Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 24

Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Eins og við minn- umst pabba. Pabbi var ein- staklega kærleiksríkur og um- hyggjusamur maður sem mátti ekkert aumt sjá. Allir sem þekkja hann vita að hann var mikill húm- oristi og fengu flestir að finna það strax við fyrstu kynni. Enginn var óhultur fyrir gríninu og til dæmis leiðrétti hann barnabörn- in sín þegar þau heilsuðu honum og sagðist vera amma þeirra, ekki afi. Hann var iðjusamur og orð- lagður handverksmaður. Allt lék í höndunum á honum, sama hvað hann tók sér fyrir hendur. Það var alltaf mikið hlegið þegar við hittumst og sama hversu langt leið á milli heimsókna var samt alltaf eins og við hefðum hist dag- inn áður, enda frábær gestgjafi. Pabbi var gríðarlega orðhepp- inn og enginn sagði sögur á sama hátt eða jafn skemmtilegar. Sög- urnar þínar væru efni í bók, lík- legast nokkur bindi og fæstar við hæfi í minningargrein. Magnús Bjarni Guðmundsson ✝ Magnús BjarniGuðmundsson fæddist 29. nóv- ember 1944. Hann lést 4. október 2016. Útför Magnúsar Bjarna fór fram 14. október 2016. Þegar við vorum börn sagði hann okkur klassískar sögur með breytt- um söguþræði. Eitt skiptið lét hann til dæmis Rauðhettu gleypa úlfinn sem hafði bankað í sak- leysi sínu upp á til að spyrja hvað klukkan væri. Allt til síðasta dags var stutt í húmorinn. Þegar hann veiktist fyrst og lá á spít- alanum lá konan hans á sama tíma á hæðinni fyrir neðan. Var hann nýkominn úr aðgerð og tengdur við allskyns slöngur þeg- ar hann ákvað að kíkja á hana. Þegar hann fór í lyftuna voru þar fyrir tvær hjúkrunarkonur sem höfðu áhyggjur af því hvert hann væri að fara. Pabbi var fljótur að svara: „Á ball ... Hvar eru leigu- bílarnir?“ Pabbi átti alltaf hunda. Meðal annars Lassa, allavega þrjá Prinsa og einn Rex. Einnig sá hann ótal köttum fyrir fæði, sér- staklega í seinni tíð. Dýrin voru honum mjög hjartfólgin. Síðasti hundurinn, Rex, sem Elfa gaf honum í afmælisgjöf var í ein- stöku uppáhaldi. Þó það verði nú ekki lengur hægt að hlæja með þér að sög- unum þínum munum við geta ylj- að okkur við minningar af sam- Afi. Takk fyrir margar góðar stundir á Hámund- arstöðum. Margar af góðu minningum æskunnar koma einmitt þaðan. Amma í eldhús- inu að rista brauð fyrir okkur krakkana og búa til skyr meðan þú, afi, hlustaðir á fréttirnar. Allan daginn vorum við frænd- systkinin úti að leika og á kvöldin áttum við góðar stundir með ykkur. Það var gaman að sjá vinnuaðstöðu þína í kjallar- anum og nákvæmu vinnubrögð- in þín í innrömmun. Heilindin voru ávallt í fyrirrúmi hjá þér og ömmu, sem er ávallt besta fararnestið. Ég veit að þú ert kominn til ömmu núna og þarft ekki að sakna hennar lengur. Ólafur Helgi. Elsku afi, kallið er komið og þú ert búinn að yfirgefa okkur. Það er sárt að missa þig en við vitum að þú ert kominn á stað þar sem þér líður vel. Það var yndislegt að fá að alast upp hjá ykkur ömmu, allar góðu stund- irnar eru ljóslifandi í huga mín- um. Það er margs að minnast og sakna, t.d. bara það að heyra í flautunni á skutlunni þegar þú mættir í innkeyrsluna og fékkst Ólafur Helgi Jónsson ✝ Ólafur HelgiJónsson fædd- ist 24. ágúst 1925. Hann lést 9. októ- ber 2016. Útför Ólafs Helga fór fram 15. október 2016. í kjölfarið kakó og ristað brauð. Í seinni tíð minnist ég þess vel hve ánægður og áhuga- samur þú varst um sjómennsku Tóm- asar og síðar Kára. Ánægjusvipurinn þegar vel fiskaðist leyndi sér ekki. Þegar Alexandra mín lét skíra sitt annað barn í höfuðið á ömmu fannst mér kvikna ljós innra með þér, ánægja og gleði. Unnur Ólöf og Jóhanna Marín náðu að hitta þig nýlega og eiga góða stund með þér, en elsku Jóhanna Marín mín virtist þó alltaf hafa eitthvað á tilfinningunni. Nú hefur þú góða yfirsýn yfir okk- ur öll og getur fylgst með af sama áhuga og áður. Góða ferð, elsku afi minn, og takk fyrir allt. Dagmar Helga. Elsku afi Olli. Þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Eins erfitt og það er að kveðja þá hlýjum við okkur við þá hugsun að nú færð þú loksins að hvílast við hlið ömmu Lólóar, sem hefur ef- laust tekið á móti þér með pönnukökum og kakói. Eins og fjögurra ára Tómas Rafn sagði sorgmæddur við fréttirnar, þá er hann alveg viss um að fót- urinn þinn sé orðinn góður nú þegar þú ert orðinn engill á himnum. