Morgunblaðið - 18.10.2016, Side 20

Morgunblaðið - 18.10.2016, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Verðbólga hefur löngum verið bölvaldur á Íslandi. Í tíð núver- andi ríkisstjórnar er viðsnúningur í efna- hagslífi þjóðarinnar. Vísitalan lægri en markmið Seðlabank- ans. Meiri kaupmáttar- aukning en um áratuga skeið. Alþingi hefur samþykkt áætlun til fimm ára sem boðar stóraukinn út- gjaldamöguleika ríkissjóðs til hags- bóta fyrir landsmenn. Margt fleira blasir við sem sýnir stöðugleika og farsælan árangur í stjórn efnahags- mála. Smáflokkar spretta stundum upp með misjöfnum árangri, sumir lifa stutt, aðrir eru með framboðslista aftur og aftur án árangurs. Forkast- anlegt er þegar forystufólk í stjórn- málaflokki þolir ekki að vera í minnihluta, í ein- stöku máli, í lýðræðis- legri atkvæðagreiðslu á fjölmennum fundum og notar tækifærið knúið af persónulegri framagirni til að ná setu á Alþingi og hefja forgöngu í nýj- um flokki gegn fyrri samstarfsfélögum. Nú hafa tveir flokkar náð nokkru fylgi samkvæmt skoðanakönnunum, Við- reisn og Píratar, og eru með pólitískan samhljóm í aðal- stefnumálum sínum með Samfylking- unni. Af óraunhæfri þráhyggju vilja þeir þjóðaratkvæðagreiðslu um að- ildarviðræður við ESB, þó það sé gef- ið mál að aðildarlönd Evrópusam- bandsins vilja ekki taka við slíkri umræðuumsókn til að kanna mögu- leika á einhverskonar sérsamningum fyrir Ísland. Þessir flokkar boða bylt- ingu í landbúnaði og sjávarútvegi, en slíkt er afar viðsjárvert og gæti vald- ið óbætanlegu tjóni við áframhald- andi atvinnurekstur á afskekktum landsvæðum og hjá sjávarútgerðar- fyrirtækjum nema þeim allra stærstu. Fleira eiga þessir ESB- flokkar sameiginlegt þó ekki sé hægt að giska á samvinnuanda einstakling- anna á Alþingi. Píratar eru taldir meginflokkur þessarar fylkingar en þeir gátu nú ekki unnið saman í þriggja manna þingflokki nema með aðstoð vinnustaðasálfræðinga. Margreyndur stjórnmálaskörung- ur, fyrrverandi leiðtogi ESB-um- sóknar og langfærasta forsætisráð- herraefnið í þessari ESB-átrúnaðar- fylkingu, Össur Skarphéðinsson, er talsmaður fyrir því að þessir flokkar myndi ríkisstjórn eftir kosningar. Forystumenn þeirra vilja afsala full- veldi Íslands að meira eða minna leyti og ánetjast ólýðræðislegu ESB- bákni í Brussel. Það er ekki fýsilegt að þessir flokkar nái meirihluta á Al- þingi og geti myndað ríkisstjórn. Nú bregður svo við að einn ákaf- asti stuðningsmaður innlimunar Ís- lands í Evrópusambandið um ára- tuga skeið, Jón Baldvin Hannibals- son, varar við umsókn í ESB, því það væri „eins og að ganga inn í brenn- andi hús“. Ríkisstjórnin hefur náð ótrúlegum árangri í efnahagsmálum á kjörtíma- bilinu, sem vakið hefur athygli í hin- um vestræna heimi. Landsmenn eiga að meta viðvarandi stöðugleika og góðar framtíðarhorfur og stuðla að því með atkvæði sínu að áfram verði haldið á réttri leið til hagsældar fyrir þjóðina. Sjálfstæðismenn frá öllu landinu hafa mótað stefnu flokksins, fyrir alþingiskosningarnar, á fjöl- mennum