Morgunblaðið - 28.09.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016
Sýningunni Til-
urð Errós 1955-
1964 lýkur í
Hafnarhúsi á
morgun. „Sýn-
ingin spannar
mótunarár lista-
mannsins, marg-
slungið og glæsi-
legt tímabil í list hans og evrópskri
listasögu, þegar hann fyrstur lista-
manna skapar það sem nefnt hefur
verið „samklippimálverk“. Á sýn-
ingunni kemur fram hvernig Erró
smám saman hverfur frá express-
jónískri myndgerð og fer að vinna
með samklippimyndir (collages)
sem hann síðan málar eftirmyndir
af á léreftið,“ segir í tilkynningu.
Sýningu lýkur
Erró
AF TÓNLIST
Hjalti St. Kristjánsson
hjaltistef@mbl.is
Þann 9. september síðastliðinn rann
upp stund sem ég hafði beðið. Satt
best að segja hafði ég beðið þess-
arar stundar frá því í lok júní 2013
en þá sá ég Nick Cave and the Bad
Seeds á sviði í fyrsta og eina skiptið
í tónleikasögu minni. Þeir tónleikar
voru í kjölfar útgáfu plötunnar Push
the Sky Away sem náði ekki að
snerta við mér í fyrstu og ég var við
það að missa áhugann. Tónleikarnir
blésu aðdáun minni þó byr undir
báða vængi og ég var aftur stokkinn
um borð í aðdáendarútuna.
En þá að umfjöllunarefninu
sjálfu. Nýjasta plata Nick Cave and
the Bad Seeds heitir Skeleton Tree.
Hún er 16. hljóðversplata hljóm-
sveitarinnar og 22. hljóðversplata
Nick Cave. Þá eru ekki taldir tug-
irnir af plötum þar sem hann hefur
komið að. Svo hefur hann samið
hljóðmyndir og tónlist fyrir kvik-
myndir og leikverk, t.a.m. upp-
færslu Vesturports á Woyzeck, og
gefið út bækur. Ég held satt best að
segja að Nick Cave sé með afkasta-
meiri listamönnum samtímans. Það
eitt og sér væri efni í allnokkra
pistla og því læt ég hér við sitja.
Áhrifarík kvikmynd
Ég hafði í huga að rita plötu-
dóm sem myndi birtast helst daginn
eftir útgáfu plötunnar og var búinn
að setja mig í stellingar nokkrum
dögum fyrir útgáfu. Kvöldið fyrir
útgáfu sá ég hinsvegar One More
Time with Feeling, heimildarmynd-
ina sem gerð var um upptökuferli
plötunnar. Það er fáum orðum um
það að fara að þegar ég sá myndina
setti mig algjörlega hljóðan. Innra
með mér fóru alls kyns tilfinningar
á kreik og sjónarhorn mitt á plötuna
snarbreyttist. Í miðju upptökuferl-
inu varð nefnilega sá harmleikur að
sonur Cave, Arthur, hrapaði fyrir
björg og lést, í Ovingdean, nærri
Brighton, á Englandi. Arthur var 15
ára gamall. Ég var satt best að segja
meira eftir mig eftir þessa mynd en
eftir jarðarför fólks sem ég þekkti í
lifanda lífi, slíkur var áhrifamátt-
urinn.
Erfið nálgun
Útgáfudag plötunnar lét ég
hana vera fram á kvöld. Ég hafði
Reyndu aftur, með innlifun
Drungalegur Nick Cave hefur gjarnan þótt dimmur í tón- og textasmíðum en í þetta skipti tók einlægnin við, svo sem eins og gefur að skilja.
beðið spenntur eftir því að hlusta á
hana í vinnunni en kvikmyndin
fékk mig til að bíða þar til platan
fengi óskipta athygli. Ég hlustaði á
hana. Ég sat í korter með heyrn-
artólin á eyrunum í þögn, svo hlust-
aði ég á hana aftur. Aftur varð ég
agndofa. Ég endurupplifði sorgina
sem hafði heltekið mig kvöldið áð-
ur og vissi ekki alveg hvað mér átti
að finnast.
