Fréttablaðið - 24.08.2016, Page 6

Fréttablaðið - 24.08.2016, Page 6
Vel á verði Liðsmenn öryggissveita Palestínu virða fyrir sér umhverfið eftir að hafa orðið fyrir árás í borginni Nablus á Vesturbakkanum. Fjöldi Palestínumanna mótmælti öryggissveitunum í gær og sagði þær hafa lamið heima- mann til bana á meðan hann var í haldi. Táragasi var varpað á mótmælendur. Nordicphotos/AFp félagsmál „Það hefur reynst okkur erfitt að halda uppi starfi á átta deild- um og því hefur sú ákvörðun verið tekin að loka þremur deildum,“ segir í bréfi sem foreldrum barna í leikskól- anum Miðborg barst nýlega. Ástæða breytinganna er sögð sú að síðastliðin tvö ár hafi gengið illa að vista í öll laus pláss í Miðborg og því hafi börnum í leikskólanum fækkað. Starfsemi leikskólans er á þremur stöðum; í Barónsborg, í Lindarborg og í Njálsborg. „Leikskólabörnum hefur einfald- lega fækkað í miðbænum,“ segir Kristín Einarsdóttir, leikskólastjóri Miðborgar. „Þó að ég sé enginn sérfræðingur myndi ég halda að einn áhrifavald- urinn hér sé fasteignaverðið,“ segir Kristín. Ekki sé hlaupið að því fyrir barnafólk frekar en flesta aðra að kaupa húsnæði í miðbænum „Þegar fæðist kannski barn númer tvö og fólk ákveður að stækka við sig er það of dýrt.“ Þá nefnir Kristín að fólki sé sagt upp leigu því húseigandinn vilji hærra leiguverð. „Foreldrar hafa flutt í önnur hverfi vegna þess að húsa- leigan hefur hækkað eða þeim er sagt upp,“ segir hún. Gjarnan vegna þess að eigandi húsnæðisins stefni í að selja ferðamönnum gistingu. „Ég hef heyrt dæmi um það. Það er bara allt í leigu í Airbnb.“ Innritun er ekki enn að fullu lokið en Kristín segir að um 120 börn verði í þremur húsum Miðborgar í vetur. Eðlilega fækki starfsfólki með breytingunum en samt þurfi ekki að grípa til uppsagna. Alls starfi nú 32 í skólanum. „Það voru starfsmenn að hætta til þess að fara í nám og við þurfum að ráða í eitt stöðugildi. Þjónustan hefur ekkert breyst hjá okkur. Þetta er sami góði leikskólinn,“ útskýrir Kristín Einarsdóttir. Árgangarnir 2009 og 2010, sem voru fremur stórir, eru nú báðir komnir í gegn um leikskólastigið. Sigrún Björnsdóttir hjá skóla- og frí- stundasviði Reykjavíkurborgar kveðst þó ekki kannast við sambærilega fækkun leikskólabarna og lokanir deilda í framhaldi af því annars staðar en í Miðborg. gar@frettabladid.is Leikskólabörnin hopa fyrir ferðamannaflóði Þremur deildum af átta í leikskólanum Miðborg er lokað vegna fækkunar barna í miðbæ Reykjavíkur. Leikskólastjóri segir barnafjölskyldur hrekjast burt vegna hækkandi íbúðaleigu og fasteignaverðs meðfram ásókn ferðamanna í gistingu. 29. ágúst í 10 nætur Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 75 3 12 KRÍT Frá kr. 107.595 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 107.595 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 136.995 m.v. 2 fullorðna í herb. Flugsæti á 2fyrir1 tilboði m/gistingu 29. ágúst í 10 nætur. Porto Platanias Village Frá kr. 39.995 Frá kr. 66.195 m/ekkert fæði innif. Netverð á mann frá kr. 66.195 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 77.995 m.v. 2 fullorðna í íbúð. Flugsæti á 2fyrir1 tilboði m/gistingu 29. ágúst í 10 nætur. Frá kr. 64.995 m/ekkert fæði innif. Netverð á mann frá kr. 64.995 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í íb/hb/st. Netverð á mann frá kr. 69.995 m.v. 2 fullorðna í íb/hb/st. 29. ágúst í 10 nætur. Frá kr. 39.995 Flugsæti eingöngu m/ekkert fæði innif. Flugsæti eingöngu áður kr. 79.995 á mann. Flugsæti 2fyrir1 tilboð kr. 39.995 á mann. 29. ágúst í 10 nætur. Omega Apartments Stökktu Flugsæti á 2f1 til Krítar FY RI R2 1 FY RI R2 1 FY RI R2 1 FY RI R2 1 FY RI R2 1 Flugsæti áður kr. 79.995 Flugsæti nú kr. 39.995 Kristín Einarsdóttir er leikskólastjóri Miðborgar sem er meðal annars með starf- semi í Lindarborg í Lindargötu. FréttAbLAðið/hANNA Það er bara allt í leigu í Airbnb. Kristín Einarsdóttir, leikskólastjóri Miðborgar 2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 m I Ð V I K U D a g U R6 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a Ð I Ð 2 4 -0 8 -2 0 1 6 0 3 :5 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 5 3 -A 2 6 C 1 A 5 3 -A 1 3 0 1 A 5 3 -9 F F 4 1 A 5 3 -9 E B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.