Fréttablaðið - 24.08.2016, Side 33
Ingi Rúnar Eðvarðsson bendir á að hagvöxtur sé drifinn áfram af byggingaframkvæmdum og ferðaþjónustu. Hann spyr hvað eigi að verða um háskólaborgarana. FRéttablaðIð/GVa
l MS Fjármál fyrirtækja
l MS Fjármál MFin
l MS Mannauðsstjórnun
l MS Markaðsfræði og
alþjóðaviðskipti
l MS Nýsköpun og viðskiptaþróun
l MS Stjórnun og stefnumótun
l MS Verkefnastjórnun
l MS Viðskiptafræði
l MA Reikningsskil og
endurskoðun
l Skattaréttur og reikningsskil
l MBA nám í viðskiptafræði
Framhaldsnám í boði í
viðskiptafræðideild
yfirgefa land. „Er þetta bara unga
fólkið sem fer til þess að sækja sér
menntun, eða eru fleiri að fara sem
við viljum ekki missa úr landi?“ Ingi
Rúnar segir þó jákvæð teikn á lofti
þar sem leikjaiðnaðurinn og tölvu-
bransinn í heild vaxi mikið. Íslensk-
ir háskólar hafi verið að mennta
mikið af tölvunarfræðingum. „Og
svo er vissulega eitthvað að gerast í
nýsköpun. En maður veltir fyrir sér
á hverju við ætlum að byggja varð-
andi framtíðar atvinnuuppbygg-
ingu á Íslandi. Ætlum við að byggja
á ódýrri orku og hráefni og lítt
menntuðu vinnuafli? Eða ætlum við
að fara þá leið að reyna að nýta það
menntaða vinnuafl sem við erum
með og reyna að auka afkastagetu
og framleiðni í fyrirtækjum. Þarna
finnst mér við standa á tímamótum
og þurfum að huga að því á næstu
árum að vera með nýja atvinnu-
stefnu og ný sóknarfæri þar sem
við nýtum hið háskólamenntaða
fólk í ríkari mæli en við höfum gert
á síðustu árum.“
Æskilegt að sameina og vinna
meira saman
Ingi Rúnar telur að það hafi verið
til góðs þegar Háskólinn í Reykja-
vík hóf starfsemi. Þá hafi orðið til
samkeppni og fólk hafi getað valið
milli tveggja menntastofnana. Í dag
eru fjórir skólar sem bjóða upp á
viðskiptafræðinám. Það er Háskóli
Íslands, Háskólinn í Reykjavík,
Háskólinn á Bifröst og Háskólinn
á Akureyri. „Ég var að kenna lengi
við Háskólann á Akureyri og ég held
að það megi fækka þessum stofn-
unum. Reyna að sameina meira og
hafa aukna samvinnu með það að
markmiði að nýta féð betur til rann-
sókna og hins vegar að bjóða upp
á góða þjónustu fyrir nemendur,“
segir Ingi Rúnar. Markmiðið yrði
ekki að spara heldur að efla stofnan-
irnar sem kennslu- og rannsóknar-
stofnanir.
Hann leggur þó áherslu á að við
sameiningu og samstarf yrði stað-
inn vörður um jafnt aðgengi að
námi. „Enn er það þannig að það
munar miklu á höfuðborgarsvæð-
inu og landsbyggðinni hvað það er
miklu hærra hlutfall á höfuðborgar-
svæðinu sem er með háskólamennt-
un. Þannig að aðgengi að menntun
skiptir gríðarlega miklu máli.“
Ingi Rúnar segir það þó ekki
vera stefnu viðskiptafræðideildar
Háskóla Íslands að auka aðgengi
fólks í dreifðari byggðum að námi.
„Meðal annars út af því að Háskól-
inn á Akureyri er að gera það sem
ríkisháskóli. Og við höfum ekki
viljað fara út á þann markað,“ segir
Ingi Rúnar og bendir á að Háskólinn
á Bifröst bjóði líka upp á fjarnám.
