Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 22

Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 ✝ Ragna Bjarna-dóttir (oftast kölluð Lóa) var fædd 6. júlí 1921 í Hafnarfirði. Hún lést á Landakoti 8. október 2016. Móðir hennar var Guðbjörg Gunnlaugsdóttir, f. 1898, d. 9. október 1929. Yngri systk- ini Rögnu voru Svanur Jónsson, Jónas Jónsson og Guðbjörg Jónsdóttir. Öll látin. Hinn 27. nóvember 1942 giftist Ragna Hermanni Sig- urðssyni, f. 6. júlí 1921, d. 9. mars 1956. Börn þeirra eru: 1. Sigrún Hermannsdóttir, f. 28.12. 1944, gift Sveini Að- alsteinssyni og Jónas Her- mannsson, f. 25.10. 1946, gift- ur Önnu Sigurlínu Karlsdóttur. Börn Sigrúnar: Ragna Björg Sigrúnardóttir, f. 3.7.1964, Árni Sveinsson, f. 9.5. Ágústsson, Stefán Snær Ágústsson, Gunnar Jökull Ágústsson, Alma Hildur Ágústsdóttir, Ágúst Bjarki Ágústsson, Atli Feyr Ágústs- son, Breki Freyr Ágústsson. Jó- hanna Birna Halldórsdóttir. Barnabarnabarnbörn: Esjar Kjartansson, Eldar Kjart- ansson. Ragna ólst upp í Hafnarfirði til átta ára aldurs. Eftir lát móður hennar var hún send í Kotvog í fóstur til Hildar Thor- arensen, ekkju Ketils Ketils- sonar í Höfnunum. Ragna fór ung til Reykjavíkur og starfaði fyrst í húsmennsku en hóf fljót- lega störf í Víkingsprenti. 1942 tók við stofnun fjölskyldu henn- ar og Hermanns og barnaupp- eldi. Hermann var sjómaður og Ragna hélt heimilið. Eftir svip- legan dauða Hermanns fór Ragna á ný út á vinnumark- aðinn, í þetta sinn í tvöfalda vinnu. Fyrri hluta dags hjá Prentsmiðju Gutenbergs og um kvöld og helgar í Austurbæj- arbíói. Seinna meir vann hún eingöngu í Austurbæjarbíói og var þar til 65 ára aldurs. Útför Rögnu fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 18. október 2016, klukkan 15. 1976, Hrönn Sveinsdóttir, f. 25.7. 1977, Marta María Sveins- dóttir, f.11.3. 1980. Börn Jón- asar: Soffía Jón- asdóttir, f. 30.8. 1966, Halldór Jón- asson, f. 29.10. 1967, Hermann Jónasson, f. 31.8. 1969, Karl Friðrik Jónasson, f. 14.6. 1975, Ragnar Jónasson, f. 25.7. 1978, Jónas Valur Jónasson, f. 31.7. 1984. Barnabarnabörn: Melkorka Kevyn Licea, Katla Matthildur Owens. Lóa Árnadóttir. Nína Thyrí Meyers, Úrsúla Sigrún Meyers, Mía Margrét Meyers. Anna Brynhildur Hermannsdóttir, Elín Friðrikka Hermannsdótt- ir, Bríet Stefanía Her- mannsdóttir. Emelía Anna Jón- asdóttir. Egill Almar Ágústsson, Kjartan Logi Þegar ég kveð tengdamóður mína, Rögnu Bjarnadóttur, hinstu kveðju er margs að minn- ast. Lóa, en það gælunafn hlaut Ragna barnung, missti móður sína, Guðbjörgu Gunnlaugsdótt- ur, 8 ára gömul og fór þá til Hildar Jónsdóttur Thorarensen, sem stýrði stórútgerðarbúi í Kotvogi í Höfnum. Lóa fór ung að heiman, fyrst til Reykjavíkur í húsmennsku en síðar fór hún að vinna hjá Birni Jónssyni í Víkingsprenti. Lóa giftist Her- manni Sigurðssyni, sjómanni frá Neskaupstað, 1942. Þau eignuð- ust tvö börn, Sigrúnu 1944 og Jónas 1946. Segja má að Lóa og Hermann, sem voru jafnaldrar upp á dag, hafi verið hin dæmi- gerða lýðveldiskynslóð, sem upplifði um tvítugt þær ótrúlegu breytingar, sem urðu í síðari heimsstyrjöldinni á Íslandi. Lífs- glöð og full væntinga um fram- tíðina tókust þau á við það verk- efni að búa sér og börnum sínum heimili. 