Morgunblaðið - 18.10.2016, Side 8

Morgunblaðið - 18.10.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Herraskór í úrvali Verð 4.995 Stærðir 40-46 Verð 5.995 Stærðir 40-46 Loðfóður, rennilás að innanverðu Nýlega tókst górillu með mik-illi harðneskju að sleppa úr rými sínu í dýragarðinum í Lund- únum. Náttúrufræðingurinn kunni, David Attenborough, tók til máls vegna þess. Sagði hann að atvikið ætti ekki að koma á óvart þar sem dýr- in mættu þola stöð- ugan átroðning.    Fólk ætti að við-hafa meiri virðingu í dýra- görðum og ekki láta eins og trúð- ar og reyna að eggja dýrin til að bregðast við. Hann sagði hins vegar einnig að dýragarðar hefðu mikilvægu hlutverki að gegna hvað varðar verndun teg- unda í útrýmingarhættu.    Górillur eru ekki „bara dýr“sagði Attenborough og þær standa vörð um einkalíf sitt. „Þær eru dásamlegar skepnur, górillur,“ sagði Attenborough. „Í skógum Vestur-Afríku lifa þær ekki fyrir opnum tjöldum. Það er ekki glápt á þær. Kannski er lausnin sú að það ætti ekki að leyfa fólki að vera á bak við stóra glerveggi, heldur gægjast gegn- um göt til að górillurnar geri sér ekki grein fyrir því að verið er að horfa á þær, en það er erfitt að gera í dýragarði þar sem tug- þúsundir vilja berja dýrin aug- um.“    Attenborough biðlaði til fólksað sýna dýrunum virðingu og sagði þau meira en „bara dýr“. Bað hann fólk m.a. um að ímynda sér hvernig það væri að búa við þau skilyrði sem þeim væru búin.    Það er þakkarefni að Attenbor-ough skuli rétt einu sinni grípa færið sem gefst og tala máli dýra og náttúru. David Attenborough Dásamlegur maður um dásamleg dýr STAKSTEINAR Veður víða um heim 17.10., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 7 skýjað Akureyri 6 alskýjað Nuuk -2 heiðskírt Þórshöfn 10 rigning Ósló 5 rigning Kaupmannahöfn 10 alskýjað Stokkhólmur 9 alskýjað Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 14 skýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 13 léttskýjað Glasgow 10 rigning London 15 skýjað París 17 léttskýjað Amsterdam 16 skýjað Hamborg 16 skýjað Berlín 13 skýjað Vín 12 rigning Moskva 4 skýjað Algarve 22 léttskýjað Madríd 16 rigning Barcelona 21 alskýjað Mallorca 24 skýjað Róm 20 léttskýjað Aþena 20 léttskýjað Winnipeg 8 heiðskírt Montreal 9 heiðskírt New York 21 heiðskírt Chicago 19 alskýjað Orlando 28 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:29 17:57 ÍSAFJÖRÐUR 8:42 17:55 SIGLUFJÖRÐUR 8:25 17:37 DJÚPIVOGUR 8:01 17:25 UNICEF á Íslandi og umboðsmaður barna hleyptu verkefninu Barnvæn sveitarfélög af stokkunum í gær og verður Akureyri fyrsta sveitarfélagið á Íslandi sem tekur þátt. Verkefnið gengur út á það að sveitarfélög inn- leiða barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna en hugmyndafræðin að baki byggist á alþjóðlegu verkefni, Child friendly Cities, sem hefur verið inn- leitt í sveitarfélögum um allan heim. Þau sveitarfélög sem innleiða sátt- málann samþykkja þar með að nota hann sem viðmið í starfi sínu og að forsendur hans gangi sem rauður þráður í gegnum þjónustu þeirra. Líkja má innleiðingunni við að starfs- menn og kjörnir fulltrúar sveitarfé- lagsins setji upp „barnaréttindagler- augu“ og rýni þannig verk- og ákvörðunarferla. Þetta segir í til- kynningu frá UNICEF. „Við höfum unnið að þessu verk- efni í tvö ár og erum ákaflega stolt af því. Von mín er að barnvæn sveitar- félög marki næsta skrefið í því að tryggja réttindi barna í daglegu lífi og að öll sveitarfélög á Íslandi komi til með að innleiða barnasáttmálann,“ sagði Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna. Akureyri barnvænt sveitarfélag  Vilja innleiða barnasáttmála SÞ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Samkomulag hefur náðst um að Auður I fjárfestingasjóður, í gegn- um eignarhaldsfélagið Þorgerði ehf., F-13 ehf. og Lind ehf., selji sam- anlagt 69% hlut sinn í Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Kaupendurnir eru Framtakssjóðirnir Akur fjár- festingar og Horn III ásamt hópi einkafjárfesta. Kaupsamningur hef- ur verið undirritaður en hann er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er heildarverðmæti fyrir- tækisins áætlað 15,5 milljarðar króna miðað við kaupverðið. Eftir sem áður verða núverandi stjórnarformaður Ölgerðarinnar, Októ Einarsson, og forstjóri félags- ins, Andri Þór Guðmundsson, stærstu einstöku eigendur félagsins í gegnum félags sitt OA Eignar- haldsfélag ehf. Þá munu eigendur félagsins stefna að því að auka hlutafé þess til að styðja við innri vaxtaráform þess. Októ segist fagna nýjum hópi eig- enda. „Þetta er 103 ára gamalt fyrir- tæki sem er vel rekið og skipar sér- stakan sess í hugum landsmanna, með sterk vörumerki og mikil tæki- færi, ekki síst á sviði útflutnings,“ segir hann í tilkynningu. Nýir eigendur koma að Ölgerðinni  Tveir framtakssjóðir og einkafjárfestar kaupa 69% hlut í fyrirtækinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Ölgerðin Metin á 15,5 milljarða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.