Morgunblaðið - 03.10.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2016
Hraunbergi 4, 111 Reykjavík, sími 530 9500
• Frí heimsending lyfja
• Góð kjör fyrir eldri
borgara og öryrkja
• Gerðu verðsamanburð
• Lyfjaskömmtun á góðu verði
góð þjónusta
ogPersónuleg
Opið alla virka daga kl. 8:30-18:00
Heilbrigð skynsemi
Heilsugæsla
efra Breiðholts
Gerðuberg
Lyf á lægra verði
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Umfangsmikil flugslysaæfing fór fram á Reykja-
víkurflugvelli sl. laugardag þar sem sviðsett var
flugslys með 75 farþegum um borð. Allt var gert
til að gera vettvanginn sem líkastan raunveru-
legu slysi. Um 400 manns tóku þátt í æfingunni,
starfsmenn flugvallarins, lögregla, slökkvilið,
sjúkraflutningamenn, starfsfólk sjúkrahúsa, al-
mannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn,
prestar, rannsóknaraðilar auk fjölda annarra.
Flugslys sviðsett með öllu tilheyrandi
Morgunblaðið/Eggert
Mikið um að vera á flugslysaæfingu á Reykjavíkurflugvelli
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Við framkvæmdastjórnin munum
funda með fulltrúum þessara lækna
og stjórnendum bráðamóttökunnar í
dag til að fara yfir þetta nánar en við
höfum verið að berjast við þetta
vandamál árum saman,“ segir Páll
Matthíasson, forstjóri Landspítal-
ans, í samtali við Morgunblaðið en
hann gerði bréf frá bráðalæknum
spítalans að umfjöllunarefni í pistli
sem hann birti á vefsíðu Landspít-
alans fyrir helgi.
„Telja þeir að við ástandið verði
ekki unað enda geti þeir ekki tryggt
öryggi sjúklinga sinna við aðstæður
sem allt of oft skapast í starfseminni.
Þannig hefur það ítrekað gerst að al-
varlega slasaðir eða veikir einstak-
lingar hafa þurft
að liggja á göng-
um bráðamót-
tökunnar jafnvel
sólarhringum
saman,“ segir
hann í pistlinum
og vísar til bréfs
22 sérfræðinga á
bráðadeild.
Páll segir vand-
ann í grunninn
vera kerfisins en ekki einstakra
deilda. „Auðvitað er aðflæði ákveðið
vandamál en það er minna vandamál
en fráflæðið á bráðamóttökunni.“ Á
hverjum morgni séu að meðaltali
fimmtán sjúklingar sem liggi á
bráðamóttökunni og þurfi innlögn en
komist ekki á viðeigandi deildir. Á
deildunum liggi fólk fyrir sem oftar
en ekki sé búið að fá meðferð en kom-
ist ekki af spítalanum í endurhæfingu
eða á hjúkrunarheimili. Segir Páll
meðalálagið á spítalann vera að
aukast og því verði álagspunktar erf-
iðari en haustið hafi verið óvenju-
annasamt.
Kerfisbreytingar mikilvægar
„Lausnirnar eru ekki einfaldar,
þær eru fjölmargar og við þurfum að
vinna að þeim með ráðuneytinu og
heilsugæslunni,“ segir Páll en hann
ætlar sér að fylgja eftir ákalli bráða-
læknanna af fullum þunga.
Spítalinn mun taka að minnsta
kosti þrjú skref á næstu mánuðum
sem mæta munu vandanum að ein-
hverju leyti þó að hann verði ekki
endanlega leystur. Vinna er hafin við
stofnun sérstakrar greiningardeildar
þar sem markmiðið er að greina og
meðhöndla sjúklinga hratt svo kom-
ast megi hjá lengri innlögn en tveim-
ur sólarhringum, hjá völdum hópi.
Þá verða tvær almennar skurð-
deildir sameinaðar í eina stærri deild
en þá verður betur hægt að nýta
starfsfólk og fjölga rýmum. Einnig
verður gerð gangskör að því að end-
urskipuleggja dag- og göngudeildir
spítalans þannig að þær séu nýttar
með markvissari hætti en stundum
má forða innlögnum með því að nota í
staðinn þær deildir. Að auki er legu-
rýmum bætt við þar sem kostur er.
Páll telur einnig að sjúklingahótel
sem opnar á næsta ári muni greiða
fyrir fráflæði sjúklinga. „Ekkert sem
gert er innanhúss dregur samt úr
mikilvægi stærri kerfisbreytinga,“
segir hann.
Öryggi sjúklinga ótryggt
22 sérfræðingar á bráðadeild Landspítalans segja ástandið þar óviðunandi
„Ekkert sem gert er innanhúss dregur úr mikilvægi stærri kerfisbreytinga“
Páll
Matthíasson
Flokksráðs-
fundur Vinstri
grænna var hald-
inn á Akureyri
um helgina, þar
sem áherslur
flokksins í öllum
málaflokkum fyr-
ir komandi kosn-
ingar voru sam-
þykktar.
