Morgunblaðið - 03.10.2016, Page 12

Morgunblaðið - 03.10.2016, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2016 Suðurhrauni 4, Garðabæ | Furuvellir 3, Akureyri | Sími 575 800 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu ◆ KASSAR ◆ ÖSKJUR ◆ ARKIR ◆ POKAR ◆ FILMUR ◆ VETLINGAR ◆ HANSKAR ◆ SKÓR ◆ STÍGVÉL ◆ HNÍFAR ◆ BRÝNI ◆ BAKKAR ◆ EINNOTA VÖRUR ◆ HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað Hausttilboð á völdum VOLVO PENTA vélapökkum Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is D-4 225 hö. með hældrifi verð frá 3,9 millj. án. vsk D-6 330 hö. með hældrifi verð frá 4,9 millj. án. vsk Tilboðin gilda til og með 28. október Hildur Loftsdóttir hildurl@mbl.is Ég er búin að vera tværvikur í Helsinki aðundirbúa sýningu á vetr-arsirkusnum hér í borg og verð fram í miðjan janúar. Við undirbúum í tvo mánuði og sýnum svo stanslaust tvisvar á dag í tvo mánuði, eða alls 80 sýningar. Þetta eru tólf sirkuslistamenn sem koma alls staðar að og við vinnum allan daginn við að koma sýningunni saman, en þetta er rosalega skemmtilegt,“ segir Birta Benónýs- dóttir, sirkuslistakona með franska fjölleikahópnum Les P’tits Bras. Örlögin taka í taumana „Ég fluttist tvítug til Frakk- lands og fór í sirkusháskóla í bæn- um Chalons en Champagne. Ég ætlaði reyndar að fara í sirkusskóla í Svíþjóð en þegar ég var búin með menntaskólann var ekki rétta árið að fara, því skólinn tók bara inn annað hvort ár. Ég ákvað því að fara til Frakklands sem au pair í eitt ár. Ég fann fjölskyldu á netinu og þegar við fórum að tala saman útskýrði ég að ég þyrfti að fá viku- frí í júní til að fara til Svíþjóðar og taka inntökupróf í sirkusskóla. Þá kom í ljós að mamman vann í virt- asta sirkusskóla Frakklands og spurði hvort ég vildi ekki bara fara þangað í skóla. Þetta var algjör til- viljun! Örlögin voru greinilega að segja mér að ég ætti að fara til Frakklands. Ég fór svo í vikulöng próf þar, komst inn og núna níu ár- um seinna er ég þar enn.“ Síðasta árið í skólanum ferð- uðust Birta og samnemendur henn- ar með sína eigin sýningu í heilt ár og síðan fór hún til Palestínu að kenna sirkuslistir. „Eftir það tók ég við hlutverki í mjög stórri sýningu sem ég ferð- aðist með um allan heiminn í tvö ár, en síðustu þrjú ár hef ég unnið með Les P’tits Bras. Við höfum ferðast með sýninguna „L’Odeur de la Sciure“ í þrjú ár og höldum áfram í tvö í viðbót. Síðasta sumar héldum við 60 sýningar í sjö eða átta mis- munandi löndum og það var frekar þreytandi. Núna er ég svo ánægð því þetta er í fyrsta skipti í níu ár sem ég er fjóra mánuði á sama staðnum. Það er algjör lúxus að fá að eiga heima einhvers staðar í stað þess að vera sífellt á nýju hótelher- bergi.“ Fjölskyldan kemur með „Í Frakklandi er ein allra sterkasta sirkushefð í heimi og hef- ur verið í fleiri hundruð ár. Við vinnslu á sýningunni okkar vorum við með aldamótin 1900 í huga. Fé- lagar mínir kalla það La Belle Epo- que, eða gullaldarskeið franskrar fjölleikhúshefðar. Í allri uppsetn- ingunni leikum við okkur með stíl þessa tímabils án þess að það sé paródía. Við erum frekar að heiðra tímabilið. Fatahönnuðurinn vann alla búningana út frá þessum tíma, við erum í trapísum og rólum og stóru sterku mennirnir henda okk- ur í heljarstökkum á milli sín, sem var mikið um þá,“ segir Birta, sem er rosalega ánægð hjá þessu fyrir- tæki. „Við erum fimm á sviðinu og einn tæknimaður og okkur kemur mjög vel saman. Enda verðum við að vera vinir eins mikið og við erum saman, meira en með fjölskyld- unum. Í hvert skipti sem við keyr- um af stað erum við á leið til móts við ævintýrin, alveg sama hvert ferðinni er heitið. Margir af vinum mínum eru samt fjölskyldufólk og oftast eru bara börnin með á ferð- inni. Ég þekki börn sem kunna Til móts við ævin- týrin í háloftunum Sirkuslistakonan Birta Benónýsdóttir starfar með Les P’tits Bras, virtum frönskum fjölleikahópi. Hún elskar starfið sitt þótt það kalli á endalaus ferðalög um allan heim og fjarvistir frá kærastanum Lucasi línudansara. Í rauðum frakka Birta heillar íbúa bæjarins Morlaix í Frakklandi. Mikill tilfinningalegur sársaukifylgir því oft að skilja viðþann