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég hugsa um okkar tíma saman. Ég var svo heppin að fá að alast upp á Norðfirði og eiga alltaf samastað hjá ykkur ömmu. Takk fyrir að gefa þér tíma til að sitja yfir mér á hverjum degi til að kenna mér á píanó. Þú spilaðir öll lögin í bók- inni aftur og aftur fyrir mig svo litla barnabarnabarnið þitt gæti lært lögin utan að. Takk fyrir að sitja yfir sjónvarpinu og taka upp allar myndir sem þér datt í hug að mér gætu þótt skemmti- legar. Takk fyrir að baka alltaf góða brauðið þitt fyrir mig. Takk fyrir að vera alltaf til staðar. Ég mun alltaf muna eftir ein- læga brosinu þínu og stolti sem þú sýndir þegar við skírðum Ólöfu Töru í höfuðið á ömmu. Hlátrinum þínum þegar litla eins og hálfs árs breddan sagð- ist af sjálfsdáðum heita Lóló. Þú varst allt sem maður gæti óskað sér í afa og miklu meira en það. Takk fyrir allt, afi minn. Hlýjar kveðjur, Alexandra. Elsku langafi okkar, mikið sem við eigum eftir að sakna þín. Við geymum allar fallegu minningarnar í hjörtum okkar og munum aldrei gleyma þér. Undir háu hamra belti höfði drúpir lítil rós. þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn rósin mín. Er kristallstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður kyssa blómið hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson.) Þín barnabörn Kristjana Vala, Viktoría Sólveig og Alexander Óli. ✝ Gerður Gunn-laugsdóttir fæddist í Reykja- vík 22. mars 1928. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli 30. sept- ember 2016. Foreldrar henn- ar voru Katrín Sigurðardóttir, fædd í Miðhúsum, Oddasókn í Rang- árvallarsýslu, 9. mars 1900, d. 18. ágúst 1968, og Gunnlaugur Júlíus Sæmundsson, f. í Reykjavík 19. júlí 1903, d. 26. maí 1941. Gerður ólst upp hjá fósturforeldrum, þeim Þor- grími Jónssyni, f. 26. mars 1878 í Reykjavik, d. 9. janúar 1945, og Sigurbjörgu Illuga- dóttur, f. 27. júní 1879 í Stóra Lambhaga, Skilmannahreppi, d. 15. mars 1954, ásamt stórum systkinahópi þeirra hjóna á börn Sigurbjargar og Ragnars eru átta. 4. Kristjana Katrín, f. 14. febrúar 1962, gift Þór Gunnarssyni, þau eiga tvo syni, Bergsvein og Eyþór Jón. Barnabörn Kristjönu Katrínar og Þórs eru þrjú. Gerður átti eina hálfsystur, Ingibjörgu Jónu Gunnlaugs- dóttur, f. í Reykjavík 22. apríl 1930. Ingibjörg Jóna giftist Ólafi V. Sigurjónssyni, f. 7. júní 1928, d. 1. apríl 1995. Ingi- björg og Ólafur eignuðust fjög- ur börn. Starfsævi Gerðar fólst í ýms- um störfum. Lengst af var hún heimavinnandi húsmóðir. Úti- vera var hennar líf og yndi. Hún elskaði að anda að sér fersku lofti og kom því ekki á óvart að hún skyldi velja starf þar sem útivera kom við sögu en það var að bera út póst. Hún starfaði við póstburð í 10 ár. Gerður tók meðal annars þátt í félagsstarfi eldri borg- ara og söng í Gerðuberg- skórnum. Útför Gerðar fer fram frá Langholtskirkju í Reykjavík í dag, 18. október 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Laugavegi 151. Gerður giftist þann 27. mars 1948 Þorgrími Kristmundssyni, f. 12. maí 1925, d. 29. apríl 2013. Þor- grímur og Gerður eignuðust fjögur börn; 1. Jón, f. 10. desember 1947, giftur Margréti Ólafsdóttur, þau eiga þrjú börn, Ólaf, Björgu og Þorgrím. Barnabörn Jóns og Margrétar eru sjö. 2. Hrafn- hildur, f. 8. nóvember 1949, sambýlismaður hennar er Jón Marteinn Guðröðsson. Börn Hrafnhildar eru; Þorgrímur, Gerður, Eva Ósk og Inga Dís. Barnabörn Hafnhildar eru sjö. 3. Sigurbjörg, f. 17. apríl 1954, gift Ragnari Guðjónssyni, þau eiga þrjár dætur, Sólrúnu, Margréti og Guðnýju. Barna- Elskulega mamma mín, mjúk er alltaf