fundum, sem munu koma fram hjá frambjóðendum flokksins í kosningabaráttunni. Útlit er fyrir að margir nýgræðingar verði kosnir til setu á Alþingi nú, en óæskilegt er að reynslulausir alþingismenn verði ráð- andi í þingmeirihluta ríkisstjórnar. Langflestir frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins í mörgum efstu sæt- um framboðslista, í öllum kjördæm- um landsins, hafa reynslu og þekk- ingu til starfa á Alþingi og einnig ungt og efnilegt fólk. Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hefur sýnt það og sannað að vera traustur leiðtogi. Hann vegur aldrei persónulega með ávirðingum að pólitískum andstæð- ingum. Forystuhlutverk hans og af- rek með öllum þeim sem hafa komið að úrlausn erfiðra mála á vegum Fjármálaráðuneytisins hefur treyst efnahagslegan stöðugleika og orðið þjóðinni til farsældar. Frábær stjórnmálastörf Bjarna Benedikts- sonar ættu að sannfæra kjósendur um að þar er maður sem á að hafa forustu um að varðveita stöðugleik- ann, mesta hagsmunamál þjóðar- innar, og gegna leiðtogahlutverk í næstu ríkisstjórn. En til þess þurfa kjósendur að veita Sjálfstæðis- flokknum gott brautargengi í næstu alþingiskosningum, með því er þjóðin á réttri leið. Á réttri leið Eftir Engilbert Ingvarsson »Ríkisstjórnin hefur náð ótrúlegum ár- angri í efnahagsmálum á kjörtímabilinu, sem vakið hefur athygli í hin- um vestræna heimi. Engilbert Ingvarsson Höfundur er frá Tirðilmýri. liðinn vetur varð hins vegar til þess að lokun neyðarbrautar var fram- fylgt án þess að bent væri á aðra lausn. Jafn- vel þó svo að undir öllum eðlilegum kringumstæð- um skuli samningar standa hefur Hæstirétt- ur tæplega eða nokkur annar siðferðis- eða laga- legan rétt á að hunsa flugöryggi sem fyrrver- andi innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjáns- dóttir, viðhafði. Mikilvægi neyðar- brautar ætti að vega þyngra en samn- ingar embættismanna sem jafnvel samræmast ekki stjórnarskrá, lögum og reglum ásamt að draga úr flug- öryggi. Ekki svo sjaldan hefur héraðsdóm- ur, sem Hæstiréttur vitnaði í, svokall- að huglægt mat á lögum og á því að al- mannahagsmunir séu ætíð hafðir í forgangi! Slíkar tilvitnanir virðast engu skipta í núverandi hæstaréttar- dómi gagnvart afdrifum neyðar- brautar. Illa er komið fyrir samfélag- inu ef lagabókstafur er túlkaður svo þröngt að hann vegur þyngra en óhæfir samningar ráðherra og borg- arstjóra sem vílar ekki fyrir sér að hunsa öryggi meðborgara sinna. Stór- lega má draga í efa að almannaöryggi Sérhagsmunir eru greinilega yfirsterkari flugöryggi. Borgaryfir- völd láta sig ekkert varða innanlandsflug, sjúkra og slasaða lands- menn – og það sem verra er, þingheimur er litlu betri. Samfélagið er agalaust, óábyrgt og ef að líkum lætur myndi enginn axla ábyrgð kæmi til þess að flugslys ætti sér stað! Lengi má benda á aðra ef illa fer. Flugmálayfirvöldin ásamt embætt- iskerfinu gefa óhikað afslátt af flug- öryggi með lokun NA/SV-brautar og yrði dýru verði keypt komi til þess að slys hljótist af lokun neyðarbrautar með einum