Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 14

Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Eilíft ljósbrot, sígild fegurð Sérfræðingar í demöntum Íslensk hönnun og smíði Laugavegur 61 ︲ Kringlan ︲ Smáralind ︲ Sími 552 4910 PIPA R\TBW A • SÍA jonogoskar.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Það er mikilvægt að almenningur kynni sér grunnatriði í sálrænni skyndihjálp,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. Í samtali við Morgunblaðið í síðustu viku sagði Þóra Sigfríður Einarsdóttir sál- fræðingur frá því að mikilvægt væri að fólk þekkti frumatriði þess að hlúa að sálarheill fólks sem til dæmis hefur lent í slysum, orðið vitni að voveiflegum málum og svo framvegis. Skilaboð um þetta voru innlegg Sálfræðingafélags Íslands í umræðu í tengslum við alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn sem var 10. október síðastliðinn. Sjálfboðaliðar hafi þjálfun Kristín S. Hjálmtýsdóttir segir að sálræn skyndihjálp hafi um langt skeið verið hluti af lengri útgáfum skyndihjálparnámskeiða RKÍ. Sá þáttur hafi þó ekki verið hinn fyrir- ferðarmesti, mesta áherslan hafi verið lögð á lífsbjargandi aðferðir, svo sem endurlífgun og losun að- skotahluta úr öndunarvegi. „Rauði krossinn hefur boðið upp á sérstök námskeið fyrir almenning um sálrænan stuðning um langt skeið. Því miður sækja mun færri landsmenn slík námskeið en hin hefðbundnu skyndihjálparnám- skeið. Félagið leggur þó áherslu á að sjálfboðaliðar félagsins hljóti slíka þjálfun,“ segir framkvæmda- stjóri RKÍ. Hlúð að eftir föngum En hvernig er háttað andlegum stuðningi við fólk, til dæmis af hálfu björgunarfólks, lögreglu og annarra slíkra? Á því er allur gangur en áhersla er lögð á að þessi þáttur sé að minnsta kosti ekki vanræktur. „Við reynum eftir föngum að hlúa að fólki, til dæmis vitnum sem eru uppnámi. Fyrst er auðvitað að sinna hinum slösuðu og koma þeim á slysadeild. Gangvart öðrum skipt- ir nærvera og stuðningur til dæmis lögreglu- og sjúkraflutningamanna máli og getur hjálpað líka. Stundum þarf líka að koma fólki sem er í al- varlegu andlegu ástandi til læknis,“ segir Árni Þór Sigmundsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn og yfirmað- ur kynferðisbrotadeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Hvað varðar kynferðisbrot, sem undantekningalítið reyna mjög á þolendur, segir Árni Þór að þeim sé veittur allur sá stuðningur sem verða má. Á neyðarmóttöku þol- enda í þessum brotaflokki séu, auk hjúkrunarfræðinga, lækna og ann- arra, sálfræðingar og atbeini þeirra skipti miklu. „Sumir þolendur vilja enga hjálp en aðrir þiggja. Hvert mál er einstakt og fólk finnur hvað því hentar best og hvað það þarf. En við gerum okkur vel grein fyrir því að fyrsta hjálp í öllum málum sem lögregla sinnir skiptir miklu máli til lengri tíma.“ Lögreglumenn fá sjálfir hjálp Í starfi sínu koma lögreglumenn að mörgum alvarlegum atvikum sem reynt geta á þá sjálfa. Vakandi athygli er höfð með slíku innan lög- reglunnar sjálfra. Erfiðum vöktum ljúki jafnan með fundi vinnufélag- anna sem þá fari yfir mál og veiti hver öðrum stuðning eftir atvikum. „Slíkt má kalla andlega skyndi- hjálp lögreglumannanna sjálfra, sem einnig býðst sálfræðiaðstoð og annað eftir atvikum sé þess óskað,“ segir Árni Þór. Hlúð sé að fólki sem er í andlegu uppnámi  Sálræn skyndihjálp á dagskrá  Fyrsta hjálp skiptir miklu Morgunblaðið/Kristinn Eldgos Návígi við náttúruhamfarir getur reynt mjög á sálarheill fólks eins og vel þótti koma í ljós í gosinu í Eyjafjallajökli á vormánuðum 2010. Kristín S. Hjálmtýsdóttir Árni Þór Sigmundsson Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Fjarvistir vegna veikinda hjá Reykja- víkurborg voru 6% árið 2014 og árið 2015 voru þær 5,9%, samkvæmt því sem fram kemur í svari skrifstofu borgarstjóra og borgarritara á síð- asta borgarráðsfundi. Borgarráðsfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina lagði í janúar sl. fram svohljóðandi bókun á borgarráðs- fundi: „Hátt veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar er áhyggjuefni. Bæði vegna þeirra sem í hlut eiga og kostnaðarins sem af því hlýst. Þumal- puttareglan hefur verið sú hjá at- vinnurekendum að ef veikindahlut- fallið er komið yfir 4% á ársgrundvelli þá sé það á rauðu svæði en helst vilji atvinnurekendur sjá tölur frá 0 upp í 2-3% yfir árið. Veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar var langt yfir því eða 5,9% árið 2015. Ljóst er að aðgerðir meirihlutans frá því að rauðar tölur birtust 2014 hafa engan árangur borið miðað við þær tölur sem hér liggja fyrir.