Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 2

Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Einmana bílvél mætir vegfarendum á göngu í fjörunni í Örfirisey. Vélin getur varla talist til prýði í fjöruborð- inu og engar skýringar hafa fengist á tilvist hennar. Getur verið að hér sé um að ræða listaverk? Eða er þetta hreinlega sóðaskapur og rusl sem á ekki heima í fjörunni þó að mikil iðnaðarstarfsemi sé á svæðinu? Ýmislegt áhugavert rekur á fjöru Morgunblaðið/Árni Sæberg Finna má margt forvitnilegt í fjörunni en fæstir búast við að finna þar bílvél Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Við sögðum aldrei að við værum að boða til stjórnarmyndunarviðræðna heldur bara samstarfsviðræðna sem væru óháðar því hvort við komumst í stjórn eða ekki,“ segir Smári McCarthy, oddviti Pírata í Suður- kjördæmi, en bendir þó á að slíkar viðræður geti vissulega verið fyrsta skrefið í stjórnarviðræðum eftir kosningar. „Passað var upp á orðalagið í til- kynningu okkar um helgina. Við ráð- um svo ekkert við það hvernig það er túlkað í fjölmiðlum. Fyrst og fremst er ég bara ánægður hvað allir flokkar hafa tekið vel í þetta hjá okk- ur.“ Þá ítrekar Smári kröfu Pírata um stutt kjörtímabil en segir ekki hægt að segja til um það hvort slíkt kjör- tímabil verði 9 eða 18 mánuðir. „Það eru ákveðin verkefni sem verður að klára áður en hægt er að boða aftur til kosninga, eins og kerf- isbreytingar í stjórnsýslunni og stjórnarskrármálið. Persónulega tel ég æskilegt að kosið verði aftur vor- ið 2018 eftir að búið er að gera þær breytingar sem nauðsynlegar eru.“ Misskilningur á heimasíðunni Eftir viðtal Smára við Eyjuna í gær var bent á að fyrirsögn á frétt um tillögu Pírata á heimasíðu flokks- ins hefði verið breytt. Spurður um málið segir Smári að um misskilning hafi verið að ræða, ekkert annað. „Það sem gerðist var að það var sett inn fyrirsögn sem einhverjum fannst ruglingsleg og hægt væri að misskilja og hún var því tekin út tímabundið. Þá sér annar aðili að það vantar fyrirsögn á fréttina og setur inn nýja fyrirsögn. Þetta er því bara einfaldur misskilningur.“ Fyrsta skref ekki viðræður  Smári McCarthy, oddviti Pírata í Suðurkjördæmi, segir það misskilning að boð- að hafi verið til stjórnarmyndunarviðræðna  Krafa um stutt kjörtímabil ítrekuð Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórn Píratar segja samstarf fyrsta skref stjórnarviðræðna eftir kosningar. „Ég tel rétt að ég einbeiti mér nú að málefnum kjördæmisins en gefi þeim sem hafa tekið að sér að leiða mál á landsvísu svig- rúm til þess. Það fer því sennilega best á því að þeir sem settu saman og kynntu kosn- ingastefnuna tali fyrir henni og þeim málum sem þar eru sett á oddinn,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og fyrrverandi formaður Framsókn- arflokksins. Pólitískt þor Kosningamál flokksins voru kynnt á sunnudag og ber þar sennilega hæst tillögu um breyt- ingar á skattkerfinu og jöfnun tekjuskatts. Sigmundur vill þó ekki tjá sig um það mál að sinni né önnur þau sem Sigurður Ingi Jóhannsson og Lilja Dögg Al- freðsdóttir kynntu. Sigmundur hefur um nokkurt skeið talað fyrir byggingu nýs Landspítala við Víf- ilsstaði. Hann segir það fagnaðar- efni að því sé haldið opnu að nýi Landspítalinn verði reistur á öðr- um stað en áformað