Morgunblaðið - 18.10.2016, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016
Vetur á næsta leiti Tíma sumargatna lauk í byrjun mánaðarins og ekki er þörf fyrir þessa stöðu hjólhesta til að loka götunum fyrir umferð bíla. Fyrsti vetrardagur verður á laugardaginn kemur.
Eggert
Þegar núverandi
ríkisstjórn tók við sum-
arið 2013 voru framlög á
hvern nemanda í fram-
haldsskólum landsins
um 900 þúsund krónur
(á verðlagi ársins 2016).
Á árunum fyrir hrun
hafði aðhaldskröfu verið
beint að skólunum en í
kjölfar hrunsins var
gengið mjög hart fram
gagnvart framhaldsskólunum og þeir
skornir mjög grimmt niður. Til að
setja 900 þúsund króna framlagið á
hvern nemanda í samhengi þá er
framlag á verðlagi ársins 2016 á hvern
grunnskólanema um 1.700 þúsund
krónur. Þessi skelfilega lága tala sem
blasti við sumarið 2013 stefndi öllu
skólastarfi í voða og engar raunhæfar
áætlanir voru uppi um hvernig unnið
yrði úr þeirri stöðu.
Umfangsmikilar
kerfisbreytingar
Fjölmargar ástæður liggja því til
grundvallar að fara úr fjögurra ára
framhaldsskólakerfi í þriggja ára
kerfi. Ljóst var að Ísland var eina
landið innan OECD þar sem 14 ár
þurfti til að undirbúa ungmenni fyrir
háskólanám, en önnur lönd kláruðu
það verkefni á 12 eða 13 árum. Ekki
var hægt að víkja sér undan því að
breyta þessu, gríðarlegir hagsmunir
eru undir fyrir þjóðarbúið allt og Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands hefur
metið það svo að þjóðarframleiðslan
muni verða hærri sem nemur 14 til 17
milljörðum króna á ári vegna þessarar
breytingar. Ríkissjóður mun þar af
leiðandi fá í sinn hlut um fimm til sjö
milljarða króna í auknar skatttekjur á
ári og munar um minna.
En einnig skipti
miklu máli að með því
að farið verður úr fjög-
urra í þriggja ára kerfi
skapast umtalsvert
svigrúm til að bæta að-
stæður í framhalds-
skólakerfinu. Nú liggur
fyrir sú ákvörðun að
það sem sparast við
styttinguna mun ekki
renna út úr framhalds-
skólakerfinu, þess í stað
verður það nýtt til að
hækka framlög á hvern
nemanda. Það er því fólgin í stytting-
unni kerfisbreyting sem skilar sér
með beinum jákvæðum hætti til nem-
enda og framhaldsskólakerfisins.
Gerbreytt fjármögnun
Til viðbótar því fjármagni sem mun
bætast við framlög á hvern nemanda
vegna styttingarinnar þá liggur nú
fyrir í samþykktri áætlun um ríkis-
fjármál til ársins 2021 ákvörðun um
að auka framlög til framhaldsskólans
um 2,6 milljarða króna á þeim tíma
sem áætlunin nær til.
Þar með mun framlag á hvern nem-
anda aukast úr rúmum 900 þúsund
krónum í um 1.570 þúsund krónur ár-
ið 2021 og svigrúm er til enn frekari
hækkana ef vilji stendur til slíks.
Þetta mun gjörbreyta öllu starfi
framhaldsskólanna, möguleikum
þeirra til að sinna hverjum nemanda
með fullnægjandi hætti og tryggja að
menntun ungmenna á Íslandi sé jafn
góð því sem best gerist í þeim löndum
sem við viljum bera okkur saman við
um lífskjör.
Norrænn samanburður
Þegar horft er til þess fjármagns
sem veitt er hverjum nemanda þá er
gjarnan horft til stöðu mála á Norður-
löndum. Eins og sjá má á mynd 2 þá
stóð Ísland langt að baki öðrum
Norðurlöndum þegar litið er til fjár-
festingar í hverjum nemanda á fram-
haldsskólastiginu. Á næstu árum
mun þessi staða gerbreytast. Annars
vegar vegna fjármagns sem kemur til
vegna þess að farið er úr fjögurra ára
kerfi í þriggja ára kerfi og hins vegar
vegna fjármagns sem bætt er við
samkvæmt samþykktri ríkisfjár-
málaáætlun.
Vatnaskil
Vitanlega eru mörg vandamál uppi
í rekstri framhaldsskóla sökum lang-
varandi fjárskorts, einkum í ljósi þess
hve niðurskurður í kjölfar hrunsins
var mikill. Skólameistarar og kenn-
arar hafa unnið þrekvirki á undan-
förnum árum með því að halda úti öfl-
ugu skólastarfi við slíkar aðstæður.
En þróuninni hefur verið snúið við,
vatnaskil hafa orðið, og með skýrri
stefnumótun sem er fullfjármögnuð
hefur verið lagður grunnur að alger-
um viðsnúningi í starfi framhalds-
skóla á Íslandi. Héðan í frá mun
rekstur framhaldsskólanna batna ár
frá ári, þangað til framhalds-
skólakerfið á Íslandi verður komið í
hóp þeirra sem best eru fjármögnuð.
Það er mikið fagnaðarefni.
Eftir Illuga
Gunnarsson »Héðan í frá mun
rekstur framhalds-
skólanna batna ár frá
ári, þangað til fram-
haldsskólakerfið á Ís-
landi verður komið í hóp
þeirra sem best eru
fjármögnuð.
Illugi Gunnarsson
Höfundur er mennta- og menningar-
málaráðherra.
Endurreisn framhaldsskólans
0.0
200.0
400.0
600.0
800.0
1,000.0
1,200.0
1,400.0
1,600.0
1,800.0
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
20
16
20
17
20
18
20
19
20
20
20
21
Framlag á ársnema á framhaldsskólastigi skv.
fjárlögum og fjármálaáætlun, á föstu verðlagi 2016
$9,959
$8,599
$15,248
$10,944
$9,876
$7,648
$14,060$6,413
+84%
$-
$2,000
$4,000
$6,000
$8,000
$10,000
$12,000
$14,000
$16,000
$18,000
Kostnaður á ársnemanda á framhaldsskólastigi árið
2012 í bandaríkjadölum, leiðrétt fyrir kaupmætti
Mynd 1
Mynd 2