Fréttablaðið - 24.08.2016, Side 46

Fréttablaðið - 24.08.2016, Side 46
ÚTSALA RISA ÓTRÚLEG TILBOÐ Á HEILSURÚMUM! AFSLÁTTUR! 20-60% H E I L S U R Ú M A R G H !!! 0 30 81 6 #2 Birta Fróðadóttir var fyrsta konan á Íslandi sem var menntuð í innanhússarkitektúr og húsgagnasmíði. Birta var fædd Birte Brow Sørensen í Danmörku árið 1919 og nú tæpri öld síðar er alnafna hennar og ömmubarn, Birta Fróðadóttir, sýningarstjóri sýningarinnar Smiður eða ekki smiður, sem verður opnuð á morgun kl. 17 í Listasal Mosfells- bæjar. Á sýningunni gefst tækifæri til þess að skoða ævi og störf þess- arar merku konu og Birta sýningar- stjóri segir að það sé ekki hægt að neita því að hönnunarblóðið sé í fjölskyldunni og að líkast til hafi nú amma hennar átt heiðurinn af því að flytja það inn. „Ég náði því miður ekki að hitta hana en hún var víst mjög sterkur karakter og hafði upp á margt að bjóða. Við erum að taka saman og sýna hennar verk og margt af því er í eigu fjölskyldunnar. Það er mikið til af teikningum og ljósmyndum og svo sýningargripir sem verða á sýningunni líka. Þar á meðal er skrif- borð sem var sveinsstykkið hennar í Kaupmannahöfn og svo skrifpúltið sem hún hannaði og smíðaði fyrir Halldór Laxness á Gljúfrasteini. Sá gripur er reyndar að yfirgefa húsið í fyrsta skiptið en púltið er búið að vera inni í herbergi skáldsins síðan það var sett upp árið 1945. Verkstæðisstúlka Amma byrjaði feril sinn sem hús- gagnasmiður, var í fjögur og hálft ár í læri og starfandi á verkstæði. Hún var mjög ung þegar þetta var og vakti strax mikla athygli í Kaupmanahöfn fyrir að vera ung stúlka í þessu fagi. Það var ekki hlaupið að því fyrir unga konu að komast á samning en hún fann þó á endanum snikkara sem var til í að gefa henni tækifæri og hún vakti líka athygli fyrir að standa sig vel. Það voru tekin við hana við- töl í dönskum blöðum út af þessu og þar sagði hún frá því að hún væri mikið í því að fara heim til fólks og gera við húsgögn. Fólk varð víst alltaf jafn hissa þegar það opnaði hurðina fyrir verkstæðismanninum og þá stóð þar ung stúlka með hendur í vösum. Hún fór síðan í meira nám enda hafði hún á orði að hönnun væri eitthvað sem hentaði konum ákaf- lega vel. Þetta var frekar nýtt nám á þessum tíma og hún sagði að þessi fínlegi partur starfsins hentaði konum vel. Þessi skynjun á formi, litum og efni. Því ákvað hún að fara í hönnunarnám sem varð síðar Skolen for boligindretning. Reynsla hennar úr handverkinu reyndist henni vel og hjálpaði henni mikið því hún hafði reynslu og færni við að handleika hlutina og ég held reynd- ar að það vanti mikið inn í margt af hönnunarnámi dagsins í dag.“ Innréttingar og garðyrkja Birta giftist Jóhanni Kr. Jónssyni í október 1943 en þau höfðu kynnst er Jóhann var í námi við Landbún- aðarháskólann í Kaupmannahöfn og vann á garðyrkjubúi föður Birtu. „Þau urðu innlyksa fram yfir stríð en komu heim með fyrsta skipi, amma þá ólétt af þeirra fyrsta barni. Fyrsta veturinn bjuggu þau við Stýrimanna- stíginn og þar kynntust þær Birta og Auður Sveinsdóttir Laxness en þær áttu eftir að verða miklar vinkonur. Auður fékk ömmu til liðs við sig við að innrétta Gljúfrastein og að auki teiknaði hún sérstakt skrifpúlt og innréttingar í herbergi skáldsins. Þetta var um svipað leyti og amma og afi fluttu í Mosfellsdalinn og hófu búskap í Reykjahlíð en framan af starfaði afi þar fyrir Garðyrkjustjóra ríkisins. Seinna leigðu þau svo land af kirkjunni og byggðu Dalsgarð. Átta börn og Gljúfrasteinn Amma og afi eignuðust átta börn á þrettán árum sem er auðvitað rosa- legt. Sjálf er ég nú bara með mín fyrstu hérna sex mánaða svo ég er mjög mikið að hugsa til hennar Birtu. En ég efast ekki heldur um að saga ömmu minnar er líka saga fleiri kvenna. Það fóru konur héðan út í myndlistarnám og fleira til Kaupmannahafnar en svo þegar þær komu aftur heim þá tók ekkert annað á móti þeim en húsmóður- hlutverkið. Það þótti ekkert sjálfsagt mál að kona færi að starfa sem hönn- uður eða listamaður. Ég hugsa að hún hafi nú gjarnan viljað geta sinnt þessu meira en ég held að hún hafi líka notið þess fram í fingurgóma að vera átta barna móðir. Hún var með drauma um að opna húsgagna- verslun, geta verið með verkstæði og svona að fást við sitt fag. Hún hefur séð möguleika í því hversu skammt á veg Ísland var komið í þessum efnum og maður sér aðeins í gegn- um vinnuna hennar á Gljúfrasteini hversu mikla útsjónarsemi þurfti til við íslenskar aðstæður. Gljúfrasteinn er að mörgu leyti ekki aðeins hús skáldsins heldur einnig ein af okkar merkustu heim- ildum um hönnunarsöguna og okkar eina dæmi um það frá þessum tíma. Það mætti því gjarnan segja líka sögu hlutanna þar og þeirra miklu dönsku áhrifa sem er að finna í íslenskri hönnunarsögu. Enda gleður það mig mikið að fólk geti nú komið á sýninguna og skoðað þessa fallegu gripi og kynnt sér sögu þessarar merku konu.“ Húsgagnasmiður, innanhússarkitekt og átta barna móðir Sýning á verkum Birtu Fróðadóttur sem var frumkvöðull í innanhússarkitektúr. Birta Fróðadóttir við skrifpúlt skáldsins sem amma hennar og alnafna bæði hannaði og smíðaði. FréttaBlaðIð/GVa Birta Fróðadóttir, ung kona við hefil- bekkinn í húsgagnasmíðinni. Birta Fróðadóttir og Jóhann Kr. Jónsson ásamt börnunum sínum átta. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A g U R26 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð menning 2 4 -0 8 -2 0 1 6 0 3 :5 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 5 3 -A 2 6 C 1 A 5 3 -A 1 3 0 1 A 5 3 -9 F F 4 1 A 5 3 -9 E B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.