Fréttablaðið - 24.08.2016, Síða 18
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, sonur og afi,
Axel E. Sigurðsson
andaðist á Landspítalanum Fossvogi
18. ágúst. Útför hans fer fram frá
Víðistaðakirkju föstudaginn 26. ágúst
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
námssjóð dóttur hans, Lindu Rúnar, reikn. 545-26-629,
kt. 201000-2890.
Laufey M. Jóhannesdóttir
Linda Rún Axelsdóttir
Hrafnhildur María
Axelsdóttir Ledger Vincent Ledger
Sigurður Axel Axelsson Bryndís Þóra Gylfadóttir
Björn Torfi Axelsson Hafdís Mjöll Lárusdóttir
Sigurður Axelsson Hrafnhildur Kristinsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur afi okkar, langafi
og langalangafi,
Baldvin S. Jónsson
Sólvangi, Hafnarfirði,
áður til heimilis að Breiðagerði 11,
Reykjavík, lést á Landspítalanum við
Hringbraut fimmtudaginn 18. ágúst.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 29. ágúst kl. 11.00.
Helena M.J. Stolzenwald Smári Björgvinsson
Baldvin Jónsson Immakulate Phares Mande
Berglind S. Jónsdóttir Sævar Sverrisson
Líney R. Jónsdóttir Árni E. Eyjólfsson
Anna B.J. Stolzenwald Ragnar Þ. Alfreðsson
og fjölskyldur.
Faðir okkar og besti vinur,
Guðmundur Ólafsson
Heiðargerði 22,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
þann 19. ágúst.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 26. ágúst kl. 13.
Ragnhildur Guðmundsdóttir Jóhann Ámundason
Ólafur Guðmundsson Svanhildur Haraldsdóttir
Guðbjörg Guðmundsdóttir Ingibergur G. Þorvaldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Áslaug Guðrún Harðardóttir
verður jarðsungin frá Fossvogkirkju
föstudaginn 26. ágúst kl. 15.
Áslaug Svava Jónsdóttir Haukur Marinósson
Hörður Hákon Jónsson
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhann Haukur Jóhannsson
Kleppsvegi 62, Reykjavík,
lést föstudaginn 19. ágúst á heimili
sínu í faðmi fjölskyldunnar.
Útför hans fer fram í Áskirkju í
Reykjavík miðvikudaginn 31. ágúst kl. 13.00.
Ragnhildur A. Theódórsdóttir
Guðmundur G. Hauksson Svanhildur I. Jóhannesdóttir
Sigrún Hauksdóttir
Guðmann Hauksson Þórhildur Svavarsdóttir
Dóra Mjöll Hauksdóttir Páll Mar Magnússon
Stefanía Dögg Hauksdóttir Árni Sveinn Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Heiðveig Guðmundsdóttir
Víðivangi 3,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
19. ágúst sl. Útför hennar verður gerð frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 29. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Sævar Örn Jónsson
Þráinn Hafsteinsson
Bergþór Sævarsson Sæunn Halldórsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir
og amma,
Þórunn Pálsdóttir
kennari,
Goðheimum 20,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 10. ágúst
síðastliðinn, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn
30. ágúst næstkomandi kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir.
Magnús Kjartan Hannesson Feng Jiang Hannesdóttir
Hannes Hermann Mahong Magnússon
1608 Fyrsti opinberi fulltrúi Bretlands stígur á land við Surat á
Indlandi.
1841 Bjarni Thorarensen, amtmaður og skáld, deyr 54 ára gamall.
Jónas Hallgrímsson orti um hann erfiljóð sem hefst þannig: Skjótt
hefur sól brugðið sumri.
1906 Ritsími á milli Skotlands og Íslands um Hjaltland og Færeyjar
er opnaður og var sæsímastrengurinn 534 sjómílur á lengd.
1944 Sveinn Björnsson, forseti Íslands, og Franklin D. Roosevelt,
forseti Bandaríkjanna, ræðast við í Hvíta húsinu í Washington, en
Sveinn var í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum.
1938 Halldór Blöndal ráðherra fæðist þennan dag.
1947 Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur fæðist þennan dag.
1968 Norræna húsið í Reykjavík er vígt. Finnski arkitektinn Alvar
Aalto teiknaði bygginguna. Norðmaðurinn Ivar Eskeland var ráðinn
fyrsti forstöðumaður hússins.
1980 Fyrstu alþjóðlegu rallkeppninni á Íslandi lýkur eftir fimm
daga keppni.
