. Skráning hafin á feb@feb.is og í síma 588-2111. Boðinn Handavinnustofan opin frá 9-15 og brids og kanasta kl. 13. Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, stólajóga í parketsal kl. 10.30, prjónakaffi í vinnustofu kl. 14. Garðabær Heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16. Handavinnu- horn kl. 13 í Jónshúsi. Gjábakki Handavinna kl. 9, jafnvægisþjálfun kl. 13 og 14, létt hreyf- ing kl. 15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, botsía kl. 10, matur kl. 11.30. Spiluð félagsvist kl. 13.15, kaffisala í hléi. Púttvöllurinn okkar er opinn á opnunartíma félagsmiðstöðvar- innar, endilega notið góða veðrið . Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, lífssöguhópur kl. 10.50, síðdegiskaffi kl. 14.30, Sönghópur Hæðargarðs kl. 13.30 og línudans kl. 15. Ferð á Reykjanesið miðvikudaginn 31. ágúst, allir velkomnir með, óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790.. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja / listasmiðja með leið- beinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, bókabíllinn kl.10-10.30, upplestur kl.11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, tölvu- og snjalltækjakennsla kl. 15.30. Uppl. í síma 411-2760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Allir velkomnir á Sléttuveg, óháð aldri og búsetu. Opið er kl. 10-14. Matur er afgreiddur kl. 11.30-12.30. Nánari upplýsingar og matarpantanir á opnunartíma í síma 568-2586. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Kaffispjall í krókn- um kl. 10.30. Vöfflukaffi og kynning á vetrarstarfinu í dag kl. 14 í Félagsheimili Seltjarnarness. Allir velkomnir. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba Gold námskeið kl. 10.30. Nú verðum við í salnum í Félagsmiðstöðinni Árskógum 4, leiðbein- andiTanya. Qigong-námskeið hefst 30. ágúst, leiðbeinandi Inga Björk. Skráning hafin á námskeiðin. Vesturgata 7 Föstudaginn 26. ágúst kl. 13-14 hefst söngstund við flygilnn við undirleik Gylfa Gunnars, allir velkomnir, kaffisala kl. 13-14. Glerskurður (Tiffanys) hefst þriðjudaginn 6 september kl. 13-16, leið- beinandi Vigdís Hansen. Enska framhald hefst föstudaginn 16. sept- ember kl. 10-12, leiðbeinandi Peter Vosicky.Tréútskurður byrjar í októ- ber, leiðbeinandi Lúðvík Einars. Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðin í síma 535-2740. Allir velkomnir óháð aldri. Smáauglýsingar Dýrahald Shetland Sheepdog Sheltie hvolpar til sölu, tilbúnir til af- hendingar heilsufarsskoðaðir og ættbókarfærðir. Uppl. í síma 8638596. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Bókhald NP Þjónusta Tek að mér bókhald, endurútreikning og vsk. Hafið samband í síma: 861-6164. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Ljúfsárar stundir á tímamótum leggj- ast misjafnlega í menn. Við kveðjum góða manneskju um þess- ar mundir, konu sem bjó yfir sérstökum hæfileikum; greind, var hugguleg og gædd sterkum lífsvilja, sem sannast á ýmsu og þá sér í lagi að þrátt fyrir allt sem hún gekk í gegnum náði hún að afreka eitt og ann- að, áður en hún komst á sinn háa aldur. Ester Snæbjörnsdóttir fæddist 7.9. 