Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 21

Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 ✝ GuðlaugHanna Frið- jónsdóttir fæddist í Hafnarfirði 12. jan- úar 1937. Hún lést á Landspítalanum 7. október 2016. Foreldrar henn- ar voru Friðjón Guðlaugsson, f. 7. ágúst 1912, d. 28. desember 1985, og Hulda Hansdóttir, f. 17. júlí 1912, d. 2. apríl 2007. Hún átti fjórar systur og þrjá bræður: Ólaf Helga, f. 5. apríl 1933, d. 10. febrúar 2012, Guð- rúnu Höllu, f. 20. október 1943, Friðrik Hans, f. 13. júlí 1948, Sólveigu Hrönn, f. 3. mars 1951, Júlíönnu Helgu, f. 23. október 1952, og Guðlaug Helgason, f. 22. desember 1956. Eiginmaður Hönnu var Ólaf- ur Ingimundarson, f. 5. janúar 1933, d. 27. maí 2003. Börn Hönnu og Ólafs eru: 1) Hulda ágúst 1996. Guðrún á fjögur barnabörn. 4) Friðjón Ólafsson, f. 13. maí 1961, og maki hans er Erna Hrönn Herbertsdóttir, f. 11. júní 1960. Börn hans eru Agla, f. 8. júní 1986, og Sunna, f. 22. mars 1994. 5) Gunnar Frið- rik Ólafsson, f. 12. maí 1965, og d. 29. janúar 2007. Hanna stundaði hefðbundið nám þess tíma og var heima- vinnandi fyrstu ár hjúskapar. Hún lærði síðar snyrtifræði hjá Margréti Hjálmtýsdóttur og sér- hæfði sig síðar í sjúkranuddi. Hún hafði ætíð áhuga á end- urhæfingu og starfaði í nokkur ár á Sólvangi sem aðstoðarkona sjúkraþjálfara. Síðan tók hún við sjúkraþjálfun á Hrafnistu í Hafnarfirði og veitti því for- stöðu í mörg ár þar til löggiltir sjúkraþjálfarar tóku við. Síð- ustu starfsárin var hún með snyrtistofu á Hjallabraut 33. Hún tók virkan þátt í ýmsum fé- lagsstörfum, starfaði meðal ann- ars með Kvenfélagi Hringsins í Hafnarfirði og Félagi eldri borgara. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 18. október 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Ólafsdóttir Scoles, f. 14. febrúar 1955, maki hennar er Dave Scoles, f. 4. júlí 1945. Hennar börn eru: Ólafur Hannes, f. 8. sept- ember 1972, Sig- urður Júlíus, f. 8. september 1972, d. 22. september 2007, Karlotta Lilo, f. 19. september 1975, Guðlaug Hanna, f. 30. nóv- ember 1980, og Bonnie Lára, f. 23. ágúst 1989. Hulda á 15 barnabörn og þrjú barna- barnabörn. 2) Anna Ólafsdóttir, f. 17. júní 1956. 3) Guðrún Ólafs- dóttir, f. 21. september 1958. Börn hennar eru Ólafur Helgi, f. 24. mars 1977, d. 3. september 1982, Óskar Örn, f. 4. mars 1980, Adolf Örn, f. 8. nóvember 1983, Kristel Assa, f. 5. júní 1987, Ólöf Helga, f. 3. sept- ember 1988, og Jóel Örn, f. 8. Elsku besta amma Hanna mín. Þá er komið að kveðjustund, allt allt of fljótt. Þetta er enn þá svo óraunverulegt allt saman og ég á svo hryllilega erfitt með að sætta mig við að þú sért farin. En, eins og ég sagði við þig á spítalanum, þá ertu búin að halda þéttingsfast í höndina á mér í 30 ár og fyrir það er ég óendanlega þakklát. Allar dýrmætu sam- verustundirnar okkar mun ég geyma í hjarta mér um alla tíð. Þú hefur alltaf verið stór part- ur af lífi mínu enda var ég mikið hjá ykkur afa á uppvaxtarárun- um. Gæðastundirnar á Álfaskeiði 50 koma strax upp í hugann en þar safnaðist stórfjölskyldan saman í tíma og ótíma og þá var mikið hlegið, borðað, dansað og sungið. Þú varst svo mikil fé- lagsvera og þér fannst fátt betra en þegar þú varst umkringd öllu fólkinu þínu. Hláturinn þinn og söngur er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma – og sérstaklega hvernig þú söngst alltaf bara fyrstu setninguna í öllum lögum og fylgdir því svo eftir með „trallarallareiiii“. Matargerð var þér mjög hugleikin og svignaði borðstofuborðið á Álfaskeiðinu oft undan kræsingunum þínum, sérstaklega á jóladag