eða öðrum hætti. Innan- ríkisráðherra, Ólöf Nordal, neitaði í nóvember 2015 að loka flugbraut þar sem hún bar fyrir sig lagalega skyldu til að láta öryggissjónarmið ganga fyrir. Vandséð er hvað hafi breyst og hvernig hæstaréttardómur geti hnekkt ágreiningi um framtíð og vægi neyðarbrautarinnar með svona afgerandi hætti meðan önnur viðun- andi lausn er ekki til staðar. Hæstaréttardómur sem féll síðast- sé haft í hávegum í dómsniðurstöðu. Lágmarkskrafa hefði verið að loka ekki neyðarbraut fyrr en viðunandi lausn væri fengin eða málinu komið í ásættanlegt ferli. Jafnvel þótt Hæsti- réttur sé æðsta vald er hann ekki óskeikull og tæplega yfir gagnrýni hafin. Mun eðlilegra hefði verið að fyrrverandi innanríkisráðherra, ásamt borgarstjórum, hefði verið stefnt fyrir Landsdóm fyrir óhæft verklag og gerðir gagnvart almanna- heill. Nokkuð ljóst er að stjórn- og flug- málayfirvöld munu ekki axla ábyrgð komi til flugslyss vegna lokun neyð- arbrautar. Þá mun afneitun verða sterk og bent á að ábyrgð liggi annars staðar. Borgarstjóri er sem fyrr duglegur að baða sig í sviðsljósinu sem sýndi sig berlega þegar nýr neyðar- forgangur götustýringaljósa í slökkvi- og sjúkraakstri var inn- leiddur innan borgarinnar til að gera hann sem hraðvirkastan og öruggari. Þar sem hver einasta mínúta og sek- úndur skipta höfuðmáli, að ekki verði tafir í sjúkraakstri! Þegar kemur að því að leggja eigi niður innanlandsflugvöll og lengja sjúkraflug ásamt að bæta við hálf- tímaakstri, þá snýst sjúkraflug og akstur ekki lengur um mínútur og sekúndur. Meirihluti borgarstjórnar, með Dag B. Eggertsson í fararbroddi, ásamt alþingismönnum og fleirum, er að fremja þjóðarglæp gagnvart þeim sem þurfa á slysa- og sjúkraflugi að halda með sem skemmstum hætti. Velta má fyrir sér hvort svokallaður „borgarstjóri allra landsmanna“, ásamt því að teljast læknir og eiðsvar- inn, ætli að leggjast svo lágt að vera einn stærsti farartálmi sjúkra og slas- aðra sem treysta á að eðlilegar flug- samgöngur séu með sem skjótustum hætti. Almenningur þarf að fara að skilja að engin fjárhagsleg geta eða ákjós- anlegt flugvallarsvæði er til staðar til að byggja nýjan flugvöll og reyndar engin þörf á því. Óhæfur og ábyrgð- arlaus borgarstjóri þarf einungis að víkja, ásamt fleirum, til að leysa vand- ann. Stjórnvöld láta of oft stýrast af ráða- og ábyrgðarleysi þó svo eðlileg og sanngjörn lausn sé svo augljós, sé horft framhjá lóðabraski og sérhags- munum. Þó svo að ríkissjóður sé tómur og ekki til fjármunir fyrir einu eða neinu vegna óstjórnar og ekkert flugvallar- svæði til staðar fyrir nýjan flugvöll hefur hver nefndin af annarri undan- gengin ár verið skipuð til að viðhalda óhæfu verklagi. Rögnunefndin svo- kallaða er glöggt dæmi um ráðaleysið þó svo að fyrirsjáanlegt hefði verið að hún myndi engu skila nema að tefja málið og moka fjármunum úr ríkis- sjóði. Stjórnvöldum er greinilega fyr- irmunað að takast á við úrlausn erf- iðra mála. Eðlilegast er að höggvið sé á þennan hnút og þjóðin ákveði með lýðræðislegum