Morgunblaðið - 28.09.2016, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016
✝ María Ingólfs-dóttir fæddist á
Hrafnkelsstöðum í
Hraunhreppi,
Mýrasýslu, 6. des-
ember 1935. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Vestur-
lands á Akranesi 7.
september 2016.
Hún var elsta
barn hjónanna Ing-
ólfs Guðbrands-
sonar, f. 4.5. 1902, d. 1972, og
Lilju Guðrúnar Kristjánsdóttur,
f. 4.4. 1912, d. 1991. Systkini:
Guðbrandur Óli Ingólfsson, f.
1943, d. 2014, og Kristín Ingólfs-
dóttir, f. 1951. Hálfsystkini sam-
mæðra eru Sjöfn Halldórsdóttir,
f. 1932, d. 2009, og Magnús Hall-
dórsson, f. 1933.
María giftist Halldóri Valdi-
marssyni, f. 20. 5. 1928, d. 9.11.
1995, þann 2. apríl 1955. For-
Guðnason. Börn þeirra María
Hlín, Birgitta og Árný, barna-
börnin eru þrjú. 6) Valdimar, f.
1966, d. 1995. Dóttir Valdimars
er Dóra Kristín. Móðir hennar er
Birgitta Gliese.
María ólst upp á Hrafnkels-
stöðum hjá foreldrum sínum og
föðurforeldrum, sem þar bjuggu
einnig, þeim Guðbrandi Sigurðs-
syni, f. 1874, d. 1953, og Ólöfu
Gilsdóttur, f. 1876, d. 1956.
María stundaði ýmis störf, svo
sem að sjá um þvotta vegna
sjúkraflutninga, en Halldór sá
m.a. um akstur á sjúkrabifreið
um árabil. Hún starfaði einnig
hjá Prjónastofu Borgarness, í
sláturhúsinu og kjötvinnslu KB
og hjá Efnalauginni Múlakoti.
Framan af var hún fyrst og
fremst húsmóðir á stóru heimili.
María og Halldór höfðu yndi
af ferðalögum um landið og voru
virkir félagar í Húsbílafélaginu.
Útför Maríu fer fram frá
Borgarneskirkju í dag, 28. sept-
ember 2016, og hefst athöfnin kl.
14.
eldrar Halldórs
voru Ingibjörg Hall-
dórsdóttir frá Kjal-
varastöðum, f. 31.8.
1895, d. 1985, og
Valdimar Davíðsson
frá Arnbjargarlæk,
f. 11.11. 1899, d.
1974. Börn Maríu
og Halldórs eru: 1)
Helga Ólöf, f. 1953,
sonur hennar er
Trausti. Faðir
Trausta er Lárus Jóhannsson. 2)
Lilja Guðrún, f. 1954, maki Guð-
mundur Jónsson. Börn þeirra
eru Jón Halldór og Lilja, barna-
börnin eru sex. 3) Garðar, f.
1956, maki Guðlaug S. Guðlaugs-
dóttir. Sonur þeirra er Sindri. 4)
Ingólfur, f. 1958, maki Rut Olsen.
Börn Ingólfs með Oddnýju Ó.
Sigurðardóttur eru Sigurbjörg
María, Linda, Helena og Eyjólf-
ur. 5) Ólöf, f. 1960, maki Sveinn
Í dag verður ástkær móðir mín
jarðsungin. Mamma og pabbi
bjuggu alla sína búskapartíð í
Borgarnesi. Pabbi vann verka-
mannavinnu og var mikið að heim-
an og því hvíldi þungi heimilis-
haldsins á mömmu. Mamma var
myndar húsmóðir, hagsýn og nýt-
in og mikill fagurkeri. Hún var
vandvirk og lagði alúð sína í öll þau
verk sem hún tók sér fyrir hendur.
Hún saumaði gjarnan föt á okkur
börnin og lagði mikinn metnað í að
þar færi fallegt handbragð. Sam-
hliða því að reka stórt heimili tók
hún að sér sængurkonur sem
dvöldu á heimilinu um tíma. Hún
var rösk, var fljót til og það gustaði
um hana, en stærsti eðlisþáttur
hennar var glaðværðin og hlýjan.
Hún var orðheppin og hafði af-
skaplega gaman af því að skiptast
á skoðunum um ýmis málefni. Á
heimili foreldra minna var gest-
kvæmt og oft áningarstaður vina
og ættingja. Mamma hafði mjög
gaman af því að hlusta á létta tón-
list og stundum mátti heyra söng
hennar í eldhúsinu út á hlað þegar
við komum heim úr skólanum.
Mamma og pabbi voru samhent
og góð hjón. Þau voru dugleg að
ferðast með okkur börnin. Eitt
sumar fórum við á Vestfirðina á
Volkswagen-bjöllu, fjögur börn og
farangurinn á þaki bílsins.