1923, hún var frá Húnavatnssýslu. Foreldrar hennar voru Snæbjörn Guð- mundsson og Elín Pétursdóttir Blöndal. Hún giftist Sigurbirni Árnasyni. Börn þeirra urðu tíu sam- tals, þar af átta drengir og tvær telpur. Ester Snæbirna Snæbjörnsdóttir ✝ Ester Snæ-björnsdóttir fæddist 7. september 1923. Hún lést 31. júlí 2016. Útför Esterar fór fram 10. ágúst 2016. Mamma bar af öðrum konum til orðs og æðis að miklu leyti og við litum öll upp til hennar. Þó ég vildi ekki kveðja mömmu, var við þessu að búast og ég og mínir kveðjum með því að þakka þér, elsku mamma, fyrir allt gott, skemmtilegt og gagnlegt sem þú bentir á, kenndir mér og öðrum og trúðir mér fyrir. Þakka fyrir allar okkar ótalmörgu og ára- tuga löngu samverustundir. Fáar konur komust með tærnar þar sem þú hafðir hæl- ana og mundu að sjálfsögðu ekki heldur geta í nútímanum. Annars var mjög oft glatt á hjalla hjá okkur með þér, hvort það var undir fjögur augu, í fámenni eða í stórum hópum – Mömmu og ömmu Ester. Alvörustundir komu og voru þar inn á milli en alltaf birti til hjá okkur. Ei vitkast sá, er verður aldrei hryggur, hvert vizkubarn á sorgar brjóstum liggur. (Steingrímur Thorsteinsson.) Brot úr ljóði sem kom upp í hugann, ásamt fleiru af göml- um sögnum, fallegum ljóðum, söngvum, laglínum og sam- blandi af hinu og þessu. Huga minn og annarra í ljúfsárum sætindunum. Mamma, þú ert elskuleg mamma mín, mér finnst gott að koma til þín. … Þú varst drottning í hárri höll. … (Freymóður Jóhannsson.) Elsku mamma – Þín verður sárt saknað. Ég kveð þig með því að óska þér góðrar ferðar til hvaða staðar sem þú kýst helst að dvelja á eða í „yndislegri sveitinni“, eins og þú sjálf sagðir. Þú verður alltaf í huga okkar, veit ég og vona sem fyrr að þú hafir það gott sem forðum og þaðan muntu eða ert jafnvel að fara til himna- ríkis. Í trú, von og kærleika – hvíl þú sæl. Aðalheiður (Allý) Sig- urbjörnsdóttir, börn og barnabörn. Elsku amma mín, núna ertu far- in frá okkur en skilur eftir hjörð af góðu fólki. Ég man alltaf eftir því hversu gaman var að koma á Laugaveginn í heimsókn, fá afa- kúlur og fela mig í fataskápn- um. Hversu mikið maður hefur lært af því að fá að umgangast þig og þann heiður að hafa fengið að vera hluti af lífi þínu. Ég veit að við áttum sumt óuppgert, en ég veit það líka að innst inni hafðirðu alltaf trú á mér og vildir mér alltaf allt það besta. Núna ertu komin á betri stað til hans afa þar sem þú vilt vera. Aldrei gleymi ég öllum sam- tölum okkar og öllum minning- unum sem við eigum saman, elsku amma mín, þú munt alltaf lifa í hjarta mínu og ég veit þú vakir yfir mér. Minn kæri Guð, taktu á móti ömmu minni í ljósið bjarta. Með englum þínum hún elsku hljóti, efst þar mun hún kærleik skarta. Þinn, Grétar Þór Jónsson. Elsku amma. Ég átti svo erfitt með að sætta mig við það að ég væri að kveðja þig í hinsta sinn þegar ég söng fyrir þig kvöldið áður en þú kvaddir. Amma, það er svo margt sem ég hef að þakka þér, þú hafðir alltaf góðar og skemmtilegar sögur að segja og minningarnar mínar með þér mun ég alltaf geyma í hjartanu. Þegar ég var yngri og vissi að þú værir að koma vestur beið ég spennt því alltaf þegar þú varst hjá okkur vissi ég að ég fengi að sitja með þér á Elísabet Þórðardóttir ✝ Elísabet Þórð-ardóttir fædd- ist 24. apríl 1932. Hún lést 16. ágúst 2016. Útför Elísabetar fór fram 24. ágúst 2016.. morgnana og