Fréttablaðið - 24.08.2016, Blaðsíða 26
„Heilsudrekinn og Íþróttafélag-
ið Drekinn Wushu standa að
þessu námskeiði í samvinnu við
kínverska íþróttasambandið.
Tveir sérfræðingar koma hing-
að frá virtum háskóla í Kína til
að kenna,“ útskýrir Qing, eigandi
Heilsudrekans. Hún segir tai chi
alhliða leikfimi sem henti fólki á
öllum aldri.
Fyrirlestrar í Hí
„Tai chi er fyrir alla, bæði keppn-
isfólk og þá sem vilja einfaldlega
hugsa um heilsuna. Þarna gefst
fólki tækifæri til þess að læra
tæknina og að kynna sér heim-
spekina sem liggur að baki tai
chi, en námskeiðið verður einn-
ig byggt upp á fyrirlestrum sem
haldnir verða í Háskóla Íslands,“
segir Qing.
Gerir öllum Gott
„Tai chi leikfimin byggist á mjúk-
um og hægum hreyfingum þótt
bakgrunnur leikfiminnar sé bar-
dagaíþrótt. Þessar hægu hreyf-
ingar hafa áhrif á orkurásir lík-
amans og gagnast fólki því vel
gegn streitu og kvíða og til þess
að ná bæði líkamlegu og andlegu
jafnvægi. Tai chi hentar fólki sér-
staklega vel sem glímir við hjarta-
vandamál, of háan blóðþrýsting og
sykursýki. Þá hjálpar tai chi einn-
ig þeim sem glíma við svefnleysi
eða einbeitingarskort. Til dæmis
hafa krakkar verið að æfa tai chi
hjá okkur og gengið betur að ein-
beita sér í skólanum,“ útskýrir
Fólk er kynninGarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir,
liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367
Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358
Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 |
Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
ragnheiður
tryggvadóttir
heida@365.is
Á námskeiðinu gefst tækifæri til þess að læra tæknina og að kynna sér heimspek-
ina sem liggur að baki tai chi. námskeiðið verður einnig byggt upp á fyrirlestrum
sem haldnir verða í Háskóla Íslands.
tai chi leikfimin byggist á mjúkum og
hægum hreyfingum þótt bakgrunnur
leikfiminnar sé bardagaíþrótt. mynd/
Heilsudrekinn
Virkja innri
orku með tai CHi
kynningarnámskeið í tai chi, fornri kínverskri sjálfsvarnarlist, verður
haldið í Heilsudrekanum í Skeifunni 3j dagana 26. ágúst til 3. september.
Leiðbeinendur verða Hou Wen og Yu Jun Ling en þau eru bæði
sérfræðingar í faginu. Skráningu á námskeiðið fylgir frítt mánaðarkort.
Qing en leggur áherslu á að tai chi
geri öllum þeim sem stunda hana
gott. „Fullfrískt fólk hefur gott af
því að stunda tai chi. Leikfimin
gengur út á jafnvægi en ekki bara
út á að hreyfa hendur og fætur.
Með tai chi virkjum við innri orku
til hreyfingar,“ útskýrir Qing.
Frítt mánaðarkort
„Þeir sem skrá sig á námskeið-
ið fá frítt mánaðarkort til viðbót-
ar til að æfa í Heilsudrekanum og
virkja betur þá tækni sem fólk
lærði á námskeiðinu.“
Skráning fer fram í síma 553
8282. Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið er að finna á Facebook-síðu
Heilsudrekans.
bryngeir Valdimarsson segir ótrúlega gefandi að kenna grunnskólabörnum. „að fylgjast með þeim læra eitthvað nýtt og sjá
þegar þau skilja hlutina, það er æðislegt.“ fréttablaðið/ernir
„Allra fyrsta kennslustundin mín
var mjög skemmtileg. Maður þarf
auðvitað að vera sveigjanlegur
og uppátækjasamur, geta brugð-
ist strax við alls konar aðstæð-
um sem upp koma. Það þýðir ekk-
ert annað en að hafa gaman af því
óvænta í þessu starfi,“ segir Bryn-
geir Valdimarsson, spurður út í
kennarastarfið en hann er á síð-
asta árinu í kennaranámi við HÍ.
Meðfram náminu kennir hann í
Valhúsaskóla en hefur unnið sem
forfallakennari í grunnskólum síð-
ustu fjögur árin.