Heilbrigðis-
kerfið, málefni öryrkja og eldri
borgara, húsnæðis-, skóla- og
menntamál voru meðal þeirra mála
sem voru ofarlega á baugi og sagði
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, að loknum fundi að
skýr krafa væri uppi um að gera
þyrfti betur hvað varðaði þessa
málaflokka.
Katrín sagði í samtali við mbl.is að
flokkurinn væri með tillögur um að
auka þyrfti stofnframlög í húsnæðis-
málum í takt við nýtt lagaumhverfi.
„Við viljum líka að sveitarfélög fái
heimildir til þess að koma á einhvers
konar takmörkunum á hækkunum
leiguverðs,“ sagði Katrín.
Hvað heilbrigðismálin varðar
sagði hún að VG vildi draga jafnt og
þétt úr kostnaðarþátttöku sjúklinga
á komandi kjörtímabili.
Spurð um fjármögnun þessara
verkefna nefndi Katrín sérstök auð-
lindagjöld. Þá yrði horft til þess að
þeir tekjumestu legðu aukalega til
samfélagsins og skattaeftirlit yrði
aukið. elinm@mbl.is
Sjúklingar
borgi
minna
Katrín
Jakobsdóttir
VG lögðu línurnar
fyrir kosningar
Samkvæmt upplýsingum frá Veður-
stofu Íslands seint í gærkvöldi var
engin skjálftavirkni í kringum
Kötlu. Að sögn veðurfræðings var
„ekkert óvenjulegt á ferðinni“.
Rólegt hefur verið við Kötlu
undanfarinn sólarhring. Nokkrir
jarðskjálftar hafa mælst í öskjunni
og var sá stærsti af stærð 2,6. Hann
var kl. 17:01, 1. október. Enn eru
engin merki um gosóróa. Þessi mikla
virkni á laugardaginn virðist ekki
hafa valdið auknu rennsli jarðhita-
vatns í ám í kringum Mýrdalsjökul.
Litakóðinn fyrir Kötlu er enn gulur
sem þýðir að virknin er umfram
venjulegt ástand.
Virknin í
Kötlu lítil
Edda Heiðrún Back-
man, leikari, leikstjóri
og myndlistarmaður,
lést á Landspítalanum í
Fossvogi 1. október, 58
ára að aldri.
Edda Heiðrún fædd-
ist á Akranesi 27. nóv-
ember 1957. Foreldrar
hennar voru Jóhanna
Dagfríður Arnmunds-
dóttir og Halldór Sig-
urður Backman. Hún
lauk stúdentsprófi frá
MS 1978 og leikara-
prófi frá Leiklistar-
skóla Íslands 1983.
Edda Heiðrún átti farsælan feril
sem leikari fram til ársins 2004 en þá
hafði hún greinst með MND-sjúk-
dóminn, sem varð þess valdandi að
hún hætti að leika. Þá sneri hún sér
að leikstjórn bæði í Borgarleikhús-
inu og Þjóðleikhúsinu.
Árið 2007 opnaði Edda
blómabúðina Súkku-
laði og rósir og árið
2008 hóf hún að mála
með munninum, bæði
vatnslitamyndir og olíu
og haustið 2009 var
Eddu boðin aðild að al-
þjóðlegum samtökum
munn- og fótmálara,
The Association of Mo-
uth and Foot Painters.
Á ferli sínum sem
myndlistarmaður hélt
hún fjölda sýninga, í
Reykjavík og á lands-
byggðinni auk þess sem hún átti
myndir á sýningum erlendis.
Edda Heiðrún gerðist ötul bar-
áttukona fyrir réttindum fatlaðs
fólks. Ásamt Hollvinasamtökum
Grensás stóð hún fyrir landssöfnun
til uppbyggingar og endurbóta á
Grensásdeild undir yfirskriftinni Á
rás fyrir Grensás. Þar söfnuðust á
annað hundrað milljónir króna.
Þá var Edda Heiðrún mikill tals-
maður umhverfisverndar og stofnaði
félagsskapinn Rödd náttúrunnar
snemma á þessu ári, sem er ætlað
það hlutverk að veita náttúrunni
rödd og réttindi.
Edda Heiðrún hlaut fjölda viður-
kenninga fyrir list sína. Þrisvar
sinnum fékk hún Íslensku sviðs-
listarverðlaunin, þ.á m. heiðurs-
verðlaun Grímunnar. 2003 hlaut hún
Íslensku kvikmyndaverðlaunin,
Edduna, 2006 var hún borgar-
listamaður Reykjavíkur og 2008
samþykkti Alþingi hana í hóp heið-
urslistamanna.
Edda Heiðrún lætur eftir sig tvö
börn, Arnmund Ernst leikara og
Unni Birnu menntaskólanema.
Andlát
Edda Heiðrún Backman