þegar boð- ið var upp á hamborgarhrygg, hangikjöt og kalkún – með bestu kalkúnasósu í heimi. Þegar allir höfðu borðað á sig gat var tekið í spil og spilaður manni, kani, ka- sjón eða tíu, langt fram undir morgun. Við frænkurnar héldum líka fjöldamargar tískusýningar á Álfaskeiðinu enda úr nógu að taka í fataskápnum hjá ömmu sem var alltaf hin glæsilegasta. Þar mátti finna dýrindis kjóla með axlapúðum og háhælaða skó í öllum regnbogans litum. Amma þú varst alltaf svo stórglæsileg til fara og vel til höfð, á háum hælum og með nýlagað hár allt fram til síðasta dags. Samverustundunum fækkaði ekkert þrátt fyrir að árin liðu, alltaf var jafnyndislegt að vera innan um þig. Ævinlega tókstu á móti mér með opinn faðm, skil- yrðislausri ást og hlýju. Um- hyggjusemi er orð sem lýsir þér einna best en þú hafðir óbilandi orku til að hugsa um fólkið þitt. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig í gegnum árin, hvort sem um var að ræða bakverk sem þú nudd- aðir í burtu, ástarsorg sem þú knúsaðir mig í gegnum eða þegar ég fékk heimþrá í vinkonuheim- sóknum í gamla daga og fékk að „flýja“ til ykkar afa í hlýjuna og öryggið. Ég gleymi heldur aldrei deginum sem ég flutti út til LA þegar ég var svo leið og ómögu- leg yfir því að vera að fara frá ykkur öllum. Rétt áður en ég fór út á völl komstu og kvaddir mig og eftir faðmlög og tár gafstu mér fallega lærdómsuglu sem hefur fylgt mér alla tíð síðan. Ári síðar, eftir of langan aðskilnað, gerðir þú þér lítið fyrir og flaugst í heimsókn til mín hinummegin á hnöttinn. Hvaða 75 ára amma gerir það? Engin. Það er nefni- lega engin eins og þú. Tilhugsunin um hinstu kveðju- stundina í dag er óbærileg en ég brosi í gegnum tárin þegar ég hugsa til baka og sé þig fyrir mér syngjandi, dansandi og hlæjandi. Þú lifir áfram í hjörtum okkar allra og við munum heiðra minn- ingu þína um alla tíð. Nú er kom- ið að okkur að taka við kyndl- inum þínum. Ég elska þig, amma mín, og þakka þér fyrir allt. Þín Agla. Elsku Hanna er farin heim. Svona var komist að orði í fjöl- skyldu minni. Við Hanna áttum svo margar, góðar stundir saman bæði í gleði og sorg. Hanna hélt reisn sinni alla tíð og lét ekki bugast á erfiðum stundum í lífi sínu. Ég dáði Hönnu fyrir æðru- leysi í hvívetna. Hanna stækkaði við hverja raun og sýndi hetju- lund. Við minnumst með þakk- læti síðustu stundar með Hönnu á Borgarspítalanum. Það var okkur mikils virði að geta kvatt hana nokkrum dögum fyrir and- lát hennar. Við lítum upp til hennar og munum alltaf minnast hennar sem kærleiksríkrar og geislandi konu. Fjölskyldan átti öruggt athvarf á heimili hennar. Nú er skarð fyrir skildi. Við munum alltaf sakna hennar. Elsku Hanna er nú á yndislegum stað. Við Hanna höfum þekkst í lið- lega 30 ár. Leiðir okkar lágu oft- ar saman, eftir að barnabörnin fæddust. Tvær ömmur áttu tvö barnabörn saman. Hún var glæsileg kona, kjarkurinn óbil- andi. Hún hafði góða lund og söng fyrir börnin. Hún sýndi mikla þolinmæði og kunni að segja frá. Alltaf stækkaði fjöl- skyldan. Þá reyndi oft á þolrifin með stóran hóp af barnabörnum, en hún tókst á við hvað sem að höndum bar með ást og fyrir- gefningu. Matarveislur hennar voru ógleymanlegar. Það er skemmti- legt að rifja upp merka atburði, svo sem skírnir sonardætra hennar. Önnur veislan var heima hjá okkur en hin á Álfaskeiði. Svo liðu árin og börnin stækk- uðu. Í fermingarundirbúningn- um í Hafnarfjarðarkirkju var gert ráð fyrir þátttöku ungling- anna. Þeir fluttu helgileik. Við sátum þarna tvær ömmur fram- arlega í kirkjunni og dáðumst að ömmubarninu okkar. Önnur son- ardóttirin