Morgunblaðið - 25.08.2016, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Það er skemmst frá því að segja
að undirskriftasöfnunin hefur
gengið það vel að hún er orðin
stærsta undirskriftasöfnun Ís-
landssögunnar. Þetta er orðið
stærra en Kári Stefánsson og
heilbrigðiskerfið á sínum tíma.
Það er ekki hver sem er sem vinn-
ur hann,“ segir Margeir Steinar
Ingólfsson, betur þekktur sem DJ
Margeir, kíminn. Hann er meðal
þeirra er standa fyrir tónleikunum
Hvalir Live! í Hvalasafninu við
Fiskislóð 23-25 úti á Granda í
kvöld, en húsið verður opnað
klukkan 20.30. Tónleikunum er
ætlað að vekja athygli á undir-
skriftasöfnun til verndar hvölum
sem hátt í hundrað þúsund ein-
staklingar hafa kvittað undir. Tón-
listarmennirnir sem koma fram
eru auk DJ Margeirs þau Sóley,
Högni og Sin Fang, en tónleikarn-
ir eru samstarfsverkefni þeirra og
The International Fund for Ani-
mal Welfare og IceWhale sem
standa fyrir undirskriftasöfnun-
inni.
Einstaklega ómannúðlegt
„Þessi undirskriftasöfnun er í
gangi gegn hvalveiðum Íslendinga
en við viljum meðal annars vekja
ferðamenn til umhugsunar um það
að Íslendingar eru í raun ekki
sjálfir að borða hvalkjötið sem hér
er veitt nema að litlu leyti. Það
eru ekki nema þrjú prósent Ís-
lendinga sem borða hvalkjöt
reglulega. Það er í raun neysla
ferðamannanna sem heldur uppi
veiðunum. Við vorum því nokkrir
listamenn sem ákváðum að lána
nöfn okkar og andlit þessum góða
málstað og það varð kveikjan að
þessum tónleikum. Við vonumst til
þess að með tilstuðlan þeirra
náum við markmiði okkar, sem er
hundrað þúsund undirskriftir fyrir
lok sumars,“ segir Margeir, en
hann kveður Hvalasafnið úti á
Granda vera fullkominn tónleika-
sal fyrir tónleikana.
„Þarna munu listamennirnir
koma fram umkringdir tuttugu og
tveimur hvalategundum í fullri
stærð. Þetta eru tignarlegar
skepnur, stemningin verður ein-
stök,“ segir hann og bætir við að
veiðarnar á dýrunum séu ein-
staklega ómannúðlegar.
„Dýrunum er oft slátrað á þann
veg að það getur tekið allt að
fjörutíu mínútur fyrir þau að falla
í valinn fyrir veiðimanninum.
Þetta er meðferð á dýrum sem
myndi aldrei líðast uppi á þurru
landi. Stundum er það meira að
segja þannig að ef það tekst ekki
að granda hvalnum með dínamíti
er hann dreginn upp á sporðinum
og öndunarfærin látin liggja undir
yfirborði sjávar og honum þannig
drekkt. Þetta er náttúrlega
gríðarlega grimmileg veiðiaðferð,“
segir hann.
Listann má nálgast á ifaw.is
„Þegar við náðum því marki að
verða stærsta undirskriftasöfnun
Íslandssögunnar fórum við, ásamt
nokkrum sjálfboðaliðum sem hafa
verið að hjálpa okkur, í sjávar-
útvegsráðuneytið og afhentum
Gunnari Braga Sveinssyni listann.
Hann tók mjög vel á móti okkur
en ítrekaði þá afstöðu íslenskra
stjórnvalda að hvalveiðum yrði
ekki hætt í nánustu framtíð. Til-
gangurinn með þessu öllu saman
er að setja smá þrýsting á pólitík-
usana með það að markmiði að
þessum hvalveiðum verði hætt
sem fyrst. Vonandi verður hlustað
á þessa Íslendinga sem hafa skrif-
að undir og svo ferðamennina sem
eru náttúrlega að verða uppi-
staðan í gjaldeyristekjum okkar,“
segir Margeir, en hann hefur
sjálfur ekki snert á kjöti í rúmlega
tvo áratugi.
„Þar fyrir utan er líka verið að
ógna mjög stöðugri atvinnugrein,
hvalaskoðun, með hvalveiðunum.
Veiðarnar valda því að sjálfsögðu
að hvölunum fækkar, það segir sig
sjálft, svo eru þetta líka gáfuð dýr
og þau flýja veiðarnar með þeim
afleiðingum að ekki verður hægt
að berja þau augum,“ segir hann
að lokum. Tónleikarnir munu
standa í tvo til þrjá klukkutíma en
þess má geta að aðgangur að
Hvalasafninu fylgir hverjum
keyptum tónleikamiða. Undir-
skriftalistann má síðan nálgast á
vefslóðinni ifaw.is.