“ „Tölur um veikindahlutfallið hjá starfsmönnum borgarinnar eru vissulega hærri en við viljum sjá,“ sagði Ragnhildur Ísaksdóttir, starfs- mannastjóri Reykjavíkurborgar, í samtali við Morgunblaðið. Í svari skrifstofu borgarstjóra og borgarritara við ofangreindri bókun sagði m.a.: „Viðverustefna var sam- þykkt á haustmánuðum 2014. … Veikindahlutfall hjá borginni var 5,9% árið 2015 sem er hærra en á hin- um almenna markaði. Það gerir sam- anburðinn flóknari að veikindaréttur þeirra sem vinna hjá hinu opinbera er meiri en þeirra sem starfa á einka- markaði, en engu að síðar er veik- indahlutfall borgarstarfsmanna of hátt og er unnið að því að lækka hlut- fallið.“ Hátt veikindahlut- fall áhyggjuefni  Veikindahlutfall hjá borginni hærra en á almennum markaði Morgunblaðið/Ómar Veikindi Borgin telur veikindadaga borgarstarfsmanna vera of marga. Bergþóra Jónsdóttir bj@mbl.is Rétt um helmingur aðildarfyrir- tækja Félags atvinnurekenda hefur orðið fyrir óþægindum vegna vetrarfría í leik- og grunnskólum, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal félagsmanna í febrúar á þessu ári. Félag atvinnu- rekenda og fleiri samtök í atvinnu- lífinu hafa gagnrýnt að vetrarfríin skuli hafa verið sett á án nokkurs samráðs við atvinnurekendur. ,,Við höfum gagnrýnt ákveðið samráðsleysi í þessum málum, bæði hvað varðar vetrarfrí grunnskól- anna og svo starfsdaga bæði grunn- og leikskóla,“ segir Ólafur Steph- ensen, framkvæmdastjóri Félags avinnurekenda. Hann segir skiptar skoðanir vera á því hvort eigi að samræma vetrar- frí nemenda á milli skóla og sveitar- félaga. ,,Ef allir eru í fríi á sama tíma skapast líka meira álag í fyrir- tækjum landsins en svo er það hitt sjónarmiðið að það geti verið gott að allir gíri sig inn á sameiginlegt frí og fyrirtækin séu með í því og geti undirbúið starfsemi sína í sam- ræmi við það. En það vantar að að- ilar vinnumarkaðarins og sveitarfé- laganna setjist saman yfir þetta og ákveði fyrirkomulagið í sameiningu svo þetta gagnist öllum sem best.“ Hannes G. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir hinsvegar að fyrirkomu- lagið á vetrarfríi virðist vera komið í betra lag síðustu ár og fólk hafi að- lagað sig að því með tímanum en það væri sjálfsagt hagkvæmara fyr- ir alla aðila að samræma það á milli sveitarfélaga. Mikið hafi verið kvartað yfir þessum frídögum fyrir nokkrum árum en það hafi stórlega minnkað. Góð reynsla af vetrarfríinu ,,Leitast er við eins og mögulegt er að samræma skipulags- og starfsdaga í leik- og grunnskólum innan hverfa borgarinnar. Þannig er t.d. nýafstaðinn sameiginlegur skipulagsdagur í Seljahverfi í Breið- holtinu,“ segir Sigrún Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá skóla- og frí- stundasviði Reykjavíkur. Hún segir að allir grunnskólar í Reykjavík hafa samræmda vetrar- frísdaga og hafi það verið svo undanfarin ár. Það er mikið lagt upp úr því að búa til fjölskyldu- dagskrá bæði í frístundamið- stöðvum, bókasöfnum og menning- arstofnunum og ýmislegt gert til að búa til afþreyingu fyrir alla fjöl- skylduna í vetrarfríinu. Hún segir að þetta fyrirkomulag sé búið að vera í nokkuð föstum skorðum und- anfarin ár og hún viti ekki annað en að foreldrar séu almennt ánægðir með það. Morgunblaðið/Kristinn Í vetrarfríi Frístundamiðstöðvar bjóða gjarnan upp á afþreyingu í vetrar- fríum barnanna og þá skemmta börnin sér í ýmiskonar leikjum. Vilja hafa samráð um vetrarfríið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.