9. mars 1956 varð það hörmu- lega slys að vélbátur Hermanns, Vörður, fórst með allri áhöfn við Selvog á Reykjanesi. Lóa, 34 ára gömul, stóð við áfall þetta eigna- laus eftir með tvö ung börn. Með dugnaði og harðfylgi tókst henni að verða sér úti um íbúð fyrir sig og börnin, fyrst í Hólmgarði og síðar við Stigahlíð. Til að svo mætti verða varð hún um margra ára skeið að vinna tvö- falda vinnu, annars vegar í Prentsmiðjunni Gutenberg og hins vegar í Austurbæjarbíói. Síðari vinnustaðurinn varð henn- ar aðalvinnustaður um áratuga skeið, þaðan sem margir bíó- gesta liðinna áratuga minnast hennar. Lóu kynntist ég vorið 1975, þegar við Sigrún hófum sambúð ásamt 11 ára dóttur Sigrúnar, Rögnu Björgu. Þegar við upp- hafskynni var mér ljóst að í Lóu bjó mikilhæfur persónuleiki, sem ekki hafði látið mótlætið buga sig, heldur barðist af hörku fyrir sig og sína. Ragna Björg var Lóu sem önnur dóttir, sem átti gott athvarf hjá ömmu sinni á unglingsárunum, þegar fjölga tók í fjölskyldunni. Á sama hátt nutu börn okkar Sigrúnar, Árni, Hrönn og Marta María, góðs af frábærri „bíó ömmu“ til að leita til og heimsækja. Sama átti við um syni Jónasar og Önnu Karls- dóttur, þá Hermann, Karl Frið- rik, Ragnar og Jónas, sem nutu heimsókna til ömmu sinnar í bíó- ið. Lóa hafði alla tíð unun af að ferðast til útlanda og þrátt fyrir litlar tekjur gat hún með dugn- aði og útsjónarsemi, m.a. með prjónaskap, ferðast meðan heils- an leyfði. Lóa var mikil dama og var ætíð vel klædd og snyrt. Einnig var dans hennar uppáhald. Þannig höfðu þau Hermann ver- ið danspar, sem eftir var tekið í danshúsum Reykjavíkur á fimmta áratugnum. Lóa flutti 1994 í vistlega íbúð í fjölbýlishús VR við Háaleitis- braut. Hún var þeirrar gæfu að- njótandi að vera heilsuhraust alla tíð. Einasta sem háði henni síðustu árin var sjóndepurð, sem varð til þess að hún varð fyrir nokkrum árum að hætta við að spila brids og vist, en auk dans- ins var spilamennska hennar að- aláhugamál. Um leið og við fjölskyldan kveðjum Lóu er okkur hollt að minnast þrautseigju hennar og staðfestu við að sigrast á erf- iðleikum, sem nútímafólki myndi virðast óyfirstíganlegir. Blessuð sé minning Rögnu Bjarnadóttur. Sveinn Aðalsteinsson. Elsku Lóa amma mín. Þú varst alltaf svo sæt og fín. Ég elska þig svo heitt. Þú varst með svo falleg blá augu og flottar krullur. Þú varst alltaf svo góð við mig. Ég mun sakna þín á jól- unum því það var svo gaman að koma til þín á aðfangadag og fá heitt súkkulaði, og þú gafst mér alltaf svo falleg náttföt. En nú ertu komin til afa og hann mun hugsa vel um þig. Ég sakna þín og elska þig, þín Emilía Anna. Jónas Valur Jónasson Elsku flotta amma mín. Sterk, úrræðagóð, sjálfstæð, tignarleg, tímalaus, elegant, með fallegustu hendur á Íslandi. Ég var lítil stelpa sem átti yndislega táningsmömmu en engan pabba, afa eða föður- ömmu. En ég átti þig, amma, og þú varst mitt annað foreldri. Þökk sé þér og mömmu er barnæska mín stútfull af falleg- um, sólríkum minningum. Á hverju vori fórstu með mig í Sundhöllina á sundnámskeið og beiðst á meðan Ernst Bachman kenndi mér sundtökin og keyptir svo appelsín fyrir mig fyrir