og afgerandi hætti af- drif flugvallarins. Þingmönnum ætti manna best að vera ljóst mikilvægi Reykjavíkur- flugvallar sem helstu samgönguæðar landsbyggðar ekki síst gagnvart sjúkraflugi. Hálfsorglegt er að horfa á dramatískar slysaæfingar í fjöl- miðlum kæmi til þess að flugslys yrði á sama tíma og verið er að grafa und- an flugöryggi með lokun neyð- arbrautar og án þess að viðunandi ráðstafanir séu gerðar. Samfélagið sýnir of oft af hræsni og sérhags- munagæslu þar sem líf og öryggi landsmanna er að engu haft. Eftir Vilhelm Jónsson Vilhelm Jónsson » Illa er komið fyrir samfélaginu ef laga- bókstafur er túlkaður svo þröngt að hann vegi þyngra en líf og öryggi landsmanna, sem borg- arstjórn hefur að engu. Höfundur er fjárfestir. Neyðarbraut sleppt á kostnað flugöryggis Steingrímur. Í kosningum fékkstu skýr skilaboð um að þinn tími væri liðinn. Þrátt fyrir það skorti þig hvorki brigsl né ísmeygileg hnýfilyrði í garð ríkisstjórnar og nú ert þú aftur í fram- boði. Þú ættir að draga framboðið til baka. Þú getur ekki gert for- manninum það að dröslast með ykk- ur Björn Val í skottinu eina ferðina enn. Loforð um að halda þjóðinni utan ESB sveikstu strax eftir kosningar. Til að liðka fyrir aðild að ESB sendir þú vin þinn að semja um Icesave. Sá kom með samning, þegar hann nennti ekki lengur að standa í samn- ingaströgglinu. Þið kröfðust þess að þingmenn samþykktu samninginn án þess að sjá hann. Líkt og blindir kett- lingar. Það gekk ekki og Jóhanna kallaði þitt fólk villiketti, sem ekki væri hægt að smala. Samningurinn var kolfelldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá hefðuð þið átt að segja af ykkur strax. Næstu kosningar fóru á sömu leið, en áfram sátuð þið samt. Rúin trausti í annað sinn. Stóradóm fenguð þið í al- þingiskosningunum. Í viðbót við ESB, Icesave og veiðileyfi til hræ- gamma kunna eftirfar- andi atriði að vera ástæða fallsins:  Þið hleyptuð AGS inn og lögðuð blessun yf- ir hækkun stýrivaxta úr 12 í 18%. Kostnaðurinn lagðist á landsmenn. Margir misstu heimili sín og aldrei hafa jafn mörg fyrirtæki farið á hausinn. Snjóhengjubrask- ararnir fengu 18% vexti í gjaldeyri, sem streymdi úr landi þrátt fyrir gjaldeyrishöftin.  Seðlabanki Íslands (SÍ) brask- aði með skráð gengi krónu. Skilyrði var fjárfesting á Íslandi fyrir krón- urnar. Ekki var spurt hvaðan gjald- eyririnn kæmi eða hvernig hans var aflað. Á þinni vakt var SÍ peninga- þvottastöð á sama plani og bankarnir í Tortóla. Fékk skatturinn lista yfir þá sem keyptu útsölukrónur af SÍ?  Þið kærðuð ekki Breta fyrir að setja á okkur terroristalög af ótta við að fá ekki að vera memm í ESB- klúbbnum. Ekki þorðuð þið að tala máli þjóðarinnar þegar allar „vina- þjóðirnar“ réðust á okkur. Forsetinn sá að ekki gekk að hafa markið gal- opið með engan í marki. Hann fór í mark og í sóknina með þeim árangri að landinn þurfti ekki lengur að horfa á tærnar á sér í samræðum við út- lendinga.  