sem maður hefur tengst djúpum tilfinningaböndum og hefur ráðgert að búa með þar til yfir lyki. Ekki er aðeins um brostnar væntingar og erfiðar tilfinningar að ræða eins og höfnun, sektarkennd og reiði heldur fylgir í kjölfarið tilfinn- ingalegt uppgjör, skipting á eignum og ótti við hið óþekkta. Í ofanálag, ef skilnaður á rætur að rekja til framhjá- halds eða langvarandi sambúðarvanda þá eru samskiptin eftir skilnað svo til- finningaþrungin að eins konar tilfinn- ingastríð getur skapast milli foreldra sem bitnar of oft illilega á börnum þeirra. Á hinn bóginn, þegar góðir for- eldrar eru spurðir hvað skipti þá mestu máli í lífinu, þá svara þeir án undantekninga að það séu börnin og fullyrða án nokkurs vafa að neikvæðar tilfinningar hvors til annars eigi alls ekki að bitna á börnunum. Ólgusjór tilfinninganna Það þýðir einfaldlega að ef sam- skiptaörðugleikar eru á milli foreldra, ósamkomulag um umgengni eða forsjá þá eiga foreldrarnir, alveg sama hvað gengur á, að beita öllum tiltækum ráð- um til að koma í veg fyrir að börnin finni fyrir þeirri deilu. Það geta góðir foreldrar hins vegar oft ekki gert, heldur týna þeir sér í ólgusjó nei- kvæðra tilfinninga og í raun hegða sér gegn betri vitund. Góðir foreldar eru í alveg jafnmikilli hættu og annað gott fólk að ráða ekki við þær tilfinningar sem krauma undir niðri og springa út þegar ákveðnar, íþyngjandi tilfinn- ingalegar aðstæður eru fyrir hendi. Tilfinningar eru nefnilega raun- veruleg fyrirbæri. Tilfinningar fæðast og þær deyja eftir því hvernig við hegðum okkur í samskiptum við annað fólk og tökumst á við þær. Að auki lifa þær og dafna eftir því hvaða viðhorf við höfum til lífsins almennt og þeirra sem við hleypum að okkur og viljum eða vildum deila lífinu með. Tilfinn- ingar leynast í huga okkar og líkama ef við ráðumst ekki að rótum þeirra. Í aðþrengdum aðstæðum þá munu þær brjótast út fyrr eða síðar og breyta hegðun góðra foreldra, eins og hjá öllum öðrum vel meinandi og góðum manneskjum. Þegar það gerist þá finnst góðum foreldrum að þeir hafi svikið sig sjálfa og börnin sín og fyll- ast jafnvel nýjum óþægilegum tilfinn- ingum eins og samviskubiti, kvíða, þunglyndi og ósátt við sig og fyrrver- andi maka sem leiðir af sér vítahring ennþá erfiðari samskipta sem aftur kemur niður á börnum þeirra. Tengslanetið Hvað skal til bragðs taka? Góðir foreldrar þurfa að vera mjög meðvit- aðir um að tilfinningar eru raunveru- legar og mikilvægt er að vinna úr þeim. Helst áður en þær hafa slæm áhrif á þá sjálfa og börnin þeirra. Ef góðum foreldrum tekst ekki að leysa úr tilfinningum sínum þá ættu þeir að finna einhvern sem getur skapað þannig skilyrði að tilfinningarnar fái ekki að ráða ferðinni í samskiptum við fyrrverandi maka. Gott er að leita sér aðstoðar þriðja aðila, til dæmis sáttamiðlara eða einhvers í tengsla- netinu sem þeir líta upp til og treysta til að sýna hlutleysi og skynsemi. Ein- hvers sem getur veitt stuðning og hjálpað til að skapa skilyrðin til að finna gagnlegar lausnir á vandanum sem ekki koma niður á þeim sjálfum og börnum þeirra. Góðir foreldrar vilja væntanlega halda áfram að vera góðir foreldrar og þá er mikilvægt að hafa í huga að samskipti þeirra í milli og fram- kvæmd uppgjörsins spilar gríðarlega stórt hlutverk.  Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafar- þjónusta, Skeifunni 11a, Reykjavík. www.heilsustodin.is Forsjár- og umgengnis- deilur góðra foreldra Mikilvægt Góðir foreldrar gæta þess að láta deilur sínar og neikvæðar til- finningar hvors í annars garð ekki bitna á börnunum. Heilsupistill Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson sáttamiðlari Í öðru erindinu í erindaröð Bókasafns Kópavogs um sjálfsrækt kl. 20 á morgun, þriðjudag 4. október, fjallar Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi um hamingjuna. Erindið, sem verður á persónu- legum, fræðandi og skemmtilegum nótum, er haldið á fyrstu hæð aðal- safns. Allir eru velkomnir á meðan hús- rúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Erindaröð um sjálfrækt Erindi Elín Ebba Ásmundsdóttir. Hamingjan sanna!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.