Mamma og pabbi innréttuðu hús-
bílana sína sjálf og þeir endur-
spegluðu fallegt handbragð og
snyrtimennsku. Þau voru virkir fé-
lagar í Félagi húsbílaeigenda um
árabil og eignuðust marga góða
vini á þeirri vegferð.
Árið 1995 var þungbært í lífi
mömmu því þá féllu Valdimar
bróðir og pabbi frá með þriggja
mánaða millibili. En mamma bjó
yfir miklum styrk og skapaði hún
sér breytta tilveru. Hún starfaði
um árabil í efnalauginni Múlakoti
og var dugleg að sinna áhugamál-
um sínum, svo sem lestri bóka,
spilamennsku, föndri og að fara í
húsbílaferðir.
Frá árinu 2004 ríkti djúp vinátta
milli mömmu og Arnar Einarsson-
ar. Ferðalög, dans, söngur og
glens voru þeirra ær og kýr.
Mamma dvaldi stundum í Vest-
mannaeyjum hjá Erni. Hún sagði
mér frá því að á Goslokahátíð árið
2006 hefðu þau dansað gömlu
dansana í gömlum beituskúr í
Skvísusundi til fimm um morgun-
inn, hún þá 71 árs. Já, mamma
kunni að gleðjast á góðri stundu.
Árið 2007 ferðuðust þau í húsbíl
um Danmörku, Noreg og Svíþjóð í
samfloti annarra húsbílafélaga.
Það var vel að verki staðið, hún 72
ára og hann 71 árs og lítil tungu-
málakunnátta fyrir hendi. Saman-
lagt voru þau 154 daga í húsbílnum
þetta árið. Geri aðrir betur Mér er
þakklæti efst huga til Arnar fyrir
allar þær góðu stundir sem þau
áttu saman.
Mamma bar velferð barna sinna
fyrir brjósti og barnabörnin nutu
glaðværðar hennar og væntum-
þykju. Þegar hún dvaldi á heimili
mínu þá var eins og unglingur væri
mættur á svæðið. Bunki af ástar-
sögum á náttborðinu og músíkin
dunaði í herberginu. Að dansa í
stofunni við undirspil hljómsveitar
Friðjóns Jóhannssonar þótti henni
skemmtilegt.
Mamma greindist með langt
gengið krabbamein í júlí síðast-
liðnum. Vágestur þessi kom í ljós
við undirbúning fyrir hjartaloku-
aðgerð. Hún bjó yfir miklu æðru-
leysi og hafnaði allri meðferð. Hún
trúði á lífið og líf eftir dauðann. Ég
kveð með þakklæti í huga og minn-
ingin um elsku mömmu lifir.
Meira: mbl.is/minningar
Garðar Halldórsson.
Elsku Mæja systir. Örfá orð til
að þakka þér elskusemi þína til
mín og barna minna. Þú varst kær-
leiksrík dugnaðarkona, frábær
húsmóðir, t.d. saumaðir þú allt á
stóra hópinn þinn og var ekki kast-
að til höndum, vandvirki og
smekkvísi á öllu sem þú gerðir. Á
stóru heimili, sem jafnframt var
gestkvæmt, var alltaf tekið vel á
móti öllum. Hvort sem það voru
börn eða fullorðnir var alltaf glatt
á hjalla. Þegar börnin fluttu að
heiman tókst þú að þér að þvo
þvott fyrir heilsugæsluna, sauma
sloppa og gera við. Vannst í slát-
urhúsinu og víða. Og hafðir her-
bergi fyrir vandamenn, þar á með-
al Hörð minn og minnist hann þess
hversu oft var glatt á hjalla, grín-
ast og spjallað. Alltaf varst þú orð-
lögð fyrir vandvirkni og glaðværð.
Þú hafðir ánægju af að ferðast og
voru ófáar tjaldferðirnar sem þú
og Dóri fóruð með börnin meðan
þau voru heima. Síðan eignuðust
þið ferðabíl sem þið innréttuðuð og
ferðuðust þið mikið með húsbíla-
félaginu og eignuðust þið marga
trygga vini. Svo varðst þú fyrir
þungu höggi þegar þið misstuð
yngsta son ykkar, Valdimar. Og
nokkrum mánuðum seinna misstir
þú eiginmann þinn sem var búinn
að berjast við krabbamein og var
heima hjá þér allt til enda þar sem
þú annaðist hann af mikilli elsku
og prýði. En þú gafst ekki upp,
elsku sterka systir, dreifst þig með
aðstoð góðra vina úr húsbílafélag-
inu sem hvöttu þig og æfðu þig í að
aka húsbílnum. Þannig naust þú
þess að ferðast víða og voru ófáir
sem nutu þess að kíkja í bílinn þinn
þar sem þú barst pönnukökur og
alls kyns góðgæti fram því gest-
risni þín var alltaf söm við sig.