„Ég hef kennt öllum aldri og
öll fög nema sund. Það er mikill
munur á að kenna fyrsta eða sjötta
bekk,“ segir Bryngeir og viður-
kennir að það sé áskorun að halda
stórum hóp af sex ára krökkum
við efnið. Sérstaklega fyrir afleys-
ingakennara.
ForFallakennari kemst upp
með ýmis trix
„Krakkarnir reyna á nýja kenn-
arann, að sjálfsögðu. Í forfalla-
kennslu er meira að segja gert
ráð fyrir því að erfitt sé að halda
fullri áætlun,“ segir hann sposk-
ur. „Í forföllum beitir maður
líka frekar skyndilausnum sem
maður myndi ekki nota í almennri
kennslu. Semur við krakkana um
að sleppa þeim fyrr út úr tíma ef
þau vinni vel og fleira í þeim dúr.
Maður reddar sér, frekar en að
fá kannski ekkert út úr kennslu-
stundinni. Oft verður reynd-
ar þá svo gaman að nemendurn-
ir gleyma samningnum og vinna
af kappi þar til bjallan hring-
ir út. Aðal málið er að ná til nem-
endanna strax í byrjun, þá vinna
báðir aðilar vel og miklu meira
kemst í verk.“
ÆðisleGt að sjá þau lÆra
eittHVað nýtt
Hvað gefur þér mest í starfi? „Að
sjá hvaða áhrif ég get haft á ung-
mennin, að fylgjast með þeim
læra eitthvað nýtt og sjá þegar
þau skilja hlutina, það er æðis-
legt. Það er ástæða þess að ég fór
í þetta nám, að geta mótað æsk-
una, haft áhrif og hjálpað krökk-
um að komast út í samfélagið sem
best undirbúin,“ segir Bryngeir.
„Kennari í dag þarf að vera allt
í senn sálfræðingur, hjúkrunar-
fræðingur, fjölskylduráðgjafi og
menntari.“
Þetta er þá ekki „þægileg inni-
vinna“?
„Ja, sumarfríin eru góð,“ segir
Bryngeir hlæjandi. „En nei, þetta
starf er ekki þannig að maður
stimpli sig út klukkan fjögur. Þetta
er vinna sem maður tekur með sér
heim og ég vil taka hana með mér
heim. Maður er stöðugt í einhverj-
um pælingum um það hvernig
maður getur kynnt eitthvað fyrir
krökkunum. Jafnvel getur atriði
í bíómynd sem ég er að horfa á í
sófanum heima kveikt hugmynd að
einhverju sem ég get nýtt í kennsl-
unni. Mitt aðalfag er samfélags-
fræði og ég kenni upplýsingatækni
með í þeim skólum þar sem hún er
sér námsgrein. Í Valhúsaskóla er
það svo. Ég er mikið fyrir leiki í
kennslu. Ef maður hefur gaman
af hlutunum man maður þá frek-
ar,“ segir Bryngeir og vill alls ekki
meina að íslenskir krakkar séu
agalausir og óþægir upp til hópa.
„Það má auðvitað vel vera að
nútímakrakkar séu eirðarlausir
en veruleiki krakka í dag er allt
annar en til dæmis þegar ég var
í skóla. Skólaumhverfið þarf að
breytast með breyttum tímum og
það gerist smám saman.“
Vill taka Vinnuna með sér Heim
Bryngeir Valdimarsson er á fimmta ári í kennaranámi við HÍ. Hann segir starfið einstaklega gefandi þó það sé krefjandi
á köflum. Sem forfallakennari komist hann upp með ýmis trix en hann taki vinnuna með sér heim öll kvöld.
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
ENDALAUS GSM
2.990 KR.
Endalaust sumar
ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS OG 30 GB GAGNAMAGN*
EKKI HAFA ÁHYGGJUR AF SÍMNOTKUNINNI Í SUMAR!
Settu þig í samband og fáðu Endalausan GSM 1817 365.is
*Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar er að finna í GSM skilmálum á 365.is
*30 GB gagnamagn er innifalið í hverjum mánuði en endalaust gagnamagn fyrir 2.000 krónur bætist við ef farið er umfram 30 GB
2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A g U R2 F ó l K ∙ K y n n I n g A R b l A Ð ∙ X X X X X X X XF ó l K ∙ K y n n I n g A R b l A Ð ∙ s K ó l A F ó l K
2
4
-0
8
-2
0
1
6
0
3
:5
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
5
3
-A
7
5
C
1
A
5
3
-A
6
2
0
1
A
5
3
-A
4
E
4
1
A
5
3
-A
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K