borða ristað brauð með osti og sultu, sem var bara hefð þeg- ar amma kom. Einnig var ég alltaf fljót til þegar rútur komu til Flateyrar og stoppuðu ná- lægt húsinu okkar að athuga hvort þú, elsku amma mín, leyndist nokkuð með í hópnum. Við Addi bróðir veifuðum líka alltaf flugvélum sem við sáum og sögðum „við biðjum að heilsa ömmu“. Ég gleymi aldrei þegar ég var að fara í mína fyrstu flug- ferð með þér og var að fara að vera ein með þér í Reykjavík, það fannst mér mjög spenn- andi. Ég var nú samt alls ekkert viss með þessa flugvél og fannst hún fara heldur hratt fyrir minn smekk, en þú varst fljót að róa mig og sagðir mér að þetta væri allt í góðu. Alla dag- ana sem ég var hjá þér í Reykjavík fórst þú með mig á hárgreiðslustofuna á Laugaveg- inum til þess að láta greiða prinsessunni þinni, við fórum í búðir saman og ég fékk að velja það sem mig lysti og á hverjum degi fórum við svo í heimsókn til afa á sjúkrahúsið þar sem hann lá með lungnabólgu. Ég er svo ánægð með að í síðustu skipti sem ég hef komið í heimsókn til þín hef ég alltaf getað gert eitthvað fyrir þig, þó það hafi nú ekki verið mikið varstu alltaf svo þakklát, sama hvort það væri bara að ganga frá þvottinum, vaska upp nokkra diska eða elda fyrir þig mat. Elsku amma mín, þú varst mér svo kær og ég mun alltaf geyma minningarnar okkar í hjarta mínu, og stolt mun ég bera nafnið okkar út lífið og segja börnum mínum seinna í lífinu frá því hvað þú varst frá- bær amma. Þrátt fyrir að það hafi verið mjög erfitt að kveðja þig geri ég það samt með bros á vör því ég veit að þú ert á betri á stað, fæturnir fá loksins að hvíla sig og þú og afi fáið loksins að vera saman aftur, ég veit hvað þú saknaðir hans mikið. Elsku amma mín, ég kveð þig með nokkrum línum úr lag- inu sem ég söng fyrir þig kvöld- ið sem þú kvaddir, ég elska þig amma og ég mun alltaf hafa þig í huga mér. Heyr mína bæn, bára við strönd, blítt þú vaggar honum við barm, þar til svefninn sígur á brá. Draumheimi í, dveljum við þá, daga langa, saman tvö ein, heyr mínar bænir, og þrár. (Ólafur Gaukur Þórhallsson) Elísabet Ósk Magnúsdóttir. Móðursystir mín hún Lísa er fallin frá eftir stutta en erfiða sjúkralegu. Lísa gerði ekki miklar kröfur til lífsins og aldrei heyrði ég hana kvarta. Kærleikur, hlýja og gleði einkenndi hana frænku mína. Hún var hannyrðakona mikil og allt sem hún gerði, bar vitni um mikinn hagleik og vand- virkni. Þess bera vitni þeir mörgu og fallegu hlutir, sem ég og fjöl- skylda mín eigum eftir hana. Við Lísa áttum margar ynd- islegar samverustundir þegar ég kom í heimsókn var mikið spjallað og hlegið en Lísa var með einstaklega smitandi hlát- ur. Hafðu hjartans þökk mér horfin stund er kær. Í minni mínu, klökk er minning hrein og skær. Þú gengur um gleðilönd, þér glampar sólin heið og við herrans hönd þú heldur fram á leið. Drottinn ljósa og lífs ljáðu huggun þeim, er líta í kvölum kífs kaldan og dimman heim. Láttu helga hönd harma lækna sár, sefa sjúka önd, sviða þeirra tár. (Páll Janus Þórðarson.) Elsku Hjördís, Magga Thelma, Grétar Þór, Jón Vigfús og fjölskyldur ég og fjölskylda mín sendum ykkur okkar inni- legustu samúðarkveðju. Hvíl í friði, elsku frænka mín. Þín, Margrét Þóra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.