dugnaðinn. Síðan gekk ég með þér í vinnuna, fylgdist með þér í pínulitlu reykmettuðu miðasöl- unni, stalst inn á mynd eða hljóp um anddyrið í Austurbæjarbíói. Heima hjá þér í Stigahlíðinni stóð ég á stól við háan svefn- herbergisgluggann og horfði á umferðina á Miklubraut. Á brennuna í mýrinni. Fálmaði of- an í fínan lakkskó og fann mand- arínu og múrsteinakökur. Á aðfangadag kúrði ég í sóf- anum sem ég seinna um kvöldið svaf í og gæddi mér á marm- araköku sem þú galdraðir fram en mundir aldrei uppskriftina að. Á jóladagsmorgun færðir þú mér síðan heitt súkkulaði í rúm- ið. Alvöru súkkulaði. Sex ára var ég send í sveit. Mamma var einstæð móðir en hennar sumarfrí var ekki í sam- ræmi við skólafríið. Mér leið illa í sveitinni og þú, amma, varst í sumarvinnu hjá orlofi húsmæðra og komst að heimsækja mig. Klæddri fallegri dragt og háhæl- uðum skóm leiddi ég þig inn um skítugar bakdyr og það tók þig fimm mínútur að ákveða að þetta var barnabarni þínu ekki samboðið. Áður en ég vissi af varstu búin að pakka niður dótinu mínu og hafa mig með þér á brott. Út um framdyrnar! Ég gleymi aldrei gleðinni þegar við ókum á brott. Með tóp- aspakka í aftursætinu sá ég bæ- inn fjarlægjast. Þú amma, hetj- an mín. Þú varst ekki amma sem sast í ruggustól og þú prjónaðir ein- göngu til að safna fyrir utan- landsferðum. Og þú sast ekki með mér yfir kverum og æv- intýrum en saman sáum við Á Hverfanda hveli í Gamla bíói og allar Apaplánetumyndirnar í Nýja bíói. Á þjóðhátíðardaginn trommaðir þú með mig 7 ára á ball á Hótel Borg. Sem unglingur átti ég athvarf hjá skilningsríkri ömmu sem stjanaði við skapþunga barna- barnið og hvatti það til að dansa og fara seint að sofa. Mörgum árum síðar gerði ég mér grein fyrir því að þú varst ekki bara flotta amma sem bauðst vinum mínum í bíó. Þú varst ótrúlega sterk kona. Mun- aðarlaus 8 ára og ekkja með tvö börn 34 ára. Þú vannst myrkr- anna á milli svo að við sem þér þótti vænst um liðum ekki skort. En þrátt fyrir það hefði enginn nokkurn tímann gripið þig utan hússinsdyra án eyrnalokka eða í lummó skóm. Þú varst prinsipp- kona og tókst aldrei stuttu leið- ina ef sú langa var heiðarlegri og réttsýnni. Löngu seinna lærði ég að þú áttir draum um að verða dansari sem þótti út í hött á fjórða ára- tugnum. En þú elskaðir að dansa og lést aldurinn aldrei halda aftur af þér ef Haukur Morthens eða Raggi Bjarna hljómuðu. Ég hélt að þú værir ódauðleg. Fegurð þín og styrkur virtust aldrei þverra. Ég vona að mér takist að miðla einhverjum af öllum þín- um guðsgjöfum til dætra minna. Bless í bili amma mín eina. Ragna Björg. Í dag kveðjum við ömmu Lóu en hún lést á 96. aldursári. Amma var ein af þessum kjarna- konum sem þurftu að hafa mikið fyrir lífi sínu. Hún var ótrúleg kona og ég held að við í fjöl- skyldunni eigum eftir að átta okkur á því hversu mikil ætt- móðir hún var í raun. Það lýsir ömmu vel að hún lék í tónlistar- myndbandi sem dóttursonur hennar framleiddi nokkrum mánuðum áður en hún kvaddi þennan heim. Ég hef alla tíð metið ömmu mikils og haft dugnað hennar og þrautseigju að leiðarljósi þegar ég hef þurft að takast á við erf- iðleika í mínu lífi. Eftir að ég varð fullorðinn urðu