fermdist í Fríkirkj- unni. Þetta voru yndislegar stundir sem við áttum þarna saman í bæði skiptin. Ekki verður minnst á Hönnu án þess að geta manns hennar, Ólafs Ingimundarsonar. Hann var lærður dúklagningarmaður en starfaði lengst af á Keflavík- urflugvelli. Ólafur lést úr erfið- um sjúkdómi fyrir aldur fram og annaðist Hanna hann eins vel og hún gat. Ólafur og Hanna voru samrýnd hjón. Fráfall hans var mikill missir fyrir hana. Hafnarfjarðarbær naut starfs- orku hennar um árabil. Má þar nefna Setbergsskóla og Hrafn- istu. Henni fannst þessi störf ein- staklega gefandi. Vistmenn á Hrafnistu fengu nuddtíma hjá Hönnu. Hún kom eins og sólar- geisli í líf þeirra. En hún gegndi slíku starfi einnig heima hjá sér meðan kraftar leyfðu. Hanna tók virkan þátt í starfsemi aldraðra í Hraunseli. Hún gegndi for- mennsku í nefndum á vegum fé- lagsins af mikilli röggsemi. Ferðirnar til Ameríku voru alltaf tilhlökkunarefni í lífi Hönnu. Hún var lengi að und- irbúa þær og raðaði í töskuna þannig að út úr flæddi. Þannig minnti hún mig á barnfóstruna góðu sem kom fljúgandi til barnanna með regnhlíf sem hafði mál. Hún prjónaði handa öllum börnunum bæði hér heima og vestan hafs. Þetta voru góðar gjafir að ógleymdu namminu frá Góu. Á jólunum sameinaðist fjöl- skyldan yfir kræsingum sem Hanna matreiddi af sinni al- kunnu snilld. Svo var spilað og allir voru í hátíðarskapi. Við samhryggjumst ykkur innilega, kæra fjölskylda. Megi algóður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. María og Óskar. Þegar kemur að kveðjustund þeirra sem eru okkur kærir þá verða orð svo fátækleg og hinsta kveðja svo átakanlega endanleg að mann brestur orð sem túlka nógu vel sorgina sem fyllir hjart- að. Tíminn sem okkur er skammt- aður á þessari jörð er sem betur fer okkur hulinn flestum. Við Hrafnhildur höfðum ætlað okkur að fara og hitta Hönnu vinkonu okkar og fá okkur að borða saman þegar tími gæfist til. Þegar hann gafst var Hanna komin á Borgarspítalann svo að við brugðum okkur þangað og sem betur fer hittum hana þar tiltölulega hressa og sjálfri sér líka. Þá fengum við líka að vita að rannsóknir hefðu sýnt að sjúk- dómur hennar væri langt geng- inn og stuttur tími eftir á þessari jörð. Þarna var hún, þessi elska, umvafin börnum sínum og barna- börnum sem viku ekki frá rúmi hennar þennan tíma sem henni var skammtaður. Næsta heim- sókn til hennar var bara til að kveðja og þakka fyrir allar góðu stundirnar og fallegu minning- arnar en þá var hún komin á líknarmeðferð. Þessi lega varð ekki löng og starfsfólk sjúkra- hússins gerði greinilega allt sem mannlegur máttur getur gert til að líkna Hönnu þessa síðustu daga. Við eigum minningar um fal- lega og góða vinkonu sem lagði ekki illt til nokkurs manns, fyr- irgaf allt og umbar allt. Ótal ljúf- ar minningar eigum við frá sam- verustundum. Við munum gönguferð í Haukadalsskógi þar sem Hanna mín nennti ekki að rölta svona hægt, skálmaði fram úr okkur og við týndum henni í skóginum, við hringdum í Önnu dóttur hennar til að fá farsímanúmerið hennar og hringdum í hana, þá var hún óravegu í burtu hjá Haukadals- kirkju og búin fyrir löngu að hlaupa okkur af sér. Þá var mikið hlegið. Við minnumst afmælis Ingu í Vestmannaeyjum þegar við gróðursettum tré til minning- ar um elsku Gunna sem þá var nýdáinn, þá grétum við saman vinkonurnar. Við minnumst þess þegar Inga bauð Hönnu og Hrafnhildi á þorrablót í Reykholti og þær gistu í gistihúsinu í Dalbrún hjá Svavari. Þá var tjúttað. Alltaf var Hanna mín jafn fal- leg og fín, skemmtileg og kát. Samverustundir okkar vin- kvennanna hefðu