höndin þín. Tárin þorna í sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Með þessum orðum minnist ég þín, elsku góðu mömmu minnar. Þú varst elskuleg og góð og vildir öllum vel. Ég man vel þegar ég var lítil og kom heim með vinkonur mínar í „drekkutímanum“. Þá varstu með heitt kakó og ristað brauð handa okkur. Mamma var heimavinnandi í mörg ár og lagði mikinn metnað í að sauma og prjóna föt á okk- ur. Seinna sagðir þú mér að þú hefðir viljað nota tímann meira í að lesa og vera með okkur börn- unum þínum heldur en að sauma og prjóna. En svona var þetta á þessum tímum. Þá var ekki ver- ið að bruðla með peninga og kaupa fatnað og aðra munaðar- vöru. Við brölluðum margt skemmtilegt saman í gegnum árin. Gönguferðir, búðarráp og kaffihús eru mér efst í huga. Ég tala nú ekki um ísbíltúr. Það fannst þér alltaf jafn skemmti- legt. Þið pabbi áttu sumarbústað í Skyggnisskógi í tíu ár. Þangað kom stórfjölskyldan og við átt- um góðar stundir saman og margar skemmtilegar minning- ar ylja manni um hjartarætur. Oft var þröngt um okkur en það gerði samveruna ennþá skemmtilegri. Ég var í stórum vinkonuhópi þegar ég var unglingur. Því fylgdu stöðugar símhringingar, heimsóknir og ýmis uppátæki. Þú og pabbi voruð alltaf skiln- ingsrík og áhugasöm um vinkon- ur mínar og það sem við tókum okkur fyrir hendur. Þú tókst strax ástfóstri við Tóta minn þegar við vorum í til- hugalífinu. Sagðir hann vera góðan dreng. Alltaf, já ég meina alltaf, tókstu afstöðu með tengdasonum þínum. Við syst- urnar áttum oft í vök að verjast, en þó oftast í gríni. Við grín- uðumst oft og hlógum mikið saman en ég veit að þú gekkst í gegnum erfið tímabil á þinni lífsævi og ég veit að þér leið ekki alltaf vel. En þú varst mamma mín og ég ætla að geyma góðu stundirnar með þér í hjarta mínu alla tíð. Elsku mamma mín, ég á eftir að sakna þín mikið og minning- arnar um þig lifa með okkur ást- vinum þínum og þeim verður haldið við um ókomin ár. Þín Kristjana Katrín Þorgrímsdóttir. Voða finnst mér mikið vanta í líf mitt þessa dagana. Það hefur alltaf verið stór þáttur í lífi mínu að vera með ömmu og afa. Sem barn sótti ég fast að fá að vera hjá þeim um helgar og þegar unglingsárin tóku við kom ég alltaf við hjá þeim á föstudögum því þá var ég snemma búin í skólanum og amma komin snemma heim úr vinnunni. Amma var á undan sinni sam- tíð með margt. Hún aðhylltist Gerður Gunnlaugsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, MAGNÚSÍNU SIGURÐARDÓTTUR, Vogartungu 89, Kópavogi. Starfsfólki líknardeildar LSH í Kópavogi færum við þakkir fyrir góða umönnun og elskulegheit við hana. . Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Klara Sveinbjörnsdóttir Helgi Valgeirsson Sigríður Sveinbjörnsdóttir Kim Brigit Sorning Guðm. Baldursson Lára G. Vilhjálmsdóttir Þór Vilhjálmsson Elsa K. Helgadóttir Hjördís Vilhjálmsdóttir Anton Sigurðsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ARNGRÍMUR MARTEINSSON frá Ystafelli í Þingeyjarsveit, lést föstudaginn 7. október á Vífilsstöðum. Útförin verður haldin föstudaginn 21. október í Grensáskirkju klukkan 13. . Kári Arngrímsson, Birna Óskarsdóttir, Reynir Arngrímsson, Nanna Maja Norðdahl, Kara Arngrímsdóttir, Sveinn Arngrímsson, Elísabet I. Marteinsdóttir, Auðbjörg Arngrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þakka innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, SIGHVATS JÓNASSONAR, Fróðengi 1. Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hann á Eirborgum og hjúkrunarheimilinu Hömrum. Fyrir hönd fjölskyldunnar, . Valborg Lárusdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SVÖVU KRISTJÁNSDÓTTUR, Samtúni 26. Starfsfólkinu Sóltúni 2 færum við sérstakar þakkir fyrir hlýtt viðmót og vinarþel við umönnun móður okkar. . Þröstur Jónsson, Ellý Kratsch, Kristján Örn Jónsson, Þórunn J. Júlíusdóttir, Guðmundur Haukur Jónsson, Jóhanna Benediktsd., Guðrún Jónsdóttir, börn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.