tengsl mín og samskipti við ömmu nánari. Ég á góðar minningar um ömmu þegar hún sagði mér frá upp- vaxtarárum sínum og lífshlaupi. Þeim erfiðleikum sem hún kynntist þegar hún missti mann- inn sinn 36 ára gömul með tvö ung börn á framfæri. Hún stóð ein og þurfti að koma undir sig fótunum á ný í þeim erfiðu að- stæðum sem þá ríktu í Reykja- vík. Amma giftist aldrei aftur, hún syrgði Hermann afa til ævi- loka. Nú eru þau sameinuð á ný og vona ég að næsti kafli verði ömmu minni léttari, hún á það skilið eftir allt sem hún lagði á sig hérna megin. Hún skilur eft- ir sig stóra fjölskyldu sem mun halda arfleifð hennar í heiðri. Okkur hjónunum þótti yndis- legt að heimsækja hana í Hvassaleitið með stelpurnar okkar Önnu, Ellu og Bríeti á að- fangadag og fá heitt súkkulaði og marmaraköku sem amma Lóa framreiddi af svo mikilli al- úð, meira af vilja en mætti í síð- ustu skiptin. Við munum halda hefðinni og minnast hennar yfir heitu súkkulaði og marmara- köku á aðfangadag í framtíðinni. Stelpurnar mínar eiga eftir að sakna ömmu Lóu, þær eru þakk- látar fyrir að hafa náð að kveðja hana á spítalanum. Þegar ég heimsótti ömmu Lóu fyrst á spítalann nú í september sagði amma mér að hún vildi fara í endurhæfingu eftir óhappið og drífa sig heim. Þetta lýsir þér, elsku amma, alltaf þessi dugn- aður og þrautseigja. Nú ertu komin á góðan stað með afa Hermanni. Minningin lifir. Hermann og fjölskylda. Ég var um það bil fimm ára þegar ég lærði að rata alla leið í Austurbæjarbíó frá heimili okk- ar á Flókagötunni. Árið hefur verið 1982 og amma mín, Ragna Bjarnadóttir, hafði unnið í Aust- urbæjarbíói um áratugaskeið. Amma var kölluð Lóa af öllum sem hana þekktu og var órjúf- anlegur hluti af töfraveröld kvik- myndanna. Svo mikilvæg var viðvera hennar í endurminning- um þeirra sem biðu í röð eftir þrjúbíó að þegar skáldsagan Punktur punktur, komma strik var kvikmynduð í bíóinu kom ekki annað til mála en að amma stæði vaktina í miðasölunni í myndinni. Í senunni er hún látin segja krökkunum sem eru að kaupa af henni miðana að „passa á sér krumlurnar“ en hún sagði mér sjálf að það hefði hún aldrei sagt í raunveruleikanum. Hún sá oft aumur á krökkunum sem stóðu í röðinni, tínandi aura upp úr vösum – og hleypti þeim frítt inn. En raunveruleikinn er ekki alltaf einsog við viljum sjá í bíó. Þegar ég hafði komist upp á lag með að rata til ömmu af sjálfs- dáðum í Austurbæjarbíó dvaldi ég þar löngum stundum. Bíóið var sveipað dulúð, forboðnum hlutum og glamúr, og Lóa amma mín var þar í aðalhlutverki. Í endurminningum bernskunnar, þar sem Íslendingasögurnar blandast saman við Stjörnustríð, Enter the Dragon við Eddu- kvæðin, er amma mín einhvers konar hliðvörður himnaríkis og film noir-karakter úr hinum dularfulla heimi fullorðna fólks- ins. Íbúðin hennar í Stigahlíð geymdi anda þeirra tíma þegar tilveran var ívið glæsilegri, pól- eraðri og plussklæddari heldur en litlausu úthverfin þar sem ég var að alast upp. Amma átti marmaraöskubakka og drakk vodka í kók úr kristalsglasi. Afi minn leit út einsog kvikmynda- stjarna á svarthvítum myndum á veggjum. Amma leyfði okkur að borða sælgæti og horfa á seinni myndina í Ríkissjónvarpinu