Tókst þú Sjöfn, systur okkar, með
og þá var nú spilað og margt brall-
að. Hún eignaðist síðan sinn eigin
bíl og voruð þið oft í samfloti. Þú
eignaðist góðan vin, hann Örn, og
fórum þið víða innanlands og utan.
Hann reyndist þér vel í veikindum
þínum undir það síðasta, þökk sé
honum. Þið höfðuð bæði yndi af
dansi, ferðalögum og góðri tónlist.
Heimili þitt stóð mér alltaf opið og
eignaðist ég mitt fyrsta barn í
hjónarúminu þínu. Börnin mín og
barnabörn nutu ríkulega elsku-
semi þinnar. Vil ég þakka þér allar
góðar og ánægjulegar stundir,
glens og gaman. Þín verður sárt
saknað, sex ára barnabarn mitt
sagði við mig „ég veit að Mæja
frænka er dáin. Hún var svo
skemmtileg“. Segir þetta mikið
um þig. Takk fyrir allt og að vera
þú. Samúðarkveðjur til barna
þinna og ástvina. Þín systir,
Kristín Ingólfsdóttir.
Mæja föðursystir mín hefur
kvatt og mig langar að minnast
hennar. Ég er fædd í húsi Mæju á
Kjartansgötunni. Henni þótti sjálf-
sagt að mágkonan kæmi inn á
heimilið til að eignast barn. Það
var samt engin lognmolla á heim-
ilinu á þessum tíma því þau hjónin,
Mæja og Dóri, áttu þá fimm börn,
öll innan fermingar. Sængurkonan
fékk strákaherbergið og þar fædd-
ist ég og Mæja hefur því alltaf ver-
ið hluti af lífi mínu.
Í kaupstaðarferðum var það
ómissandi þáttur að koma við hjá
Mæju og Dóra. Mæja tók á móti
öllum með brosi á vör og alltaf vor-
um við velkomin. Krakkahrúgan
raðaði sér á bekkinn og beið eftir
bakkelsi og brauði á meðan full-
orðna fólkið spjallaði saman. Mæja
hafði áhuga á fólki og högum þess
og sagði skemmtilega frá. Hún
hafði mikinn áhuga á heilsu og
hvernig mætti bæta heilsuna með
ýmsum ráðum. Gerillinn í glugg-
anum verður lengi í minnum hafð-
ur og eplaedik var gott ráð við
flestum kvillum. Mæja vildi líka
fylgjast með hvernig gekk hjá okk-
ur krökkunum og við gátum leitað
til hennar ef á þurfti að halda. Al-
veg sjálfsagt að fá að lúra eina slát-
urtíð í húsinu hjá þeim hjónum eða
fá gistingu þegar við urðum að
snúa við á suðurleið þegar bál-
hvasst var undir Hafnarfjalli.
Lífið var ekki alltaf auðvelt hjá
frænku minni og það hefur verið
lærdómsríkt að fylgjast með
hvernig henni tókst að lifa með því
áfalli að missa son og eiginmann
sama árið. Mæja hélt áfram með
glettnina eina að vopni og viljann
til að lifa lífinu með fjölskyldunni
þrátt fyrir allt. Hún lagði mikið
upp úr því að búa sér fallegt heim-
ili í Borgarnesi og hún hafði gaman
af að klæða sig upp á og hitta fólk
eða fara á skemmtanir. Alltaf var
gaman að hitta hana og þegar ég
hugsa til hennar heyri ég hláturinn
óma, því ekkert mál var svo alvar-
legt að ekki mætti spauga aðeins
með það.
Ég minnist Mæju með mikilli
hlýju og sendi mínar bestu kveðjur
til barna hennar, fjölskyldna
þeirra og annarra vandamanna.
Lilja Magnúsdóttir.
Kæra Mæja. Þegar ég var að
alast upp þá varst þú ein af heima-
vinnandi mömmunum og algengt
var að mörg börn kæmu frá hverju
heimili. Ég var æskuvinkona hans
Valla sem var yngsta barnið þitt,
blessuð sé minning hans. Valli og
allir krakkarnir á okkar aldri lék-
um okkur mikið saman í blíðu og
stríðu. Síðast þegar við hittumst,
Mæja mín, vorum við rifja það upp
þegar ég hringdi í þig aðeins 7 ára
gömul öskuill og sagði þér að ala
drenginn betur upp þar sem hann
hafði verið að stríða okkur Guð-
finnu, en við vorum að drullumalla
í grunninum beint á móti húsinu
þínu og vildum við ekki hafa hann
með okkur. Eining man ég eftir
þvottahúsinu hjá þér þegar við
vorum að bíða eftir Valla, það var
blámálað en þú varst mjög þrifin
kona og einnig man ég eftir stóru
fallegu dúkkunni á hjónarúminu.