Þið gáfuð hrægömmum veiði- leyfi á almenning og fyrirtæki. At- vinnutæki voru hirt af verktökum fyrir slikk og seld úr landi fyrir gjald- eyri. Milliliðir hirtu gróðann. Fyrr- verandi eigendur sátu eftir jafn skuldugir og áður. Mörgum hefði mátt bjarga með því að bjóða út grunn að nýjum spítala.  Óskiljanlegt er að þið skylduð selja Kaupþing í Lúxemborg án þess að gramsa fyrst í því hvað bankinn hefði að geyma. Sagt var að fyrr myndi snjóa í helvíti áður en sæist hvað þar væri falið. Sérstakur þurfti svo að fara bónleiðina til að fá gögn úr bankanum, sem var mjatlað í hann.  Þú felldir niður tugmiljarða skuldir hjá ýmsum fyrirtækjum, sem t.d. í sjávarútvegi seldu seinna kvóta úr byggðarlaginu. Kvóta sem var og er þjóðareign. Eitt loforða þinna var að skila honum til þjóðarinnar.  Skjaldborgin um heimilin var skjaldborg um fjármagnseigendur. Með 20% leiðinni héldu lánardrottnar áfram að innheimta lán. Verðtrygg- ingin sá um hækkun höfuðstóls. Á nokkrum árum varð staðan enn verri.  Svo var það Hitaveita Suður- nesja, Sjóvá, Sparisjóðurinn, Askja, Straumur-Burðarás, Byr, VBS, Saga & Askar Capital, Drómi og allt hitt.  Í liði VG var góður hagfræðing- ur, Lilja Mósesdóttur. Lyklafrum- varp hennar hefði bjargað mörgum heimilum. Jarðfræðiþekking þín vó þyngra en hagfræðikunnátta hennar og um að gera að losna við hana sem fyrst úr stjórninni.  Jón Bjarnason stóð vörð um fullveldið og makrílkvótann, sem þið Össur vilduð semja um við ESB. Jón vildi setja samskonar kvóta á makríl- inn og var á skötuselnum, en fékk ekki. Þú vildir losna við Jón úr ráðu- neytinu. Það tókst sem betur fer ekki fyrr en í lokin.  Þið læstuð niður skjöl í meira en 100 ár vegna persónuverndar, sem tók við af bankaleynd. Hvað er svo ljótt að skal falið 4-5 kynslóðum?  Þið senduð reglulega tilkynn- ingar um það hversu mikið ástand heimila og fyrirtækja hefði batnað undir ykkar stjórn. Hvernig gat ann- að gerst, þegar þeir verst settu höfðu misst íbúðir sínar og mörg þúsund fyrirtæki farið á hausinn? Við það bættist landflótti fólks sem ekki átti sér viðreisnar von í landinu okkar góða. Er ekki ljóst að þeir sem lifðu af stóðu betur en hinir, sem þið gáfuð veiðileyfi á? Þú munt segja þetta tóma dellu miðað við hvað þið skiluðuð góðu búi þrátt fyrir rústirnar sem þú tókst við. Ég spyr, hvernig hefði þetta end- að hjá ykkur hefði almættið ekki blessað þjóðina með makríl og túr- istum? Hvað væri skuldin há hefði ykkur tekist að fá að greiða Icesave og deila makrílnum með ESB? Að lokum: Er trúverðugt að svara því sem kemur fram í skýrslu Vigdís- ar með því að skýrslan sé klippiplagg og ekki-skýrsla full af stafsetningar- villum? Reyna svo að gera Vigdísi ótrúverðuga hjá alþýðu manna með í senn ísmeygilegum og illyrmislegum ásökunum rætnifullra rægitungna um gegndarlaust og einskis nýtt hjal um stafsetningarstagl. Þykir mér sýnt að trúverðugleiki Vigdísar vaxi við að þú, Steingrímur, reynir að gera hana ótrúverðuga. Opið bréf til Steingríms Eftir Sigurð Oddsson »Ekki var spurt hvað- an gjaldeyririnn kæmi eða hvernig hans var aflað. Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.