Fréttablaðið - 24.08.2016, Side 28
Að mörgu er að huga þegar skólarn-
ir byrja og foreldrar þurfa að hafa
sig alla við til að muna að fjárfesta
í ótal munum og fötum sem eitt
barn þarf á einum vetri. Íþrótta-
skór, strokleður, nestisbox, stíla-
bækur, yddarar, sundpokar, vett-
lingar, vettlingar, vettlingar … list-
inn nær út að ystu sjónarrönd og
töluverð fjárútlát geta fylgt þess-
um aðföngum.
Þegar búið er að safna saman
öllu því sem eitt barn þarf að hafa
með í skólann er komið að því allra
mikilvægasta í ferlinu, að merkja!
Góðar merkingar geta bæði spar-
að tíma, fyrirhöfn og fé því þó eitt
strokleður kosti ekki mikið þá safn-
ast þegar saman kemur.
Það er mikilvægt að merkja sem
allra mest af því sem barnið fer
með í skólann, allt frá kuldagöllum
niður í hárteygjur. Það er ótrúlegt
hvað getur týnst á heilum skóladegi
og ekki minna magnað hvað marg-
ir krakkar eiga alveg eins vettlinga,
stígvél, bækur, töskur, stílabækur,
strokleður og nestisbox og barn-
ið þitt.
Merkingar geta verið margs
konar. Það er hægt að skrifa,
stimpla, hefta, sauma og þrykkja,
nota límmiða, merkifána, breitt
túss, mjótt túss, þó umfram allt
alltaf vatnshelt og langvirkandi
túss.
Auðvitað er best að merkja með
fullu nafni, heimilisfangi, bekk og
símanúmerum allra foreldra en
verum raunsæ, sumt er einfaldlega
of lítið til að það sé pláss fyrir allar
þessar upplýsingar nema ef ætl-
unin er að lesa með smásjá. Minni
hluti er nóg að merkja með nafni og
bekk eða bara símanúmeri. Til að-
greiningar getur líka verið þægi-
legt að velja einfaldan stimpil og
merkja með honum alla hluti barns-
ins, taka síðan mynd af stimplinum
og þegar eitthvað týnist er hægt að
setja myndina inn í Facebook-hóp
bekkjar eða skóla með lýsingu á því
sem týnt er og þeim orðum að þessi
stimpill sé á gripnum eða flíkinni.
Blýanta er hægt að
merkja með fornafni á
mjóum límmiða.
Snúið getur verið að
merkja svona yddara
en lítill límmiði með
stimpli ætti að virka.
Húfur og fleiri flíkur er
best að merkja með því
að skrifa nafn og síma-
númer á þvottamiðann.
Þessar skólatöskur eru ólíkar en sumar skólatöskur eru svo líkar að þær eru eins.
Þá er gott að hengja eitthvað utan á töskuna, til dæmis lítinn bangsa eða flott
endurskinsmerki til aðgreiningar.
Úlpur geta verið
dýrar og því mikil-
vægt að merkja
þær vel.
Sumir merkja hvern einasta lit, aðrir sætta sig við óhjákvæmileg afföll.
það margborgar
sig að merkja
Eitt af því hagkvæmasta sem foreldrar skólabarna geta tileinkað sér er
að merkja eignir barna sinna, allt frá kuldagalla niður í hárteygjur.
Þeim sem eiga „týnið“ barn
(barn sem hefur náttúrulega ofur-
hæfni til að týna hlutum) er einn-
ig bent á að kynnast skólaliðum
og öðru lykilstarfsfólki skólans og
jafnvel kynna það fyrir stimplinum.
Það er miklu þægilegra að vera á
kumpánlegum nótum við fólk þegar
þú þarft að eiga við það samskipti á
hverjum degi við að grafa gegn um
fjöll af dökkleitum barnafötum.
Og eitt mikilvægt í lokin: merkja
báða vettlingana, sokkana, skóna og
bæði stígvélin – annað er ekki nóg!
HAUST
NÁM
SKEIÐ
2016
SKRÁ
NING
HAFIN
Nánar á www.mir.is og
í síma 551 1990 milli
kl. 13:00 og 17:00.
2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A g U R4 F ó l K ∙ K y n n I n g A R b l A Ð ∙ s K ó l A F ó l K
2
4
-0
8
-2
0
1
6
0
3
:5
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
5
3
-9
3
9
C
1
A
5
3
-9
2
6
0
1
A
5
3
-9
1
2
4
1
A
5
3
-8
F
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K