sem var bönnuð börnum. Þetta var alvöru líf. Seinna kynntist ég ömmu minn sem fullorðin kona. Ég átt- Ragna Bjarnadóttir Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Þorsteinn Elísson ✝ Jóhanna Pét-ursdóttir fædd- ist á Breiðdalsvík 2. maí 1948. Hún lést á kvennadeild Landspítalans 5. september 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin Pét- ur Sigurðsson kaupfélagsstjóri og athafnamaður frá Ósi í Breiðdal, f. 1917, og Bergþóra Sigurð- ardóttir húsmóðir, f. 1922 að Skjöldólfsstöðum í Breiðdal. Jó- hanna var næstelst systkina sinna. Þau eru: Arnleif, f. 1946, Sigurður, f. 1950, Hreinn, f. 1953, og Pétur, f. 1958. Eftirlifandi eiginmaður Jó- hönnu er Sveinn Frímann Jó- hannsson, f. 1944. Barn þeirra stundaði nám við Héraðsskól- ann á Laugavatni í tvo vetur og síðar við Húsmæðraskólann, einnig á Laugavatni. Hún vann sem au-pair stúlka einn vetur í Englandi en síðan starfaði Jó- hanna lengi vel sem dagmóðir á höfuðborgarsvæðinu. Árið 1980 flutti hún svo á Breiðdalsvík og vann við bókhald hjá hrað- frystihúsinu í rúman áratug. Þá ráku þau Sveinn um nokkurra ára skeið ljósmyndafyrirtæki í Mosfellsbæ. Lengst af starfaði Jóhanna þó sem launafulltrúi á Reykjalundi. Þar átti hún far- sælan starfsferil og var nýbúið að heiðra hana fyrir dygga þjónustu í tvo áratugi. Jóhanna lést á kvennadeild Landspít- alans þann 5. september og fór útförin fram í kyrrþey að ósk hennar. er Elsa Guðrún, f. 1990. Sonur Sveins er Heiðar, f. 1968. Jóhanna átti fyr- ir tvö börn með Stefáni Hallgríms- syni, f. 1948. 1) Hallgrímur, f. 1970, maki Una Björg, f. 1977. Barn þeirra er Orri Hrafn, f. 2015. Hallgrímur átti fyrir Stefán Fannar, f. 2005, og Una átti Örnu Eiri f. 2009. 2) Ír- is f. 1973, maki Jóhann Sveinn, f. 1971. Börn þeirra eru Sara Hlín, f. 2000, Birkir Ísak, f. 2002, og Daði Freyr, f. 2013. Jóhanna ólst upp á Breið- dalsvík og gekk í heimavist- arskóla á Staðarborg. Við 18 ára aldur fór Jóhanna suður og Elsku amma Jóhanna. Takk fyrir alla þá umhyggju og ástúð sem þú sýndir okkur. Það var alltaf svo gott að heim- sækja ykkur afa í Mosó og kíkja í garðinn ykkar sem þú hugsaðir svo vel um. Við fengum oft að gista hjá ykkur og þá var stund- um spilað, kubbað, lesnar bækur eða horft á mynd. Það voru góð- ar stundir. Marengstertan þín var einstök og var hún ómiss- andi í afmælin okkar. Þú gafst þér ávallt tíma fyrir okkur og varst alltaf tilbúin að rétta okk- ur hjálparhönd. Þú varst okkur svo góð. Við söknum þín, amma. Þér ég þakka vináttu og góðar stundir. Hlýja hönd og handleiðslu, okkar stundir saman. Bjartar minningar lifa ævina á enda. Sara Hlín, Birkir Ísak og Daði Freyr. Jóhanna systir er látin eftir baráttu við illvígan sjúkdóm. Á kveðjustund leita minningar á hugann.Ég læt hugann reika til uppvaxtaráranna í litlu þorpi austur á landi þar sem við systk- inin fæddumst og ólumst upp. Breiðdalsvík var að verða til, nokkur hús á fjörukambinum. Þá var mikil atvinna á síldarár- unum og mikið af ungu fólki sem kom austur til að vinna í síldinni yfir sumartímann. Jóhanna vann mikið við síldarsöltun og var handfljót og rösk. Átti hún oft Jóhanna Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.