Hver er þá sérstaða viðskipta-
deildarinnar í HÍ? „Ég held að okkar
sérstaða felist í því að við erum búin
að útskrifa stjórnendur í viðskipta-
lífinu síðan 1938. Einnig erum við
með mikið úrval af meistaranámi.
Það er okkar sérstaða,“ segir Ingi
Rúnar og bætir við að enginn annar
skóli geti boðið upp á jafn mörg
námskeið á meistarastigi. Sérstaðan
tengist því bæði þessari löngu sögu,
fjölda nemenda og miklu námsúr-
vali. „Þetta tengist því að við erum
hluti af Háskóla Íslands sem á sér
gott orðspor og langa sögu. Við
njótum þess.“
Er námið hér á Íslandi sam-
keppnishæft við það sem er erlendis?
„Maður getur svarað þessu með
ýmsum hætti. Okkar nám byggir
upphaflega á norrænni fyrirmynd,“
segir Ingi Rúnar og nefnir Copen-
hagen Business School í Danmörku
sem eina fyrirmynd. „Og yfirleitt er
það þannig að þegar okkar nem-
endur ljúka B.Sc. námi eiga þeir
tiltölulega greiðan aðgang að fram-
haldsnámi víðast hvar erlendis,“
bætir Ingi Rúnar við. Þetta bendi
til þess að námið í HÍ og flestum
íslenskum háskólum sé nokkuð
gott.
Ingi Rúnar segir að erlendir nemar
sæki í vaxandi mæli í nám við við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands.
Áhuginn á náminu vaxi með vax-
andi vinsældum Íslands. „Já, það er
vinsælt og gerist æ vinsælla í grunn-
námi að það komi skiptinemar
hingað. Ísland er inn. Ég hef nú ekki
alveg töluna hvað þeir eru margir.
En þeir skipta tugum, þeir erlendu
nemar sem vilja koma hingað í eitt
misseri eða svo.“
Svipmynd
Kristbjörg Edda
jóhannsdóttir
„Það er náttúrulega miklu meira
framboð í dag og hraðinn alveg
gríðarlegur,“ segir Kristbjörg Edda
Jóhannsdóttir, nýr forstjóri Kaffi-
társ, um breytingar sem orðið hafa
á kaffivenjum Íslendinga síðustu ár.
„Starbucks-menningin hefur svo-
lítið rutt sér til rúms í dag og gæðin
ekki endilega í fyrirrúmi. En ég held
að þetta sé að koma svolítið til baka.
Fólk er farið að leggja meiri áherslu
á gæði umfram magn og það er
verða til þessi „slow brew“ menning
því það er svo margt annað í boði
en bara latté til að taka með.“ Krist-
björg tekur við starfinu af Aðalheiði
Héðinsdóttur, stofnanda Kaffitárs,
sem sinnt hefur starfinu frá árinu
1990. Kristbjörg segir Aðalheiði
ætla að hverfa frá daglegum rekstri
en einbeita sér að kaffinu sjálfu.
„Hún er örugglega sá Íslendingur
sem mesta þekkingu hefur á kaffi
og hefur getið sér gott orð erlendis,“
segir Kristbjörg um forvera sinn.
„Þannig að ég tek við rekstrinum
og ekki síst markaðsmálunum. Þetta
er náttúrulega frábært vörumerki,
Kaffitár er orðið 26 ára,“ segir Krist-
björg. Hún vill leggja meiri áherslu
á sérstöðu vörumerkisins Kaffi-
társ í starfinu. „Þessari sérstöðu
hefur kannski ekki verið komið
nægjanlega vel á framfæri. Það
hefur kannski týnst undanfarin ár
með auknu framboði af kaffi,“ segir
Kristbjörg en bakgrunnur hennar er
í vörumerkjastjórnun og markaðs-
málum. Hún starfaði sem forstjóri
hugbúnaðarfyrirtækisins Men and
Mice ehf. síðustu tvö ár. Áður var
hún forstöðumaður markaðssviðs
Símans og þar áður starfaði hún hjá
Össuri í ellefu ár, meðal annars sem
framkvæmdastjóri markaðssviðs
fyrir Evrópu og framkvæmdastjóri
vörustjórnunar.