er. Pólitískt þor þurfi til að koma málinu upp úr hjólförunum og ná fram réttri niðurstöðu. Slegnir út af laginu „Hér í Norðausturkjördæmi er verk að vinna og mörg brýn verk- efni bíða. Það er hugur í fram- sóknarmönnum í Norðaustur- kjördæmi, eðlilega voru margir slegnir út af laginu eftir flokks- þingið og atburðarásina þar og í aðdraganda þess,“ segir Sigmund- ur Davíð sem kveðst ekki vilja ræða þau mál fyrr en að kosn- ingum loknum. Í Morgunblaðinu í gær sagði Sigurður Ingi Jóhannsson að þeir Sigmundur Davíð hefðu átt trún- aðarsamtöl eftir átakamikið flokksþing. Það virðist þó vera of- mælt, samkvæmt orðum for- mannsins fyrrverandi. „Við höfum skipst á smáskilaboðum í síma um að við myndum hittast þegar ég kem úr kjördæminu,“ segir Sig- mundur Davíð. sbs@mbl.is Vill að aðrir ræði stefnuna Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  „Höfum skipst á smáskilaboðum“ Maðurinn sem lést í bílslysi á Ólafs- firði á föstudag hét Kjartan Gúst- afsson. Hann var 74 ára. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu reyndi Kjartan að stöðva bif- reið sína sem rann af stað, en klemmdist á milli bílsins og steypts lóðarveggs. Nafn manns- ins sem lést Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna komandi alþingiskosninga var flutt frá Sýslumanninum í Skógarhlíð í Perluna í fyrradag og þann dag kusu utan kjörfundar um 350 manns, sam- kvæmt upplýsingum frá Sýslumann- inum á höfuðborgarsvæðinu. Síðdegis í gær höfðu samtals kosið í Perlunni utankjörfundar 596 manns. Frá 21. september sl. þegar opnað var fyrir utankjörfundaratkvæða- greiðslu hjá Sýslumanninum á höfuð- borgarsvæðinu við Skógarhlíð og fram til 15. október, þ.e. sl. laugar- dags, kaus utankjörfundar 1.631, þannig að samtals höfðu í gær kosið utankjörfundar 2.227. Af þessu er ljóst að eftir því sem nær dregur kjördegi eykst fjöldi þeirra sem kjósa utan kjörfundar. Eins og áður hefur verið greint frá hér í Morgunblaðinu er utankjörfundaratkvæðagreiðslan í Perlunni opin dag hvern frá kl. 10 á morgnana til kl. 22 á kvöldin til og með 28. október, en á kjördag, þann 29. október, verður hún opin frá kl. 10 til 17, en þann dag einungis fyrir þá sem búsettir eru utan höfuðborgar- svæðisins. agnes@mbl.is Á þriðja þúsund hafa kosið  Þátttaka eykst eftir að atkvæðagreiðsla hófst í Perlunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Perlan Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst í Perlunni í fyrradag. Banaslys varð þegar tvær bifreiðar lentu í árekstri á Reykjanesbraut, skammt frá Rósaselstorgi á Suður- nesjum, um hádegisbil í gær. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar var fluttur á bráðamóttöku Landspít- alans þar sem hann var úrskurðaður látinn. Ökumaður og farþegi í hinni bifreiðinni voru fluttir á Heilbrigðis- stofnun til skoðunar. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar tildrög slyssins. Þá slösuðust tveir alvarlega þegar lögregla á bifhjóli, sem var að fylgja sjúkrabíl í forgangsakstri með öku- mann bifreiðarinnar úr slysinu við Rósaselstorg, lenti í hörðum árekstri við bíl sem talið er að hafi verið ekið í veg fyrir bifhjólið við Ásahverfi í Hafnarfirði. Báðir ökumennirnir hlutu beinbrot en eru ekki í lífshættu. Banaslys á Reykja- nesbraut

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.