Morgunblaðið - 25.08.2016, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 25.08.2016, Qupperneq 27
Árið 2009 flutti Georg til Ósló í Noregi og vann á veitingastaðnum Bølgen & Moi. „Ég var fljótur að vinna mig upp í stöðu aðstoðar- yfirmatreiðslumanns. Stuttu eftir heimkomu mína frá Noregi hóf ég matreiðslunám við Menntaskóla í Kópavogi og útskrifaðist árið 2013 með fyrstu einkunn.“ Eftir útskrift fór Georg til Kaupmannahafnar og vann á Michelin-veitingastaðnum Studio. „Í lok árs 2014 hóf ég svo störf sem yfirmatreiðslumaður Kola- brautarinnar í Hörpu þar sem ég vinn ennþá í dag. Í íslenska kokkalandsliðinu Árið 2015 var Georg valinn í ís- lenska kokkalandsliðið. „Nú erum við í fullum undirbúningi fyrir ól- ympíuleikana í matreiðslu sem eru næstkomandi október í Erfurt í Þýskalandi, en við erum tíu í liðinu. Svo eru fjölmargir aðrir sem koma að þessu einnig.“ Áhugamál Georgs eru snjóbretti, brimbretti, laxveiði og matreiðsla. „Við konan ætlum á Hótel Húsa- fell í tilefni dagsins, ætlum að gista þar og gera okkur góðan dag.“ Fjölskylda Sambýliskona Georgs er Snædís Hjartardóttir, f. 19.4. 1987. For- eldrar: Hjörtur Gíslason útgerðar- maður, f. 29.4. 1958, og k.h. María Bjarnadóttir leikskólakennari, f. 24.2. 1958. Þau eru búsett í Reykja- vík Dóttir Georgs og Snædísar er Elma Georgsdóttir, f. 14.4. 2015. Systkini Georgs eru Guðrún Hall- dórsdóttir, 11.8.1980, hárgreiðslu- kona, bús. í Grafarholti; Steinar Már Halldórsson, f. 1.5. 1983, bús. í Mos- fellsbæ; Viktor Andri Halldórsson, f. 30.7. 1995, stýrimannsnemi, bús. í Mosfellsbæ, og Tinna Halldórs- dóttir, f. 30.10. 1997, menntaskóla- nemi, bús. í Mosfellsbæ. Foreldrar Georgs eru Halldór Steinþórsson, f. 8.3. 1956, búfræð- ingur og skipstjóri, og k.h. Bryndís Kristjánsdóttir, f. 15.11. 1959, hand- verkskona og húsmóðir, búsett í Mosfellsbæ. Úr frændgarði Georgs Arnars Halldórssonar Georg Arnar Halldórsson Ása Sigríður Stefánsdóttir húsfreyja í Reykjavík Tómas Albertsson prentari og tónlistarmaður í Reykjavík Þorbjörg Tómasdóttir vann við þjónustustörf hjá varnarliðinu, bús. í Keflavík Kristján Karl Pétursson bílstjóri, sjómaður og vélvirki í Njarðvík Bryndís Kristjánsdóttir handverkskona og húsmóðir í Mosfellsbæ Guðmunda Eggertsdóttir húsfreyja í Garði Vigfús Pétur Ásmundsson sjómaður í Garði Steinþór Steinþórsson bókari í Mosfellsbæ Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi jr.) skemmtikraftur Albert Eyþór Tómasson fyrsti íslenski atvinnuflugmaðurinn Egill Vilhjálmsson bílainnflutningsmaður og stofnandi fyrirtækisins Egill Vilhjálmsson hf. Albert Sigurður Guðmundsson knattspyrnumaður, síðar sendiherra og ráðherra Guðbjörg Kristín Meyvantsdóttir húsfreyja í Reykjavík Georg Vilhjálmsson málari og listamaður í Reykjavík Anna Georgsdóttir gluggaútstillingakona í Reykjavík Steinþór Guðmundsson starfaði lengi til sjós en gerðist síðar verkstjóri í Laugardalshöll Halldór Steinþórsson búfræðingur og skipstjóri í Mosfellsbæ Indíana Katrín Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Gíslason gullsmiður í Reykjavík Afmælisbarnið Georg Arnar. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Doktor 95 ára Ármann Sigurðsson 85 ára Bára Jónsdóttir Erla Bernharðsdóttir 80 ára Anna Esther Ævar Jónsdóttir Ansa Súsanna Hansen Fríða Ágústsdóttir Ingvar Kristinn Guðnason Sigríður H. Arndal Sigrún Ágústsdóttir Sigurður Briem 75 ára Björk Guðjónsdóttir Eggert Jónsson Gunnar Steinþór Steinþórsson Ingibjörg Ólafsdóttir Jóna Kristín Dagbjartsdóttir Júlíana Fanney Sigurðardóttir 70 ára Anna Birna Benediktsdóttir Eiríkur Oddsson Guðbjörg Kolbeinsdóttir Guðrún Sólveig Grétarsdóttir Halldór Björnsson Hreinn Vilhjálmsson Kristbjörg Sigurðardóttir Nanna Guðrún Ásmundsdóttir 60 ára Ágúst Ágústsson Guðrún Ólafsdóttir Gunnar Jónsson Hlöðver Helgi Gunnarsson Kristbjörn Jónsson Ragnheiður Ólafsdóttir Sjöfn Ágústsdóttir Þröstur Jónasson 50 ára Artur Blaszkowski Brynhildur Magnúsdóttir Guðmundur Björgvinsson Helga Brá Árnadóttir Jón Kjartan Ingólfsson Sigríður Sturlaugsdóttir Sigrún Elva Hjaltadóttir Sigrún Gestsdóttir Sigrún Hafstein Radovic Símon Ingvar Jósefsson Stefán Áki Ragnarsson Thi Lan Pham 40 ára Anna Rut