Morgunblaðið - 18.10.2016, Síða 15

Morgunblaðið - 18.10.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kornhlöður bænda um allt land eru fullar. Uppskera er í besta lagi og víða metuppskera. Veðrið lék við bændur og ekki urðu sömu afföll vegna álfta og gæsa og undanfarin ár. Ráðunautar eru þessa dagana að taka út akra og áætla uppskeru. Endanlegar tölur um heildarstærð akra sem þresktir voru í haust liggja því ekki fyrir. Eftir þrjú slök kornár í röð og ágang fugla sem menn hafa ekki fengið að bregðast við hafa margir bændur dregið úr kornrækt eða jafnvel hætt. Því er ekki víst að heildaruppskeran verði meiri en undanfarin ár. Náðu að þreskja snemma Vegna þess hversu gott vorið var og sumarið hlýtt náðu kornbændur almennt að þreskja snemma og sluppu því að mestu við verstu haust- lægðirnar. Uppskeran á kornökrum í Gunn- arsholti á Rangárvöllum var betri í ár en áður. Björgvin Þór Harðarson hefur ræktað þar korn í mörg ár fyr- ir svínabúið í Laxárdal. „Uppskeran er þokkalega góð, tæp 4 tonn á hekt- ara af þurrkuðu byggi. Gæðin eru svipuð og árið 2012, mjög mikil, og heildarmagnið meira,“ segir Björg- vin Þór. Uppskeran hefur verið afar misjöfn síðustu árin og árið 2015 var sérstaklega erfitt um allt land og þá náðist lítil sem engin uppskera á Norður- og Austurlandi. „Ég vigtaði ekki en ráðunauturinn telur að uppskeran fari eitthvað yfir 6 tonn af þurru á hektara,“ segir Jón Gíslason, bóndi á Hofi í Vatnsdal. Hann ræktar korn í Þórormstungu í félagi við þrjá aðra bændur og segir að uppskeran sé betri en þeir hafi áð- ur séð. Veðrið var sérstaklega gott í sumar og aldrei gerði frost. „Árið hefur verið frábært, lömbin stór og kornið gott,“ segir Jón. Kornið er gefið fé og öðrum skepnum. „Þetta er mikið betra en undan- farin ár, þótt sum stykkin hafi ekki verið nægjanlega góð af ýmsum ástæðum. Það er alltaf hægra að eiga við þetta þegar maður getur byrjað að þreskja mánuði fyrr en venju- lega,“ segir Haraldur Magnússon, korn- og kúabóndi í Belgsholti í Melasveit í Borgarfirði. Hann reikn- ar með að hafa nóg korn handa kún- um fram á næsta haust. Smávegis frávik Mjög góð uppskera var í öllum til- raunareitum tilraunastöðvar Land- búnaðarháskóla Íslands á Korpu. Reitirnir eru fjórir, dreifðir um land- ið. Meðaluppskera úr reitunum reyndist vera rúmlega 5,5 tonn af þurrefni á hektara, samkvæmt upp- lýsingum Jónatans Hermannssonar tilraunastjóra. Það er ekki langt frá meðaltali áranna 2007 til 2010 en það voru mjög góð ár. Hins vegar var uppskeran ekki nema 3,1 til 3,6 tonn á hektara á árunum 2013 til 2015. Breytingin er því mikil. Jónatan segir ljóst að margir hafi misst móðinn eftir þrjú mögur ár. Því hafi verið minna sáð í vor. „Við náum okkur upp aftur. Þetta ár verð- ur smávegis frávik frá beinni línu sem vonandi liggur áfram upp á við.“ Kornhlöður bænda fullar í haust  Kornuppskeran góð um allt land  Margir misstu móðinn eftir þrjú mögur ár  Óvíst að heildar- magn sé meira en oft áður vegna minni ræktunar  „Við náum okkur upp aftur,“ segir tilraunastjóri Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Uppskera Kornbændur hafa flestir lokið uppskerustörfum í haust og eru ánægðir með niðurstöðuna. Bændur kvarta minna undir ágangi fugla í akra sína, en síðustu ár hafa gæs og álft ét- ið drjúgan hluta uppskerunnar á haustin. Skýringin er sú, að sögn Björgvins Þórs Harð- arsonar, að í haust gátu menn almennt byrjað snemma að þreskja og gæsin hafði nóg af berjum í góðu veðri á hálend- inu. Þegar gæs og álft fóru að sækja í akra var búið að þreskja fyrstu skikana og fugl- inn gat tínt upp af þeim. Óslegnu akrarnir fengu því meiri frið en oft áður. Komu seinna í akrana í ár MEIRI FRIÐUR FYRIR FUGLI www.heild.isfyrirspurn@heild.is Til leigu HEILD fasteignafélag Um er að ræða skrifstofurými á 2. hæð á góðum stað á Höfðanum. Leigurýmið er 720 fm en mögulegt er að skipta því upp í minni rými. • 720 fm skrifstofurými. • Góð staðsetning. • Næg bílastæði. Höfðabakki 3, 110 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.