mátt vera fleiri seinni árin en búseta og annríki kom stundum í veg fyrir að þær væru það, en sambandið var allt- af jafn gott og gefandi. Mikla móðir alheimsins taktu barn þitt sem þú lánaðir til að gefa birtu og yl og bæta heiminn. Gefðu því hvíld hamingju og frið nýjan þrótt og viðurkenningu fyrir afrek sín á sviði listarinnar að lifa Nú er hún komin til sumar- landsins þar sem Óli hennar og Gunnar ásamt öðrum ástvinum bíða hennar og þar munum við hittast aftur þegar þar að kem- ur. Söknuðurinn er vegna góðra og fallegra minninga sem vara meðan við lifum. Við þökkum fyrir ánægjulega samfylgd og vináttu sem átti djúpar rætur í að deila kjörum í blíðu og stríðu í mörg ár. Börnum hennar, barnabörn- um og aðstandendum öllum vott- um við samúð okkar. Inga Þyri Kjartansdóttir, Hrafnhildur Þórarinsdóttir. Ég sá þig fyrst í Firðinum í ilmandi hausti fyrir þrátíu árum. Anna, dóttir þín og vinkona mín, kynnti mig fyrir þér. Þú tókst mér fagnandi. Ég horfði á þig, beina í baki með hlýtt bros og fallegar hendur. Það var reisn yfir þér; þú varst bæði tignarleg og kvenleg og þú ilmaðir svo vel. Eftir þessa fyrstu heimsókn stóð heimili ykkar Óla í Álfa- skeiðinu mér ætíð opið einsog þétt faðmlag. Hvergi leið mér betur. Ég gerði ykkur að fólkinu mínu og ég sem var alltaf hjart- anlega velkomin varð ykkar. Ef ég var svo heppin að birtast á matmálstíma, sagðirðu: „Viltu ekki borða með okkur, Dúa mín?“ Auðvitað vissirðu svarið. Ég þáði ég boðið alltaf, enda var matur á borðum sem enginn gat staðist og þá ekki hún ég. Þú þekktir þitt heimafólk. Milli okkar myndaðist fljótt bæði vinátta og virðing. Við átt- um saman andlegt ríkidæmi og endalaus spjallkvöld. Þú varst húmoristi og hláturmild eftir því. Pólitíkina bar oft á góma, rétt- lætiskennd þín var heit og þú vildir öllum í heiminum vel og ekkert minna en það. Þú varst líka ráðagóð hverjum þeim sem leitaði til þín, góður sögumaður, tónelsk og ljóðelsk, þuldir jafnvel upp heilu ljóðabálkana ef því var að skipta og ef þannig lá á þér. Það var líka dásamlegt að tala við þig um bækur – og enga manneskju hef ég þekkt sem var eins dugleg að nýta sér bóka- safnið. Hvað þú gast lesið, Hanna mín, þú varst eiginlega óseðjandi alæta á bækur. Þú elskaðir að dansa við góða tónlist. Haukur Morthens og Leonard Cohen voru þínir menn. Eitt laga Cohens, af svo mörg- um, fjallar um einmanaleikann. Þú skynjaðir hann enda hafðir þú kynnst sorginni djúpu þegar þú misstir Óla, manninn þinn, og í janúar 2007 Gunna, drenginn þinn. Þá bergmálaði tómið í hjarta þínu, en þú varst sterk og lést ekki bugast. Styrkur þinn fólst í því að þú hélst áfram að lifa lífinu, lifandi. Þú varst fé- lagsvera, tókst að þér ýmis fé- lagsstörf og lagðir alúð í þau einsog annað. Allt dansaði í höndum þér einsog tindátar í taktföstum takti. Hendur þínar voru raunar gæddar töfrum, þær voru töfrahendur; það sann- reyndi ég oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þú varst elskuð af barnabörn- um og barnabarnabörnunum. Þú lifir áfram í þeim og börnunum þínum. Mikill er missir þeirra. Ég mun alltaf sakna þín, sér- lega þegar ég kem í Fjörðinn, tindátatakturinn verður annar í lífinu og það verða daufari litir í haustinu. Nú ertu stödd í öðrum Firði, Hanna mín, milli hvítra blóma og blárra og Óli og Gunni eru þarna hjá þér og svei mér ef það er ekki glatt á hjalla . Ég votta Önnu, vinkonu minni, öðrum börnum þínum og fólkinu þínu öllu mína dýpstu samúð. Anna Þrúður Grímsdóttir. Guðlaug Hanna Friðjónsdóttir HINSTA KVEÐJA Mig langar að minnast elsku ömmu minnar. Elsku amma Hanna mín. Ég man