Þú sagðir í gríni að ef ég yrði
tengdadóttir þín þá ætlaðir þú að
gefa mér saumavél, mér leist nú
ekki vel á það. Minningarnar
streyma um þig, alltaf hlæjandi og
gerandi grín. Þú varst svo falleg,
elsku Mæja mín, hárið orðið silf-
urgrátt, virkilega falleg eldri kona.
Elsku Mæja, ég gæti skrifað miklu
meira um þig, en nú ertu komin til
Valla og Dóra, ert örugglega sátt
og hláturinn heyrist um alla
draumaheima. Ég segi takk Mæja
fyrir mig og ég sakna þín. Guð
geymi þig, elsku Mæja, og skilaðu
kveðju til feðganna frá mér. Minn-
ing þín er ljós í lífi mínu. Aðstand-
endum sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur. Kveðja,
Svanhvít Rós
Guðsteinsdóttir.
María Ingólfsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KATRÍN FRIÐRIKSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Hamarstíg 1, Akureyri,
lést á heimili sínu 22. september. Útför
hennar fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 6. október
klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarfélög.
.
Franz Árnason,
Sigríður Rut Franzdóttir, Leifur Reynisson,
Davíð Brynjar Franzson, Alexandra Suppes
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
PÁLS SIGURÐSSONAR,
Sauðármýri 3, Sauðárkróki.
.
Hólmfríður Pálsdóttir,
dætur og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
MARÍA EINARSDÓTTIR
tónmenntakennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
síðastliðinn laugardag. Útför hennar fer
fram frá Digraneskirkju föstudaginn 30. september klukkan 11.
.
Sölvi Ragnar Sigurðsson,
Hildur I. Sölvadóttir, Gunnar Jón Hilmarsson,
Þórunn Ósk Sölvadóttir, Guðmundur Ólafur Heiðarsson,
Einar Sölvason, Judithe Sölvason,
Sölvi Sölvason, Guðrún Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN JÓHANNESSON
frá Ytri-Hjarðardal, Önundarfirði,
Unnarstíg 6, Flateyri,
andaðist að heimili sínu 21. september.
Útför hans fer fram frá Flateyrarkirkju laugardaginn 1. október
klukkan 14.
.
Guðrún Jónsdóttir,
Jóhannes Kristjánsson, Hulda Björg Baldvinsdóttir,
Jón Jens Kristjánsson, Kolbrún Guðbrandsdóttir,
Steinþór B. Kristjánss., Martha S. Örnólfsdóttir,
Margrét Kristjánsdóttir,
Hlynur Kristjánsson, Harpa Oddbjörnsdóttir,
afabörn.
Ástkær móðir mín og dóttir okkar,
RAGNHEIÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR
flugstjóri,
Lækjasmára 6, Kópavogi,
varð bráðkvödd á heimili sínu 24.
september. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 6. október klukkan 13. Þeim sem
vildu minnast hennar er bent á reikning til stuðnings syni
hennar, reikningsnúmer 526-14-403532, kt. 141113-2750.
.
Alexander Berg Ragnheiðarson,
Sigríður Valdimarsdóttir, Guðjón Ólafsson.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BJÖRG JÓHANNA BENEDIKTSDÓTTIR,
Mánatúni 2, Reykjavík,
lést á LSH Vífilsstöðum 24. september.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 3. október klukkan 13.
.
Auður R. Guðmundsdóttir, Guðmundur Hermannsson,
Bjarni Þ. Guðmundsson, Kristín V. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
AGNES AÐALSTEINSDÓTTIR,
Laugarásvegi 34, Reykjavík,
lést að morgni 25. september. Útförin fer
fram frá Áskirkju fimmtudaginn 6. október
klukkan 15.
.
Brynjólfur Sandholt,
Egill Sandholt, Hrönn Steingrímsdóttir,
Hildur Sandholt, Sigurður Sigurðarson,
Unnur Sandholt, Bertel Ólafsson
og ömmubörn.
Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona
og frænka,
MIKKALÍNA MARÍA FRIÐRIKSDÓTTIR,
Lindasmára 95, Kópavogi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 20.
september. Útför hennar fer fram frá
Garðakirkju föstudaginn 30. september klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás styrktarfélag.
.
Anna Þ. Jónsdóttir,
Friðrik S. Friðriksson,
Ingveldur K. Friðriksdóttir,
Friðrik Ari Friðriksson,
Sigurjón H. Friðriksson, Dóra E. Sigurjónsdóttir,
Jón Hlöðver, Anna Björg og Sigurjón Friðrik.