Fréttablaðið - 24.08.2016, Qupperneq 25
fólk
kynningarblað 2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A g U R
Anna María Þorkelsdóttir segir vinabekkjafyrirkomulagið koma vel út. Wiktoria Wszeborowska og Oliwia Czerwonka hafa verið vinir frá því Wiktoria byrjaði í fyrsta bekk. Þær
eru núna í fjórða og níunda bekk. Mynd/HAnnA
„Vinabekkjafyrirkomulagið hefur verið við
lýði í Hólabrekkuskóla í fjöldamörg ár og
reynst mjög vel,“ segir Anna María Þorkels-
dóttir, kennari og náms- og kennsluráðgjafi
í Hólabrekkuskóla. Markmiðið með vina-
bekkjum er að sögn Önnu Maríu að minnka
skilin milli yngri og eldri bekkja. „Oft eru
yngri krakkarnir hálf feimnir og jafnvel
hræddir við unglinga en með því að eiga
eldri vinabekk læra þau að unglingarnir eru
yndislegir,“ segir hún glaðlega. Hún tekur
dæmi um samtal sem hún heyrði á göngum
skólans fyrir ekki alls löngu. „Þá heyrði ég
lítinn strák segja við vin sinn: „Við þurfum
ekki að vera hræddir við unglingana lengur.“
Finna Fyrir ábyrgðarkennd
Í stórum dráttum gengur verkefnið þannig
fyrir sig að börnin í fyrsta bekk fá úthlut-
aða vini úr sjötta bekk. Þessi vinapör fylgj-
ast að í gegnum alla skólagönguna þannig að
þegar yngri börnin eru komin í fimmta bekk
eiga þau stóran vin í tíunda bekk. Þegar þau
síðan koma í sjötta bekk verða þau sjálf stór-
ir vinir og eignast lítinn vin í fyrsta bekk.
Anna María segir yfirleitt reynt að halda
sömu vinapörum ef allt gengur vel, en þó
verði alltaf einhverjar breytingar, enda börn
að byrja og hætta í skólanum.
Vinabekkirnir gera ýmislegt saman og
fara í heimsókn hvor til annars. „Ef eitt-
hvað er um að vera í skólanum eins og ein-
eltisvika eða ámóta þá vinna þessir bekk-
ir saman að verkefnum. Ef allur skólinn fer
eitthvað saman, til dæmis til kirkju eða á
aðra viðburði, þá sitja litlir og stórir vinir
saman.“
Þó yngri nemendum finnist gaman að
eiga eldri vin segir Anna María að eldri
nemendur séu ekki síður spenntir fyrir
að eignast litla vini. „Þeir líta á þetta sem
ábyrgðarhlutverk og standa sig yfirleit
rosalega vel. Sumir hreinlega blómstra í
því að vera innan um lítil börn,“ segir hún
brosandi.
Vinaliðar í Frímínútum
Anna María segir Hólabrekkuskóla leggja
mikla áherslu á góðan skólabrag. Skólinn
vinni gegn einelti með kröftugu Olweusar-
teymi en fleiri þættir stuðli að góðum skóla-
anda, þar á meðal vinabekkjakerfið.
Annað verkefni sem hefur stuðlað að
minnkandi einelti í skólanum er vinaliða-
verkefnið. „Þetta er þriðja árið sem við starf-
rækjum það,“ segir Anna María en verkefn-
ið gengur út á að virkja börnin í frímínút-
um. Svokallaðir vinaliðar, sem eru hópur
nemenda skólans, sjá um að stýra leikjum
á skólalóðinni fjórum sinnum í viku. Börn-
in geta valið á milli fjölbreyttra leikja, allt
frá fótbolta og snú snú upp í kubb og teygjó.
„Markmiðið er að börnin leiki sér og enginn
sé útundan,“ segir Anna María en töluverður
árangur hefur náðst með verkefninu. „Þetta
hefur hjálpað okkur með eineltistilburði í frí-
mínútum en miklu minna er um það nú en
áður. Þá eru börnin mun betur stemmd þegar
þau koma inn úr frímínútum.“
Stórir Vinir gera kraFtaVerk
Þegar börnin í Hólabrekkuskóla hefja skólagöngu sína í fyrsta bekk eignast þau ekki aðeins vini í bekkjarfélögum sínum.
Þau fá einnig sína eigin stóru vini úr sjötta bekk sem fylgja þeim næstu árin eða þar til þau sjálf gerast stórir vinir.
Múlalundur Vinnustofa SÍBS
Reykjalundur 270 Mosfellsbær Sími 562 8500
mulalundur@mulalundur.is www.mulalundur.is
Láttu gott af þér leiða þegar þú verslar skólavörur
Vörur frá Múlalundi skapa störf fyrir fólk með skerta starfsorku
Takk fyrir að versla við Múlalund
Vinnustofa SÍBS
Skólavörur
Fjölbreytt úrval í fallegri verslun í Mosfellsbæ
og vefverslun Múlalundar
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
2
4
-0
8
-2
0
1
6
0
3
:5
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
5
3
-A
C
4
C
1
A
5
3
-A
B
1
0
1
A
5
3
-A
9
D
4
1
A
5
3
-A
8
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K