Guðmundsdóttir Ágúst Heiðdal Friðriksson Elín Hrönn Geirsdóttir Erla Björk Theodórsdóttir Hallvarður Ásgeirsson Hjördís Lilja Reynisdóttir Ildikó Olajos Jacek Jan Anisiewicz Jóhanna Katrín Jónsdóttir Kristín Sigríður Harðardóttir Marcin Piotr Prazmowski Unnur Lind Maríudóttir 30 ára Donatas Stasiunas Fannar Ingi Hallsson Georg Arnar Halldórsson Gunnlaugur Ragnar Reynisson Hafliði Sigurðarson Hildur Selma Sigbertsdóttir Jónas Þór Brynjarsson Magnús Már Magnússon Nína Hallgrímsdóttir Robert Mugabe Murumba Slawomir Drobny Vijay Chauhan Til hamingju með daginn 40 ára Anna er Reykvík- ingur og er kynningar- stjóri hjá Þjóðminjasafni Íslands. Maki: Íris Andrésdóttir, f. 1979, kennari í Hamra- skóla. Börn: Guðrún Perla, f. 2001, Snædís, f. 2004, Róbert, f. 2008, og Katrín Lóa, f. 2012. Foreldrar: Guðmundur Jóhann Óskarsson, f. 1936, d. 2014, og Sjöfn Kjartansdóttir, f. 1938. Anna Rut Guðmundsdóttir 40 ára Elín Hrönn er Reykvíkingur, viðskipta- fræðingur og nuddmeist- ari og er sjálfstætt starf- andi. Sonur: Seifur Logi, f. 2000. Foreldrar: Geir Þórðar- son, f. 1953, fv. banka- stjóri nb.is, bús. í Kópa- vogi, og Gyða Ölvisdóttir, f. 1954, geðhjúkrunar- fræðingur og master í lýðheilsufræði, bús. í Reykjavík. Elín Hrönn Geirsdóttir 30 ára Nína er Blönduós- ingur en býr í Reykjavík og rekur snyrtistofuna Dek- urstofuna í Kringlunni. Systkini: Jón Bjarni, f. 1991, og hálfbræðurnir Björn Blöndal, f. 2000, og Fannar Dór Hallgrímsson, f. 2000. Foreldrar: Hallgrímur Stefánsson, f. 1962, bif- vélavirki í Hveragerði, og Svala Runólfsdóttir, f. 1967, héraðsskjalavörður á Blönduósi. Nína Hallgrímsdóttir  Vilhelm Vilhelmsson hefur varið doktorsritgerð sína við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Rit- gerðin ber heitið Sjálfstætt fólk? Vald og andóf á Íslandi á tímum vistar- bands. Aðalleiðbeinandi Vilhelms var Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði. Í verkinu er ljósi varpað á valda- afstæður í daglegu lífi til sveita á Ís- landi á fyrri hluta 19. aldar. Sér í lagi er fjallað um vistarbandið sem einn af grunnþáttum félagsgerðar íslensks samfélags á umræddu tímabili. Horft er á valdaafstæður samfélagsins „neðan frá“, með atbeina undirsáta að leiðarljósi. Einblínt er á þann núning sem óhjákvæmilega fylgdi valda- afstæðum vistarbandsins. Í því sam- hengi eru hugmyndir bandaríska fræðimannsins James C. Scott um hversdagsandóf (e. everyday resist- ance) notaðar til þess að greina helstu einkenni atbeina undirsáta og, út frá því, valdaafstæður líkt og þær voru iðkaðar frá degi til dags. Unnið er út frá kenningum Michels Foucault um valdaafstæður sem vettvang átaka og áhersla lögð á möguleika undirsáta til þess að andæfa yfirráðum og skapa sér svigrúm til sjálfræðis. Í ritgerðinni eru færð rök fyrir því að und- irsátar hafi ekki eingöngu verið viðfangsefni eða móttak- endur taum- halds og ögunar. Þeir lásu einnig í vist- arskyldukerfið og brugðust við því, hagnýttu glufur þess, fóru á svig við tilmæli þess, storkuðu ákvæðum þess og hunsuðu kröfur þess. Undirgefni þeirra við gildandi lög og kröfur um virðingu og hlýðni við yfirboðara var skilyrt, og virkni vistarbandsins sem ögunar- og stjórnunartækis var ávallt háð viðbrögðum undirsáta, sem létu ekki alltaf auðveldlega að stjórn. „Stjórnleysi“ undirsáta var þannig áhrifaþáttur í mótun félagsgerðar ís- lensks samfélags á 19. öld og um leið sögulega þróun hennar, þrátt fyrir sí- endurteknar tilraunir yfirvalda til þess að temja þá. Saga Íslands verður því ekki skilin til fulls án þess að taka undirsáta samfélagsins alvarlega sem sögulega gerendur. Vilhelm Vilhelmsson Vilhelm Vilhelmsson er fæddur árið 1980. Hann lauk BA-prófi í sagnfræði við Kaupmannahafnarháskóla og MA-prófi í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann er formaður Sagnfræðingafélags Íslands og er nú sjálfstætt starfandi fræðimaður og stundakennari við Háskóla Íslands. Hann er kvæntur Sólveigu Huldu Benja- mínsdóttur og eiga þau börnin Freydísi Emmu, 6 ára, og Þröst Elí, 2 ára. HVAR ER SÓSAN? Það er aðeins eitt sem er ómissandi í pítu og það er pítusósan. Kannski pítubrauðið líka. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.