Tónar í takt við
risavaxna hvali
Tónleikar í Hvalasafninu á Granda til verndar hvölum
Hátt í hundrað þúsund einstaklingar hafa skrifað undir
Morgunblaðið/Golli
Tignarlegir Á Hvalasafninu á Granda má sjá allar þær hvalategundir sem finnast við Íslandsstrendur í fullri stærð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónleikar DJ Margeir er sjálfur vegan og hefur ekki snert á kjöti í yfir tvo
áratugi. Hann kemur fram í kvöld ásamt Högna, Sóleyju og Sin Fang.
Svonefnd Rokkhátíð æskunnar verð-
ur haldin í fyrsta skiptið á KEX hos-
tel sunnudaginn 28. ágúst. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skipu-
leggjendum verður dagskrá hátíðar-
innar samansett af lifandi
tónlistaratriðum í bland við gagn-
virka fræðslu og vinnusmiðjur þar
sem krakkar fá að fikta í hljóðfærum
sem búin eru til úr ávöxtum, smíða
sinn eigin míkrófón, gera barm-
merki, grúska í raftónlist og fleira.
Meðal þeirra sem koma fram í ár
eru Hildur, RuGl, Hasar Basar,
Meistarar Dauðans, Hush Hush og
fleiri í bókahorninu á KEX hosteli. Í
Gym & Tonic verða Stelpur rokka,
Futuregrapher, Skema, Jónsson &
LeMacks, Mussila og fleiri með
fræðslu og smiðjur.
Rokkhátíð æskunnar er haldin
af Heimilislegum sunnudögum í
náinni samvinnu við sjálfboðaliða-
samtökin Stelpur rokka. „Stelpur
rokka! eru sjálfboðaliðarekin sam-
tök sem starfa af femínískri hug-
sjón við að efla ungar stelpur í
gegnum tónlistarsköpun. Kjarn-
inn í starfinu er rokksumarbúð-
irnar, þar sem stelpur læra á
hljóðfæri, spila saman í hljóm-
sveit, kynnast farsælum tónlist-
arkonum, fræðast um ýmsar hlið-
ar tónlistar og jafnréttisstarfs og
koma fram á lokatónleikum fyrir
framan fullan sal vina og fjöl-
skyldu. Alls hafa um 275 stelpur
og konur tekið þátt í rokkbúðum
Stelpur rokka! sl. fjögur ár og
myndað 60 hljómsveitir.“
Fjölbreytni Á hátíðinni verður boðið upp á tónlistaratriði í bland við gagn-
virka fræðslu og vinnusmiðjur þar sem krakkar fá að fikta í hljóðfærum.
Rokkhátíð æskunnar
haldin í fyrsta sinn á Kex
MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós.
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 9/9 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00 Fim 6/10 kl. 20:00
Lau 10/9 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00 Fös 7/10 kl. 20:00
Sun 11/9 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00 Lau 8/10 kl. 20:00
Fös 16/9 kl. 20:00 Fös 30/9 kl. 20:00 Sun 9/10 kl. 20:00
Lau 17/9 kl. 20:00 Lau 1/10 kl. 20:00
Sun 18/9 kl. 20:00 Sun 2/10 kl. 20:00
Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu.
Sending (Nýja sviðið)
Lau 10/9 kl. 20:00 Frums Fös 16/9 kl. 20:00 3. sýn Mið 21/9 kl. 20:00 5. sýn
Fim 15/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 17/9 kl. 20:00 4. sýn
Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00
Tónlistarmaðurinn Questlove, sem
er hvað þekktastur fyrir að vera
meðlimur hip hop-grúppunnar The
Roots og húsbands The Tonight
Show með Jimmy Fallon, hefur til-
kynnt nýtt samstarf sitt og tónlistar-
streymisveitunnar Pandora. Quest-
love kemur til með að halda utan um
vikulegan þátt, Questlove Supreme,
sem verður um þrír tímar að lengd
hverju sinni og mun hann þar fara
yfir nýja og spennandi tóna og taka
viðtöl við heimsþekkta listamenn.
Þá mun hann einnig verða sér-
stakur ráðgjafi Pandora í því hvern-
ig eigi að vera með puttann á púls-
inum og ná til samskonar
áheyrendahóps. Fyrsti þáttur
Questlove fer í loftið 7. september
næstkomandi en meðal gesta verða
Maya Rudolph, Kimbra og Bob Po-
wer.
Fjölhæfur Tónlistarmaðurinn Questlove er meðlimur hljómsveitarinnar
The Roots auk þess sem hann er í húsbandi sjónvarpsþáttar Jimmy Fallons.
Questlove og veitan
Pandora í eina sæng