1983 Fjölmennur fundur í Reykjavík, sem haldinn er í veitinga-
húsinu Sigtúni af svokölluðum Sigtúnshópi, krefst breytinga á hús-
næðislánakerfinu.
1991 Úkraína fær sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
2006 Á þingi Alþjóðasambands stjarnfræðinga er samþykkt að
telja Plútó ekki lengur til reikistjarna sólkerfisins.
2008 Ísland vinnur silfurverðlaun í handbolta á Ólympíuleikunum
í Peking 2008.
2012 Dómur er kveðinn upp yfir fjöldamorðingjanum Anders
Behring Breivik, sem myrti 77 manns sumarið 2011, með öflugri
bílasprengju í miðborg Óslóar og svo með skotárásum í Útey.
Merkisatburðir Í dag mun Skógræktarfélag Íslands útnefna Tré ársins 2016 við hátíðlega athöfn. Ragnhildur Freysteinsdóttir
umhverfisfræðingur segir útnefninguna
fyrir löngu hafa fest sig í sessi innan félags-
ins en viðurkenningin hafi verið veitt í um
tuttugu ár. „Í ár er það alaskaösp við Hákot
í Grjótaþorpinu sem hreppir hnossið,“
segir Ragnheiður og segir öspina eiga sér
merkilega sögu, líkt og flest tré sem hljóta
nafnbótina.
„Öspinni var bjargað á síðustu stundu
fyrir um þrjátíu árum og þá frá bygginga-
framkvæmdum á nágrannalóðinni. Hún
var því færð árið 1986 þangað sem hún
stendur núna. Þó ekki sé búið að aldurs-
greina hana þá bendir margt til að hún hafi
verið gróðursett í kringum 1960. Hún setur
sannarlega mikinn svip á götuna.“
Spurð hvað tré þurfi að hafa til að hljóta
útnefningu svarar Ragnhildur að yfirleitt sé
leitað eftir fágætri tegund eða tré sem búi
yfir ríkulegri sögu. „Útnefningin er til þess
fallin að vekja athygli á merkilegum trjám
og þeirri staðreynd að þau búa ekki síður
yfir sterkri sögulegri tengingu og menning-
arlegu gildi heldur en hús og byggingar,“
bendir hún á og undirstrikar mál sitt enn
frekar þegar hún segir fólk oft ekki átta sig
á hverslags gersemi það hafi í garðinum.
Hún segir nafnbótina þó nokkuð eftir-
sóknarverða, sem endurspeglist í því að
ár hvert fær félagið fjöldann allan af
ábendingum um tré sem réttast væri að
verðlauna. Auk þess komi félagar í Skóg-
ræktarfélaginu auga á tré á ferðalögum
sínum um landið.
Verður athöfnin hin vandaðasta og fer
eðli málsins samkvæmt fram í garði aspar-
innar við Hákot, nánar til tekið við Garða-
stræti 11a í Reykjavík. Þar mun Ragnheiður
Þorláksdóttir, eigandi trésins, taka við
viðurkenningarskjali og sérstökum platta
þar sem nafnbótinni verða gerð skil um
ókomna tíð. Þá munu Guðjón Friðriks-
son sagnfræðingur, Magnús Gunnarsson,
formaður Skógræktarfélags Íslands, og
Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis-
og skipulagsráðs Reykjavíkur, stíga í pontu
í tilefni dagsins auk þess sem tónlist verður
leikin. gudrun@frettabladid.is
Tré ársins útnefnt í dag
Alaskaöspin við Hákot í Grjótaþorpinu hlýtur nafnbótina Tré ársins á slaginu tvö í dag
við hátíðlega athöfn. Tréð er hlaðið sögu líkt og önnur sem hlotið hafa titilinn hingað til.
Tré ársins 2016 er sannarlega glæsilegt og vel að titlinum komið.
Öspinni var bjargað á síðustu stundu fyrir um
þrjátíu árum og þá frá byggingaframkvæmd-
um á nágrannalóðinni. Hún var því færð árið 1986
þangað sem hún stendur núna.
Ragnhildur Freysteinsdóttir
umhverfisfræðingur
2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A g U R18 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
tímamót
2
4
-0
8
-2
0
1
6
0
3
:5
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
5
3
-9
8
8
C
1
A
5
3
-9
7
5
0
1
A
5
3
-9
6
1
4
1
A
5
3
-9
4
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K