Kristbjörg segir mikil tækifæri
fylgja hinum aukna ferðamanna-
straumi til Íslands. Hingað til hafi
starfsemi Kaffitárs að stærstum
hluta verið í sölu á kaffi til Íslend-
inga í gegnum sölu til fyrirtækja,
matvöruverslana og kaffihúsa.
Ferðamennirnir komi fyrst og
fremst á þau kaffihús sem eru nærri
vinsælum ferðamannastöðum en
Kaffitár rekur sjö kaffihús undir
merkjum Kaffitárs og eitt undir
merkjum Kruðerí Kaffitárs sem er
einnig bakarí. Nýtt Kruðerí verður
opnað innan skamms á Stórhöfða.
ingvar@frettabladid.is
Brotthvarf að verða frá
Starbucks-menningu
Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir, nýráðinn forstjóri Kaffitárs, segir kaffivenjur
Íslendinga taka örum breytingum. Leggja þurfi aukna áherslu á sérstöðu fyrir-
tækisins sem hafi að einhverju leyti týnst í framboðsflóði síðustu ára.
Kristbjörg segir tækifæri fólgin í að auka sérstöðu Kaffitárs. FRéttablaðIð/Hanna
Hún er örugglega sá
Íslendingur sem
mesta þekkingu hefur á kaffi
og hefur getið sér gott orð
erlendis.
Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir,
forstjóri Kaffitárs
Enn er það þannig
að það munar miklu
á höfuðborgarsvæðinu og
landsbyggðinni hvað það er
miklu hærra hlutfall á
höfuðborgarsvæðinu sem er
með háskólamenntun.
Ingi Rúnar Eðvarðsson
Fjárfestingafélag í Dubai hyggst lög-
sækja Deloitte í Mið-Austurlöndum.
Endurskoðunarfyrirtækið er sakað
um að hafa ekki komið upp um
peningaþvætti hjá gjaldþrota líb-
önskum banka að því er Business
Insider greinir frá.
Lebanese Canadian Bank (LCB)
greiddi yfir 100 milljónir dollar,
um 12 milljarða íslenskra króna árið
2011 eftir rannsókn bandarískra
yfirvalda á peningaþvætti bankans
tengdu fíkniefnaviðskiptum og fjár-
mögnun Hezbollah og fleiri her-
skárra samtaka.
Deloitte hefur verið aðalendur-
skoðandi bankans frá árinu 1995.
LCB var lokað eftir rannsókn FBI og
DEA, sem fer með rannsókn fíkni-
efnamála í Bandaríkjunum. Eftir
það voru flestar eignir LCB seldar
franska bankanum Société Géné-
rale.
Haft er eftir forsvarsmönnum
Deloitte á vef Business Insider að
engin stefna hafi enn borist og fyrir-
tækið standi við það efni sem það
hafi gefið út. Bandaríska fjármála-
ráðuneytið sagði í skýrslu árið 2011
að reikningar hjá LCB hefðu ítrekað
verið notaðir af einstaklingum sem
tengdust fíkniefnasmygli og pen-
ingaþvætti vegna vanrækslu stjórn-
enda bankans. Nærri 230 milljónir
dollara, um 17 milljarðar íslenskra
króna, af illa fengnu fé, hafi farið í
gegnum LCB á meðan Deloitte hafi
séð um endurskoðun bankans. – ih
Deloitte lögsótt vegna peningaþvættis
Fjárfestingafélag í Dubai telur Deloitte ekki hafa staðið sig í stykkinu.
markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . á G ú s t 2 0 1 6
2
4
-0
8
-2
0
1
6
0
3
:5
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
5
3
-B
B
1
C
1
A
5
3
-B
9
E
0
1
A
5
3
-B
8
A
4
1
A
5
3
-B
7
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K