Fréttablaðið - 24.08.2016, Blaðsíða 13
Búvörusamningarnir sem ofan-greindir þrír flokkar á Alþingi hafa sameinast um að styðja
eru sama eðlis og fyrri slíkir samn-
ingar sem gerðir hafa verið þar
sem er hrært saman byggðastefnu
og eðlilegu starfsumhverfi atvinnu-
greinarinnar landbúnaðar.
Meðal þess sem sauðfjárhluti
landbúnaðarsamningsins hvetur
til er aukin gróðureyðing á við-
kvæmum svæðum. Prófessor við
Landbúnaðarháskólann hefur
varað við þessu í blaðagreinum án
þess að því hafi verið mótmælt.
Við eðlilegar kringumstæður
væri staðið að slíkri samningagerð
með allt öðrum hætti en gert var
nú. Markmið slíks samnings yrðu
væntanlega skilgreind á þá leið að
stefnt væri að því að landbúnaði
yrðu búin starfsskilyrði eins og
hverri annarri atvinnugrein með
lágmarksafskiptum ríkisvaldsins
af framleiðslu bænda.
Samhliða væri gerður annar
samningur sem bændur gætu geng-
ið að sem fjallaði um hvernig megi
tryggja byggð um landið. Þar væri
ekki verið að telja upp framleiðslu
tiltekinna matvæla, sem skilyrði
þess að bændur fái greitt, heldur fái
þeir byggðastyrki sem fylgi byggða-
markmiðum eftir því hvar þeir búa.
Þeir réðu því síðan sjálfir hvað þeir
framleiddu.
MS – einelt einokunarfyrirtæki?
Einn forystumanna Vinstri grænna
skrifaði grein í Frbl. til varnar
Mjólkursamsölunni þar sem hann
telur að MS sé lagt í einelti og
minnir á að eigendur MS séu um
600 kúabændur sem hafa komið
„sér upp samvinnu um fyrirtæki
sem heitir MS til að annast milli-
göngu og vinna afurðir á eins hag-
kvæman og ódýran máta og mögu-
legt er fyrir sjálfa sig og neytendur“.
Þetta er gott svo langt sem það
nær ef ekki vildi svo til að fyrir-
tækið MS er nánast eitt á markaði
Gróðureyðing í boði VG, Sjálfstæðis og Framsóknar
og nýtur sérstakrar undanþágu frá
samkeppnislögum.
Hvað þætti okkur um ef t.d. bak-
arar, tölvufyrirtæki eða bílasalar
gerðu slíkt hið sama, þ.e. komi „sér
upp samvinnu um fyrirtæki […]
til að annast milligöngu og vinna
afurðir á eins hagkvæman og
ódýran máta og mögulegt er fyrir
sjálfa sig og neytendur“ og nytu til
þess stuðnings ríkisvaldsins með
undandþágu frá samkeppnislög-
um? Þetta hljómar e.t.v. ekki illa á
pappír en trúir því nokkur að ríkis-
vernduð einokun færi neytendum
þá fjölbreytni, verðlag og þjónustu
sem almenningur gerir kröfur um?
Landbúnaður eins og hver önnur
atvinnugrein
Ráðamenn landbúnaðar hafa alla
tíð reynt að telja landsmönnum
trú um að þeirra framleiðsla sé svo
sérstök og öðruvísi að um hana
gildi önnur lögmál en um aðra
framleiðslu. Vissulega er hægt að
sjá fyrir sér að fyrirtæki á borð við
MS væri styrkt til að safna saman
mjólk frá bændum vítt og breitt um
landið og sjá úrvinnslu aðilum fyrir
hráefni. En að bæði hráefna- og
úrvinnsla megi vera á sömu hendi
býður upp á einokun af versta tagi
eins og landsmenn hafa fengið að
finna fyrir og Samkeppnisstofnun
hefur gert athugasemdir við.
Það er sérstakt að árið 2016
skuli vera þrír stjórnmálaflokkar á
Alþingi sem hafa enn ekki skilning
á því að fjölbreytni og þróun fram-
leiðsluvöru er ekki afgreidd í eitt
skipti fyrir öll og að neytendur láta
ekki lengur bjóða sér að sagt sé við
þá líkt og haft var eftir formanni
Bændasamtakanna að þjóðin gæti
svo sem alveg fengið ákveðna teg-
und af osti af því að umbjóðendur
hans framleiddu hana ekki! Slík
afgreiðsla mála var algeng fyrr á
tímum og ráðamenn telja augljós-
lega slíkar trakteringar ennþá boð-
legar íslenskum almenningi.
Bolli Héðinsson
hagfræðingur
Það er sérstakt að árið 2016
skuli vera þrír stjórnmála-
flokkar á Alþingi sem hafa
enn ekki skilning á því að
fjölbreytni og þróun fram-
leiðsluvöru er ekki afgreidd
í eitt skipti fyrir öll og að
neytendur láta ekki lengur
bjóða sér að sagt sé við þá
líkt og haft var eftir for-
manni Bændasamtakanna
að þjóðin gæti svo sem alveg
fengið ákveðna tegund af osti
af því að umbjóðendur hans
framleiddu hana ekki!
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
fossvogshlaup
hleðslu
Verður hlaupið fimmtudaginn
25. ágúst kl. 19:00
Tvær vegalengdir eru í boði:
5 km og 10 km
www.netskraning.is/fossvogshlaupid
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 2 4 . á G ú s T 2 0 1 6
2
4
-0
8
-2
0
1
6
0
3
:5
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
5
3
-8
E
A
C
1
A
5
3
-8
D
7
0
1
A
5
3
-8
C
3
4
1
A
5
3
-8
A
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K