Morgunblaðið - 03.10.2016, Side 21
Nonni var ötull baráttumaður að
koma á aðstöðu fyrir félagsstarf
aldraðra í bænum og það voru ófá-
ar stundirnar sem hann innti af
hendi til að ná þessum mark-
miðum. Hann var mjög ánægður
þegar félagsstarfið var komið í
varanlegt húsnæði í Hraunseli
sem gjörbreytti allri aðstöðu.
Fjölskyldan var ætíð í fyrir-
rúmi hjá Nonna. Mikið og náið
samband var á milli þeirra Nonna,
Stebbu og einkasonarins Guð-
mundar Geirs. Það var unun að
sjá hvað þau voru góðir vinir og
samhent um allt. Og þegar synir
Guðmundar Geirs fæddust vafði
hann þá umhyggju og styrk sem
þeir gleyma örugglega ekki og
eins var með barnabörnin. Það
varð mikill söknuður hjá öllum
þegar Stebba féll frá árið 2010.
En vinátta þeirra feðga varð enn
nánari.
Það var mikil sorg þegar Krist-
inn maðurinn minn féll frá langt
um aldur fram, en þeir Nonni voru
góðir vinir. Nonni og Guðmundur
Geir sýndu mér og fjölskyldu
minni einstaka alúð og umhyggju
á þessum erfiðu tímum og voru
boðnir og búnir til hjálpar í öllu.
Það viljum við Sigga og Inga
þakka sérstaklega.
Nú er komið að leiðarlokum.
Ég þakka Nonna hálfrar aldar
samfylgd og fölskvalausa vináttu
alla tíð.
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til ykkar allra, elsku Guð-
mundur Geir og fjölskylda. Guð
styrki ykkur í sorginni.
Gunnhildur, Sigríður
og Inga Valgerður.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2016
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, morgunleikfimi kl. 10, félags-
vist, útskurður 1 og frjáls tími í myndlist kl. 13.
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 8.30–16. Botsía með Þóreyju kl.
9.30–10.10. Zumba gold meðTönyu kl. 10.30–11.30, handavinna með
leiðbeinanda kl. 12.30–16.30, félagsvist með vinningum kl. 13–15,
bútasaumur, Ljósbrotið kl. 13–16, myndlist með Elsu kl. 16.
Boðinn Bingó og myndlist kl. 13, leikfimi hefst 17. október kl. 10.30.
Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10.30 og prjónaklúbbur kl. 13.
Dalbraut 18-20 Brids kl. 13.
Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30–16. Með-
læti selt með kaffinu frá kl. 14–15.45, vatnsleikfimi kl. 8 og 14, kvenna-
leikfimi í Sjálandsskóla kl. 9.10, stólaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 10,
kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 11. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg Kl. 9–16 opin handavinnustofa, kl. 9–16 útskurður með
leiðbeinanda, kl. 13–14 línudans, kl. 14.30–16.30 kóræfing, áhuga-
samir velkomnir á æfingu.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 gler- og postulíns-
málun, kl. 10.50 jóga, kl. 13 lomber, kl. 13.15 kanasta. Leiðsögn/aðstoð
á ipad, tölvu eða síma kl. 13-14.30 í félagsmiðstöðinni Gjábakka.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl.10, handavinna
og brids kl. 13, félagsvist kl. 20. hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa
á staðnum, leshópur á morgun, þriðjudag kl. 20. Allir velkomnir!
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9, opin
handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14, bænastund kl. 9.30–10, göngu-
hópur kl. 10.30, þegar veður leyfir. Dóra djákni í heimsókn kl.10–12,
hádegismatur kl. 11.30, prjónaklúbbur kl. 14, kaffi kl. 14.30
Hvassaleiti 56–58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8–16, morgunkaffi
og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, kl. 9 erobik-
æfingar með Milan, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30, baðþjón-
usta fyrir hádegi, mömmuhópur kl. 12, brids kl. 13, kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30, við hringborðið kl. 8.50, glerlist kl.
9, æðstaráðsfundur kl. 10.20, myndlist hjá Margréti Zóphoníasd. kl.
12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl.
14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu.
Nánar í síma 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla kl. 9 í Borgum, ganga frá Borgum og Grafar-
vogskirkju kl. 10, línudans kl. 11 í Borgum, félagsvist kl. 13 í Borgum,
tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og qigong með Þóru kl. 16.30 í
Borgum.
