Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 TWIN LIGHT gardínum Betri birtustjórnun með Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. 40 ára Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Þetta hefur verið algjört ævintýri í rauninni – algjör kúvending á lífinu og bara gerðist allt í einu,“ segir Jó- hannes Haukur Jóhannesson leikari, en hann hefur verið á faraldsfæti um heiminn undanfarin tvö ár þar sem hann hefur tekið að sér fjölbreytt hlutverk í sjónvarpsþáttum og kvik- myndum á erlendri grundu. „Ég fór frá því að vera daglega niðri í Þjóðleikhúsi og heima hjá mér yfir í að vera í Marokkó, Búdapest eða Vancouver að gera eitthvað allt annað,“ bætir hann við, en ævintýrið hófst 2014 þegar hann landaði hlut- verki í þáttunum AD Kingdom and Empire á sjónvarpsstöðinni NBC. Upp frá því hefur hann leikið hlut- verk í tveimur þáttum sjónvarps- þáttaseríunnar Game of Thrones ásamt hlutverkum í kvikmyndinni The Coldest City og The Solutrean en þær hafa ekki enn verið sýndar í kvikmyndahúsum hér á landi. „Núna er ég svo í þáttunum The Last Kingdom – þetta er voðalega fínt og maður fær góð hlé á milli,“ segir hann, en frítímann nýtir hann á Íslandi þar sem hann býr með fjöl- skyldu sinni. „Með því betra sem ég hef séð“ Jóhannes er þó ekki alfarinn út í hinn stóra heim leiklistarinnar því næsta verkefni hans er á nálægari slóðum, í Reykjavík og á Ísafirði. Hann tekur að sér eitt aðalhlutverk- anna í nýrri íslenskri kvikmynd, Ég man þig, sem byggð er á samnefndri spennusögu Yrsu Sigurðardóttur, en Óskar Þór Axelsson gerir handritið og leikstýrir myndinni. „Ég er rosa- lega glaður með það og rosalega gott að leika á móðurmálinu og í svona sögu – ofboðslega góð saga og leik- stjórinn í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Jóhannes, en Óskar leikstýrði einnig myndinni Svartur á leik þar sem Jóhannes fór með eitt hlutverk- anna. Jóhannes leikur lækni sem hefur misst son sinn og í kjölfarið slitnar upp úr hjónabandinu og hann flytur til Ísafjarðar til að reyna að lifa líf- inu eftir áfallið. Því næst flækist hann í ákveðna atburðarás sem fer af stað fyrir vestan og ýfir jafnframt upp fortíðina. „Handritið er með því betra sem ég hef séð,“ segir hann, en stefnt er að því að frumsýna myndina um páskana. Búið er að taka upp fyrri hluta myndarinnar en seinni hlutinn, þar sem Jóhannes kemur við sögu, verður tekinn upp nú í haust. Sara Dögg Ásgeirsdóttir fer með hitt að- alhlutverkið á móti Jóhannesi í þeim hluta myndarinnar og segist hann afar ánægður að fá að vinna með henni. „Við vorum saman í bekk í Leiklistarskólanum í fjögur ár og þekkjum hvort annað ansi vel eftir að hafa rúllað um gólfið í svita hvors annars þrisvar í viku í fjögur ár,“ segir hann hlæjandi, en leikstjórinn hafi prófað saman ýmsa leikara áður en endanleg ákvörðun var tekin. Standa vel að vígi „Íslenskir leikarar fá rosalega mikið af fjölbreyttri reynslu sem aðrir búa ekki að,“ segir Jóhannes, en hann hafi tekið eftir því þegar hann hóf að vinna með leikurum er- lendis. „Ég man til dæmis þegar ég fór í fyrsta skipti í leikhús í London, þá var mér pínu létt því ég var svo viss um að mér myndi finnast við heima eitthvað glötuð en það sem mér fannst innst inni var að við vær- um bara miklu betri en þetta – ég fann ekki til minnimáttarkenndar,“ segir hann, en erlendis séu ákaflega margir um hituna og leikararnir frekar settir í ákveðna flokka. „Hér fá menn tækifæri til að sinna ólíkum hlutum. Ég hef til dæmis leikið skúrka og illmenni í kvikmyndum og sjónvarpi, gamanhlutverk í gaman- þáttum og Mikka ref í barnaleikriti,“ bætir hann við, en fjölbreytnin hjálpi leikara á öllum vígstöðvum. Spurður hvort honum þyki skemmtilegra að vinna við sjón- varpsþætti eða kvikmyndagerð er- lendis velur hann sjónvarpið. „Það er skemmtilegra að gera meira þannig að dagarnir á sjónvarpssetti eru skemmtilegri,“ segir hann, en þar sé meira efni tekið upp á hverj- um degi í samanburði við kvikmynd- irnar. „Þegar maður er í bíómynd- unum leyfa þeir sér kannski að skjóta bara eitt atriði á dag og nostra svo kannski við uppsetningar og flókin kranaskot – það þýðir miklu minni vinnu fyrir leikarann,“ segir hann, en á meðan bíði leikar- arnir í hjólhýsi í góðu yfirlæti. Viðurkennir hann léttur í bragði að það sé mikið „fyrsta heims vanda- mál“ að kvarta yfir því að þurfa að bíða í hjólhýsi á kvikmyndasetti. „Þannig að maður vælir ekki en maður verður pínu iðjulaus svona.