Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 33

Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Bandaríski leik- arinn Steven Hill er látinn, 94 ára að aldri. Hill er þekktastur fyrir túlkun sína á rannsóknar- lögreglumann- inum Daniel Briggs í upp- runalegu Law & Order og Miss- ion: Impossible sjónvarpsþáttunum á sjöunda áratug síðustu aldar. Á árunum 1990-2000 fór hann með hlutverk Adam Schiff umdæmis- saksóknara í sjónvarpsþáttunum Law & Order á NBC. Hann nam leiklist við Actors Studio í New York á sama tíma og Marlon Brando og Montgomery Clift. Steven Hill látinn Steven Hill Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Edvard Grieg er aðaltónskáldið og hann er svo mikill náttúru rómantíker. Það er þess vegna sem við völdum heitið Mountain Music því í lögunum er hann að lýsa landslagi og fjöllunum í kringum sig eða þessari stemningu í fjöllunum,“ segir Svafa Þórhallsdóttir söngkona, en hún og Sandra Mogensen píanóleikari bjóða á tónleikana Mount- ain Music í Arctic Concerts tónleikaröðinni í Nor- ræna húsinu í kvöld kl. 20.30. Þar flytja þær lög eftir Jórunni Viðar, Sigvalda Kaldalóns, Edvard Grieg og fleiri. Þetta eru síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni sem er ný af nálinni hjá Norræna húsinu. Þar hafa verið tónleikar öll fimmtudagskvöld í sumar sem ætlaðir voru áhugasömum ferðamönnum og ís- lenskum tónlistarunnendum sem vilja kynnast ís- lenskri og norrænni tónlist og flytjendum. Óhefðbundin uppröðun tónskáldanna „Við röðum prógramminu upp á óhefðbundinn hátt – við röðum ekki eftir tónskáldum heldur tón- listinni sjálfri og hvernig hún passar saman og hvernig hún hljómar,“ segir Svafa en þær séu með þessu að reyna að brjóta hefðina sem gerir ráð fyrir að tónleikum sé skipt upp eftir tónskáldun- um. „Við vorum alveg í nokkra daga á fimm tíma æf- ingum til að finna þetta – maður þarf að finna hvernig þetta raðast og nú erum við komnar með útkomu,“ segir hún en Sandra, píanistinn, hafi reynslu af því að stokka upp dagskrá tónleika og blanda tónskáldum saman. Á tónleikunum í kvöld eru þær þó ekki að blanda saman lögunum heldur aðeins stokka upp í röðun tónskáldanna. Vonast hún til þess að þessi nýjung falli í kram- ið hjá tónleikagestum. „Þetta heldur þeim svolítið vakandi því í rauninni renna tónskáldin vel saman en maður finnur samt að það er öðruvísi tilfinning í hverju og einu tónskáldi,“ bætir hún við. Svafa hefur búið lengi erlendis en hefur sterka tengingu við náttúruna og fjöllin heima sem rímar vel við efnistök tónleikanna. Skipuleggja fleiri tónleika saman Svafa og Sandra hittust fyrir um ári á Íslandi og smullu saman. „Við elskum báðar Grieg en Sandra spilar hann mikið á tónleikum í Noregi og Kanada,“ segir Svafa en þær skipuleggja nú enn fleiri tónleika saman en ætla sér að reyna frekar við þessa nýju hugmynd um uppstokkun tónskáld- anna. „Það bara gefur þessu eitthvað – manni finnst eins og þetta sé meira manns eigið,“ bætir hún við. Aðkoma þeirra að tónleikaröðinni í Norræna húsinu var hrein tilviljun en Svafa hefur ekki haldið tónleika sem þessa hér á landi í lengri tíma. „Ég hef starfað hérna í Kaupmannahöfn sem tón- listar- og söngkennari ásamt því að vera kórstjóri og að syngja ljóðatónleika og óratoríuverk.