Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Sölvi Sigurður Kjerúlf fæddist í Húsum í Fljótsdal en ólst upp íReykjavík. Hann var í gagnfræðaskóla og stundaði síðar nám viðStóriðjuskóla Íslands og lauk þaðan prófum sem stóriðjugreinir. Sölvi var til sjós á varðskipunum í nokkur ár en flutti að Búðum á Fá- skrúðsfirði 1962 og starfaði þar lengst af hjá Kaupfélagi Fáskrúðsfirð- inga. Hann flutti aftur til Reykjavíkur árið 1981 og hóf þá störf hjá Ís- lenska álfélaginu í Straumsvík, þar sem hann starfaði til 2006. Hann flutti síðan til Egilsstaða árið 2007 og hefur átt þar heima síðan. „Ég hætti að vinna 65 ára og hef verið í góðu yfirlæti á æskuslóðunum.“ Sölvi sat um árabil í stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðs- fjarðar og Leikfélags Fáskrúðsfjarðar. „Ég starfaði í nokkuð mörg ár í leikfélaginu og tók þátt í nokkrum mörgum uppfærslum. Ég fer ein- staka sinnum í leikhús en það hefur verið minna um það eftir að ég flutti aftur austur. Þetta er þó alltaf smá áhugamál. Ég hef alltaf verið bókmenntalega sinnaður og verið sérstaklega mikið fyrir bundið mál, ljóð og vísur, og mínir menn eru m.a. Steinn Steinarr og Karl Ísfeld.“ Sölvi er hæstánægður með að jafnaldri hans, Bob Dylan, hafi hlotið Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. „Ég byrjaði að hlusta á hann um 1968, ég er ekki mikið músíklega sinnaður og textarnir hans drógu mig að honum fyrst, lýríkin var númer eitt, en svo kom tónlistin. En ég hef áhuga á ýmsu öðru en bókmenntum og leiklist, hef stúderað t.d. jarð- fræði og flug, og tók einn kúrs hjá Ara Trausta Guðmundssyni. Ég er enginn flugmaður sjálfur en fylgist með þróuninni þar.“ Eiginkona Sölva er Ingibjörg Ragnarsdóttir, fyrrverandi skrifstofu- stjóri Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins að Mógilsá. Börn Sölva frá fyrra hjónabandi eru Eiríkur, María, Ingunn Fjóla, Bjarni og Sig- urður. Sölvi ætlar að halda upp á 75 árin á kosningadaginn með fjölskyldu og nánustu vinum. Kjerúlf Sölvi ásamt tveimur kanadískum frænkum sínum af Kjerúlfsætt. Er í góðu yfirlæti á æskuslóðunum Sölvi Kjerúlf er 75 ára í dag U nnur Guttormsdóttir fæddist í Reykjavík 18.10. 1941 og ólst þar upp. Hún var í sveit á sumrin á Kverná í Eyrarsveit hjá móðursystur sinni, Jarþrúði Ásmundsdóttur. Unnur gekk í Miðbæjarbarna- skólann, Kvennaskólann og tók stúdentspróf frá Öldungadeild MH. Hún útskrifaðist sjúkraþjálfari frá Sydsvenska sjukgymnast- institutet í Lundi í Svíþjóð, 1968. Unnur starfaði við Bräcke Öster- gård í Gautaborg í Svíþjóð á árunum 1969-72, sem er leikskóli og heima- vistarskóli fyrir fötluð börn frá tveggja ára aldri að mennta- skólastigi. Hún var sjúkraþjálfari hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatl- aðra 1972-74, tók þá þátt í uppbygg- ingu fyrsta leikskóla á Íslandi fyrir fötluð börn, sem seinna nefndist Múlaborg, var deildarsjúkraþjálfari á Barnaspítala Hringsins við Land- spítala 1974-76, yfirsjúkraþjálfari Endurhæfingardeildar Landspítal- ans 1976-82, var yfirsjúkraþjálfari Barnaspítala Hringsins, þar með talin Vökudeild, 1982-93, í náinni teymisvinnu við aðra starfsmenn Barnaspítalans, þar sem m.a. var byggt upp hert eftirlit svokallaðra áhættubarna, með tilliti til mats á al- mennum þroska. Þar var lögð áhersla á að greina börnin og hefja meðferð sem fyrst. Hún sinnti þjálf- un í vatni með kornabörnum sem viku frá í þroska á árunum 1982-95. Það var í fyrsta sinn sem slíkt var Unnur Guttormsdóttir barnasjúkraþjálfari – 75 ára Frumkvöðlar Fyrstu sjúkraþjálfararnir sem lærðu erlendis og halda hópinn. Unnur liggur útaf, fremst. Hefur stuðlað að færni og þroska barna Sjúkraþjálfarinn Unnur að störfum. Reykjavík Ívar Helgi Stefánsson fæddist 7. júní 2016 kl. 09:34. Hann vó 4.152 g og var 53 cm að lengd. Foreldrar hans eru Guðbjörg Halldórsdóttir og Stefán Árnason. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.