“ Segist hann þó lítinn mun finna á að leika fyrir framan myndavélina hér heima og úti. „Það kom mér skemmtilega á óvart að þegar maður er loksins mættur á tökustaðinn og kominn fyrir framan myndavélina er þetta svolítið kunnuglegt og maður kannast aðeins við sig,“ segir hann, en það hefur heldur ekki reynst hon- um fjötur um fót að leika á enskri tungu. „Ég hef þurft að leika með rússneskum og breskum hreim og mér finnst mjög gaman að vinna í því,“ bætir hann við, en talþjálfari hjálpi líka til. Verkefni í farvatninu Fram undan eru mörg tækifæri fyrir Jóhannes í leiklistinni úti í heimi þótt ekkert sé enn fast í hendi. „Það eru tvö verkefni núna sem ég er búinn að prófa fyrr og það lítur vel út og ég er kominn í lokaúrtak – en ég er líka búinn að læra að það þýðir í raun ekkert og alveg eins lík- legt að ég fái það ekki,“ segir hann, en umboðsmenn hans í Los Angeles í Bandaríkjunum og London í Bret- landi vinna hörðum höndum að því að senda honum möguleg verkefni. „Ég fór yfir það um daginn að það tekur mig fimmtán prufur að fá eitt tilboð.“ Yfirleitt rekist verkefnin sem hann fær tilboð um að gera ekki á en það hefur þó gerst. „Það var ótrúlega blóðugt að þurfa að velja á milli verkefna því maður vill auðvit- að gera allt sem býðst.“ Á móti Charlize Theron „Mig langaði það auðvitað alltaf því mann langar að prófa hluti og þetta er mjög heillandi – þessi Hollywood-heimur og þessar er- lendu kvikmyndir eru það sem mað- ur hefur haft fyrir sjónum frá því að maður var barn,“ segir Jóhannes spurður hvort það hafi verið mark- mið hans frá upphafi að komast í leiklistina erlendis. „Það er rosalega gaman að vera allt í einu að leika á móti Charlize Theron sem hefur unnið Óskarsverðlaunin,“ bætir hann við. Hann hefur þó aldrei sett stefn- una á nein ákveðin hlutverk heldur reynt að hafa fjölbreytileikann að leiðarljósi. Þó sé margt að læra við að taka að sér ný verkefni og sér- staklega í nýju umhverfi „Þegar maður byrjar á nýju verkefni finnst manni maður aldrei kunna neitt og þetta hefur verið svona frá því að ég útskrifaðist,“ bætir hann við, en í hvert einasta skipti sem hann vinni með einhverjum öðrum, nýjum leik- stjóra til að mynda, lærist eitthvað nýtt. „Maður lærir líka að stressa sig ekki á þessari tilfinningu.“ Hann rifjar upp eitt sinn þegar hann tók að sér verkefni með Sigga Sigurjóns, reyndum og ástsælum leikara hér á landi, sem hafi haft orð á því að fyrra bragði að honum fyndist hann ekk- ert kunna í hvert sinn sem hann byrjaði á nýju verki. „Ég var svo glaður að heyra þetta því ég upplifði nákvæmlega það sama og hann upp- lifði þrátt fyrir allt sem hann hefur gert,“ segir Jóhannes. Hann stefnir á að vinna við leik- listina í víðu samhengi í framtíðinni og viðurkennir að hann hugsi alltaf stutt fram í tímann. „Fjölbreytileik- inn er bestur og markmiðið er að geta haldið áfram.“ Markmiðið að geta haldið áfram  Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur leikið í sjónvarpi og kvikmyndum erlendis í tvö ár  Leikur aðalhlutverk í nýrri íslenskri kvikmynd, Ég man þig  Að meðaltali í fimmtán prufur fyrir eitt tilboð Morgunblaðið/Eggert Lífið er leikur Jóhannes Haukur, leikari, leikur næst hlutverk í nýrri íslenskri kvikmynd, Ég man þig, sem er byggð á samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.