Það fyrsta sem ég tók eftir var
að fæst lögin enduðu. Þau stöðvuð-
ust bara stuttu eftir að textinn klár-
aðist, voru ósköp endaslepp. Það
næsta sem ég hjó eftir var naum-
hyggjan. Það var aldrei að heyra
að menn væru að reyna of mikið á
sig. Útsetningarnar voru einfaldari
en oft áður og textarnir öðruvísi.
Cave sagði sjálfur í myndinni að
öllu jöfnu væri hver texti margend-
urskoðaður og ekkert væri sungið
inn án þess að hann væri fyllilega
sáttur við það. Á þessari plötu hefði
hann hinsvegar þurft að vera sátt-
ur af öðrum ástæðum. Í þetta skipt-
ið var það innblásturinn sem skipti
mestu máli.
Að þessu öllu sögðu er Skele-
ton Tree bara enn ein platan í stóru
safni Nick Cave. Hún er nokkuð
sérstæð og mætti jafnvel segja að
hún styngi örlítið í stúf. Fyrstu tvö
lögin hafa að geyma stærstu út-
setningarnar. Strengjakvartettinn í
„Jesus alone“ vekur sæluhroll í ein-
faldleika sínum og textinn er hart-
nær eins beinskeyttur og hugsast
gæti frá Cave. „Girl in Amber“ þyk-
ir mér dásamlegt lag. Laglínan
gengur fullkomlega upp í hljóma-
ganginn og sársaukinn lekur úr
textanum og söngnum. það er eitt-
hvað sem kveikir í dramatíkinni hjá
mér. „Magneto“ er kannski ekki
aðgengilegasta útsetningin á plöt-
unni en aftur kemur dramatíkin í
textanum og hífir lagið upp á ann-
að plan sem gerir lagið þess virði
að minnast á það.
Lokun á sorgarferlinu
Hæst þykir mér risið á plöt-
unni þegar kemur að útfararsálm-
inum sjálfum, „Distant Sky“. Bara
við það að slá þessi orð inn hrísl-
aðist gæsahúð upp og niður hand-
leggina og bakið. Textinn er svo
ótrúlega hreinskilinn og fallegur
„Let us go now, my only comp-
anion. Set out for the distant sky“
syngur danska sópransöngkonan
Else Torp meðan Cave sakar aðra
um lygar þess efnis að mikilvægir
hlutir myndu lifa lengur en maður
sjálfur. Útsetningin er hreinn og
klár sálmur, orgel, bjöllur og
strengir, og ég tárast enn þegar
laginu lýkur allt í einu og sé fyrir
mér sviplegan dauðdaga Arthurs
og sorgina í augum foreldranna.
Plötunni er svo lokað með titillag-
inu. Þar fær maður á tilfinninguna
að lífið sé að komast í réttar skorð-
ur og lagið deyr út á orðunum
„And it’s alright now“. Frá mínum
bæjardyrum séð er þetta vonar-
neisti í svartnætti erfiðleikanna og
ég vænti þess að Nick Cave og Su-
sie Bick muni standa þetta áfall af
sér.
Mun þessi plata teljast til
meistaraverka Nick Cave and the
Bad Seeds? Það veit ég ekki. Ég
mun hinsvegar sækja í þessa plötu
um ókomna tíð þegar eitthvað bját-
ar á og sækja mér styrk í bataferli
föður í sorg.
» Á þessari plötuhefði hann hinsvegar
þurft að vera sáttur af
öðrum ástæðum. Í þetta
skiptið var það innblást-
urinn sem skipti mestu
máli.
Stórar og rúmgóðar 4ra hesta kerrur á tveimur öxlum.
Rist framan á kerru tryggir góða loftun um kerruna.
Öflugir flexitorar veita mjúka og góða fjöðrun. Minna skrölt og minni hávaði.
Stórir og breiðari hjólbarðar á 16” felgum sem hentar vel á slóðum og sveitavegum.
Rampur með timburgólfi sem leikur einn er að setja niður og reisa upp.
Ljós inni í kerru, gúmmímottur í gólfi og þverskilrúm er staðalbúnaður.
Hægt er að fá milligólf inn í kerrurnar fyrir fjárflutninga. Því má líka bæta við eftirá.
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
BRIDGET JONES’S BABY 5:20, 8
EIÐURINN 6, 9, 10:30
KUBO 2D ÍSL.TAL 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar