Fréttablaðið - 24.08.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.08.2016, Blaðsíða 2
Veður Hægviðri og víða léttskýjað í dag, en áfram austan 8-13 og rigning með köflum suðaustanlands. Sums staðar þokubakkar við sjávarsíðuna. Hiti 10 til 20 stig, svalast við sjóinn norðvestan- lands og á Austfjörðum en hlýjast inn til landsins. sjá síðu 22 Dauðadómur í heimalandinu Hafnarfjörður Hinsegin fræðsla á vegum Samtakanna ’78 hófst í síðustu viku í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Starfsfólk allra grunn- skóla í Hafnarfirði mun fá fræðslu fyrir lok skólaársins. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, fræðslu- fulltrúi samtakanna, sem hélt fyrir- lesturinn, segir viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð. Hún segir vonir um að fá að koma á fræðslu í fleiri sveitarfélögum landsins. Fræðsla fyrir starfsfólk grunn- skóla er einn liður af fjórum í sam- komulagi sem Hafnarfjarðarbær gerði við Samtökin ’78. Auk fræðslu fyrir starfsfólk verður árleg fræðsla í áttunda bekk fyrir nemendur og ungmenni úr Hafnarfirði geta leitað eftir þjónustu Samtakanna ’78 eftir þörfum án endurgjalds. „Við fengum rosa góðar móttökur. Eftir fræðsluna fylltu kennararnir út miða þar sem þeir voru að meta fræðsluna og það var yfirgnæfandi meirihluti sem fannst þetta vera mjög gagnlegt. Við erum í skýjunum yfir því hvað þetta tókst vel,“ segir Ugla Stefanía. Í september byrjar svo fræðsla fyrir nemendur í átt- unda bekk. Ugla Stefanía segir mikilvægt að fræða starfsfólk jafnt sem nem- endur. „Þetta er einn hluti af því að gera starfsfólk hæfara til að taka á alls konar fólki. Það er mikilvægt að kennarar og starfsfólk séu meðvituð um hinsegin málefni og séu í stakk búin til að hjálpa nemendum sem eru að koma út úr skápnum hvort sem þeir eru samkynhneigðir eða trans.“ Ugla Stefanía segir fræðsluna snúa mikið að trans og intersex mál- efnum. „Það eru málefni sem fólk Fræða kennara um intersex og transfólk Hinsegin fræðsla hófst nýverið í Hafnarfirði. Fræðslu fær bæði starfsfólk og nemendur. Fræðslufulltrúi Samtakanna ’78 segir fólk vita minna um málefni transfólks en samkynhneigðra. Vonir eru um fræðslu hjá fleiri sveitarfélögum. Víðistaðaskóli er fyrsti skólinn sem fær heimsókn frá Samtökunum ´78. Mynd/VifgúS HallgríMSSon hefur ekki rosalega mikla vitneskju um. Það er kannski aðallega að fólk fái að heyra af fjölbreytileikanum.“ Samtökin ’78 eru með samning við Reykjavíkurborg um fræðslu fyrir starfsfólk og nemendur í skólum þar. „Það er okkar von að fleiri sveitarfélög muni vilja gera samning við okkur. Við vitum að við gerum þetta vel og erum fagmann- leg í því sem við gerum. Við erum í stakk búin að takast á við það ef fleiri sveitarfélög sjá tækifæri í að fá okkur,“ segir Ugla Stefanía. saeunn@frettabladid.is TENNIS er skemmtileg hreyfing Nú er rétti tíminn til að panta fastan tíma í tennis. Eigum nokkra tíma lausa. Skemmtilegu byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna eru að hefjast. Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is Morteza Songolzade hælisleitandi með úrskurð frá lögreglu um brottvísun til Frakklands. Hann telur yfirgnæfandi líkur á að Frakkar sendi hann til heimalands síns, Írans, þar sem hann fékk dauðadóm. „Ég skil ekki hvers vegna ég er sendur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sem tekur fyrir að senda fólk til baka stofni það lífi þess í hættu,“ segir hann. Morteza bauð fólki sem mótmælti fjölda hælisleitenda hér á landi upp á kakó og kökur á Austurvelli. Hann sagði þá að Íslendingar væru vinsamlegasta fólk sem hann hefði hitt á flótta sínum um Evrópu. fréttablaðið/Ernir Leiðrétting Í grein um Gamanmyndahátíðina á Flateyri í blaði gærdagsins er Ragnar leikstjóri skrifaður Hallsson en hann er Hansson, Skjaldborg er ekki stuttmyndahátíð heldur heimildarmyndahátíð og í myndatexta er Eyþór Jóvinsson ranglega nefndur Eyvindur. Beðist er velvirðingar á öllum þessum rangfærslum. stjórnmáL Þorsteinn Víglundsson hefur látið af störfum sem fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins og ætlar að gefa kost á sér í framboð til Alþingis fyrir Viðreisn. Þá tilkynnti stærðfræðingurinn og pistlahöfundurinn Pawel Bartoszek einnig að hann væri genginn til liðs við Viðreisn í gær. Í tilkynningu sinni sagðist hann öðru fremur trúa á borgaraleg réttindi, frjálsan mark- að og alþjóðlega samvinnu. – þea Þorsteinn og Pawel í framboð iðnaður Framkvæmdast jóra umhverfissviðs og skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar hefur verið falið að afla frekari gagna vegna umsóknar félagsins Iceland Resources ehf. um leyfi til gullleitar í Þormóðsdal. Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvegssýnaboranir. Til stendur að bora tíu 795 metra djúpar rannsóknarholur sem sé 90 metrum dýpra en áður hefur verið borað á svæðinu. Þannig náist til svæða sem ekki hafi verið skoðuð áður. Síðar verði boraðar aðrar tíu holur niður á um 1.505 metra dýpi. – gar Leita gulls dýpra í Þormóðsdal LögregLumáL Tilkynnt var um tuttugu og sjö kynferðisbrot sem áttu sér stað í júlímánuði á höfuð- borgarsvæðinu. Ekki hafa borist eins margar tilkynningar um brot sem framin voru í einum mánuði síðan í ágúst 2013. Fram kemur í mánaðarskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu að þetta voru töluvert fleiri til- kynningar en að meðaltali síðustu þrjá mánuði á undan og síðustu tólf mánuði. Það sem af er ári hefur hins vegar verið tilkynnt um færri kynferðis- brot en á sama tímabili í fyrra. Í ár er búið að tilkynna um 121 kynferðis- brot, samanborið við 135 í fyrra. Tilkynnt kynferðisbrot voru færri á fyrstu sjö mánuðum ársins 2014, en töluvert fleiri á því tímabili árið 2013, eða 176. – sg Ekki fleiri brot tilkynnt í þrjú ár Það var yfirgnæf- andi meirihluti sem fannst þetta vera mjög gagnlegt. Við erum í skýj- unum yfir því hvað þetta tókst vel. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir 795 Dýpt holunnar sem bora á í Þormóðsdal í metrum. 2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 m i ð V i K u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 2 4 -0 8 -2 0 1 6 0 3 :5 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 5 3 -7 A E C 1 A 5 3 -7 9 B 0 1 A 5 3 -7 8 7 4 1 A 5 3 -7 7 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.