“ Leikur sér með blæbrigðin í röddinni Svafa hefur getið sér gott orð fyrir frumlega nálgun klassískrar tónlistar, fagra rödd og sér- lega áhugaverðan flutning eins og segir í tilkynn- ingu um tónleikana. Aðspurð segist hún þó að mörgu leyti vera hefðbundin. „Mér finnst gaman að leika mér með litina í röddinni, blæbrigðin og reyni að gera þetta persónulegt. Maður lærir ein- hverja tækni en þarf svo að upplifa það og rann- saka – hvernig getur maður notað þessi verkfæri sem maður fær í hendurnar og leikið sér með það,“ bætir hún við. Hún starfar sem söngvari, kennari og kórstjóri í Kaupmannahöfn en hún hefur bæði tekið þátt í óratóríu uppfærslum sem einsöngvari og kórsöngvari. Hún lagði stund á söng- og söngkennaranám við Konunglega tón- listarháskólann í Kaupmannahöfn en þaðan lauk hún nýverið Cand.Mus-prófi. Sandra Mogensen, píanistinn, býr nú og starfar í Danmörku og hefur haldið tónleika í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hefur aðallega einbeitt sér að tónverkum eftir Grieg og hlotið styrki til rann- sókna á verkum hans og ljóðum við sönglögin. Sækja stemningu í fjöllin  Tónleikarnir Mountain Music í Norræna húsinu Mountain Music Svafa Þórhallsdóttir söngkona og Sandra Mogensen píanisti halda tónleika á Arctic Concerts í Norræna húsinu í kvöld. Þær fara óhefðbundnar leiðir við uppröðun tónskáldanna. Aska bandaríska rithöfundarins Trumans Capote verður boðin upp hjá uppboðshúsinu Julien’s Auc- tions 24. september. Fram til þessa hefur askan verið í eigu Joanne Carson, fyrrverandi eig- inkonu Johnny Carson sem lést á síðasta ári. Þau hjónin voru nánir vinir Capote, en hann lést á heim- ili þeirra árið 1984, þá rétt tæp- lega sextugur að aldri. Capote er frægastur fyrir skáld- sögur sínar Breakfast At Tiff- any’s, sem samnefnd kvikmynd var gerð eftir, og heimildaskáld- söguna In Cold Blood sem fjallar um morðið á fjórum fjölskyldu- meðlimum Clutter-fjölskyldunnar 1959. Árið 2005 var frumsýnd kvikmynd sem fjallaði um tilurð In Cold Blood þar sem Philip Seymo- ur Hoffman fór með hlutverk Capote og hlaut að launum Óskarsverðlaun. Þegar Johnny Carson lést erfði Joanne Carson öskuna, sem metin er á 6.000 Bandaríkjadali, eða sem samsvarar ríflega 700 þúsundum íslenskra króna. „[Joanne] hafði oft á orði að askan hughreysti hana,“ hefur BBC eftir starfs- manni hjá uppboðshúsinu Julien’s Auctions. Capote var tíður gestur í sjónvarpsþætti Johnnys Carson, Tonight Show, sem leiddi til þess að þeim varð vel til vina. Capote dvaldi iðulega á heimili Carson- hjónanna í Los Angeles þar sem hann vann að bókum sínum. Árið 2012 sagði Joanne Carson í sam- tali við tímaritið Vanity Fair: „Hann átti sína eigin skrifstofu í húsinu mínu og eyddi þar drjúg- um tíma vegna þess að heimili mitt veitti honum skjól og þar gat enginn ónáðað hann.“ Rithöfundurinn Truman Capote var góður vinur Carson-hjónanna. Aska Trumans Capote boðin upp Jarðvegsþjöppur og jarðvegshopparar JarðvegsþjappaWP 2050A HONDA besínmótor, 50 cm vinnslubreidd 20kN, 98Hz, 100 kg Jarðvegsþjappa DPS 1850 HATZ díeselmótor, 50 cm vinnslubreidd 28kN, 90Hz, 135 kg Jarðvegsþjappa DPU 3060 HE-TS HATZ díeselmótor, 60 cm vinnslubreidd 30kN, 90Hz, 215 kg WACKER NEUSON umboðið á Íslandi ÞÓR FH REYKJAVÍK: Krókháls 16 Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is NÍU LÍF 4, 6 HELL OR HIGH WATER 5:50, 8, 10:10 SAUSAGE PARTY 8, 10:10 NERVE 10:10 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 4, 6 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ENS.TAL 4 BAD MOMS 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.