allar heimsóknirn- ar sem ég og mamma fór- um í til þín. Þú tókst á móti okkur svo brosmild og faðmaðir mig lengi að þér. Þú varst mér alltaf svo góð og skildir mig svo vel. Núna ertu komin til afa Óla, hann passar þig vel er ég viss um. Ég er svo glaður að hafa átt ykkur fyrir ömmu og afa. Takk fyrir allt, ég elska þig. Þinn Björgvin Axel. Það er fallegur dagur og leiðin liggur til Blönduóss til að fylgja Helgu Lárusdóttur til grafar. Hugur minn hverfur aftur í tímann til þeirra sumra sem ég var í Þór- ormstungu hjá Helgu og Helga. Ég var fimm ára gömul þegar ég kom fyrst að Tungu. Allt var tilbúið, mamma búin að merkja fötin mín og kaupa handa mér gúmískó. Ég hlakkaði mikið til og var líka pínu kvíðin því ég fékk nú stundum að skríða upp í hjá foreldrum mínum þegar mér leið illa. Ég komst fljótt að því Helga Sigríður Lárusdóttir ✝ Helga SigríðurLárusdóttir fæddist 14. apríl 1922. Hún lést 26. september 2016. Útför hennar fór fram 11. október 2016. að kvíðinn var óþarfur því ef mér leið illa mátti ég al- veg skríða upp í til Helgu. Helga var kærleiksrík kona sem hugsaði vel um okkur. Hún sat stundum við eld- húsborðið og lagði kapal með snjáðum spilum og drakk kaffi úr bolla. Það var alltaf viss spenna þegar við krakkarnir fengum pakka. Pakkana opnuðum við eldhús- borðið og Helga tók nammið, skammtaði okkur á helgidögum og passaði upp á að allir fengu jafnt. Það var dýrmæt reynsla fyrir fimm ára stelpuskott að kynnast sveitinni og störfunum þar. Fyrsta sumarið var ég í mánuð, en sumrin eftir það dvaldi ég frá því að skóla lauk á vorin og þar til skóli byrjaði að hausti. Mér er ofarlega í huga þegar Helga kom til mín og sagðist ætla að sýna mér svolítið. Hún tók í höndina á mér og leiddi mig út í fjárhús. Við settumst á garðabandið. Helga benti mér á kind og sagði mér að fylgjast vel með henni. Fljótlega fædd- ust tvö lömb og var þetta í fyrsta skipti sem ég sá kind bera. Það var ýmislegt sem við krakkarnir gerðum. Vinnan við heyskapinn, Gísli keyrði trak- torinn með rakstrarvélinni og við Elva rökuðum á eftir með hrífum. Við fórum með Helga á Willisjeppanum í girðingavinnu fram á Bungu. Helgi útbjó fyrir okkur veiðistangir: hrífuskaft með spotta og öngul á enda spottans og kenndi okkur að renna fyrir fisk í ánni. Þegar við vorum ekki að sinna sveitastörf- unum lékum við okkur í Fagra- dal með leggi og horn og fórum í útreiðatúra. Það var ekki flók- in hestamennska, bara skottast út í girðingu með beisli, lagt við og vippað sér á bak og oft tví- mennt á Bleik. Gamli torfbærinn í Tungu var ævintýraheimur fyrir okkur krakkana. Þangað leiddi hún Dísa okkur eitt sinn til að sjá þjóðþekktan draug: Skinnpylsu. Eitt kvöld að hausti til vorum við að horfa í áttina að gamla bænum þegar við sáum ein- hverja veru koma gangandi frá bænum og við Elva horfðum hvor á aðra og vorum vissar um að Skinnpylsa væri að koma, en þegar veran kom nær sáum við að þetta var Helga. Í sumar sem leið vann ég einn mánuð á Sjúkrahúsinu á Blönduósi og fékk þá að annast Helgu en hún dvaldi þar síðustu ár ævi sinnar. Ég sat stundum og rifjaði upp tímana í Tungu og það var svo gaman að sjá hvað glaðnaði yfir henni þegar ég kom inn á stofuna til hennar. Hún þekkti mig alveg og mundi vel eftir því þegar ég kom fyrst í sveitina til þeirra Helgu og Helga. Í dag lít ég á það sem forréttindi að hafa fengið að kynnast sveitastörfunum og er ævinlega þakklát fyrir sumrin í Vatnsdalnum, fallegasta dal landsins og fyrir dýrmæta sam- veru með Helgu Lárusdóttur. Ingibjörg M. Aadnegard.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.