Stangarhylur 4, Zumba Gold námskeið kl. 10.30 í félagsmiðstöðinni
Árskógum 4, leiðbeinandiTanya. Ipad-námskeið kl. 13.30 í félagsmið-
stöðinni árskógum 4, leiðbeinandi Baldur Magnússon, danskennsla
samkvæmisdansar kl. 17, línudans kl. 18 og samkvæmisdansar fram-
hald kl. 19, kennari Lizy Steinsdóttir.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mb
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum og lánum út á: gull,
demanta, vönduð úr og málverk!
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu
núna og fáðu tilboð þér að kost-
naðar-lausu! www.kaupumgull.is
Opið mán.– fös. 11–16.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 782 8800
Ýmislegt
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Mjódd s. 774-7377
Sundbolir • Tankini
Bikini • Strandfatnaður
Undirföt • Náttföt
Sloppar • Undirkjólar
Inniskór • Aðhaldsföt
Verð áður 6.500
Verð nú 3.250
Verð áður 5.900
Verð nú 2.950
Verð áður 7.900
Verð nú 3.250
Verð áður 7.900
Verð nú 3.950
Haustdagar
3. - 8. okt
50% afsláttur
af öllum
brjóstahöldurum
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Mjódd s. 774-7377
Sundbolir • Tankini
Bikini • Strandfatnaður
Undirföt • Náttföt
Sloppar • Undirkjólar
Inniskór • Aðhaldsföt
Haustdagar
3. - 8. okt
50% afsláttur
af öllum
brjóstahöldurum
Verð áður 5.200
Verð nú 2.600
Verð áður 3.950
Verð nú 1.975
Verð áður 6.500
Verð nú 3.250
Verð áður 7.900
Verð nú 3.950
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Til leigu
Til leigu nýlegt 285 - 1.000 fm
atvinnuhúsnæði í Reykjavík
285 fm bil með allt að 9 m lofthæð,
stórar innkeyrsludyr, góð malbikuð
lóð, og greið aðkoma.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir í s. 661 7000
Þjónustuauglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1390 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð Fleiri minningargreinar
um Kolbrúnu Sveins-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
að versla en það var fátt sem
henni fannst betra en sólin. Það
mátti ekki sjást smá sólarglæta
þá var hún mætt í sólstólinn,
það hefði lítið komið á óvart ef
maður hefði séð hana í sólbaði í
miðjum snjóstormi ef það hefði
smágeisli frá sólinni sloppið í
gegn.
Hún var afbragðs bakari og
bakaði heimsins bestu skúffu-
kökur, þó svo að hún hafi nú
óvart sett piparmyntudropa í
stað vanilludropa í þetta eina
skipti. Djúsísinn sem hún gerði
sló öll met og enginn blandar þá
eins vel og hún gerði. Trúið okk-
ur, við erum enn að reyna!
Amma elskaði börn, barna-
börn og barnabarnabörn sín af-
ar heitt og gerði allt sem hún
gat fyrir þau. Það fengu þó allir
harða samkeppni þegar hún
eignaðist hundinn Trygg fyrir
nokkrum árum. Hann hefði ekki
getað óskað sér betra heimilis
og eiganda en hennar ömmu og
við áttum það til að brosa út í
annað þegar við urðum vitni að
því hve mikið hún dekraði og
nostraði við hann. Þau urðu svo
háð hvort öðru og gátu varla án
hvort annars verið. Okkur
fannst nú ekki lítið fyndið að
hún hafði meiri áhyggjur af hon-
um Trygg sínum þegar hún
þurfti að skilja hann eftir heldur
en afa ef hann varð eftir heima.
Það að hún sé farin skilur eft-
ir stórt skarð í okkar hjörtum og
mikinn söknuð. Það verður ekki
eins án hennar. Það getur eng-
inn skreytt eins og hún fyrir jól-
in eða sett jafn oft og snyrtilega
á sig varalit á hverjum degi eins
og hún gerði.
Við horfum til baka svo sæl
og svo þakklát fyrir allar stund-
irnar og minningarnar sem við
áttum með henni ömmu okkar.
Hvíldu í friði, elsku amma, og
engar áhyggjur, við pössum upp
á hann Trygg þinn.
Ólafur Haukur, Lena, Víðir
Steinar og Helena Arn-
björg.
Fleiri minningargreinar
um Jón J. Guðmundsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.